Morgunblaðið - 28.06.1963, Side 4
4
MORCVNRLAÐIÐ
Rauðamöl
Gott ofaníburðar- og upp
fyllingarefni. Vörubílastöð-
in Þróttur, simar 11471 til
11474
Ódýrar drengjapeysur
fallegar kvenpeysuf.
Varðan, Laugavegi 60.
Sími 19031.
Brunagjall
Reykjavík - KcflavUt. Upp-
fyllingar- og ofaníburðar-
efni. — Sími 14, Voigar.
Til leigu
traktorar, ámokstursvél og
skurðgrafa. Uppl. í símum
22453 og 23797.
Bílar til sölu
Plymouth ’42 og Chevrolet
’54, 2ja dyra. Mjög góðir
bílar. Uppl. í síma 12600.
Kona óskas
til að rsesta tannlækna-
stofu. Uppl. í síma 15725.
Gítarkennsla
Tek nokkra nemendur í
sumar. Uppl. í síma 1-88-42
kl. 6—8 í dag og næstu
daga.
Katrín Guðjónsdóttir.
Úðum garða
Pantanir mótteknar í síma
18686.
Kynning
Óska eftir að komast í
kynni við reglusama konu,
milli þrítugs og fertugs,
sem hefur hug á að stofna
heimili. Tilb. ásamt uppl.
sendist Mbl. fyrir 5. júlí,
merkt: „Heimili — 5516“.
Til sölu
notuð barnakerra. Uppl. í
síma 23739 í dag.
Til leigru
2ja herb. íbúð í Kópavogi.
Tilboð með upplýsingum
sendist Mbl., merkt: —
„Reglusemi — 5510“.
Loftdæla
(kompressa) hentug fyrir
málarasprautu eða loftham
ar, o. fl., til sölu. Sími
34825 eftir kl. 19.
Afgreiðsla
Ung kona óskar eftir
afgreiðslustarfi síðari hluta
dags. Uppl. í síma 17354
eftir kl. 7.
Húsráðendur
Get bætt við mig verkefn-
um svo sem innréttingum
og öðrum lagfæringum. —
Uppl. í síma 34106.
Trésmiðir
eða menn vanir smíðum
óskast. Uppl. í sima 17888.
dag er fostudagnr 28. júnl
179. dagur ársins
Flæði er kl. 11:45 árdegis.
Næturvörður í Reykjavík vik-
una 22. til 29. júní verður í
Reykjavíkur Apóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði vik.
una 22. til 29. júní verður Jón
Jóhannesson, síma 51466.
Næturlæknir í Keflavik er í
nótt Kjartan Ólafsson.
Neyðarlæknir — simi: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9,15-8. laugardaga
frá kl. 9,t5-4., helgidaga frá kl.
1-4 e.h. Sími 23100.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7 .augardaga frá
kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4.
I. O. O. F. 7 = 1446283 = Fossvk.
FRÉTTASIMAR MBL.
— eftir ickun —
Erlendar fréttir; 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
OrS lifsins svara i sima 1000A.
Kvenfél. Háteigssóknar fer skemmti
ferð í Þjórsárdal þriðjudaginn 2. júlí.
Þátttaka tilkynnist í síma 11813, 17659
og 19272.
Sauðfjáreigendur f Reykjavík: Vor-
smalanir í nágrenni Reykjavíkur hefj-
ast á næstunni með þvi að smalað
verður að Lögbergi, laugardaginn 29.
júni. Að Hafravatnsrétt verður smal-
að sunnudaginn 30. júní og að Hraöa-
stöðum mánudaginn 1. júlí.
Kvenfélag Kópavogs fer i skemmti-
ferð 30. júni. Upplýsingar í símum:
Austurbær 16424 og 36839. Vesturbær
16117 og 23619.
Kvenfélag Bústaðasóknar: Skemmti-
ferð i Þjórsárdal, sunnudaginn 30.
þ.m. Upplýsingar í síma 34270.
