Morgunblaðið - 29.08.1963, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 29. ágúst 1963
MOKGUNBLADIÐ
23
Rannsóknur-
lögreglan
biðus um vitni
í FYRRINÓTT var brotizt
inn í Buick-fólksbifreiðina,
R-2105. sem er brún að lit
með hvítum toppi, þar sem
hún stóð við Sundhöllina,
Bergþórugötumegin. Bifreið-
inni var stolið og henni ekið
að því er mælar sýndu um
100 mílur en skilað aftur á
sama stað.
Þeir sem kynnu að hafa orð
ið varir við bifreið þessa um
nóttina frá kl. 24.30 til 7.30
um morguninn eru beðnir að
láta rannsóknarlögregluna
vita.
f fyrradag var ekið á fólks-
| bifreiðina R-3700, v sem er
rauð Borgward-bifreið, þar
sem hún stóð í húsagarðinum
hjá Breiðfirðingabúð. Bifreið
in var skemmd að aftan,
m. a. brotið afturljós.
ökumaður sá, er valdur er
að þessum skemmdum, er beð
inn að hafa samband við rann
sóknarlögregluna svo og
vitni, er kynnu að hafa séð
atburð þennan.
— Viljum frið
Framh. af bls. 1
kjör allra stétta“, sagði for-
sæisráðherrann.
Lyng sagði, að þær full-
yrðingar að stjórnin mundi
falla innan skamms vegna
inribyrðis ósamkomulags,
væru úr lausu loft gripnar.
„Með tilliti til ástandsins í
þinginu, tel ég að hér sé um
að ræða beztu ríkisstjórn,
sem völ var á“, sagði Lyng.
Er Lyng var inntur eftir
því, hvort yfirlýsing stjórn-
arinnar um stefnu sína, sem
væntanleg er, yrði ekki
„tannlaus“, svaraði hann því
til að víst væri að Verka-
mannaflokkurinn mundi ekki
verða ánægðari með hina
nýju stjórn eftir að stefnu-
skrá hennar hefði verið birt.
Aðspurður um ástandið í iðn
aðarmálaráðuneytinu vegna
atburðanna í Kings Bay,
sagði Lyng að hann vonaðist
til þess að stjórnin fengi að
sitja nógu lengi til þess að
menn gætu litið vandamálin
réttum augum,
Finn Gustavsen, annar
tveggja þingmanna sósíalist-
iska þjóðarflokksins, en þeir
hafa oddaaðstöðu á þinginu,
skýrði fréttamanni NTB svo
frá í gær að kæmi til þess
að Verkamannaflokkurinn
mundi bera fram vantraust
á hina nýju stjórn, myndu
þingmenn þjóðarflokksins
„vel geta hugsað sér“ að
greiða vantraustinu atkvæði.
— Mannréttindag.
Framh. af bls. 1
listafólkið tæki margt þátt í
göngunni til þess að auglýsa sig,
en í gær bar Sammy Davies
þetta harðlega til baka og kvað
ásakanir af þessu tagi „hlægi-
legar.“
Léttur andi rikti hjá göngu-
mdnnum, sem báru þúsundum
saman spjöld þar sem á voru
letraðar kröfur um jafnrétti
hvítra og svartra, afnám kyn-
þáttamisréttis í skólum, á vinnu
stöðum o.fl.
Enda þótt margir hvítir menn
tækju þátt í göngunni ber sjón-
arvottum saman um að í henni
hafi verið a.m.k. 15 sinnum
fleiri hörundsdökkir menn. Margt
göngumanna hafði komið til höf-
uð borgarinnar með lestum, bíl-
um og flugvélum til þess að taka
þátt í göngunni, og voru þeir
frá öilum fylkjum Bandaríkj-
anna.
Eins og fyrr getur kom ekki
til átaka vegna göngunnar en
nazistaforinginn George Lincoln
Rockwell mætti hinsvegar með
70 manna hóp stormsveitar-
manna. Ekki báru nazistarnir
hakakrossa né einkennisklæði
sín. Nazistarnir voru þegar um-
kringdir af múr lögreglumanna.
Einn þeirra, Karl Allen, hægri
hönd Rockwells, reyndi að á-
varpa göngumenn, þrátt fyrir að
lögreglan bannaði slíkt. Var
Allen þegar handtekinn. Nokkru
síðar var annar maður handtek-
inn fyrir að þrífa kröfuspjald af
einum göngumannanna og reyna
að eyðileggja það.
