Morgunblaðið - 06.10.1963, Blaðsíða 3
^ Sunnudagur 6. október 1963
MORCUNBLAÐIÐ
5
>
I
»•
í
Landlei&ir teikna siálfir og
smíða yfirbyggingar sínar
FRÉTTAMAÐUR Morgun-
blaðsins brá sér fyrir skömmu
í heimsókn til Landteiða h.f.
og spurðist fyrir um starfsemi
þess'. Fyrir svörum varð Ágúst
Hafberg, forstjóri fyrirtaekis-
ins. Viðstaddur var einnig Jón
Halldórsson, verkstjóri.
— Landleiðir keyptu árið
1950 af ríkinu vagna þá, sem
annazt höfðu akstur milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarð-
ar, og tóku við sérleyfinu. Ár-
ið eftir voru einnig hafnar
strætisvagnaferðir um Kópa-
vog, sem Landleiðir sáu um í
7 ár. Auk Hafnarfjarðarleið-
arinnar annast Landleiðir ferð
ir til Vífilsstaða, um Álftanes
og Vatns^ida á sumrin.
— Vorið 1962 tóku Land-
leiðir að sér sérleyfisferðir
um Skeið og Hreppa. Er það í
fyrsta sinn um langt árabil,
sem haldið er uppi föstum
ferðum þangað árið um kring.
Talsverð umferð er á þessari
leið á sumriii. Við höfum auk
þessa lengi leigt bíla til hóp-
ferða.
— Landleiðir eiga nú 10
vagna, 5 sérstaklega byggða
fyrir Hafnarfjarðarleiðina.
Hina má nota jöfnum hönd-
um til langferða, og sem
strætisvagna. Farþegatalan á
Hafnarfjarðarleiðinni hefur
yfirleitt verið 900 þús. til 1
milljón á árVÞar til tvö síð-
ustu árin, er hún hefur farið
heldur lækkandi. Er það óef-
að sökum aukins fjölda einka-
bifreiða. /
— Við höfum alltaf annazt
allar viðgerðir á vögnunum á
okkar eigin verkstæðL Við
rekum einnig yfirbygginga-
verkstæði, sem hefur byggt
yfir helming bíla okkar. Jón
Halldórsson, verkstjóri, ræður
þar ríkjúm, og hefur hann
séð um allar yfirbyggingarn-
ar. Hann hefur starfað hjá
Landleiðum í 10 ár.
— Síðastliðið vor var lokið
við yfirbyggingu nýs Scania
Vabis langferðabíls. Hann er
sérstaklega ætlaður til hóp-
ferða. Er hann mjög bjartur
og úr honum gott útsýni. Sæt-
in, sem eru 48 talsins, fram-
leidd í Bílasmiðjunni, eru
mjög þægileg og hentug til
langferða. Jón Halldórsson I
teiknaðijyfirbygginguna og sá
um smíði hennar.
— Framendi bifreiðarinnar
er gerður af trefjaplasti, sagði
Jón. Landleiðir hafa átt annan
bíl úr plasti í rúmt ár. Hann
var keyptur fullbyggður frá
Svíþjóð og hefur reynzt mjög -
vel. Helztu kostir plastsins
eru, hve auðvelt er að gera
við það. Plastið hefur enn-
fremur nokkurt fjaðurmagn,
sem getur komið í veg fyrir
Séð aftur eftir nýja vagnin nm.
Skemmtifundur
hjá Kvennadeild
Slysavarnafé-
lagsins
KVENNADEILD Slysavamafé-
lagsins heldur sinn fyrsta fund á
haustinu á Hótel Borg á mánu-
dagskvðld kl. 8. — Þar skemmt-
ir Guðmundur Guðjónsson, óperu
söngvari með söng og nemendur
Hermanns Ragnars sýna dans.