Húsmæður, Kópavogi: Þær, sem
sækja vilja um orlof í sumar vitji
eyðublaða miðvikudags,- fimmtudags-
eða föstudagskvöld kl. 8—10 í i'é-
lagsheimilið 2. hæð. Nánar í síma 36790
Blindrafélagið biður vinsamlega fé-
lagsmenn sína, sem fengið hafa happ-
drættismiða til sölu, að gera skil að
Hamrahlíð 17, síma 38180 og 37670, sem
allra fyrst. Dregið 5. júii. Vinningar
eru skattfrjálsir
Minningarspjöld Krabbameinsfélags
tsiands fást i öllum lyfjabúðum i
Reykjavík Hafnarfirði og Kópavogl.
Auk þess hjá Guðbjörgu Bergmann,
Háteigsvegi 52, Verzluninnl Danlel
Laugavegl 66, Afgreíðslu Tímans,
Bankastræti 7, Ellih-imiiinu Grund,
skrifstofunni, og skrifstofu félaganna
Suðurgötu 22.
Læknar fjarverandi
Árni Guðmundscon verður fjarver-
andi frá 5. júní til 8. júli. Staðgengill
Björgvm Finnsson.
Arinbjörn Kolbeinsson verður fjar-
verandi frá 3. mai um óákveðmn tima.
Staðgengiil: Bergþór Smárí.
Gunnlaugur Snædal, verður fjar-
verandi þar til um miðjan júlí.
Guðmundur Eyjólfsson verður fjar-
verandi til 19. júlí. Staðgengill er
Erlingur JÞorsteinsson.
Hannes Finnbogason verður fjar-
verandi frá 11. júní til 1 júlí. Stað-
gengill er Víkingur Arnórsson.
Hannes Þórarinsson verður fjarver-
andi um óákveðinn tíma. Staðgengill
er Ragnar Arinbjarnar.
Jón Nikulásson fjarverandi júnímán-
uð. Staðgengill er Ólafur Jóhannsson.
Jónas Sveinsson verður fjarverandi
júnímánuð. Staðgengill er Haukur
J ónásson.
Jón Þorsteinsson verður fjarverandl
24. til 29. júní.
Jón G. Hallgrímsson verður fjarver-
andi 1. til 10. júlí. Staðgengill er Ein-
ar Helgason.
Karl Gíslason, yfirlæknir á sjúkra-
húsi Akraness, verður fjarverandi um
tveggja mánaða skeið. Staðgengill:
Bragi Níelsson.
Kristín E. Jónsdóttir verður fjar-
verandi frá 31. maí um áókveðinn
tíma. Staðgengill Ragnar Annbjarn-
ar.
Kristjana Helgadóttir verður fjar-
verandi til 3. ágúst. Staðgengill er
Einar Helgason, Lækjargötu 2, kl.
10—11 nema fimmtudaga kl. 6—7.
Símaviðtalstíml kl. 11—12 (í sima
20442), og vitjanabeíðmr í síma
19369.
Kristján Hannesson verður fjarver-
fjarverandi frá 15. júní til júlíloka.
Staðgengill er Erlingur Þorsteinsson.
Skúli Thoroddsen verður fjarver-
andi 24. þm. til 30 júni. Staðgenglar:
Ragnar Arinbjarnar, heimalæknir og
Pétur Traustason, augnlæknlr.
Stefán Ólafsson verður fjarverandi
til 1. júlí. Staðgengill: Ólafur Þor-
steinsson.
Sveinn Pétursson verður fjarverandi
um óákveðinn tíma. Staðgengill er
Kristján Sveinsson.
Valtýr Albertsson verður fjarver-
andi til 30. júní. Staðgengill Ragnar
Arinbjarnar.
I Sumarheimili |
íyrir fatlaðra ?
Sumardvalarheimili fyrir t
fatlaða, verður rekið í sumar,
á vegum Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra, í Héraðs-
skólanum að Reykjum í Hrúta
firði.
Dvalartími verður einn mán
uður, frá 20. júlí til 20. ágúst.
Aðstaða er mjög sæmileg að1
Reykjum til reksturs slíks
heimilis, og er þar t.d. góð
sundlaug.
Dvalarkostnaði verður stillt
í hóf, og greiða dvalargestir
aðeins fyrir fæði.
