Morgunblaðið - 14.09.1963, Page 3

Morgunblaðið - 14.09.1963, Page 3
Laugardagur 14. sept. 1963 MORCUN BLADID 3 * á fluglei&um yfir Norður Atlanishaf Salzburg, 13. sept. (AP-NTB) Á FUNDI Alþjóðasamtaka flugfélaga, IATA, sem hófst í Sendinefnd íslands hjá SÞ SENDINEFND íslands á 18. alls herjarþingi Sameinuöu þjóðanna, sem kemur saman í New York 18. september, hefur nú verið skipuð, skv. frétt frá utanríkts- ráðuneytinu. Þessir menn skipa nefndina: Thor Thors, sendi- herra, Kristján Albertsson, sendi ráðunautur, Hannes Kjartansson, aðalræðismaður, Baldvin Jóns- son, hæstaréttarlögmaður, og Þór Vilhjálmsson, borgardómarh Salzburg, Austurríki s.I. mánudag, hefur orðið sam- komulag milli þeirra 19 flug- félaga, er hafa flugvélar í föstum ferðum yfir Norður Atlantshafið, um að lækka fargjöldin á „ferðamanna“ (tourist) farrými á þessari leið. Alls sitja ráðstefnuna fulltrúar 52 flugfélaga, og hafa allir lýst einlægum stuðningi við þessa ákvörðun. Ekki hefur enn verið ákveðið um hve mikla fargjaldahækk- un verður að ræða, og verður umræðum um það atriði haldið áfram næstu daga. Búizt er við að ráðstefnunni 1< úki laugar- daginn 21 þ.w* þess að reyna að einangra hann eða hrekja hann frá tryggð sinni við sósíalismann, þjóðfrelsi og verkalýðshreyfinguna“. Það er rétt, að andkommúnist- ar hafa viljað einangra kommún- istaflokkinn, en við þá á Einar Olgeirsson örugglega ekki, þegar hann talar um, að til séu menn, sem vilji hrekja kommúnista- flokkinn frá tryggð sinni við sósíalismann. Þar er hann aug- sýnilega að senda þeim mönnum i kommúnistaflokknum kveðjur, sem telja að flokkurinn verði að breiða betur yfir algeran stuðn- ing sinn við heimskommúnism- ann, ef hann eigi að ná árangri. Þótt ritstjóri „Þjóðviljans“ og Einar Olgeirsson tali þannig und- ir rós, er samt ljóst, að baráttan er að harðna og þeir treysta sér ekki lengur til að þegja um á- greininginn. Verður fróðlegt að fylgjast með framhaldi þessara deilna. FRÉTTAMAÐUR .Morgun- blaðsins heimsótti í gær- kvöldi nokkra þeirra, sem voru í strætisvagninum, er áreksturinn varð á gatnamót um Miklubrautar og Löngu- hlíðar í gærdag. Fyrst var komið til bíl- stjórans, Birgis Sigurðssonar, Mjóuhlíð 16. Hann var með höndina í fatla og bundið um eyrað. — Sást þú hvað verða mundi, áður en vörubifreiðin rakst á ykkur spurði frétta- maður. — Nei, ég vissi hvorki í þennan heim né annan frá því, er ég ók upp Miklubraut ina á grænu ljósi og þangað SÍysiö á Rætt við fcílk, sem var í strætisvagninum Áreksturinn. steinssyni. Móðirin, Ölöf Kristjánsdóttir, lá rúmföst, en hún rifbeinsbrotnaði og hlaut margar skrámur. Krist- rún Ingibjörg, 13 ára dóttir tfl óhappið hafði hent. Ég kastaðist upp úr sætinu og á gólfið mllli stýrisins og gluggans. — Hvernig brást fólkið við á eftir? — Allir virtust taka þessu með skynsemi, en margir Slasað fólk borið í sjúkrabílana. höfðu slasazt og börnin voru að vonum mjög hrædd og grétu. Næst komum við að Garðs enda 4, þar sem búa mæðg- ur, er sátu næst fyrir aftan bílstjórann ásamt 3 ára frænda sínum, Borgari