Morgunblaðið - 06.07.1963, Síða 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Laugardagur 6. júlí 1963
Norðmennirnir Gustav Norland fylkisdýralaeknir og forstöffu-
maffur sauðfjártilraunabús, og Paul Moberg ríkisráðunautur
um saufffjárrækt.
íslendingar og Norð-
menn upphafsmenn
afkvæmarannsókna
kvikfjár
UNDANFARIÐ hafa dvalið hér
Norðmenn í þeim tilgangi að
kynna sér sauðfjárrækt og rann
sóknir á sauðfjársjúkdómum.
Þeir komu hingað 23. júní og
hafa ferðast um landið og komið
á fjölda bóndabæja, tilraunabú
og bændaskóla og haft samband
við tilraunastöðina á Keldum og
hefur Pétur Gunnarsson, deild-
arstjóri landbúnaðardeildar At-
vinnudeildarinnar farið með
þeim mikið um landið.
Fyrsta spurning, sem við lögð-
um fyrir þá félaga, er við hitt-
um þá að máli, var hvort í Nor-
egi væri sömu kindastofnar og
hér. Moberg sagði að í Noregi
væru fjölmárgar tegundir kvik-
fjár. Ein sérstök tegund, sem
nefnist „spessau“ væri sama
kindin og hér. — Við höfum
einnig verið að vinna að rækt-
im á þessari kind, en teljum ár-
angurinn sé betri hér, þ.e.a.s.
hvað kjötmagn snertir, bætti
hann við. En þess ber að geta
að ýmsar aðrar kvikfjártegund-
ir í Noregi eru komnar lengra.
Annars þekkjum við Norðmenn
Islenzka lambakjötið vel, því við
höfum flutt inn mikið af ís-
lenzku saltkjöti, sem okkur þyk-
ir mjög gott.
— Mitt aðalverkefni í íslands-
ferðiniii var að kynnast kynbót-
um á íslandi, sagði Moberg enn-
fremur. Og ég hefi fengið góðar
upplýsingar um viðfangsefni og
vinnubrögð á því sviði hjá At-
vinnudeildinni og Búnaðarfélag-
inu. Við höfum einnig fóðurrann-
sóknir og afkvæmarannsóknir
kvikfjárs. En afkvæmarannsókn-
ir eru varla stundaðar annars
staðar í heiminum en í þessum
tveimur löndum. íslendingar og
Norðmenn hafa hafið þetta starf
og því höfum við ákaflega mik-
inn áhuga á samvinnu á þessu
•viði, þó við beitum ekki í ölium
sömu aðferðum. Ég hefi því haft
mikið faglegt gagn af ferðinni.
Öfundum ykkur &'
Keldnastöðinni
Gustav Norland sagði að sitt
erindi hefði verið að fræðast al-
mennt um kvikfjársjúkdóma á
íslandi, því að mörgu leyti býr
féð við sömu skilyrði hér og í
Noregi. Hvað sjúkdóma snertir,
þá hötfum við fleiri kvikfjársjúk-
dóma, m.a. ýmsa sjúkdóma sem
berast með snýkjudýrum, sem
þið hafið ekki hér.
— Hvað um mæðiveiki og
garnaveiki
— Mæðiveiki er ekki í Noregi,
en eitt af aðalverkefnum mín-
um var einmitt að kynnast að-
ferðum hér í baráttunni gegn
henni. En garnaveiki höfum við,
þó ekki í kindum heldur geitum.
— Ég hefi komið -í tiLrauna-
stöðina á Keldum og fengið að
kynnast ofurlítið sjúkdómunum,
sem þeir eru að vinna á móti
þar og aðferðunum sem þeir
beita. Og það vil ég fullyrða, að
þar eigið þið íslendingar af-
bragðsstofnun, sem við getum öf-
undað ykkur af. Þar er líka af-
bragðs starfslið, sem hefur tekið
mér af frábærri gestrisni og þar
hefi ég fengið margar nýjar hug-
myndir og viðfangsefni til að
snúa mér að þegar ég kem
heim. Ég vona að það verði ekki
í síðasta skipti sem ég fæ tæki-
færi til að koma.
Báðir luku Norðmennirnir
miklu lofsorði á þá gestrisni sem
þeir hefðu orðið aðnjótandi og
hjálpsemi þeirra sem þeir hefðu
átt skipti við. Og að lokum bættu
þeir við: — Norðmaður með of-
urlítinn sögulegan áhuga hetfur
alltaf ánægju af að koma til ís-
lands. Sögustaðir ykkar tilheyra
okkar eigin sögu. Það er eins og
fyrir pílagríma að koma til
Mecca. Það hefur líka gert ferð-
ina ánægjulega.
