Morgunblaðið - 29.08.1963, Blaðsíða 24
Augtýsingarábfta
Utanhussauglýsingar
allskonarskilti oft
184. tbl. — Fimmtudagur 29. ágúst 1963
AUGLYSINGA&SKILTAGERÐIN SF
Bergþórugötu 19 Sirhi 23442
Ólafur Affalbjömsson, skipstjóri og Hrafnhildur Ini?ólfsdóttir,
kona hans. Börn þeirra frá vinstri: Pétur, Maria og Inga
Margrét.
verða okkar fyrsta verk að
setja gúmbátinn á flot og
koma strengnum i hann,
reyn’dum svo að byrgja eld-
inn niðri í vélarhúsi og gátum
náð slökkvitæki, sem var í
stýrishúsinu og tæmdum það
á eldinn. Lítil benzínvél er
notuð til að ræsa aflvélina og
hefur eldurinn sjálfsagt kom-
izt strax í benzínið. Við vor-
um hræddastir um, að eldur-
inn kæmist í olíugeymana og
þeir spryngju, eldurinn var
svo bráður — þá hefði ekki
verið að sökum að spyrja. Við
kölluðum nú á Siglufjarðar-
radío og báðum um að varð-
skip kæmi, en þau voru vist
hvergi nálægt. Ég er ekki viss
um, að báturinn hefði sokkið
ef varðskip með öflugar
slökkvidælur hefði komið
fljótPega, en þarna voru bátar
nálægt bæði Sigurbjörg frá
Flatey og tveir bátar frá Hrís
ey. Annar þeirra, Þorfinnur,
tók Knút bráðlega upp í úr
gúmbátnum, en við Hjörtur
Reyndu að draga bátinn til lands
en eldurinn grandaði honum
áður en það tækist
að borða. Sáum við þá, hvar
bál mikið steig upp úr vélar-
rúminu, undir stýrishúsinu og
blásvartur reykur hnyklað-
ist í loft upp. Við létum það
Akureyri, 28. ágúst.
SKIPBROTSMENNIRNIR af
vélbátnum Guðmundi EA 142,
sem sökk á Skjálfandaflóa í
gærkvöldi, komu til Akureyr-
ar um kl. 1,30 í nótt, landleið-
ina frá Húsavík, en þeir voru:
fórum um borð í Sigurbjörgu,
sem tók bátinn í tog. Hann
stýrðist illa, og brátt slitnaði
tóið. Fórum við þá um borð
aftur og settum nýtt tó í
hann. Eldurinn virtist hafa
rénað nokkuð, svo að ég fór
að reyna að byrgja hann bet-
ur, en Hjörtur stýrði’. En um
Framh. á bls. 23
T.v. Hjörtur Fjeldsted og Knútur Eiffsson, t. h.
■
Knútur Eiðsson, 18 ára Aðal-
stræti 23, allir búsettir á
Akureyri.
Fréttamaður Mbl. hitti þá
hvern um sig að máli í dag á
heimilum þeirra. Yfir þeim
öllum hvíldi nsú rósemi og
æðruleysi, er einkennir ís-
lenzka sjómenn, þegar þeir
rata í háska. Þeim kom sam-
an um, að allt hefði gerzt svo
snögglega og óvænt, að þeir
væru varla farnir að átta sig
á staðreyndum enn.
Ólafi skipstjóra sagðist svo
frá atburðum:
„Við vorum staddir um 10
mílur NA af Flatey kl. 6 í
gærkveldi í NV-golukalda,
allra sæmilegasta veðri. Við
vorum þarna með ufsanót og
handfæri og vorum nýbúnir
Hótelmenn fjöl-
menna til Zermatt
Ekki óttast um taugaveiki Jbar lengur
þessi kunni ferðamannabær rétti
sig við á ný.
Héðan frá íslandi situr einn
maður mót þetta, en það er Þor-
valdur Guðmundsson, veitinga-
maður og hótelstjóri.
Góð véiði út af
Langanesi í gær
Veður þó ekki gott a veiðisvæðinu
RAUFARHÖFN, 28. ágúst. — Síð
degis í dag fór veður batnandi á
síldarmiðunum austur af Langa-
nesi. Veður var hinsvegar ekki
orðið gott. Skipin byrjuðu að
kasta og mörg fengu góðan afla,
en mikið var um að menn
skemmdu nætur vegna sjógangs,
samfara því að mikil síld kom í
næturnar. Kunnugt er um afla
eftirtalinna skipa:
Faxaborg 900, Gullfaxi 1100,
Helga RE 1300, Sigfús Bergmann
750, Mánatindur 800, Sigurpáll
1500, Sæúlfur 600, Hilmir 400,
Anna '800, Grótta 800, Ólafur
Tryggvason 1000, Guðmundur
Þórðarson 1300, Oddgeir 1400,
Skagaröst 150, Svanur 600, Tjald-
ur 400, Árni Geir 850, Runólfur
800 og Helga Björg 550 mál.-
Þá er vitað að fleiri skip fengu
góðan afla, þ.á.m. Sigurður
Bjarnason.
Hingað eru væntanleg 13 skip,
sem vitað er um, með 10000 mál
og lyftist brúnin á mönnum hér
vegna þessa afla.
Þetta fer allt í bræðslu utan
síld af tveimur skipum, sem at-
hugað verður hvort hægt er að
salta.
Veiðisvæðið hefur færzt vestur
á bóginn og er nú í kvöld kl. 22
um 67,20 Nbr. og 12,20 VI.