Mikið lið lögreglumanna var
til staðar til þess að afstýra
óeirðum ef til kæmi. Talsmaður
lögreglunnar upplýsti í kvöld að
alls hefðu verið við gönguna
2.934 lögreglumenn, 303 varalög-
reglumenn, 355 brunaliðsmenn
og 1.735 menn úr öryggisverð-
inum.
Kennedy Bandaríkjaforseti gaf
í morgun út fyrirlýsingu þar
sem sagði að það sem áunnizt
hefði í málum litaðra manna
1963 mundi aldrei aftur verða
frá þeim tekið og að frekari
framfara í þessum málum væri
að vænta á næstu mánuðum.
Áður en gangan hófst í morgun
gengu leiðtogar hennar á fund
leiðtoga Bandaríkjaþings en
ekki hefur frétzt um hvað þar
fór á milli. Er þó talið að þing-
menn hafi tekið göngumönnum
vel.
í göngunni leið yfir hundruð
manna vegna hita og mæði,
þótt ekki væri leiðin löng. Var
'hresst up á þetta fólk á sér-
stökum stöðvum, sem komið
hafði verið fyrir við Consti-
tution Avenue.
Talsverð skelfing greip um
sig um tíma eftir að ónafn-
greindur maður hafði hringt til
lögreglunnar og tilkynnt að
sprengjur væru faldar í minnis-
merkjum Lincolns og Washing-
tons. Reyndist þetta uppspuni en
Washington-minnismerkinu var
lokað um tíma vegna atburðar-
ins.
Loks er þess að geta að George
Lincoln Rockwell á að hafa sagt
er hann hélt á braut með storm-
sveitarmönnum sínum: „Ég
skammast mín fyrir kynþátt
minn.“
Ljósmyndari Mbl. Sv. Þ. baff Nínu Tryggvadóttur aff standa framan viff uppáhaldsmálverk sítt
á sýningunni, en hún kvaffst ekki geta gert upp á milli mynda sinna frekar en móðir á milli
barna sinna. — Hér sést hún framan við eitt elzta málverkið á sýningunni, sem er af bróður
listakonunnar, Viggó Tryggvasyni. Það var málað 1937.
Nína Tryggvadóttir
sýnir í Listmanna-
skálanum
NÍNA Tryggvadóttir, listmái-
ari, opnar á morgun (laugar-
dag) sýningu á um 60 málverk-
um í Listamannaskálanum.
Stendur sýningin í tvær vikur
og er opin daglega frá 1-10.
Átta ár eru nú liðin frá því
Nína Tryggvadóttir hélt síðast
málverkasýningu í Reykjavík,
en árið 1956 sýndi hún nokkrar
gluggaskreytingar. Á sýningunni
núna er ubæði ný og gömul
málverk, og má segja að hér
— Vietnam
Framh. á bls. 23.
leiðar að útgöngubann var sett á.
Fréttastofan S-Viet Nam sagði
í dag að um 600 þúsund manns
hefðu tekið þátt í fundum og
lýst stuðningi sínum við stefnu
stjórnar landsins. Sagði frétta-
stofan einnig að fjöldi prófessora
og stúdenta úr röðum Búddatrú-
armanna hefðu gert forseta lands
ins, Ngo Dinh Diem, orð og
beðizt afsökunar á framferði
sínu.
Ho Ohi Minh, forseti Norður-
Viet Nam, sem er í höndum
kommúnista, beindi í dag máli
sínu til íbúa Suður Viet Nam.
Hvatti hann þá til þess að sam-
einast gegn stjórn Ngo Dinh
Diem, og sagði „bandaríska
heimsvaldasinna1 um að bera á-
byrgð á núverandi ástandi í
Suður Viet Nam. Bárust fregnir
um áskorun Ho Chi Minh frá
Hanoi í dag.
jgmmmmwmxmimi
sé um yfirlitssýningu að ræða,
sem nær yfir 25 ára starf lista-
konunnar. Fáeinar myndanna
eru í einkaeign en flestar eru
til sölu.
Nína Tryggvadóttir hefur
haldið fjölda sýninga víða um
heim, og lauslega taldist lista-
konunni til að hún hefði hald-
ið um 17 einkasýningar, en gat
ekki kastað tölu á samsýningar
þær, sem hún hefur tekið þátt
í. Síðasta sjálfstæða sýning henn
ar var í Osló í marzmánuði s.l.
og var henni vel tekið þar
og margar myndir seldust. Hún
hefur nú verið búsett um nokk-
urra ára skeið í New York, en
var áður búsett í París og Lond
on, og hefur haldið sýningar í
þessum þremur stórborgum.
