Morgunblaðið - 28.06.1963, Side 24
sparið og
notið Sparr
142. tbl — Föstudagnr 28. júní 1963
Undirbúningur að
söltun íf ullum gangi
Fólk streymir til vinnu
í síldarbæjunum
FRÉTTIR frá helztu síldarbæj-
unum fyrir norðan og austan
sýna, að söltunarstöðvar eru
reiðubúnar að hefja söltun strax
og Síldarútvegsnefnd hefur gefið
leyfi til þess. Fólk hefur streymt
til síldarbæjanna til vinnu, aðal-
lega þó karlmenn enn sem komið
er, stúlkurnar bíða margar eftir
því að söltunarleyfi fáist.
Hér fara á eftir frásagnir
fréttaritara Morgunblaðsins á
nokkrum helztu síldarstöðunum
um undirbúning til síldarmót-
töku:
Siglufirði, 27. júní:
Allar söltunarstöðvarnar hér,
22 að tölu, eru þegar tilbúnar að
taka á móti síld. Aðeins er beðið
eftir að söltunarleyfi fáist og
söltunarhæfri síld. Síldarverk-
smiðjur ríkisins og Rauðka hafa
þegar hafið bræðslu.
Um 30 þús. mál síldar hafa
borizt hingað. SR hafa tekið á
móti 18000 málum og eiga von á
meiri síld í dag og nótt. Rauðka
hefur tekið á móti 3000 málum
og á 3000 mál á leiðinni. Um 1000
tunnur hafa verið frystar og 200
tunnur saltaðar á Söltunarstöð
Sigfúsar Baldvinssonar. Síldin
var 18—20% feit og er ætluð til
innanlandsmarkaðar.
Leitarskip urðu vör við síld í
morgun á Húnaflóa og út af
Horni. Gefur það vonir um að
síldin sé að koma á sín gömlu og
góðu mið á vestursvæðinu, en
þar eru ágæt átuskilyrði.
Síidarverkunarfólk er þegar
tekið að streyma til bæjarins,
bæði karlar og konur. Næstu
daga er búizt við töluverðum
hóp til viðbótar.
í dag lögðu hér upp 10 skip síld
til bræðslu og frystingar.
— Stefán.
Húsavík, 27. júní:
Eins og undanfarin su'mur
verða hér starfræktar þrjár sölt-
unarstöðvar, Höfðaver h.f., Sölt-
unarstöð Barðans h.f., og Söltun-
arstöð Kaupfélags Þingeyinga.
Hjá söltunarstöðvunum starfar
aðeins heimafólk að venju, en
þær eru nú reiðubúnar til að
taka á móti síld. Reyndar hefur
verið saltað hér smávegis þegar.
Síldarbræðslan verður tilbúin
Jónas Thoroddsen, borgarfógeti, Jóhann Hafstein, formaður
fjárhagsráðs Sjálfstæðisflokksins, Már Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri happdrættisins og Hrafnhildur Stefánsdóttir, er
dró út vinningsnúmerin.
Dregið í happdrætti
Sjálfstæðisflokksins
DREGIÐ var í Happdrætti
Sjálfstæðisflokksins s.l. föstu-
dag en vinningsnúmerin inn-
sigluð þá sökum þess að skil
höfðu ekki borizt frá öllum
umboðsmönnum happdrættis-
ins.
í gær var innsiglið rofið í
viðurvist horgarfógeta og
vinningsnúmerin fara hér á
eftir:
Volkswagen nr. 13948, Taun
us Cardinal nr. 34814, Austin
Gypsy nr. 7999, Volkswagen
nr. 25909 og Ta.unus Cardinal
nr. 7998.
Eigendur þessara númera
geta snúið sér til skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins, Sjálf-
stæðishúsinu, eða, ef þeir eru
úti á landi, til umboðsmanna
happdrættisins.
Happdrættið gekk mjög
vel, Sjálfstæðismenn um allt
land brugðu vel við og fær-
ir Sjálfstæðisflokkurinn þeim
beztu þakkir fyrir dyggilegan
stuðning, því sá glæsilegi ár-
angur sem náðist efldi mjög
hag flokksins.
Morgunblaðið birtir vinn-
ingsnúmerin án ábyrgðar.
að taka á móti síld nú um mánaða
mótin og verður hún þá útbúin
soðk j arnatæk j um.
Tiltölulega lítið af síld hefur
borizt hingað og hefur að mestu
farið til frystingar.
— Fréttarit.
Raufarhöfn, 27. júní:
Saltað verður hér á 7—8 síld-
arplönum í sumar og eru þær nú
tilbúnar. Beðið er aðeins eftir
leyfi Síldarútvegsnefndar um
að söltun megi hefjast.
. Fjöldi fólks kemur hingað á
hverjum degi vegna síldarvinn-
unnar, en stúlkurnar munu þó
yfirleitt bíða eftir því að söltun
hefjist áður en þær koma.
Mikið af síldinni sem berst
hingað virðist vera góð til sölt-
unar. Er það síldin af norður-
svæðinu, en síldin' af austur-
svæðinu er meira blönduð.
Framhald á bls. 23.
