Morgunblaðið - 14.09.1963, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.09.1963, Blaðsíða 4
4 MORGU N BLAÐIÐ L"augar<7agur 14. sept. 1963 Reglusöm stúlka eða kona óskast í vist á gott heimili. Uppl. í síma 37773. Hraunteig 26, uppi. Volkswagen til sölu sérlega fallegur og vel með farinn. Laugardag kl. 4—5 við Leifsstyttuna. íbúð til sölu jarðhæð, milliliðalaust. — íbúðin er 2 herb., eldhús, bað. Sér hiti og inngangur. Sími 32602. íbúð óskast til leigu. — Upplýsingar í síma 10235. Amerískur fólksbíll vel með farinn, smíðaár ’57—’60, óskast til kaups. Upplýsingar í síma 35175 næstu daga. Kópavogsbúar Kona óskast til vinnu há>f- an eða allan daginn. Uppl. í bakaríinu Þinghólsbr. 30. Ungur reglusamur piltur óskar eftir að fá | leigt herbergi sem allra I fyrst. Tilboð, merkt: „Fljót lega — 3379“. Einhleypan mann vantar ráðskonu. Upplýs- ingar í síma 24748 eftir kl. 5 á laugardag. Miðstöðvarketill 5—6 ferm., með öllu til- heyrandi, er til sölu. Uppl. í Stangarholti 22, sími 16136. Herbergi til leigu í Garðahreppi. Sími 50528. ! Til sölu miðstöðvarofnar Og notað timbur. Upplýsingar í síma 50875. Keflavík Óska eftir 2—3 herb. íbúð strax. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. — Uppl. í síma 1274 og 1476. Lagtækur maður, helzt vanur rafsuðu, óskast á verkstæði í Kópavogi. — Uppl. í síma 37800. Ráðskona óskast má hafa með sér barn. Til- boð sendist afgr. Mbl., merkt „Ráðskona — 5217“. Smáíbúðarhverfi Herbergi óskast til leigu, helzt í Smáíbúðarhverfi. — Uppl. í Hárgreiðslustof- unni Perma, sími 3396®. í dag er Iaugardagur 14. september. 257. dagur ársins. Árdegisflæði er kl. 03:56. Síðdegisflæði er kl. 16:25. Næturvörður i Reykjavík vik- una 14.—21. september er í Reykjavíkur Apóteki. Næturlæknir í Hafnarfirði vik- una 14.—21. september er Bragi Guðmundsson, sími 50538. Slysavarðstofan í Heilsuvernd- arstöðinni. — Opinn allan sólar- hringinn — Sími 1-50-30. Neyðarlæknir — simi: 11510 — frá kl. 1-5 e.b. alla virka daga nema laugardaga. Xópavogsapótek e* opið alla virka daga kl. 9,15-8. laugardaga frá kl. 9,15-4., helgldaga frá kl. 1-4 e h. Simi 23100. Holtsapótek, Garðsapótek og Apótek Seflavíkur eru opin alla virka daga kl. 9-7 >augardaga frá kl. 9-4 bg helgidaga frá kl. 1-4. Orð lífsins svara i síma 10000. FRErTASIMAR MBL. -— eftir lokun — Erlendar fréttirr 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 ^ Hliðarstúlkur KFUK efna til kaffi- solu á morgun (sunnudag) frá kl. 3 e.h. Nánar auglýst í sunnudagsblað- inu. Æskulýðsráð Reykjavikur, Stanga- veiöiklúburinn fer 1 veiðiferð að Elliða vatni í dag ef veður leyfir. Farið verð ur frá Lindargötu 50 kl. 3 e.h. Þétt- takendur eru áminntir um að vera | hlýlega klæddir og hafa með sér 10 krónur fyrir fargjaldinu. Kvenfélag Lágafellssóknar. Félags konur, munið sýnikennsluna í með- ferð og geymslu grænmetís að Hlé- garði þriðjudagskvöldið 17. september n.k. kl. 8.45. Adda Geirsdóttir, hús- mæðrakennari, annast fræðsluna. i Orgelhljómleikar i Skálholti Haukur Guðlaugsson, orgel- leikari, á Akranesi heldur org elhljómleika í Skálholtskirkju næstkomandi sunnudag 15. september. Hljómleikarnir hefjast klukkan 4 síðdegis. Á efnisskránni verða verk eftir Paohelbel, Buxtehude, Bach og Roger. Þetta munu vera fyrstu opinberu orgelhljóm- leikarnir, sem haldnir eru l Skál'holtskirkju Minningarspjöld Barnaheimilissjóðs fást í Bókabúð ísafoldar, Austur- stræti 8 Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Skoðanabeiðnum er veitt móttaka daglega kl. 2—4 nema laugardaga í síma 10269. Minningarspjöld Hallgrímskirkju í Reykjavík fást í Verzlun Halldóru Ól- afsdóttur, Grettisgötu 26, Verzlun Björns Jónssonar, Vesturgötu 28. og Bókaverzlun Braga Brynjólfssonar, Hafnarstræti 22. Messur á morgun Háteigssókn. Messa Sjómannaskól- anum kl. 11. Séra Jón Þorvarðsson. Neskirkja. Messa kl. 11. Séra Jón Thorarensen. Hafnarfjarðarkirkja. Messa kl. 10 f.h. Séra Bragi