Morgunblaðið - 12.07.1963, Side 20
20
J!iORGVNBLAÐIÐ
r
Föstudagur 12. júlí 1963
HlllOtRT FOOTMER:
H
Æ
T
IJ
L
E
G
IJ
R
FARMUR
— Nei.
Frú Storey sneri sér að Les
Farman. — Ég sting upp á því,
skipstjóri, að iæknirinn sé lokað
ur inni. Það er greinilegt, að
hann hefur myrt Horace Laghet,
eða veit að minnsta kosti, hver
gerði það. Við getum sent lög-
reglunni í New York skeyti og
beðið hana að hitta okkur í sótt-
varnarstöðinni.
Þá gafst Tanner upp. Nei, nei!
æpti hann. — Ég gerði það ekki.
Eg skal segja ykkur frá því öllu.
Þessi sprauta fór úr mínum
vörzlum í gær.
— Og hver fékk hana?
— Adrian.
— Jæja, sagði frú Storey. Það
var nú einmitt það, sem ég hef
verið að dorga eftir.
XXIII. kafli
Nú varð hádegisverðarhlé.
Hvað sem á gengur, verður að
borða um hádegið. Ég varð sjálf
að fá minn mat út að 9undlaug-
inni, af því að ég varð að vera
þar á verði, til þess að gæta
þeirra verksummerkja, sem þar
voru eða kynnu að vera. Við gát-
um aldrei vitað, hverjir voru á
móti okkur og hverjir með,
þarna um borð.
Meðan ég var að maula sam-
lokurnar mínar kom Martin
Coade niður stigann til mín, tin-
andi að vanda. — Halló Pink!
sagði hann. Hann var farinn að
kalla mig þessu gælunafni.
— Þú ert ekki lengi að borða,
sagði ég.
— Hvernig ætti maður að geta
étið, sagði hann og veifaði hendi
— Eg hélt að þú yrðir frá þér
í þessu sláturhúsi hélt hann á-
fram og horfði kring um sig —
og þessvegna kom ég til þín.
— Það var hugulsamlegt af
þér sagði ég þurrlega.
— Þetta tilstand hefur alveg
gert út af við mig sagði hann
og stráuk hendi yfir andlitið á
sér.
Martin kunni svo vel að leyna
ðllum tilfinningum sínum að mér
leið alltaf hálfilla í návist hans.
Þarna vissi ég ekki hverju svara
skyldi.
— Þú heldur að ég sé alveg til
finningalaus eða hvað?
— Ekki beinlíinis það sagði ég
— en þú hefur tekið upp á alveg
sérstakri framkömu. Sannast að
segja þekki ég þig alls ekki.
— Og ég er alveg eins og
manneskja Pink.
— Hætt er við. En þú ert alltaf
að tina með augunum til þess að
leyna tilfinningum þínum.
Hann hló lágt. — Þetta hefur
frúin bent þér á!
— Áttu við að ég hafi ekki
haft vit á að finna það út sjálf?
— Þér hefur víst aldrei dottið
það í hug, að einkaritari mill-
jónara verður að gera svo vel
og læra að leyna tilfinningum sín
um. f
— Eg skil, hvað þú átt við, en
nú er ég bara ekki húsbóndi þinn
— Eg kann vel við þig, Pink,
sagði hann.
Hann hló. — Þú ert nú annars
ekki falleg, en þú hefur nóg af
súrefni í þér.
Þó að ég ásetti mér að reiðast
ekki hafði Martin alltaf lag á
að hleypa mér upp áður en lauk.
Hann var ljótur maður, en þessi
rósemi hans gerði mig alltaf óró
lega. Og hann var fjandans vel
greindur. Eg vildi engu svara
honum og hann lallaði frá mér,
áleiðis að fimleikasalnum.
— Farðu ekki þarna inn sagði
ég.
— Hvers vegna ekki?
— Skipun.
