Morgunblaðið - 12.07.1963, Blaðsíða 10
!0
toORCVlSBLAÐlÐ
Fð«tudagur 12. júlí 1963
Svipast
af síldartunnu
Skyndimyndir
ÞAÐ gleður augu Siglfirðinga
að líta slíkan dag, sólheitan
og lognbjartan, spegilsléttan
fjörðinn tugi drekkhlaðinna
síldarbáta, söltun á lfestum
síldarstöðvum, annar á annir
ofan. Ljósmyndari Mbl. gefur
sér eilítið tóm frá framleiðslu
störfum, til að mynda lífið og
starfið í síldarbænum, í þeirri
trú, að ritstjórn Mbl. telji
framleiðslustörf til frétta af
betra taginu.
Myndin efst til hægri sýnir
söltunarstöð Pólstjörnunnar,
þar sem saltað er af kappi,
vanar stúlkur að verki, sem
skila góðu starfi, og vita, að
skipshafnirnar vilja sem stytzt
stanza í landi. Fremst sézt á
færibönd löndunartækja Dr.
Paul-verksmiðjanna, síðan
söltunarstöðin, þá Öldubrjót-
urinn, togari og saltskip,
fjærst Siglunesið, sem lokar
frá Siglufirði
firðinum og gerir hann beztu
höfn síldveiðiflotans.
Hver söltunarstöð hefur síld
armatsmann. Flestir eru þeir
karlmenn en kvenfólkið hasi
ar sér völl á flestum sviðum.
Hér er matsmaður hinnar
nýju söltunarstöðvar Óskars-
síldar h.f., frk. Gígja Sveins-
dóttir, (efri mynd t. v.), er
Margrét SI 4 færði stöðinni
hennar fyrstu síld á þessu
sumri.
Myndin nest t.v. er einn-
ig frá Margrétarsöltun Óskars
síldar. Fréttagildi hennar ligg
ur í færibandinu, sem flytur
síld úr skipi í kassa, upp í
hendur síldarstúlknanna. —
Framleiðandi er Klettur, Hafn
arfirði. Þessi færibönd eru
sjálf framtíðin í síldarsöltun.
Myndin neðst t.th. sýnir
löndun söltunarsíldar úr síld-
veiðiskipi.
Og myndin í miðju t.h. sýn-
ir fyrirbæri, sem er að hverfa
af sjónarsviðinu, nótabátinn,
sem elti hvert síldveiðiskip
fyrir 2—3 árum, en hefur nú
fengið hvíldina, vegna til-
komu aukinnar tækni. En
jafnvel gamlir snurpunótabát-
ar vilja gera sitt gagn í þjóð-
félaginu, sérstaklega á Siglu-
firði, þar sem allir taka þátt
í önnum sumarsins. Þessi
gamli bátur hefur einfaldlega
hvolft sér ofan myndarlegs
hænsnahúss, fengið sér hurð
og glugga, samlagazt landslagi
og umhverfi og hýsir nú 3—
400 hænsnaunga, væntanlegar
varphænur fyrir síldverkun-
arfólk, sem ekki veitir af
fjörgandi fæðu í síld og sól á
EiglufirðL
— Stefán.