Morgunblaðið - 12.07.1963, Síða 22
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 12. júlí 1963
Akureyringar unnu
bæjarkeppni í goifi
71 árs gamall maður í
öldungakeppninni
GOLFMEISTARAMÓT íslands
og Golfþingið hófst í gærmorg-
un á Akureyri. Var golfþingið
sett kl. 10 og stóð til hádegis.
Mörg ir.íl golfmanna voru rædd
og við stjórnarkjör var stjórn
Golfsambandsins endurkjörin, en
hana skipa: Sveinn Snorrason
forseti, Halldór Magnússon gjald
keri, Stefán Árnason ritari og
Lárus Ársælsson meðstjórnandi.
Akureyri vann hæjakeppni
í gær fór einnig fram bæja-
keppni miMi Akureyrar, Reykja-
víkur og Vestmannaeyja og var
keppt í 6 manna sveitum, 18 hol-
ur. —
Úrslitin urðu þau að Akur-
eyri sigraði með samtals 511
Ihögg. Næst varð sveit Reykja-
víkur með 526 og Vestmanna-
eyingar með 568 högg.
Lægstan höggatfjölda af kepp-
enduim í bæjakeppninni hafði
Óttar Yngvason Rvik 80 högg,
Magnús Guðmundsson Akureyri
81 högg, Gunnar Sólnes 83, Her-
mann Ingimundarson Akureyri
84 og Pétur Bjarnason Reykja'
vík 84.
-ár Öldungakeppni
Kl. 1.30 síðdegis hófst keppni
öldunga og vakti það athygli
hversu liprir og duglegir aldnir
garpar voru. Við vitum ekki um
aldur alira, en Helgi Skúlason
er 71 árs og varð fjórði. Ekkert
eýnir betur en þetta að goitf er
tfyrir fólk á öllum aldri.
Úrslitin í öldungakeppninni
urðu þau að án forgjatfar sigraði
Haildór Magnússon, Reykjarvik,
með 104 högg, Jón Guðmunds-
son, Akureyri, varð annar með
105, Jón G. Sólnes, Akureyri, 107
og Helgi Skúlason, Akureyri, 109.
Með forgjöf líta úrslitin svo
út: Jón Guðm. Ak. 89, Halldór
Magnússon 92 og 3.-4. Helgi
Skúlason og Jón Sólnes 93.
>að var mjög kalt á Akureyri
1 gær, á að gizka 4—5 stig og
strekkingshvasst að norðan. —
Hetfur það án efa háð keppend-
um nokkuð, að sögn fréttaritara
Morgunblaðsins.
ÞESSAR myndir eru frá frjáls
íþróttamóti IR í fyrrakvöld
þar var hörkukeppni í nokkr
um greinum og bráðskemmti
leg, þá árangur yrði af ýms-
um sökum ekki á afreksmæl
kvarða. Á efstu myndinni má
sjá úrslitin í 100 m hlaupinu
Þar var slík keppni að líkar
til stórmóta erlendis. 2/10 úr
sek skildu fyrstu fjóra menn.
Valbjörn sigraði, kornungur
KR-ingur Einar Gíslason varð
2., Skafti Þorgríms (næstur)
yfir á undan Úlfari Teitssyni
og síðan Bandaríkjamaður
John Hill og Gestur Einars-
son.
Á minni myndinni sézt
Kristín Kjartansdóttir IR er
keppir í langstökki kvenna.
Það • leynir sér ekki að hún
leggur sig fram — eins og á
að gera í íþróttum — enda
náði hún góðum árangri af
byrjanda að vera.
Þá eru úrslit í 100 m hlaupi
sveina. Þar varð hörkukeppni
Jón Þorgeirsson IR sigraði og
Geir V. Guðjónsson IR (nær)
er á sama t'nia en Jón Þor-
grímsson IR er þriðji.