Nína Tryggvadóttir hefur lagt
stund á gluggaskreytingar jafn-
Ilin nýja ihöfn Milwood á Reykjavikurflugvel li í gærkvöldi, — Sjá frétt á bls. 1.
Námskeiðkirkju-
organista ogsöng
stjóra í Skálholti
NÁMSKEIÐ kirkjuorganista og
söngstjóra verður haldið í Skál-
holti á vegum Þjóðkirkjunnar
dagana 29*. ágúst — 6. septem-
beró Söngmálastjóri Þjóðkirkj-
unnar Dr. Róbert A. Ottósson
veitir námskeiðinu forstöðu.
Þátttakendur verða 17, víðsvegar
að af landinu. Munu þeir búa
í biksupssetrinu meðan á nám
skeiðinu stendur.
Auk söngmálastjóra annazt
kennslu þeir Guðmundur Gils-
son, organleikari og.Birgir Hall-
dórsson, söngvari. Á sunnudag
verður almenn messa kl. 2 e.h.
en kl. 4 síðd. flytur dr. Páll
Isólfsson erindi í kirkjunni um
dr. Albert Schweitzer.
Önnur samkoma, opin almenn-
ingi, verður miðvikudaginn 4.
sept. en þá flytur biskup íslands
herra Sigurbjörn Einarsson
ávarp, séra Sigurður Pálsson flyt
ur erindi um tíðasöng, Guðmund
ur Gilsson leikur á orgel og Birg
ir Halldórsson syngur. Ennfrem-
ur verður fluttur tíðasöngur
undir stjórn söngmálastjóra.
Meðan námskeiðið stendur
yfir verður kirkjan aðeins opin
almenningi til kl. fjögur síð-
degis.
hliða málaralistinni. Má geta
þess, að hún hefur skreytt 14
glugga í kirkju heilags Anton-
íusar í Langweller í Þýzkalandi
og þrjá glugga í Þjóðminjasafn-
inu í Reykjavík. Hún hefur lít-
illega fengizt við að mála leik-
tjöld teikna búnihga, m.a. í leik-
rit Igor Stravinski, „Saga her-
mannsins“, sem flutt var 1945
í New York.
Mörg listasöfn hafa keypt
myndir eftir listakonuna, svo
sem: Listasafn ríkisins í Reykja-
vík, The Museum og Modern
Art í New York, Listasafnið í
Saint-Etienne í Frakklandi, Suer
mondt-safnið í Þýzkalandi og
Listasafnið í ísrael.
— Reyndu oð ...
Framh. af bls. 24
kl. 8 valt báturinn skyndilega
á hliðina og sökk niður á aft-
urendann. Sigurbjörg lagði
upp að okkur, þegar þeir sáu
hvað fara gerði og við stukk-
um um borð til þeirra á síð-
asta augnabliki. Knútur kom
svo líka til okkar og flutti
Sigurbjörg okkur alla til
Húsavíkur, en þangað kom-
um við klukkan að verða 12.
— Ég vildi svo að lokum
koma á framfæri hjartanlegu
þakklæti okkar félaga til
skipverja á Sigurbjörgu og
Þorfinni fyrir björgun okkar
og aðhlynningu, svo og til
áhafna annarra báta, sem
reiðubúnir voru að veita að-
stoð sína, sagði Ólafur skip-
stjóri. — Sv. P.
Nýjar tillögur
Pathet Lao?
Vientiane, Laos, 26. ág. AP
EINN ÞEIRRA ráðherra í sam-
steypustjórninni í Laos, Phao
Phoumi Vongvichit, sem mjög er
hlynntur kommúnistum, kom 1
dag til Vientiane eftir að hafa
dvalizt í fjóra mánuði í aðal-
bækistöðvum Pathet-Lao-hersins
á Krukkusléttu. Ráðherrann
hafði farið þangað í apríl, sök-
um þess, að hann taldi öryggi
sínu ógnað. .
í för með Vonvgcihit er Soup-
hanavong prins, foriftgi Pathet
Lao-hreyfingarinnar,
Hyggjast þeir, að eigin sögn,
leggja fyrir Souvanna Phouma
forsætisráðherra, nýjar tillögur
um lausn deilumála kommúnista,
hlutlausra og hægri manna,
þannig að stjórnin get hafizt
handa um eðlileg stjórnarstörf.