Morgunblaðið - 07.07.1963, Side 1

Morgunblaðið - 07.07.1963, Side 1
24 síður 50. árgangur 150. tbl. — Sunnudagur 7. júlí 1963 Prentsmiðja Morgunblaðsimi Fundur Rússa og Kínverja Moskvu, 6. júlí — (NTB-AP) FULLTRÚAR kínverskra og sovézkra kommúnista, sem nú ræða hugsjónaágreining flokkanna, komu saman til fundar kl. 7 f.h. í dag (ísl. tími). — Allir fundir fulltrúanna verða lokaðir og fréttamenn í Moskvu gera ekki ráð fyrir að fá fregnir af viðræðunum fyrr en þeim er lokið. Stjórnmálafréttaritarar 5 Bandaríkjunum telja, að fundur- inn í Moskvu muni ekki standa yfir nema nokkra daga og verði fremur til þess að auka ágrein- ing deiluaðila en draga úr hon- um. Hins vegar telja fréttarit- ararnir ólíklegt, að til fullra vin- siita komi milli Kína og Sovét- ríkjanna nú þegar. Eins og kunnugt er, sátu kín- JHotiðtinUaifittifl fylglr blaðinu í dag og er efni hennar .*em hér segir: Bls. 1 Thomas Aquinas (1225—1274), Jóhann Hannesson, prófessor — 2 Svipmynd: Robert Graves. — 3 Hvað annað er hægt að gera? smásaga eftir Jón Kr. Isfeld. Árni Óla og Lesbókin, eftir Kjartan Ólafsson. — 4 Fimm börn og tveir bilar, heimsókn til íslenzkra læknis- hjóna I Bandaríkjunum. — 5 Bókmenntir: Hvað eru „ís- lenzk augu?“ nokkur orð til Guðmundar G. Hagalín, eftir Sigurð A. Magnússon. Rabb, eft.ir SAM. — 6 Hagalagðar — 7 Lesbók Æskunnar: Yfir Sand- skeiði. — 8 Þetta er nú meiri gerviheim- urinn, eftir Marsoi^ Bat.es. — 10 Fjaðrafok •— 15 Krossgáta — 16 Helgarferð á Snæfellsnes. versku fulltrúarnir kvöldverðar- boð þeirra rússnesku í gær- kvöldi. Tass-fréttastofan skýrði frá því í dag, að formenn viðræðu nefndanna, Mikail Suslov og Teng Hsiao-Ping, hefðu haldið ræður í veizlunni. Moskvuútvarp ið skýrði einnig frá þessu og vest rænir fréttamenn í borginni tóku eftir því, að útvarpið sagði ekki, að bræðralag og vinátta hefði ríkt í veizlunni, en það hefur verið venja við sams konar tæki- færi. í morgun gagnrýndi kínverska fréttastofan, Nýja Kína, Sovét- ríkin harðlega og sakaði komm- únistaflokk landsins um, að vinna markvisst að því, að gera sættir ómögulegar. Ward frjáls — Ivanov á geðveikrahæli London, 6. júlí (NTB/AP). Hlé hefur nú verið gert á yfirheyrslum í máli hrezka læknisins Stephen Ward. Und anfarnar þrjár vikur hefur læknirinn verið í fangelsi, en nú hefur honum verið sleppt úr haldi gcgn 3 þús. punda tryggingu. Réttarhöld í máli Wards hefj ast 15. júlí í Old Bailey og I þangað til er hann frjáls ferða sinna. I»ær fregnir hafa borizt frá Moskvu, að sovézki flotamála- fulltrúinn Ivanov, sem var einn af vinum Christine Keel- er, hafi verið rekinn ur komm únistaflokki Sovétríkjanna og talið er að hann dveljist nú á geðveikrahæli. Hin nýja Skálholtskirkja. Myndina tók Ól. K. M. fyrir nokkru. Heimsdkn í Mynd þessi w tekln á flugvel Ilnnm í Bon, er De Gaulle Frakk landsforseti kom þangað skömmu. Adenauer kanzlari V.-Þýzkalands( tdi. tók á móti for setanum á flugvellinum. FRETTARITARI Morgun- blaðsins heimsótti Skálholt nýlega til að forvitnast um, hvernig miðaði áfram -því verki, sem þar er unnið. — Vigsla hinnar nýju glæsilegu kirkju fer fram hinn 21. júlí n.k,, eins og kunnugt er. Nú er að mestu lokið við að ganga frá orgelinu, sem er gjöf ffrá Dönum til Skálholts- kirkju, og hefur það verið reynt. Þá hefur verið unnið að því að koma prédikunarstóln- um fyrir norðan megin í kórn- um. Stóllinn er frá tíð Brynj- ólfs biskups og úr honum þrumaði Jón biskup Vídalín stólræður sínar af þunga og áminnandi alvöru. Stóllinn er forkunnar fagur. Hann var á sínum tíma sendur utan, þar sem hann var hreinsaður, og þegar fréttamaður Morgun- blaðsins kom í kirkjuna, var byrjað að taka umbúðirnar ut- an af honum og í ljós kom mynd af Mattheusi eða ein- • hverjum öðrum guðspjalla- manni, en myndir af þeim prýða alla reiti stólsins. Er stóllinn hin mesta gersemi, fagurlega gerður og væntan- lega innblóstursríkur þegar á reynir. Má ætla áð margar merkar og kynngimagnaðar prédikanir eigi eftir að heyr- ast frá þessum stóli í nútíð og framtíð. í>á hefur lítið altari, einnig frá Brynjólfs tíð, verður flutt inn í kirkjuna. Því verður komið fyrir í norðurstúku krossskipsins. Má ætla að alt- arið og stóllinn fari vel sam- an og stingi ekki um of í stúf við nýtízkulega skreytingu kirkjunnar. Ráðgert er, að því er fréttamanni blaðsins var tjáð, að koma upp stórum við- arkrossi til bráðabirgða yfir höfuðaltari kirkjunnar og verður hann upplýstur. Kirkj- an hefur verið máluð að inn- an í ljósum lit, sem á mjög vel við marglita gluggana. Þegar fréttamaður blaðsins kom inn í kirkjuna, • skein kvöldsólin inn um gluggana á norðurhliðinni og marglitt endurskinið frá þeim sindraði á veggum. Var það fögur sjón. Að öðru leyti verður það ekki rakið hér, sem við blasti 1 Skálholti. Þar er nú unnið hörðum höndum að því að fullgera kirkjuna fyrir hina Framhald á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.