Akranesbátar
búnir að veiða
27000 tunnur
hér syðra
AKRANESI, 28. ágúst. — Sex
síldarbátar komu inn og lönduðu
í dag alls 1600 tunnum. Aflahæst-
ir voru þessir tveir: Höfrungur L
500 og Sæfari 400 tunnur. Síldar-
bátarnir hér eru búnir að afla
um 27000 tunnur síldar hér syðra
nú seinni hluta sumars.
Ms. Lagarfoss er hér í dag og
lestar 200 tonn af dýrafóðri, er
hann flytur á Svíþjóðar-, Finn-
lands- og Rússlandsmarkaði.
— Oddur.
Leituðu leiðar til
Víðidals í Lóni
Á FÖSTUDAGSKVÖLD fóru 5
Hornfirðingar .á 3 jeppabifreið-
um og var tilgangur fararinnar
að athuga möguleika á því að
komast til Víðidals í Lóni.
Þeir félagar fóru upp úr Beru
firði yfir öxi og komust rnn
kvöldið að Ódáðavötnum, þar
sem 20 manna hópur er að vinna
á vegum Rafmagnsveita ríkisins
við vatnsmiðlun vegna Grímsár-
virkjunar. Gistu þeir hjá vinnu
flokknum um nóttina.
Á laugardag höfðu þeir bjart
veður og héldu þá vestur öræfi
sunnan Líkárvatns og að Bótár-
hnúk í 934 m. hæð og komust þar
hæst á jeppunum. Lengst kom-
ust þeir vestur á svonefndar Jök-
ulhæðir og var þá dagur að
kvöldi kominn og veðrabrigði I
lofti. Töldu þeir þá réttast að
snúa til baka, enda fengu þeir
versta veður á sunnudag. Þeir
töidu ekki útilokað að fara
mætti til Víðidals þessa leið.
Nokkuð sáu, þeir af hreindýrum
á leið sinni og dásömuðu mjög
hið víða og fagra útsýni á öræf-
unum.
Þátttakendur í leiðangri þess-
um voru: Karl Sighvatsson
Brekku, Karl Magnússon, Arnar
Bjarnason, Guðni Óskarsson og
Óskar Guðnason allir frá Höfn.
— Guhnar.
Nýr listamannaskáli
FÉLAG íslenzkra myndlistar-
manna hefur nú ákveðið að
hefjast handa um að reisa nýj-
an listamannaskála. í því sam-
bandi hefur félagið hafið sölu
happdrættismiða, sem rennur
ágóðinn af happdrættinu í hús-
byggingarsjóð.
Happdrættismiðarnir verða
til sölu við ‘ opnun málverka-
sýningu Nínu Tryggvadóttur í
UM þessar mundir er haldið al-
þjóðamót hótelmanna í ferða-
mannabænum Zermatt í Sviss, en
þar kom upp taugaveiki, sem
FERÐ AÐ TRÖLLAFOSSI.
N.k. laugardag kl. 2 e.h. efnir
Heimdallur F.U.S. til eftirmið-
dagsférffar. Skoðuff verður Dælu
stöðin í Mosfellssveit, gengiff
verffur upp aff Tröllafossi og
hann skoðaður og Laxaklakstöð
rikisins í Kollafirffi heimsótt.
Upplýsingar í sima 17100.
kunnugt er, í fyrra. Mót þetta er
haldið á vegum International
Hotel Association.
Mót þessi eru eftirsótt bæði af
löndum og einstökum stöðum þar
sem þau hafa jafnan mikið aug-
lýsingagildi.
Heilbrigðisyfirvöldin í Sviss
telja að öllu sé óhætt fyrir gesti
að koma til Zermatt, en hins veg-
ar geta atvik eins og taugaveiki-
tilfellin í fyrra gereyðilagt stað
sem þenna, þar sem menn fýsir
ekki að heimsækja staði þar sem
taugaveiki hefur komið upp, jafn
vel þótt heilbrigðisyfirvöld telji
það hættulaust.
Hóteleigendur og veitinga-
menn telja þarna enga hættu á
ferðum og vilja stuðla að því að
Listamannaskálanum, og síðan á
götum borgarinnar. Happdrætt
isvinningurinn er Volkswagen-
bifreið, árgerð 1964, og verður
dregið 15. desember n.k. Verð
hvers miða er kr. 50.00.
Staðsetning hins nýja lista-
mannaskála hefur ekki enn ver
ið ákveðin, og ekki hefur end-
anlega verið gengið frá útlits-
teikningu.
Hornstrandamyndinni
frábærlega vel tekið
Edinborg, 27. ágúst
(Einkaskeyti frá AP).
ÍSLENZKA kvikmyndin
„Hornstrandir“ var sýnd í
kvöld á kvikmyndahátíðinni
í Edinborg að viðstöddum
nokkur hundruð áhorfendum.
Forstöðumaður hátíðarinnar,
Michael Elder, hældi kvik-
myndinni og sagði meðal ann
ars: „Við höfum séð myndir,
áður á kvikmyndahátíðinni,
en þessi var valin sem frá-
bært dæmi um fræðslukvik-
myndalist, sem lýsir fyrir
okkur lífinu í landi, er við
vitum mjög lítið um.
„Landslagið var afar mikil
fenglegt“.
Hornstrandir, sem er 30
mínútna fræðslukvikmynd,
fjallar um lífsbhráttuna í fá-
mennu byggðarlagi á norð-
vesturströnd íslands. Hún er
ein af 80 fræðslukvikmynd-
um frá 40 löndum, sem valdar
hafa verið til sýningar á há-
tíðinni. Verðlaun fyrir beztu
kvikmyndina munu veitt um
næstu helgi.
Elder sagði, að kvikmynd-
inni hefði verið frábærlega
tekið af áhorfendum, sem
fylltu aðalsýningarsal hátíðar
mnar.