Sjötugur í dag
SJÖTUGUR er í dag Friðrik Sal
ómonsson, Hifavörður, Flatey
BreiðafirðL
Dregið hja SÍBS
í GÆR var dregið í 10. flokki
Vöruhappdrættis SÍBS um 1540
vinninga að fjárhæð alls krónur
2.065.000.00.
Þessi númer hlutu hæstu vinn-
ingana:
200 þús. kr.: 61801.
Sr. Eiríkur J. Eiríksson
Herratign
kristins manns
17. sunnudagur eftir trinitatis.
Guðspjallið: Lk 14, 1—11.
„ÞVÍ að sérhver, sem upp hefur
sjálfan sig mun niðurlægjast, og
sá, sem niðurlægir sjálfan sig
mun upphafinn verða“.
I þessum lokaorðum guðspjalls
ins felst hið hikla fyrirheit og
takmark kristindómsins. En þar
er einnig bent á leiðina að hinu
mikla takmarki.
Kristin lífsskoðun stefnir að
vexti og þroska að fullkomnun.
Kristindómurinn bendir á upp-
hafið, hversu Guð er það.
En hann bendir einnig á hin
einu leiðarlok mannlegrar veg-
fesðar, sem blessun er samfara
og sönn heill; hann bendir á end-
inn, en það er Guð, sá sem skap-
ar, og lætur hið skapaða hljóta
þroska fyrir hjálpræðisgjöf sína
tR mannkynsins, í syninum Jesú
Kristi, að sama skapi og það auð-
mýkir sig frammi fyrir þeirri
gjöf og víðurkennir hana með lif-
andi játningu sinni.
Öllu mannlegu er ásköpuð þrá
upphefðar.
En líf okkar má ekki vera
draumurinn einn um tindinn háa.
Viðleitni er þörf. Við verðum að
leitast við að láta tind lífsvið-
leitninnar veita okkur ú'tsýn yfir
dalinn ævinnar, en umfram allt
til hins æðsta, þess sem ofar er
tíma og stjörnum.
það, að dæld myndist, þótt
bíllinn verði fyrir minni hátt-
ar árekstri.
— Yfirbyggingaverkstæðið
hefur einnig séð um að reisa
tvö biðskýli, heldur Jón á-
fram. Annað í Hafnarfirði og
hitt í SilfurtúnL Skýlin eru
gerð úr aluminium, þótt það
sé geysidýrt efni. Skemmdir
á biðskýlum eru svo algeng
að gera verður þau þannig úr
garði, að ekki þurfi að mála
þau. Auk þess þýðir ekkert
að hafa í þeim rúður. Það er
líka algengt, að unglingar
skeri og rífi sæti í vögnunum.
Þessi skemmdarverk fara
greinilega í vöxt, eftir að skól
arnir taka til starfa á.haustin.
— Hvaða mál eru helzt á
döfinni hjá Landleiðum í ná-
inni framtíð? spurði frétta-
maður Ágúst.
— Mjög aðkallandi er að
reisa nýtt verkstæðL og ætl-
um við að reyna að hefja þær
framkvæmdir nú í haust. Við
þurfum ekki að fjölga Hafnar-
fjarðarferðunum, en vonumst
til að umferðin austur í
Hreppa aukist, einkum ef kom
ið verður upp, einhverjum
veitingaskálum í Þjórsárdal.
Það er mjög óþægilegt fyrir
ferðamenn að geta ekki einu
sihni fengið kaffi á þeim
stað, sem er einn hinna feg-
urstu á íslandi og tilvalinn
fyrir ferðamenn, þar svo stutt
er að fara frá Reykjavík, 1
100 þús. kr.: 30523.
10 þús. kr.: 4894 5733 10149
11586 17846 29939 32329 43380
43433 45159 46894 46964 54330
54620 61323 f
5 þús. kr. 5955 7280 18868
19164 22040 22483 24876 26955
29760 29794 31126 31928 32211
35918 36252 38065 39463 42705
46833 47597 48191 50179 51088
(Birt án ábyrgðar)
Mörg er upphefðarviðleitnin.
