Morgunblaðið - 06.07.1963, Síða 3

Morgunblaðið - 06.07.1963, Síða 3
Laugardagur 6. júlí 1963 MORGUNBLAÐtÐ 3 gripasýningu Að undanförnu hafa staðið yfir nautgripasýnmgar í hin- um ýmsu hreppum Árnes- sýslu. Fara þær fram í sam- ráði við nautgriparæktarfé- lögin í viðkomandi héruðum. Landinu öllu er skipt í fjögur sýningarsvæði, þar sem haldn ar eru sýningar fjórða hvert ár, og í sumar ferðast ráðu- nautar Búnaðarfélagsins um svæðið frá Mýrdalssandi vest ur að Hvítá í Borgarfirði og gangast þar fyrir sýningum. Á föstudag í sl. viku voru þeir ráðunautarmr Jóhannes Eiríksson og Ólafur E. Stef- ánsson staddir austúr í Hraun gerðishreppi, ferðuðust þar á milli bæja og skoðuðu og tóku mál af stæðilegustu og nyt- hæstu kúnum á hverjum stað. Fréttamenn Mbl. hittu Ólaf Stefánsson um fjögur-leytið á föstudag er hann var staddur að Oddgeirshólum ásamt Ól- afi Ögmundssyni í Hjálmholti. Bændurnir í Oddgeirshólum, þeir Ólafur og Guðmundur Árnasynir, völdu beztu grip- ina úr kúahjörðinni, sem þeir síðan leiddu út fyrir, þar sem Ólafur ráðunautur grandskoð- aði þá. — Hver er tilgangurinn með þessum sýningum, Ól- afur? — Við könnum útlit kúnna og fáum með því vitneskju um það, hvort einhverjar breyt- ingar eiga sér stað á bygging- arlagi kúastofnsins. Þá fáum við skýrslur um afurðirnar og er þetta hvort tveggja mjög mikilvægt í sambandi við nautaval. — Hafið þið orðið varir við einhverjar breytingar á stofn- inum? — Það hefur greinilega komið í Ijós að hann er að stækka. — Geturðu gert okkur í stuttu máli grein fyrir fram- kvæmd sýninganna? — Fyrirkomulagið er nokk. uð misjafnt. í stærri naut- griparæktarfélögunum er ekki aðstaða til að sýna allar kýr á sama stað, og þess vegna ferðumst við dómendurnir á milli bæja. Bændurnir velja kýrnar, sem þeir óska að dæmdar séu, og eru það að sjálfsögðu fallegustu og af- urðamestu kýrnar á hverjum bæ. Hérna í Oddgeirshólum eru kýrnar sæddar frá sæðing arstöðinni í Laugadælum og leikur okkur því hugur á að sjá hvernig afkvæmunum hef ur reitt af, með tilliti til nauta valsins. Annars eru í þessu sambandi haldnar sérstakar afkvæmasýningar á hverju ári þar sem saman eru komin um 20 "afkvæmi frá ýmsum bæj- um. — Hversu margar kýr dæm ið þið daglega? — Við dæmdum í gær og í fyrradag samtals 350 kýr á ■■■■ Oiajtur ötciHuððon uuunauiur lind. Skeiðurtum, og það kom ber- lega í ljós, að byggingu kúnna hefur farið mjög fram. — Eru kýrnar síðan verð- launaðar? — Já, þeim er skipáð í þrjá verðlaunaflokka eftir dóm- stiga, sem Hjalti Gestsson gerði, og notaður hefur verið síðan 1951. Á Skeiðunum dæmdust 88 kýr í 1. verðlauna flokk og var þá miðað við 3.8 prósent mjólkurfitu að meðaltali á síðustu fjórum ár- um. — En er ekkert gert upp á milli þeirra gripa, sem teljast til fyrsta flokksins? — Það er ekki hægt fyrr en búið er að fara yfir allar skýrslur, sem við tökum á sýn ingunum, og Búnaðarfélagið Strákarnir í Oddgeirshólum, Hörður og Árni O ddgeir með þeim Ljómalind og Skræpu, stæði- ÍP legustu kúnum í fjósinu. — Ljósm. Sv. Þormóð ss. oregour maioandmu um Ljoma- fær síðan til meðferðar. Nokk ur nautgriparæktarfélögin veita eigendum beztu kúnna viðurkenningu og hér í Hraun gerðishreppi er keppt um litla mjólkurfötu í gomlum stíl, gerða úr silfri. Handhafi henn ar er nú nafni minn Ögmunds son, í Hjálmholti. — Hvernig er skipun dómar anna hagað? — Ráðunautar Búnaðarfé- lagsins mynda dómnefnd á- samt fulltrúum frá viðkom- andi nautgriparæktarfélagi.' Þeir Ólafur og Guðmundur í Oddgeirshólum eru að velja kýr til sýningar