Myndina tók Björn Pálsson, flugmaður, er Hafrún IS 400 kom
til Siglufjarðar í gær drekkhlaðin með 1700 mál af síld. I brú-
arglu&ga er skipstjórinn, Benedikt Ágústsson.
Sama verð og s/. sumar
greitt nú fyrir síldina
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
ins hefur ákveðið, að greitt
skuli sama verð og s.l. sumar
fyrir síld til söltunar og frysting-
ar, eða kr. 220 krónur fyrir upp-
mælda tunnu og 298 krónur fyr-
i uppsaltaða tunnu.
í fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu barst í gær frá Verð-
lagsráði sjávarútvegsins segir:
„Ýtarlegar umræður hafa far-
ið fram í ráðinu s.l. þrjá daga
um verð fersksíldar til söltunar
norðanlands og austan í sumar.
Athugun ráðsins og umræður
hafa leitt í ljós að litilsháttar
Síldar vart við
Kolbeinsey í gœr
L'itil veiði var / gærdag
VEÐUR var óhagstætt á miðun
um fyrir vestan Langanes í gær,
en var betra suður með. Lítið
varð vart síldar í gærdag, en þó
var hennar vart 20 mílur austur
af Kolbeinsey. Síldin þar var
siygg og náðist ekki.
Þau skip, sem vitað er að hafi
fengið afla eftir kl. 7 í gærmorg
un og til kl. 10 í gærkvöldi eru
þessi:
50 þúsundosti
gesturinn verð-
ur heiðroður
NÚ um helgina, föstudag, laug-
ardag eða sunnudag, kemur 50
þúsundasti gesturinn i Sjálfstæðis
ishúsið frá því að opnað var að
nýju í nóvemibermánuði sl. efir
hinar miklu breyingar, sem gerð-
ar voru á veitingahúsnu.
Sjálfstæðishúsið mun í þessu
tilefni heiðra 50 þúsundasta gest-
inn með því að afhenda honum
eitt þúsund krónur í peningum,
auk þess sem hann nýtur allra
veitinga á kostnað hússins.
Húsið verður opið að venju í
kvöld, laugardags- og sunnudags-
kvöld frá kl. 7. Hljómsveit Jóns
Möller og söngkonan Guðrún
Ftedriksen skemmta. Dansað
verður til kl. 1 eftir miðnætti
fóstudags- og laugardagskvöld.
Leifur Eiríksson 550 mál, Bald
ur 400, Gullborg 500, Pétur Jóns
son 450, Hafþór RE 500, Leó 450,
Sigurpáll 450, Hrönn II 300,
Andri 350, Ársæll Sigurðsson 600,
I -iðrún 350. Þessi skip fóru flest
með síldina til Raufarhafnar.
Helga RE fór til Siglufjarðar
með 750 mál.
Jón Garðar með
bilaða vél
VELARBILUN varð í gær hjá
síldveiðibátnum Jóni Garðari frá
Garði, er hann var staddur um
20 sjómílur frá Kolbeinsey.
Annar síldveiðibátur, Sigurður
Bjarnason, reynir að draga Jón
Garðar til hafnar, líkiega Akur-
eyrar.
hækkun hafi orðið á söluverðl
síldar. til útflutnings miðað við
s.l. ár, en hins vegar hefir kaup-
gjald, tunnuverð, sykur og fleira
hækkað til muna á sama tíma.
Samkomulag varð í ráðinu um
að greitt skuli sama verð fyrir
fersksíld til söltunar og frysting
ar og s.l. sumar, það er:
Síld til söltunar:
Kr. 220,00 fyrir uppmælda
tunnu, -120 lítrar.
Kr. 298,00 fyrir uppsaltaða
tunnu (með 3 lögum í hring),
Síld til heilfrystingar:
Hver uppmæld tunna (120 lítr-
ar) kr. 220,00“.
Somið við
verkakonur
SAMNINGAR tókust í gær-
kvöldi milli verkakvennafé-
laganna Framsóknar í Reykja
vík og Framtíðarinnar í Hafn-
arfirði annars vegar og Vinnu
veitendasambands íslands og
Vinnuveitendafélags Hafnar-
fjarðar hins vegar.
Aðalatriði samninganna eru
7)4% almenn launahækkun
og einnig munu hafa orðið
einhverjar tilfærslur milli
launaflokka.
Samningum um ákvæðis-
vinnu við síldarsöltun var
frestað.
Félögin gerðu samningana
með tilskildu samþykki félags
funda.
Verður að greiða
tœpa hálfa millj.
Seyðisfirði, 27. júní.
SÍÐDEGIS í dag var kveðinn upp
dómur í máli Allan Woods, skip-
stjóra á togaranum Dorade frá
North Shields, sem staðinn var
að ólöglegum veiðum í Lónsbugt
aðfaranótt miðvikudags.
Skipstjórinn hlaut 260 þúsund
króna sekt og afli og veiðarfæri
voru metin á 180 þúsund krónur
og afli 32 þúsund krónur.
Dóminum hefur skipstjórinn
áfrýjað til Hæstaréttar. Mun tog-
arinn láta héðan úr höfn strax og
tryggingin hefur verið sett fyrir
greiðslu sektarinnar. — Sveinn.