Könnunarferðir
tyrir ungt fólk
ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur
efnir til könnunarferða fyrir
ungt fólk í sumar. Þar gefast tæki
færi til margháttaðrar náttúru ■
skoðunar og útivistar undir leið-
sögn hæfra manna.
Seint í júlí er ráðgert grasa-
söfnunar ferðalag í nágrenni
Reykjavíkur og munu ungir
stúdentar skipuleggja og stjórna
því. Stúdentar þessir fóru nýlega
til Englands og tóku þátt í líkum
könnunarferðum þar á vegum
Brathay Exploratión Group.
26. júlí — 9. ágúst verður farin
fuglarannsóknarferð á Breiða-
merkursand. Förin er farin í sam
vinnu við hóp pilta frá Brathay
Exploration Group í Englandi.
Fimm íslenzkir piltar geta tekið
þátt í förinni.
3. — 5. ágúst Rannsóknarferð
í Jökuldæli í fylgd vísindamanna
frá atvinnudeild Háskóla fslands.
Ferðin er bæði fýrir stúlkur og
pilta.
10. — 22. ágúst Jöklarannsókn-
arferð að Langjökli. Sex íslenzkir
piltar geta fengið að taka þátt
í þessari ferð með álíka stórum
hópi pilta frá Brathay Explora-
tion Group.
11. ágúst Gönguferð á Bláfjöll
og Hengil. Það eru skátafélögin
í Reykjavík, sem efna til þessa
ferðalags fyrir unglinga 12 ára
og eldri, sem ekki eru skátar.
Ferðin verður nánar auglýst í
ágúst.
Allar nánari upplýsingar um
ferðir þessar eru gefnar á skrif-
stofu Æskulýðsráðs að Lindar-
götu 50, sími 159'37.
Kjeld Philip
Efnahagsmálaráðherra
Dana ræddi efna-
hagssamvinnu Evrópu
í boði síldar-
útvegsnefndar
FIMM síldarkaupmenn frá Norð-
urlönduim eru h.ér staddir og
fóru í gær í boði síldarútvegs-
nefndar norður í land. — Meðal
þeirra er Kai Juuranbo, ræðis-
maður í Helsinki. Með þeim
fóru þrír meðlimir síldarútvegs-
netfndar, þeir Sveinn Benedikts-
son, Hannibal Vaidknarseon og
Jón Skatftason.
Náttúrufræðifélagið efnir til
fjögurra fræðsluferða í sumar.
Hin fyrsta var farin sunnudag-
inn 26. maí. Var það jarðfræði-
ferð um Hellisheiði, ölfus og
Þrengsli. Meðal leiðbeinenda var
Þorleifur Einarsson, sem hefur
rannsakað jarðfræði þessa svæðis
sérstaklega.
Næsta ferð félagsins verður
farin upp í Kollafjörð sunnudag-
inn 7. júlí. Laxeldisstöðin í Kolla
firði verður skoðuð undir leið-
sögn Þórs Guðjónssonar, veiði-
málastjóra. Að öðru leyti verður
þetta grasafræðiferð og gefst þátt
takendum kostur á að skoða gróð
ur og safna plöntum á ýmiss kon-
ar gróðurlendi. Meðal leiðbein-
enda verða Eyþór Einarsson, Ing.
ólfur Davíðsson og fleiri lærðir
grasafræðingar. I þessa ferð verð
ur lagt upp frá Búnaðarfélags-
húsinu við Lækjargötu kl. 13.30
og komið aftur um kl. 19. Félags-
menn mega taka með sér gesti
að vild.
Næsti borgar-
stjórnarfundur
í september
BORGARSTJÖRN Reykjavík-
ur samþykkti á fundi sínum í
fyrrdag að fella niður síðari fund
sinn í júlí og fundi í ágúst.
Mun borgarstjórn því næst koma
saman til fundar 6. september,
en fundir hennar eru haldnir
fyrsta og þriðja fimmtudag í
hverjum mánuði. Meðan fundir
borgarstjórnar liggja niðri mun
borgarráð koma saman einu sinni
í viku, en það heldur yfirleitt
fundi tvisvar í hverri viku, og
mun það auk reglulegra starfa
sinna afgreiða til fullnaðar fund
argerðir nefnda, sem nauðsyn-
legt er, að afgreiðslu hljóti, en
annars eru fundargerðir nefnda
afgreiddar á fundum borgar-
stjórnar.