inni í fjósinu og krakkarnir fylgjast með af miklum áhuga. Þerr bændurn ir segja að unga fólkið hafi sökkt sér svo niður í búskap- inn, að þeim væri næstum treystandi til að taka að sér bústjórnina. — Hver er nythæsta kýrin í fjósinu, Ólafur? — Þessi bröndótta þarna, hún heitir Ljómalind. Hún hef ur komizt upp í 26 kg í mál. — Hvað eru margar mjólk- andi kýr hjá ykkur? — Núna eru þær 30, mest allt afburða skepnur. Við höf. um verið heppnir með þær, og t.d. get ég nefnt, að ein kýrin, sem við áttum. mjólk- aði 63 tonn á æviferlinum. Tvœr hópferðir til utlanda á vegum Sögu FERÐASKRIFSTOFAN SAGA efnir til tveggja hópferða til út- landa í sumar. Sú fyrri er 16 daga ferð um Norðurlönd, sem hefst 20. júlí næstkomandi, en hin síðari er ferð til Ítalíu 12. til 27. september. Staðkunnugir far- arstjórar verða með í báðum ferðunum og leiðbeina fólkinu og verða því til aðstoðar, eftir því sem það óskar. í Norðurlandaferðina er þegar nær upppantað, en hún er þannig skipulögð," að flogið verður til Kaupmannahafnar og þaðan heim aftur að hringferð um Sví- þjóð og Noreg lokinni. Ekið verð ur í bifreið frá Kaupmannahöfn, sem ferðafólkið hefur til umráða allan tímann. Fyrst verður ekið norður Skán og komið við í mörg um bæjum í Suður- og Mið- Svíþjóð og haldið alla leið til Stokkhólms. Þaðan verður svO ekið til Óslóar og hið markverð- asta skoðað í þeirri borg. Þá verð ur haldið til Bergen og ekið eftir hinum fagra Hallingdal og yfir Harðangursöræfin, þar sem hin fræga Bergensbraut liggur um. Á leiðinni verður gist á Geilo, þekktu háfjallahóteli í Noregi. Frá Bergen verður farið með skipi og siglt innan skerja norður til Sognefjarðar og síðan inn Sognefjörðinn og er það heils dags sigling, en Sognefjörðurinn er ein fjölfarnasta ferðamanna- leið í Noregi og þangað koma tugþúsundir ferðamanna árlega. í botni fjarðarins verður gist, og þar bíður bíllinn ferðafólksins og ekur síðan vestan Jötunheima og suður til Oslóar. Frá Osló verður ekið næsta dag til Gautaborgar og gist þar eina nótt og síðan haldið áfram suður vesturströnd Svíþjóðar til Helsingborgar, það- an sem farið verður með ferju yfir sundið til Sjálands og svo áfram með bílnum til Kaup- mannahafnar, en þar verður dvalizt síðustu daga ferðarinnar. Ítalíuferðin, sem SAGA efnir til í september, tekur 15 daga, og verður komið þar til flestra fegurstu borga landsins. Flogið verður á einum degi frá Reykja- vík til Milano, með viðkomu í Glasgow og Lundúnum. Meðan dvalizt verður í ftalíu verður meðal annars komið til Genúa, Florenz, Rómar, Napoli, Sorr- ento, Assisi og Feneyja. Á heim- leiðinni verður flogið um London og gist þar eina nótt. Áhugi fyrir utanlandsferðum virðist nú meiri en nokkru sinni fyrr, en slíkar hópferðir verður að ákveða og skipuleggja með löngum fyrirvara, bæði vegna hótela og sætapantana með flug- vélunum. Það er því örðugt að fjölga þátttakendum á síðustu stundu frá því sem ákveðið hefur verið í upphafi, og er því áríð- andi, að fólk, sem ætlar í slíkar ferðir hafi samband við ferða- skrifstofuna með góðum fyrir- vara. Kiartan Thors lætur af formennsku Á SÍÐASTA fundi útgerðarráðs Reykjavíkurborgar skýrði for- n-aður ráðsins, Kjartan Thors út- gerðarmaður, frá því, að hann hefði ákveðið að biðjast undan áframhaldandi setu í ráðinu. Hefur Kjartan verið formaður útgerðarráðs allt frá því það var fyrst sett á stofn í janúar árið 1943. A fundi borgarstjórnar sl. fimmtudag þakkaði Geir Hail- grímsson borgarstjóri Kjartani í útvegsróði Thors mikil og farsæl störf hans í