Morgunblaðið - 13.10.1963, Page 6

Morgunblaðið - 13.10.1963, Page 6
e MQRGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 13. okt. 1963 IMíræð á morgun: Halldóra Bjarnadóttir, ritstjóri A MOHGUN verður hún níræð að árum, en þó hin ernasta Hall- dóra Bjarnadóttir *á Blönduósi. En hún er þjóðkunn kona fyr- ir hollustu sína við heimilisiðju , og félagsskap kvenna um hinar dreifðu byggðir landsins, eink- um þó í Norðlendinga fjórðungi. I>að hefur farið með Halldóru eins og margt atgervisfólk er víða hefur farið og staðnæmzt um árabil á ýmsum stöðum, að (hugir hafa leitað heim á forn- ar slóðir. Er elliheimili reis af grunni í Húnaþingi, kom hin áttræða höfðingskona til sinna föðurtúna. Voru þær Halldóra og Sigurlaug Guðmundsdóttir frá Ási í Vatnsdal hinar fyrstu dvalarkonur þar og komu á gamlársdag 1955. Halldóra Bjarnadóttir fæddist 14. október 1873 í Ási í Vatns- dal er var jörð feðra hennar. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarni Jónsson frá Ási í Vatns- 'dal, og Björg Jónsdóttir frá Háa- gerði á Skagaströnd, bjuggu þau sinn búskap lengst af á Hofi í Vatnsdal. Halldóra ólst upp í Hofi til 10 ára aldurs, en þá bruggðu foreldrar hennar búi, fluttist faðir hennar til Vestur- heims, en Halldóra fór með móð ur sinni til Reykjavíkur og dvöld ust þær mæðgur um árabil í húsi Jóns Árnasonar þjóðsagnaritara, er var Húnvetningur. Halldóra var einkabarn móður sinnar er var stórlát og vel gerð kona er vildi gjöra veg þess- arar dóttur sinnar sem beztan. Enda þó fjárráð margra í þá daga væru eigi mikil er sigur- sæll oft góður vilji. Halldóra Bjarnadóttir var góðum hæfileik um gædd til náms og mikilli viljafestu samfara góðri hagsýni Ung dvaldi hún árum saman við nám og kennslu í Noregi. Sá hún þar margt fyrir sér, er hún vildi boða löndum sinum. Mun henni hafa verið hugstæðast að flytja boðskapinn í Miðbæjar- skólanum, er hún hafði alizt upp í. En honum var tekið þunglega og hvarf hún þá til Noregs. Líkt fór um Steingrím Arason tutt ugu árum síðar, er sá er þetta ritar þess minnugur, er þá var í fyrsta bekk skólans. í>ó var kennslan Halldóru lengi vel að- alstarf sem skólastjóri Barna- skólans á Akureyri um 10 ára bil og kennari við Kennaraskóla íslands í átta ár. Þar var þá Steingrímur Arason kominn. Hittust því þessi baráttusystkini, er voru á undan sínum tíma. En þó Halldóra væri mikill fræðari og hin stjómsamasta þá stóð þrá hennar lengra en til fóstrukennslu. Því gerðist hún ráðunautur um almennan heim- ilisiðnað frá 1922. En til slíkra hluta var hún vel kjörin því hún stóð í nánu sambandi við fjölda heimila í landinu. Á Akureyri stofnaði Halldóra Samband norðlenzkra kvenna en það er Samband kvenfélags fjórðungsins, var hún lengst af formaður þess. Hefur Halldóra í þau tæp 30 ár er það hefur starfað verið að vinna því gagn með heimsóknum til félaganna. Þá gafst honum tækifæri til að sjá fjar- læg héruð og voru þessir fundir þeim eins og orlofsvist tímans Á fyrri árum fóru konur þess- ar ferðir með skipum eða hestum og vom viku í ferðinni, Halldóra sá líka að til þess að sambandið hefði tengsli við hin- ar dreifðu byggðir fjórðungsins þurfti á blaði að halda er bæði væri til fræðslu og fréttaöflunar félögunum. Stofnaði hún þá ársiritið Hlín og var útgefandi og ritstjóri þess í 40 ár. En höfuðboðskapur þess, er varðveizla íslenzkrar menningar áherzlu þessa máls, stofnaði hún tóvinnu á Svalbarði, rak hún hana um 13 ára bil undir stjórn Rannveigar Líndal. Allt þetta er ærið lífsstarf konu er ávallt hefur