Menn sækjast eftir bættum ytri
kjörum af nauðsyn, en stundum
fyrir metnaðarsakir, " bílsins
vegna og sem stærstrar íbúðar.
Óvíða er skortur á yfirmönn-
um. Hins vegar skortir þá, sem
vinna eiga verkin og skapa verð-
mætin.
Skólarnir eru nú að hefja störf
sín. Margir leita þangað af innri
þörf sannrar námgirni og ástar á
andlegum viðf angsefnum. En
einnig hér getur hégóminn komið
við sögu og leitt til raunveru-
legrar niðurlægingar einstaklings
og þjóðarsamfélags.
Stundum leggja menn sig nið-
ur við synd og spillingu til þess
að öðlast upphefð.
Allir kannast við versið úr
Passíusálmum Hallgríms Péturs-
sonar:
„Kóng minn Jesú, ég kalla þig,
kalla þú þræl þinn aftur mig;
herratfgn enga’ að heimsins sið
held ég þar mega jafnast við“.
Þarna er á áhrifamikinn hátt
bent á niðurlægingarleið guð-
spjallsins, sem ein liggur til
sannrar upphefðar.
Auðmýkt okkar frammi fyrir
hinu æðsta og þjónusta í þágu
þess er hinn eini höfðingdómur,
sem upphefð»er að.
Hann einn er sannur og í sam-
ræmi við mannlegt eðli, hann
einn fær náð til allra manna og
getur gætt líf þeirra tilgangi.
„Hverju get ég afkastað í dag í
þágu hinnar sörtnu upphefðar
guðspjallsins?"
Þér skál bent á nokkurt við-
fangsefni líðandi stundar.
Berklavarnardagurinn er í dag. -
Hann minnir á starf, unnið í
kristilegum Upphefðaranda^.
Þetta starf nær yfir líkamlega
lækning. Blessuð séu læknavís-
indi nútímáns, en í þessu efni er
og stefnt til orðanna: ----mun
upphafinn verða“.
Sjúkdómi getur verið samfara
hugraun niðurlægingar, sem
sprottin er af einangrunarkennd,
að lífið sé án viðfangsefna og til-
gangs.
Berklavarnasamtökin segja:
„Þér er þetta mögulegt".
Og sjá, verk fólks, sem áður
var varla staður fyrir, þrýða nú
jól barna okkar, eru húsmunir í
skólum landsins, leiða vátn í hí-
býli manna og dýra. og þannig
mætti lengi rekja í sambandi við
Vinnuheimilið að Reykjalundi og
aðar þessa starfsemi.
Þú, sem lest þessar línur mín-
ar, í anda þjónústuhugssjónar
guðspjallsins, skalt leggja þess-
um samtökum nokkurt lið.
Sá, sem veikur er, þarf að gera
sér það ljóst en það er dásamlegt,
að einnig hann á sér viðreisnar-
von og viðfangsefna.
Auðmýktin og styrkurinn eru
systkini.
Fjallið, sem þú þarft að. klífa
til þess að öðlast hlutdeild í guð-
legri fullkomnun þér til eilífrar
blessunar, er fátækt huga þíns
gagnvart hinu góða' og höfundi
þess.
Mörg mannleg viðleitni fer
eins og fram í lausaskriðum
fjalls. Svo er að sjá, sem stutt sé
stundum upp á brúnina.
En fyrr en varir getur skriðan
tekið þig með sér niður eftir
allri fjallshlíðinni.
Mundu eftir að leita öruggrar.
fótfestu. Hafðu það hugfast, að
sá einn byggir á bjargi framtíð-
arblessunar, sem leitar Guðs
miskunnar og náðar og lætur
þær gjafir vera upphefð sína. —
Amen.
Eiríkur J. Eiriksson.