Friðriftsson. Langholtsprestakall. Kirkjudagurinn hefst með guðsþjónustu kl. 2. Fjöl- breytt hátíðahöld allan daginn. Helgi samkoma í kirkjunni kl. 8 um kvöld- ið. Sr. Arelíus Nielsson. Hallgrímskirkja. Messa kl. 11, séra Jakob Jónsson. Hafnir. Messa kl. 2. Sóknarprestur. Keflavíkurkirkja. Messa kl. 2 síð- degis. Við guðsþjónustuna syngur Hreinn Lindal Haraldsson einsöng, en hann er á förum til ítaliu til frekara söngnáms. Séra Björn Jónsson. í dag verða vígð í Neskirkju af síra Jóni Thorarnsen Hólmfríður Egilsdótt- ir (Egils Þorgilssonar skipstjóra) og Lieutenant Charles R. Hirt Fairmont W Virginia. HeimUi ungu hjónanna verður 32 Merry Meeting Rd Bruns- wick Maine USA. í dag verða gefin saman í hjóna- band af sr. Jóni Thorarensen ungfrú I'órunn Blöndal, skrifstofumær, Baugs vegi 25, (Halldórs frá Siglufirði) og Guðmundur Pálmar Ögmundsson, sím virkjanemi, Stangarholti 2 (Ögmund- ar yfirtollvarðar). HeimUi ungu hjón- anna verður fyrst um sinn að Baugs- vegi 25. í dag verða gefin saman í hjóna- band í Dómkirkjunni ai séra Óskari J. Þorlákssyni ungfrú Fanney Anna Reinhards og Hafsteinn Oddsson, raf- vélavirki. Heimili ungu hjónanna verð ur fyrst um sinn að Ljósheimum 9. — Hvað á nú að fara að blanda mér inn i þetta mál. Þau segja bæði að það sé bara vegna mín að þau tolli saman. Tvö kvœöi enn Sauöárkrókur Tunql yfir Tindastóli, töfrum fyllt ágústhúm; víst eru í Villa Nova vel skipuö flestöll rúm. Marqan misjafnan sauðinn Mœlifellshnúkur leit: Geöprúöir garpar sœkja graöhesta út * sveit. Og hvert sem ég annars kikx og hvaö sem éq yfirleitt sé. viröist mér sem ég sjái séníiö Hannes Pé. Mývatnssveit Held ég með hefðarmönnum heim undir Skútustaö. Mýiö um loftið lyppast; lábba ég einn í hlað. Dáfagrar dýröarbröndur dró Tclerkur vatni úr. hvar vísindin œtla aö vinna verömœtan kísilgúr. Héöan er kyniö komiö, sem kennt er við Reykjahlíö. Vindbelgur vísar leiðir vegmóöum feröalýö. Söfnin Arbæjarsafn er opið daglega kl. 2.—6. nema mánudaga MINJASAFN REYKJAVÍKURBORG- AR Skúatúnl 2, opið daglega trá kl. 2—4 eJi. nema mánudaga. ÞJÓÐMINJASAFNIB er opið á þriðjudögum, laugardögum og sunnu- dögum kl. 13.30—16. LISTASAFN ÍSLANDS er opið t þriðjudögum, fimmtudögúm, laugar- dögum og sunnudögum kl. 13.30—16. Tæknibókasafn IMSÍ er opið alla daga kl. 1-7 nema laugardaga kl. 1-3. ÁSGRÍMSSAFN, BergstaðastræU 74, er opið sunnudaga, pnðjudaga og fimmtudaga kl. 1.30—4. LISTASAFN EINARS JÓNSSONAIt er opið á sunnudögum og miðviku- dögum kl. 1:30—3:30. BORGARBÓKASAFN REYKJAVÍK- URBORGAR, síml 12308. Aðaisafnið. Þingholtsstrætl 29a: Utlánsdeild 2—10 alla virka daga nema laugardaga 1—4. Lesstofa 10—10 alla vorka daga nema laugardaga 10—4. Útilbúið Hólmgarðl 34 opið 5—7 alla virka daga nema laug- ardaga. Utibúið Hofsvaliagötu 16 opið 5.30—7.30 alla vlrka daga nema laug- ardaga. Utlbúið við Sólheima 27 opið 16—19 alla virka daga oema laugar- daga. Ameríska Bókasafnið ! Bændahöll- höllinni við Hagatorg opið mánudaga. miðvikudaga og föstudaga kl. 10—21, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10—16, Strætisvagnaleiðir: 24, 1, 16, 17. hvort spunakonur geti orðið bandóðar. i i i iiiii-. iiiii JÚMBÓ og SPORI Teiknari: J. MORA — Við eigum ekki einu sinni eitt kom af gullinu ykkar — eða gulli Inkanna réttara sagt, því þú átt það náttúrlega alls ekki, sagði Jumbó. — Ég á gullið, þegar ég hef sjálfur stolið því, öskraði foringinn. Hvar er það. Segið mér það eða ég ..., Það hefur víst áreiðanlega enga þýðingu að segja þér hvað raunveru- lega hefur komið fyrir. Þú munt aldrei skilja það, sagði Jumbó. Skjóttu okkur heldur, því fyrr því betra... Það heyrðust allt í einu háir hvell ir, en þeir komu ekki úr byssum þremenninganna, að minnsta kosti ekki það fyrsta. Það rigndi yfir þá grj óthnullungum og þeir fleygðust flatir, og þegar foringinn tók í gikk- inn mitt í öllum látunuw. - vndi yfir þá exm meiru grjóti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.