óstudd arkað sína ævi- braut. En hér hefur komið að gagni, sá sterki þáttur í skap- gerð Halldóru, sem er skipulags gáfan, um að safna um sig fólki til átaka og kunna að velja sér starfhæft fólk. Þó Halldóra stæði ein í lífsbaráttunni var það henni að miklu liði — að henni varð gott til liðsmanna fyrir áhuga á málum sínum. Ein af mörgum er lögðu Hall- dóru lið var Ragnhildur Péturs- dóttir í Háteigi. Bar fundum þeirra Halldóru fyrst saman í Noregi, og tókust með þeim kynni. Ragnhildur var kona þjóðleg í sér, og áhugasöm um málefni kvenna, bjó Halldóra hjá henni er hún var kennari við kvenna- skólann unz hún flutti til Ak- ukeyrar að Mólandi. Héðan að norðan fylgja Hall- dóru góðar óskir á níræðis af- mælinu. Hún hefur sett sinn svip á elliheimili Húnvetninga, með hispurslausri framkomu og félagsanda. Hefur hún oft lesið fyrir margan manninn þar, og tekið í spil með dvalargestum og verið hlegið dátt. Halldóra hefur eigi sezt hér í helgan stein í sumar fór hún t.d. á Skálholts og Hóla hátíðir, enda er hún kona guðhrædd, og hefur jafn- an haft guðsþjónustur í sam- bandi við fundi sína, og las hús- lestra í tóvinnuskálanum. Guð blessi henni æfikvöldið í Húnabyggð. Pétur Þ. Ingjaldsson Höskuldsstöðum HALLDÓRA níræð. Það Það var rétt eftir henni. Hún kemur manni jafnan á óvart með stór-afmæli og alls konar kúnstir. Hver skyldi ætla að kona, sem fer svo geyst, stikar teinrétt sinn veg, hefur mörg járn og stór í eldinum og slak ar aldrei á klónni í starfi sínu að áhugamálum sínum, — hver skyldi ætla að sú kona geti verið níræð. — Þetta mun þó rétt vera. Ég hef skrifað nokkuð um Halldóru á áttræðisafmælinu Get ekki endurtekið það hér, hef þar fáu við að bæta. All- einkum heimilisiðja. Til frekari ir þekkja Halldóru og hið mikla ekki í ullarfötum heldur. Tek- ur móðir ykkar ekki ofan af, spinnur hún ekki? — Ég verð að útvega henni gott þelband í ullarnærföt“. Þetta var næstum það versta, sem hún gat sagt við okkur. Við hötuðum slík ullarnærföt svo og íslenzka, starf hennar fyrir heimilisiðn- aðinn. Ævisaga hennar er fyr- ir nokkru útgefin. Aðrir, mér hæfari, skrifa eflaust fallega afmælisgrein og telja fram sögu leg atriði, ættfræði, afrek og allt gott annað. Til þess hef ég ekki tíroa. Hvirfilvindurinn Halldóra er að koma yfir mig og okkur öll hér syðra, sem þekkjum hana og höfum sam- starf við hana. Ekki þó eyði- leggingarinnar stormsveipur, heldur hinn rösklegi og hlýi sunnanþeyr, kærkominn eftir gráveður og norðangarra. Að vísu var útsynningurinn okkar í Skagafirði oftast nokkuð hvass, byljóttur og óútreiknaanlegur jafnvel skúrasamur, en oftast þó hlýr, þægilegur og vel þeginn, þó varasamur væri til öruggs heyþurrks. — Ekki veit ég hvers vegna slík samlíking kemur mér í hug. Hall dóra/sunnanþeyr, en samt er þar ef til vill nokkurt samhengi. Kannski hafa okkar fyrstu kynni orðið á slíkum degi, eða þá hitt, að Halldóra hafi jafnan orkað á hug minn sem slíkt bjart og hressandi en nokkuð hvasst veð- ur. — Ég man vel okkar fyrstu kynni fyrir einum 40 árum. Fað ir minn kallaður í landssímann. — Það var Halldóra, frænka okkar. „Ég er að koma á morg- uh, góði minn og ætla að búa hjá ykkur" (engar spurningar hvort slíkt væri hægt). Móðir mín skelfingu lostin. „Hamingj- an góða hvar á hún að vera?