Morgunblaðið - 13.10.1963, Side 14

Morgunblaðið - 13.10.1963, Side 14
14 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 13. okt. 1963 MINOR VAN — er reksturshagkvæmasta sendiferðabifreiðin á markaðnum í dag. Sérlega hentug fyrir léttan iðnað, smá- sölu og heildsöluverzlanir og hverskonar þjónustu starfsemi. Kostar aðeins kr. 105.900,00. Jafnan fyrirliggjandi. Þ. Þorgrímsson & Co. Suðurlandsbraut 6. Sími 22235. Íhúð Fyrirframgreiðsla Barnlaus hjón óska eftir 2—3 herb. íbúð strax. Fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 18733 eftir kl. 5 Viðskiptafræðingur — Endurskoðun Óskum eftir að ráða viðskiptafræðing eða mann með reynslu í bókhalds- og endur- skoðunarstörfum til starfa á endurskoðun- arskrifstofu vorri. Loftleiðir óska að ráða flugfreyjur til starfa frá og með næstkomandi áramótum. Umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára. — Góð almenn menntun svo og staðgóð kunnátta í ensku og einhverju Norðurlandamálanna er lágmarksskil- yrði, en æskilegt að umsækjendur tali að auki ann- að hvort frönsku eða þýzku. Gert er ráð fyrir að þriggja til fjögurra vikna undirbúningsnámskeið hefjist í næsta mánuði. Utnsóknareyðublöð fást í skrifstofum félagsins Lækjargötu 2 og Reykjanesbraut 6 og skulu hafa borizt ráðningardeild Loftleiða fyrir 20. þ.m. Dömur - Dömur Mikið úrval af nýjum vetrarþöttum. — Einnig margar gerðir af húfum. — Verð við allra hæfi. Verzlunin J E N N Y Skólavörðustíg 13A. Rautt ■ Grænt Ilelanca stretch í buxur. Dömu og Herrabúðin Laugavegi 55. GENERAL ELECTRIC Stærstu og þekktustu raftækjaverksmiðjur heimsins SJÓNVARPSTÆKI — N Ý K O M I N— Endurbætt gerð — Lækkað verð. Stærðir: 23” og 19”. Vinsamlegast vitjið pantana sem fyrst. Electric hf. Túngötu 6. — Sími 15355. — Nám / Frakklandi Framh. ar bls. 10 BESANCON: Lítill háskóli, en er ef til vill sá sem mest gerir sér far um að standa til reiðu fyrir erlent námsfólk. GRENOBLE: Nýtízkulegasti háskóli vor, sem ætíð stendur opinn erlendum námsmönnum. Jarðfræði-, hljóð- fræði- og þó einkum kjarnorku- rannsóknarstofnun hans (pró- fessor Louis Neel og próf. Louis Wei) eru mjög þekktar. — í nokkurra mínútna fjarlægð eru Alparnir, sem eru óþrjótandi uppspretta ánægju áhugamanna fyrir fjall'göngum og vetraríþrótt um. Bláströndin (Cóte d’Azur) er í nokkurra klst. fjarlægð, hvort sem farið er með bifreið- um eða lest. Auk þessa má nefna háskóla, sem er nýstofnaður í Orléans- Tours, í héraðinu umhverfis kastalana í Loire-dalnum; há- skólann í Strassbourg með sína frægu guðfræðideild; háskólann í Caen, sem er alveg nýr, með sfpfnun fyrir skandinavísk fræði, sem próf. Durand veitir forstöðu; háskólann í Dijon, mitt í vín- görðum Bourgogne-héraðs; há- skólann í Toulouse, með sína raftæknistofnun; háskólann í Nancy, þaðan sem komu Bour- baki-stærðfræðingarnir; háskól- ann í Lille, sem frægur er fyrir sérfræðinga sína í enskum fræð- um o.s.frv. Allir þessir háskólar standa opnir ungum íslendingum, með ofangreindum skilmálum. Með góðri dómgreind í vali má kom- ast að raun um að ekki er til sú grein mannlegrar starfsemi, sem þeir hafa ekki á dagskrá, og kenndar eru í þeim anda, sem er ekta franskur: að gera sér far um að sneiða hjá algjörum sérhæfingum og að tryggja um frám altl óbrotgjarnan grundvöll almennrar og mannlegrar mennt unar. Þó að eftirfarandi tvö „princip" frönsku háskólanna hafi orðið til á 16. öld, eru þau enn í heiðri höfð: „Vísindi án þekkingar er einungis eyðilegg- ing sálarinnar" (Sciences sana conscience n’est qu’une ruine de l’áme), og „Betra er vel mótað höfuð en fullt“ (II vaut mieux avoir une téte bien faite qu’une téte bien pleine). Ástæða er til að bæta því við, að fyrir hvern sem áhuga hefir á námi í Frakklandi, eru til ó- teljandi einkaskólar, sérstaklega á listasviðinu. Hvað því viðvíkur að afla sér þekkingar á franskri tungu og menningu, er óþarfi að mæla með Alliance Francaise, 101, Boulevard Raspail í París. Allar aðrar upplýsingar eru veittar í franska sendiráðinu. Karlmannaföt Mikið úrval. Verzlunin SEL Svampfóðraðir nylonfrakkar Margir litir. Verzlunin SEL Karlmanna- og drengjabuxur úr terylene. Verzlunin SEL Klapparstíg 40. Málflutningsskrifstofa JON N. SIGURÐSSON Sími 14934 — Laugavegj 10

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.