EFNAHAGSMÁLARÁÐHERRA
Dana, dr. Kjeld Philip flutti í
gær fyrirlestur í Háskóla ís-
lands um áhrif aukinnar efna-
hagssamvinnu Evrópuríkjanna. í
fyrirlestri sínum, sem haldinn
var í boffi háskólans, ræddi hann
einkum þau áhrif, sem þessi sam-
vinna er líkleg til aff hafa á at-
vinnulífið, sérstaklega iðnaff og
Þriðja ferðin er sjóferð með
varðskipinu Maríu Júlíu út á
Faxaflóa. Tekin verða sýnishorn
af dýralífinu í sjónum og skoðað
undir leiðsögn sérfræðinga af
Fiskideild. Ferðin, sem tekur 6
kls., er ráðgerð sunnudaginn 21.
júlí, en getur orðið degi fyrr eða
síðar. — Skipsrúm er mjög tak-
markað og þátttaka aðeins heimil
félagsmönnum.
Fjórða ferðin er þriggja daga
ferð — 16. til 18. ágúst — til al-
hliða náttúruskoðunar um Kalda
dal, Borgarfjarðardali og Uxa-
hryggi. í þessa ferð má hver fé-
Iagsmaður taka með sér einn gest
en nú þegar eru orðin síðustu
forvöð að tryggja sér far.
Nánari upplýsingar um allar
ferðirnar fást í Náttúrugripasafn-
inu í síma 12728.
Verfflaun Náttúrufræffifélagsins
Eins og undanfarin ár hefur
Náttúrufræðifélagið veitt verð-
laun fyrir beztu úrlausn í nátt-
úrufræði á landsprófi miðskóla.
Þau hlaut að þessu sinni Jón
Grétar Hálfdánarson, nemandi í
Gagnfræðaskólanum við Vonar-
stræti í Rvík.
landbúnað. Ekki ræddi hann
neitt hin breyttu viffhorf, sem
sköpuffust i efnahagssamvinna
Evrópuríkjanna eftir aff slitnaffl
upp úr samningaviffræffum Breta
við Efnahagsbandala,g Evrópu í
Brússel á sl. vetri effa stefnu
dönsku ríkisstjórnarinnar nú
gagnvart EBE.
Dr. Kjeld Fhilip, sem situr á
þingi fyrir radíkala flokkinn,
hefur verið ráðherra síðan árið
1957. Kona hans, sem er við-
skiptafræðingur að menntun, sit-
ur einnig á þingi fyrir radíkala
flokkinn, og dvelst hún hér meff
honum um þessar mundir. Áður
en dr. Philip varð ráðherra, var
hann prófessor við háskólana I
Árósum, Kaupmannahöfn og
Stokkhólmi, en cand. polit. varff
hann árið 1937.
Dr. Philip flutti hér fyrirlestur
í maí á sl. ári á vegum Dansk-
íslenzka félagsins um efnið „D«
europæiske markedsplaner“.
í fyrirlestri sínum í gær ræddi
dr. Kjeld Philip m. a. allmikiff
um þau áhrif, sem aukin efna-
hagssamvinna Evrópuríkjanna
mundi hafa á landbúnað land-
anna. Til þess að þau geti aukiff
iðnaðarframleiðslu sína nægilega
mikið mun reynast nauðsynlegt
að laða vinnuafl frá landbúnað-
inum til iðnaðarins, þannig aff
hlutfallslega minni hluti þjóð-
anna starfi við landbúnað í fram-
tíðinni, en þó mundi landbúnað-
arframleiðsla stóraukast vegna
bættrar tækni.
Meðal áheyrenda á fyrirlestr-
inum voru dr. Gylfi Þ. Gíslason
viðskiptamálaráðherra, Bjarne
W. Paulson ambassador Dan-
merkur, Ármann Snævarr há-
skólarektor, sem kynnti dr.
Philip og bauð hann velkominn
fyrir hönd háskólans, og ýmsir
af prófessorum háskólans.
f NA 15 hnúfar 1 ^ SV50hnútar H Sn/Hama * ÚH «*• 7 Skúrir K Þrumur W'Z, KuUothit ^ HitaakH H Hml 1 i i mah í
...... 1 ÍHaa -'kS kop" A
HÆÐIN, sem hetfur verið að lægrar áttar, þegar stillunum
lóna við ísland, sniglast held- lýkur.
ur vestur á bóginn. Má því Bjartviffri og sólskin mun
eiga von á, að draigi til norð- þá haldast á Suðurlandi og
létta til við Faxaflóa.
Nóttúnifræðiiélagið fer í Kolla-
fjörð, út ú Faxaflóa og ú Kaldadaf