“ — Lítið hús, fullt af börnum, einfaldur matur, en umsvifa- mikill og líklega gagnrýninn gest ur. Enginn tími til stefnu. Svo kom Halldóra, eins og sunnan vindurinn svipti opnum dyrun- um. Pilsagangur peysufata, svunt ur, bönd og snúrur. Talaði mik- ið, ræddi ferð sína og áform. Opnaði ferðatöskur sínar og sýndi marga muni, vefnað og hannyrðir aðrar. Dró fram tog- flækju og þelkembur og sitthvað fleira. Sýndi föður mínum Hlín og ræddi við hann um ritið. Okk ur krökkunum fanst lítið til um og bók sú leiðinleg, lítið þar fyrir okkur, en skildum þó að Hlín átti einhvern rétt á sér, vegna áhuga þess, sem á bak við stóð. — Halldóra síðar ein með okkur krökkunum í stof- unni, gengur hratt um gólf. Móð- ir mín við matargerð. Faðir minn við sitt starf. — „Ekki hendur í vösum, strákur". — í fátinu legg ég hendurnar upp á borðið. — „Óhreinar neglur, góði minn. Og hvað er að sjá, þið gangið ekki í íslenzkum skinnskóm og heimagerða leðurskó, sem alltaf urðu harðir og fljótt götóttir og þurfti að leggja þá í bleyti á hverri nóttu. Við höfðum ein- mitt fengið að fara í sunnu- dagaskóna í tilefni komu henn- ar. Það er því fullmikið sagt að þar yrði „ást við fyrstu sýn“ milli okkar og Haldóru. — En þetta var sunnanvindurinn, nokk uð hvass og skúrasamur í okk- ar augum.t — Og þarna var líka kennarinn, leiðbeinandinn, um- vandarinn. — Halldóra kallaði síðan saman fundi, þaut hús úr húsi, hélt sýningar á munum sínum. Tal- aði við konurnar, fann að, hvatti, leiðbeindi. Lét karlmennina hafa orð 1 eyra líka. Mamma var sem á nálum, leið yfir gagn- rýni á konurnar, en leiðari þó yfir því, að geta ekki sinnt sem skyldi ýmsum þeim málum, sem THalldóra hvatti til og augsýni lega gátu orðið heimilinu að gagni og til prýði og ánægju, og svo var um margar konurn ar. — En Halldóra gekk um gólf og talaði og sá helzt aðeins eitt áhugamál, sína beinu braut, hvað sennilega var líka nauð synlegt, ef ekki átti að missa kjarkinn. Sjáandi erfiðleika margra stórra og fátækra heimila til að sinna slíkum málum og þar af leiðandi tregðu margra til að vinna að þeim og þannig minni árangur af starfi sínu en vera skyldi. — Allt í einu var Haldóra far in, — bylurinn fallinn af hús- inu, hættan liðin hjá. Hún hafði stanzað í 2—3 daga. Nú var hún á vesturleið og nú stormaði bráðum á Blönduósi og Skaga^ strönd og sama sagan endur tók sig sennilega þar. Samt var hressing að þessari „yfirreið" og eitthvað sat eftir. Konurnar ræddu málin, sumar gramar, aðr ar sóttu rokkinn, enn aðrar glugguðu í Hlín. Það var viss tilbreyting í þessari heimsókn fátækurn, dauflegum smábæ, þar sem afkomumöguleikar og puð- ið fyrir daglegu brauði yfirgáfu varla huga nokkurs manns. Við krakkarnir skildum þó að þetta var öðruvísi og meira en sá dag- legi og venjulegi seinagangur í litlu þorpi. — Eflaust má deila um störf Halldóru og starfshætti og jafn vel um árangur langrar ævi, Ljóst er þó það, að hún hefur verið tengiliður milli tveggja alda. Hún hefur reynt að brúa bilið milli gamallar bændamenn ingar og nýrra atvinnu og lifn aðarhátta í landinu, það er bylt- ingar þeirrar til vélamennsku og þéttbýlis sem orðið hefur á henn ar ævi, þannig að ekki rofni samband okkar við það bezta í fortíðinni, til dæmis hinn stór merka, verklega menningararf íslendinga, heimilisiðnaðinn. — Þetta skildi Halldóra öðrum fyrr og betur og hefur varið til þess langri ævi, að sem fæst skyldi glatast á þessu umbrotaskeiði af þjóðlegum verðmætum. — Járnið skaltu hamra heitt. Nú hamrar Halldóra ákaflega — Efalaust sýnist henni aldur- inn gefa til kynna að nú taki kolabirgðir nokkuð að þverra í afli hennar. — Hún hamrar á ritvél sína. Stórverk er í deigl unni. Bók um íslenzka vefnað inn á liðnum öldum, sem út kemur á næsta ári, skreytt lit myndum af ýmsu