— Gildir hún fyrir mig? spurði
hann hissa.
— Það veit ég ekki, en þú
ferð ekki þarna inn fyrr en ég
hef fengið að vita það.
Hann sneri frá hurðinni. —
Hvaða sönnunargögn þykist frú
in hafa þarna inni?
— Það veit ég ekkert.
— Hvað finnst þér um __________
glæpastarfsemi, Pink Eg botna
ekki í henni upp eða niður.
— Sama hér.
— Frúin hlýtur að hafa ein
hverja sérstaka skoðun á þessu,
sem hún er að reyna að sanna.
— Mjög trúlegt, sagði ég, —
en hún segir aldrei neinum frá
kenningum sínum, fyrr en hún
hefur sannað þær.
— Öll böndin berast að Adri-
an, en mér finnst bara ekki, að
annar eins hreggviglópur gæti
hugsað út svona ráðagerð.
— Hver veit nema Adrian hafi
eins og fleirum, tekizt að leyna
sínum rétta innra manni, sagði
ég.
Martin rak upp þennan hljóm-
lausa hlátur sinn, sem var í raun
inni engin hlátur, heldur bara
kippir í andlitinu. — Bravó, Pink
En í alvöru að tala, Pink, furðar
mig á því að hún skuli ekki beina
athyglinni að Emil hinum unga.
Ef hún er að lfeita að tilgangi, þá
hefur hann meiri ástæðu til þess
arna en nokkur annar. Við dauða
Horace fær hann ekki aðeins
stelpuna, heldur lika peningana!
Eg benti honum á, að Emil og
Celia hefðu alls ekki sézt fyrr
en þau komu um borð, og að sam
særið hefði verið stofnað áður en
vio lögðum af stað.
— Hver veit þá nema um tvö
samsæri sé að ræða, sagði hann
kæruleysislega.
Eg vildi ekki láta draga mig
inn í neinar umræður um málið,
og svaraði því engu. Martin hélt
áfram að tala um hitt og þetta
a . þangað til hitt fólkið fór að
tinast að, niður stigann.
Það var komið með borð ofan
úr salnum, til þess að mér væri
auðveldara að skrifa niður það,
sem fram færi. Þegar frú Storey
settist niður við það, við hliðina
á mér, og ég hafði lagt minns-
t kina mina á borðið, fór þetta
að lita út eins og réttarsalur. Hitt
fólkið sat á marmarabekkjunum
upp við vegginn, eða stóð fyrir
neðan stigann. Jim gamli, háset-
inn, var nú mættur til að bera
vitni.
Jafnskjótt sem komið var með
Adrian úr fangelsi hans, tók
hann að jarma um sakleysi sitt.
— Það er fúlmennska að saka
mig um bróðurmorð! Og heimsku
legt! Eg var lokaður inni, þegar
það skeði.
— Gott og vel, sagði frú Stor-
ey. — Þú færð bráðlega tæki-
færi til að verja þig, en fyrst
ætla ég að leggja nokkrar spurn
ingar fyrir lækninn.
Tanner var nú búinn að jafna
sig af mestu hræðslunni. Þoku-
kenndu, útstæðu augun, sem
gátu ekki látið neina tilfinningu
í ljós ollu þvi, að hann sýndist
vera að ljúga, hvort sem hann'
var að þvi eða ekki. Þegar frú
Storey spurði hann, hvernig
sprautan hefði komizt í hendur
Adrian, sagði hann.
— í gær, eftir hádegisverð,
kom Jim gamli í lækningastofuna
til m.'n og sagði, að Adrian
væri veikur og vildi tala við mig.
Hann sagði, að skipstjórinn hefði
gefið leyfi til þess, með því skil-
yrði, að hann — Jim,,— væri inni
hjá okkur á meðan. Svo að ég fór
með honum. Jim stóð í dyrunum
á herbergi Adrians, en hann gat
ekki heyrt, hvað okkur fór á
milli.