þágu útgerðarráðs. í stað Kjartans tekur nú sæti í útgerðarráði varamaður hans, Einar Thoroddsen hafnsögumað- ur, en ráðið hefur enn ekki kos- ið sér nýjan formann. Kjartan Thors, sem er 73 ára gamall, var formaður Félags ís- lenzkra botnvörpuskipaeigenda í meira en þrjá áratugi, en lét af formennsku þar árið 1958. Har.n er formaður Vinnuveitendasam- bands íslands. STAKSTEIHAR Nýjar leiðir Fyrirfram höfðu fæstir þorað ð gera sér vonir um, að meðal íkisstarfsmanna mundi ríkja lík ánægja með úrskurð Kjara- lóms í kjaramálum þeirra, sefn aun virðist bera vitni. Af hálfu ■íkisvaldsins hefur niðurstöðu lómsins einnig verið fagnað, >ótt að vísu sé enn ekki gott að jera sér fulla grein fyrir því, íver áhrif hún hefur á afkomu íkissjóðs. Er vissulega ánægju- egt, að báðir aðilar skuli telja Ag mega vel við úna. Þetta er þeim mun ánægjulegra fyrir það, að með úrskurði Kjaradöms hef- ur verið farið inn á nýjar leiðir hér á landi við lausn á kjara- deilum. Þegar tilraunir aðila til að komast að samkomulagi um kaup og kjör báru ekki árang ur, var endanlegt úrskurðarvald falið í hendur hlutlausum aðila, sem taka skyldi tillit til allra atvika og aðstæðna. Það er mik- ilsvert, að þessi tilraun til að fela hlutlausum aðila úrskurðar- vald í kjaramálum skuli hafa gefizt svo vel. Yfirleitt hefur kjaradeilum hér á landi ekki lyktað með svo friðsamlegum hætti, og allt of oft hefur komið til Iangvinnra vinnustöðvana, sem flestum hafa orðið til tjóns. Fyrsta reynslan af Kjaradómi ætti að vekja bæði vinnuveitend- ur, launþega og löggjafarvald til umhugsunar um það, hvort ekki sé tími til þess kominn að reyna nýjar leiðir til að gera út um deilur vinnuveitenda og laun þega um kaup og kjör. Leiðrétting Flestir virðast sammála um, að á kjarabætur ríkisstarfs- manna nú beri fyrst og fremst að líta sem leiðréttingu þeim til handa vegna þess að þeir hafi dregizt aftur út öðrum stéttum, miðað við þær kröfur, sem til þeirra verður að gera. Þannig segir t.d. Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra í viðtali við Vísi í fyrradag: „Kjaradómur hefur nú ákveð- ið ríkisstarfsmönnum þau laun, er dómurinn telur réttmæt þeim til handa, miðað við núverandi launakjör annarra stétta í land- inu. Niðurstaða dómsins gefur því ekki tilefni til, að aðrar stétt- ir hafi uppi nýjar kröfur nm kauphækkanir.“ Mikilsverð viðurkenning „Þjóðviljinn“ virðist svipaðs sinnis, en blaðið segir í forystu- grein í gær: „Sjálfur úrskurðurinn um' kaup opinberra starfsmanna er einnig veruleg kjarabót, miðað við það ástand, sem áður var hér í þeim efnum, og ber að fagna því. En hins ber þó að gæta, að á þessu sviði höfum við dregizt svo mjög aftur úr, að ástandið í launamálum opinberra starfsmanna var orðið með öllu óþolandi. Við hljótum að keppa að því, að launamálum opinberra starfsmanna sé þannig háttað, að þessi mikilvægu störf séu eftir- sóknarverð, svo að ávallt sé þar völ beztu starfskrafta, sem unnt er að fá“. Sú viðurkenning, sem í þessum orðum felst á því, að á kjarabæt- ur opinberra starfsmanna nú beri fyrst og fremst að líta sem rétt- mæta leiðréttingu, er vissulega mikilsverð. Þar með hefur verið viðurkennt, að aðrar stéttir geti ekki rökstutt nýjar kaupkröfur með tilvísun til kjarabóta opin- berra starfsmanna, en almenn kauphækkun í svipuðu hlutfalli og opinberir starfsmenn hafa nú fengið mundu að sjálfsögðu ekki aðeins gera kjarabætur þeirra að engu, heldur innleiða að nýju glundroða í kaupgjaldsmálin í heild.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.