því bezta, sem gert hefur verið í þeim efnum og Halldóra ein á sýnishorn af, Sennilega er hún líka eina kon- an á landinu, sem gert getur slíka bók nú, á þennan hátt. — Mætti henni endast eldunin vel til þeirrar ritsmíðar, svo og til þeirra starfa annarra, er hún enn telur sig ólokið hafa. Ekki tjóir að óska henni rólegs ævi kvölds því slíkt kærir hún sig varla um. Fremur væri hún vís til að halda sama hraðanum til 100 árá aldurs. — Allt um það: Hér hefur merk kona unnið langa ævi og af- reka merkilegu starfi. Líklegt þætti mér að hennar þáttur I íslenzku þjóðlífi verði metinn því meir eftir því sem tímar líða. Hafi hún þakkir fyrir sinn þátt. — Stefán Jónsson, arkitekt. Halldóra dvelst á afmælisdag- inn hjá vinum sínum^að Háteigi Reykjavík. Þar geta vinir og kunningjar heimsótt hana. „Allir Islendingar em mínir synir“. Fyrir meira en 30 árum svar- aði Halldóra Bjamadóttir smá glettni minni með þessum orð- um. Mér fundust þau næstum stærilætisleg. En við nánari at- hugun fann ég að þau voru dag- sönn. Og nú þegar við fögn- um með henni níræðri, eru þau enn sannari. Síðan Halldóra kom heim frá Noregsmenntun sinni og starfi þar fyrir 55 árum, hefur hún umgengist yngri og eldri sem umhyggjusöm og ráðgefandi móð ir. En fyrst og fremst hefur hún með mannkostum sínum, mennt- un, skapgerð og óþrjótandi áhuga unnið að því að mennta og göfga konuefni og konur „sona sinna“. Þetta er viðurkennt og metið af þjóðinni allri. Bókin sem Set- berg gaf út fyrir nokkrum ár- um ber þetta með sér. Við iðnaðarmenn og iðjuhöld- ar höfum sérstaka ástæðu til að senda Halldóru Bjarnadóttur kæra afmæliskveðju með þökk fyrir samstarf um langa ævL Hún hefur haft óbilandi trú á hagleik og snilli þjóðarinnar, dregið fram gamla og nýja kjör- gripi, ferðast með þá til sýnis innanlands og utan, og stutt og starfað við næstum allar iðn- sýningar sem haldnar hafa ver- ið í landinu síðan um aldamót. Enginn hefur sem hún metið íslenzku ullina, og lýkur hún nú níræð við að skrifa stórmerka bók um vefnað þjóðarinnar og listiðnað úr ull. Þótt Halldóra sé við beztu heilsu enn, er ekki til þess ætl- ast að hún inni öllu meiri störf að höndum. Nú á hún að njóta ævikvöldsins. Við árnum henni allra heilla og blessunar, og tök- um með þakklæti ráðum hennar, áhuga og brosum á ókomnum árum. Sveinhjöm Jónsson. Hringferð jarðar um sólu er ónákvæmur mælikvarði á raun- verulegan aldur lifandi vera, því að hvorki er hin lífeðlis- fræðilega atburðarás ævinnar né reynsla sálarinnar samstiga himintunglum á gangi þeirra. Maður getur lifað meira á ein- um viðburðaríkum degi en á heilum mánuði vanasljófra daga og ellihrörnun fer ekki eftir fjölda æviáranna eingöngu. Ný- lega gerði heilsufræðistofnun I Bandaríkjunum (National Ins- titute of Health) rannsókn á starfsorku 47 heilsugóðra öld- unga á aldrinum 65—92 ára og hafði til samanburðar hóp manna, sem var að meðalaldri 21 árs. Öldungarnir stóðust sam- anburðinn merkilega vel, áttu t.d. hægara með að setja fram hugsanir sínar á skilmerkilegan og skýran hátt. Margt benti til, að ending líkamans væri mjög háð sálarþreki manna, sem lýs ir sér m.a. í því að haldið er vakandi áhuga fyrir ýmsum við fangsefnum. Við lestur þessarar fréttar sá ég fyrir mér vinkonu mína Hall- dóru Bjarnadóttur, uppfulla af áhuga og fráa á fæti, þótt hún sé nú að fylla niunda áratug ævi sinnar. Eiginlega er það henni að þakka, að einni hæð var bætt ofan á Héraðshæli Hún vetninga á Blönduósi, til þess að Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.