— Adrian var kolbilaður á öll
u... taugum, en annað gekk ekki
að honum. Hann sagði mér, að
hann væri alveg að niðurlotum
kominn, og mundi falla alveg
saman, ef hann fengi ekki
skammt af kódeíni. Hann sagðist
vera vanur að fá það í sprautu
og hefði nóg af því, en hefði
brotið sprautuna sína, og vildi fá
aðra í staðinn. Eg sagðist verða
að fá leyfi skipstjórans, en Adri
an grátbændi mig um að segja
ekki frá því, að hann væri eitur
lyfjaneytandi, svo að ég lofaði
honum því.
— Hvað bauð hann yður mik
ið fyrir? spurði frú Storey.
Augun ætluðu út úr Tanner. —
Það er ekki ætlazt til, að ég taki
borgun af mönnum hér um borð,
sagði hann lágt.
— Eg er ekki að spyrja að því
heldur að hinu, hvað þér fenguð
í þetta sinn.
— Ekkert.
— Haldið þér áfram.
■— Eg fór aftur inn í lækninga
stofuna og náði í sprautuna og
einnig nokkrar meinlausar töflur.
Eg sýndi Jim töflurnar, sem ég
ætlaði að gefa Adrian, en skaut
að honum sprautunni um leið og
ég kvaddi hann með handabandi,
þegar ég fór.
— Og hvað var meira með
sprautunni?
— Ekkert! svaraði Tannar æst
ur. — Ekkert nema nokkrar sóda
töflur. Eg sver það! .... Nú, eí
Horace hefur. verið drepinn með
þessari sprautu hefur orðið að
nota eitthvert eldsterkt eitur. Og
ég hef ekkert slíkt í minu apó-
teki. Þér getið rannsakað það. Eg
þekki ekki einu sinni neitt eitur,
sem er svona fljótvirkt.
— Yið komum að þvi seinna,
sagði hún rólega. — Ef þér eruð
heiðarlegur maður, hversvegna
sögðuð þér mér þá ekki þetta
st. _x þega'r ég var að spyrja yð
ur
— Eg vildi ekki taka á mig.
þá ábyrgð að fara að ásaka Adri
an, tautaði hann.
— Þér eigið við, að yður hefur
verið borgað fyrir að halda yður
saman?
Tanner drap höfði.
— Þetta sannar ekkert, greip
Adrian fram í með æsingi. —
Eg get hæglega gert grein fyrir
þessu öilu.
— Ekki er að efast um það,
svaraði frú Storey þurrlega. En
bíddu andartak.... Jim! Hafið
þér sama að segja og læknirinn
um þessa sjúkravitjun?
•— Já, frú, en ég vissi bara ekk
ert, að læknirinn hefði afhent
honum neitt.
— Nei, vitanlega vissuð þér
það ekki.
— Eg hefði betur verið þama
viðstaddur sjálfur, sagði Les Far-
man og hleypti brúnum. — En
ég var bara svo önnum kafinn.
Og mér fannst ekki ég geta látið
manninn bíða til óþarfa eftir
læknishjálpinni.
— Við skulum sleppa því,
sagði frú Storey. — Það verður
ekki við öllu séð.... Jim! Fékk
Adrian Laghet nokkra aðra heim
sókn?
— Nei, frú. Ekki nema skip-
stjórans og mína.
— Lofaðu mér að útskýra
þetta, sagði Adrian.
— Gott og vel. Komdu með
skýringuna.
— Það sem læknirinn sagði, er
ekki nema dagsatt, sagði Adrian
með ákafa. Eg bað um sprautuna
til þess, sem hann sagði og hann
kom með hana til min. Eg hafði
kódeínið sjálfur.
— Var ekki leitað á honum
þegar hann var lokaður inni, skip
stjóri?
— Jú, frú. Eg get svarið, að
hann hafði hvorki kódeín né
neitt annað á sér þá.