Fáir œtla að Patter-
son geti sigrað Liston
Bardarískir hnefaleikaunnendur heimta
Cassius Clay gegn Liston
KEPPNIN milli Floyd Patter
son og Sonny Liston um heims
meistaratitilinn sem fram
fer 22 júlí í Las Vegas virðist
ætla að verða hálfgert
hneyksli. Þó auglýsingalúðrar
iu blásnir af fullum krafti,
hafa aðeins fáir miðar selzt
og flest kvikmyndahús hafa
hafnað tilboði um kaup á sjón
varpsrétti til að sýna leikinn
um leið og hann fer fram.
Sökin er Floyds Pattersons,
Enginn spáir því að hann hafi
minnstu möguleika til að sigra
— Látið Cassius Clay
skipta um hlutverk við Patt-
erson skrifa bandarísku blöð-
in. Það er „titil-bardagi" milli
Liston og Clay sem fólkið vill
sjá.
Þannig segir Politiken frá
og heldur áfram.
Trúir ekki á sjálfan sig
Það undarlegasta er að Patt
erson hefur enga trú á að
hann muni sigra.
— Eg er hræddur við Liston
hann er svo risavaxinn og
höggkraftur hans er svo mik
ill. En ég held að ég muni
standa mig miklu betur en
síðast.
En það eru ekki margir sem
samþykkja þá trú hans, og
meðal þeirra er hinn gamli
heimsmeistari Joe Louis.
— Það er engin ástæða til
að ætla að leikurinn nú verði
öllu lengri en síðast, segir
Louis. Patterson er búinn að
vera og það ætti honum að
vera Ijóst sjálfum.
Nafn Ingemars notað
á auglýsingunum
Þegar Liston vann titilinu
af Patterson stóð bardaginn
2 mín og 6 sek. Samt hamra
auglýsingaagentar Pattersons
á því að Floyd verði fyrsti
maðurinn til að endurvinna
heimsmeistaratitilinn tvívegis
og er ákaft vitnað í kappleiki
hans þrjá við *ngo Johanns-
son.
Fæstir láta sannfærast.
Miðasala.i er bezta sönnunin.
Framh. á bls. 23
Innanfélags-
mót KR
FR J ÁLSÍÞRÓTT ADETLD KR
efnir til innanifélagsmóts í dag
kl. 17' á Melavellinum. Keppt
verður í 80 m grindahlaupi
kvenna, 110 m grindaihlaupi
karla, 100 m hlaupi karla og
kvenna, langsitökki, stangar-
stökki, 800 m hlaupi og kúlu-
varpi.
Keppa
í kvöid
f GÆRKVELDI komu skozku
strákarnir 16—18 ára, sem KR
hefur boðið hingað til knatt-
spyrnukeppni. Þeir voru kátir og
glaðir, en hissa yfir birtunni.
Þeir leika sinn fyrsta leik gegn
KR í kvöld á Laugardalsvelli —
en alls leika þeir hér 5 leiki.
Skaiti upprennandi
400 xn hlaupari
í GÆRDAG fóru fram tvær
síðustu greinar frjálsíþróttamóts
ÍR og var keppt í 400 m hlaupi
og slegg’jukasti á Melavellinum.
Náðist góður árangiur í báðum
greinum.
Sérstaka atlhygli vafeti 400 m
hlaupið. Skafiti Þorgrímsson, ÍR,
sigraði á 50.9 sekúndum, sem er
nýtt unglingamet. Það gamla
áttti hann sjáltfur frá því í lands-
keppninni við Dani. Annar var
Kristján Mikaelsson, ÍR, á 51.8,
sem er hans bezti tími.
Ga/bor, hinn ungverski þjáltf
ari ÍR, lét svo um mælt etftir
Ihlaupið, að miðað við aðstæð-
ur (strekikingsvind) væri atf-
rekið mjög gott og þýddi
raunvarulega árangur undir
50 sek. Virðist Skatfti þarna
hatfa fundið sína sérgrein.
í sleggjukasti sigraði Þórð.
ur B. Sigurðsson, 51.91, og
Friðrik Guðmundsson kastaði
46.14.