í skólanum eru rúmstæði og
dýnur, og verða dvalargestir
að hafa með sér önnur rúm-
föt.
Sjálfsbjargarfélögin úti á
landi og skrifstofa Sjálfsbjarg
ar í Reykjavík gefa allar nán-
ari upplýsingar um rekstur
heimilisins.
Þátttaka sé tilkynnt fyrir 9.
júlí.
Fostudagur 28. júní 1963
í Morgunblaðsglugganum
var í gær opnuð nýstárleg
sýning á myndum, sem ein-
göngu eru gerðar úr vindla-
hringum, sem límdir eru á
litaðan pappa.
Mikið verk liggur að baki
þessara mynda, sem eru 12
talsins, og sú, sem hefur haft
þetta að tómstundaiðju sl. 2
ár, og sem hefur safnað efn-
inu í myndirnar í 12 ár, heitir
Herdís Guðmundsdóttir, er
Hafnfirðingur og hefur haft
ljósmyndun að starfi í 30 ár.
Til Herdísar hefur undan-
farið verið straumur af fólki,
sem hafa átt það erindi að
skoða myndir hennar, og
vissulega er ekki hægt annað
en dást að því hvað hægt er
að gera úr þessu efni með því
að klippa hringina niður og
líma þá upp.
Sýningin mun standa um
hálfan mánuð og hefur Her-
dís jafnvel hug á að selja
eitthvað af myndunum.
80 ára er í dag frú Stefanía
Jónsdóttir í Stykkishólmi, kona
Þorsteins Ólafssonar. Hún er ætt
uð úr Miklaholtshreppi, en í
Stykkishólmi hafa þau hjón búið
í rúm 30 ár.
17. júní voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini L.
Jónssyni í Vestmannaeyjum,
ungfrú Guðný Guðjónsdóttir frá
Þórshöfn á Langanesi, og Matt-
hías Bogason, vélvirki í Vest-
mannaeyjum.
17. júní opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Helga Ingvarsdóttir,
Neskaupstað, og Hrólfur Þor-
steinsson Hraundal, Garði, Garða
hreppi.
17. júní opinberuðu trúlofun
sína Jónína Gunnlaugsdóttir Mel
sted og Gunnar Gunnarsson,
verkfræðiemi frá Akranesi.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína Guðbjörg Einarsdóttir, skrif
stofustúlka, Stigahlíð 32, og Olf-
ert Mábye, bókbindari, Vestur-
götu 24.
15. júní opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Hildur Einarsdóttir,
símastúlka á Selfossi, og Guð-
mundur Pétur Arnaldsson, garð-
yrkjunemi á Selfossi.
17. júní opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Edda Árnadóttir,
hjúkruarnemi, og Jón Stefán
Arnórsson, jarðfræðinemi .
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína Jóhanna Eyþórsdóttir, banka
ritari, Stórholti 41, og Ólafur N.
Elíasson, stud. polyt, Selfossi.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína Lillian V. Ásmo, Ásvalla-
götu 53, og Jón Lýðsson, Hólm-
garði 45.
Teiknari J. MORA
JÚMBÓ og SPORI
Fullur af viðbjóði sótti Spori
stærsta fiskinn, sem hann gat fundið,
eins og Jumbó hafði beðið hann að
gera. Jæja, sagði hann, hérna er þá
ferlíkið. Ég get bara alls ekki skilið
hvað þú ætlar að gera við hann. Það
er allavega mikið þægilegra að hand-
leika þessa minni
En Jumbó hlustaði alls ekki á hann.
Hann hafði þegar beitt skærunum,
sem hann notaði annars til að klippa
uggana af fiskunum með, og hafði los-
að sofandi fiskimann við sítt hár hans,
hattinn og kápuna.
— Sjáum til, Spori, sagði hann.
Nú átt þú að vera fiskimaður.
— Ég tek það ekki í mál, sagði
Spori og stappaði í jörðina. Þó þú
gæfir mér þyngd mína í gulli færi
ég ekki í þessar larfa. Þú vilt kannski
heldur vera hérna og hreinsa fisk það
sem þú átt eftir ólifað, spurði Jumbó.