— Það var í snyrtitöskunni
minni, sem mér var færð seinna,
sagði Adrian. — í leynivasa í
henni.
Húsmóðir mín leit spyrjandi á
Les.
— Eg efast um það, sagði hann
— Eg rannsakaði töskuna sjálfur
— Við skulum sleppa þvi i
bili. Aðalatriðið er hitt, hvernig
sprautan hefur komizt hingað
niður í laugina.
— Það er ekki sú sama, svar-
aði Adrian einbeittur.
— Einmitt. Geturðu þá komið
með sprautuna, sem þú fékkst
hjá lækninum?
— Nei, ég fleygði henni út um
gluggann.
Frú Storey lyfti brúnum. —
Jæja, svo að þú fleygðir henni
út um glugga. Til hvers gerðirðu
það og vera nýbúinn að vera vit
laus að ná henni?
— Ja, ég fór að hugsa málið
ná.iar sagði Adrian hátíðlega, —
og ég varð hræddur við þetta
vald, sem lyfið var búið að fá á
mér. Eg ásetti mér að þola hvað
sem væri heldur en láta það ná
fullu valdi á mér. Og svo fleygði
ég sprautunni út um gluggann.
Hún er nú á mararbotni.
— Það var mjög svo lofsvert,
sagði frú Storey með uppgerðar
samúð. — Svo að þú varst far-
inn að verða veikur fyrir lyfinu
Adrian var fæddur ' lygari.
Stóru, brúnu augun ranghvolfd-
ust eins og af kvöhun. — Það var
hræðilegt! stundi hann. Þessi
löngun! Eg barðist við hana, en
hún varð mér yfirsterkari. Eg var
farinn að missa alla sjálfsvirð-
ingu! Svo kom vonarsvipur á and
litið. — En ég held, að ég sé nú
kominn yfir það versta. Eg hef
ekki snert við því í þrjá daga,
og löngunin er ekki eins sterk og
áður.
íiltltvarpiö
Föstudagur 12. Júlí.
8:00 Morgunútvarp.
12:00 Hádegisútvarp.
13:15 Lesin dagskrá næstu viku.
13:25 „Við vinnuna*4: Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp.
18:30 Harmonikulög. — 178:50 Til«
kynningar. — 19:20 Veðuríregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Efst á baugi (Björgvin Guð*
mundsson og Tómas Karlsson).
20:30 „Shéhérazade", lagaflokkur eftir
Ravel (Victoria de los Angel^
e« syngur við undirleik hljóm«
sveitar).
20:45 Frásaga: Stjörnuhrap (Gunnar
Róbertsson Hansen leikstjóri)
21:06 Tónlist fyrir trompeta og hljóm
sveit eftir Vivaldi og Purcell
(Roger Voisin ug Armando
Ghitalla leika með Unicorn
hljómsveitinni; Harry Ellis Diclg
son stjórnar).
21:30 Útvarpssagan: ,Alberta og Jakob*
eftir Coru Sandel; XIV. (Hann«
es Sigfússon).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Kvöldsagan: „Keisarinn 1 Al«
aska'* eftir Peter Groma; XII.
(Hersteinn Pálsson).
22:30 Menn og músik; U. þáttur:
Tjaikovsky (Ólafur Ragnar
Grímsson hefur umsjón á hendi)
KALLI KUREKI
- *
7< -
Teiknari: Fred Harman
„Ég held ég ætti að hreinsa til í
kofa þess gamla. Hvort sem hann
komst undan, eða var gripinn, þá
þarf hann ekki á honum að halda
framar. Skítug föt, skítugir diskar,
óumbúið rúm. Enginn nema gamall
piparsveinn gæti skilið svona drasl
eftir sig“.
„Hæ, frænka.“ „Hvað í ósköpunum
ert þú kominn aítur?“
i
1JS DaffKkrirlAk