Jó- hennar, kenndi sér hins vegar einskis meins og er hún var spurð um slysið, svaraði hún: — Ég sá að vörubíllinn stefndi á hliðina á strætis- vagninum, en samt hélt ég að hann mundi geta stöðvað sig. Svo fóru allir að hrópa og rétt í því kom höggið á bíl- inn og ég kastaðist á grind- ina fyrir framan okknr. Ég man ekki hvort ég æpti, en á eftir fór ég að gráta. Ég fór með mömmu í öðrum sjúkrabílnum. í honum voru 6 manns. Ung stúlka, Jóna Harðar- dóttir, var rúmliggjandi að heimili sínu, Heiðargerði 51. Hún bar sig þó vel, kvaðst ekki beinbrotin, en nokkuð marin. — Hvar sazt þú í vagnin- um? — í fremsta sætinu vinstra megin. Við hliðina á mér sat konan, sem meiddist einna mest. Hún skarst mjög í and- liti. Ég varð einskis vör fyrr en slysið bar að. Við sessu- nautur minn köstuðumst upp úr • sætunum og höfnuðum niðri í tröppunum, þar sem gengið er inn í bílinn. Ég lenti ofan á konunni. Það var mjög óhugnanlegt, því hún var alblóðug. Bílstjórinn kom og hjálpaði okkur upp úr gryfjunni. Sjá frétt á baksíðu. Ljósastaurinn lá. IAT A-f argjöld lækka Baráttan færist upp á yfirborðið Hin mikla innbyrðis barátta i kommúnistaflokknum nálgast nú hámark og getur soðið upp úr hvenær sem er. Fram að þessu hafa kommúnistar hér á landi, eins og flokksbræður þeirra er- lendis, dulbúið árásir sínar hvor- ir á aðra, svipað og framan af var með deilur Kínverja og Rússa. Þá skákuðu þeir fram Albönum og Júgóslöfum. Þegar Mao skammaði Krúsjeff nefndi hann Tító og endurskoðunarsinna en þegar Krúsjeff vildi vega að Mao réðst hann að Albönum. Kveðja Austra Sá ritstjóri kommúnistamál- gagnsins sem nefnir sig „Autsra" hefur auðsjáanlega tileinkað sér þessar bardagaaðferðir þeirra Krúsjeffs og Maos. í grein í gær segir hann: „En í sambandi við draumór- ana hefur Tíminn sérstakan á- huga á Þjóðviljanum og segir: „Má telja fullvist að hnífurinn muni standa í kú Þjóðviljans, þegar á reynir, og fráleitt að sú klíka, sem nú ræður því blaði, muni láta hann af hendi mögl- unar- og baráttulaust“. Tímann langar sem sagt mikið til þess að „sú klíka“ sem ræður Þjóðviljanum, „láti hann af hendi“, en það er miðstjórn Sósíalistaflokksins og allir félags- menn háns. Og það er auðvitað engin tilviljun að ritstjóri bænda blaðsins hugsar um jafn bljúgar og þægar nytjaskepnur og kýr í því sambandi. En eins og Tíminn tekur rétti- lega fram eru þessir draumórar „fráleitir". Sósíalistaflokkurinn verður ekki hjáleiga Framsókn- arflokksins og Þjóðviljinn verð- ur aldei eitt af kúgildunum í f jós- inu í Skuggasundi“. Þarna er augsýnilega verið að vega að þeim mönnum innan kommúnistaflokksins. sem vilja nánara samstarf við Framsóknar- flokkinn og jafnvel bandalag við hann. Kveðja Einars Og Einar Olgeirsson er líka tekinn til við baráttuna á opin- berum vettvangi. í gær birtir hann í kommúnistamálgagniu* langliund um Sósíalistaflokkinn og í inngangsorðum segir: „Andkommúnisma kalda stríðs ins á islandi hefur í. 15 ár verið einbeitt að Sósíalistaflokknum til

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.