Morgunblaðið - 15.11.1963, Síða 10

Morgunblaðið - 15.11.1963, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ ie Fostudagur 15. nóv. 1963 Þota rekst á Ijósmerk j astöng í Vín Halldóra frá Hafurs- stöðum sjötug Utanrikisrdðh. Austurríkis meðal farþega Frankfurt 13. nóv. (AP) í GÆR rakst þota frá flugfélaginu Air India á ljósmerkjastöng við flug- völlin í Vín með þeim af- leiðingum, að rifa kom á væng hennar. Meðal far- þega í vélinni var Bruno Kreisky, utanríkisráðherra Austurríkis. Þotan, sem er af gerðinni Boeing 707, var í áætlunar- flugi frá Kalkútta til London með viðkomu í Frankfurt. Ráðgert var að hún gerði lykkju á leið sína og kæmi við í Vín, en þar ætluðu Kreisky og sjö Austurríkis- menn, sem fylgdu honum á opinberri heimsókn í Ind- landi, að verða eftir. Þegar þotan átti að lenda í Vín, var skyggni slæmt, og Bruno Kreisky var flugmanninum skýrt frá því, en hann ákvað að lenda þrátt fyrir það. Segja flug- Sextugur 1 dag: Axel H. Pedersen EINN AF ágætustu íþrótta- frömuðuim Dana, Axel H. Peder- sen, hrl. er sextugur í dag. Hann Ihefir átt sæti í stjórn íþrótta- sambands Dana (DIF) í nær tuttugu ár o,g sem sllíkur tekið þátt í mörgum ílþróttaráðstefn- um á Norðurlöndum og víðar. Hann er vel máfli farin og minn- ast menn hinnar snjöllu ræðu Ihans á 50 ára afmæli ÍSÍ í fyrra, en þar mætti hann sem fulltrúi DIF. Hann hefur átt sæti í Ól- ympíunefnd Dana frá 1951. Þá var Axel H. uim nokkra ára skeið fonmaður Dansik Athletik For- bund. Hann hefir jafnan látið sig norræna samvinnu miklu skifta, og hafa margir kynnst Ihonum á þeim vettvangi. Hann er einn af hinum sönnu fslands- vinum, sem vill ag vér fáum handritin heim aftur. Axel H. rekur stóra mála- flutnings-skrifstofu í Kaupmanna höfn, þá er hann og veiþekktur fyrir ritstörf sín um lögfræði- leg efni. Hann hefir gefið út nokkrar bækur og eru þessar merkastar: Byggeriets retlige og ökonomiske organisation, 4ja útg. kiom út 1960. Entreprenör Tran- sporter, útg. 1959. Licitation útg. 1956. Refusions-Opgörelser 2. útg. 1954. Advobatens Retentionsret í Dokumenter M. V. 1949. Hafa bækur hans verið þýddar á fin- sku, norsku og sænsku. Fyrir nókkrum árum var hann kjörinn heiðursdoktor í lögfræði við Árósa-háskóla. Axel H. er mjög vinsæll maður. Margir hafa komig á hans vist- lega heimili á Fredriksbergi og eiga þaðan góðar endurminning- ar, ekki sízt í finsku baðstofunni eiga vinir Axels H. góðan griða- stað og hafa margir heimsfrægir menn notið gestristni hans og vináttu, má þar nefna m.a. Urho Kekkonen, núverandi Finnlands- forseta, sem eins og kunnugt er, var einn helsti íþróttaleiðtogi Finna. Axel H. er veliþekktur í Kartöflumús — Kakómalt Kaffi — Kakó f •• Ornólfur, Snorrabraut Ibúð í vesturbænum Hefi til sölu 4ra herb. íbúð á 1. hæð í steinhúsi við Öldugötu. ÁRNI IIALLDÓRSSON, hdl. Laugavegi 22. — Sími 17478. málayfirvöld í borginni, að hann hafi verið í fuUum rétti. Þegar flugmaðurinn nálgað- ist flugvöllinn, var honum til- kynnt, að hann flygi of lágt, en það var um seinan því að flugvélin rakst í háa ljós- merkjastöng og nokkur lend- ingarljós áður en flugmann- inum tókst að hækka flugið aftur. Laskaðist hægri væng- ur þotunnar eins og fyrr seg- ir, en hreyflarnir voru ó- skemmdir. Akvað flugmað- urinn að halda áfram til Frankfurt og reyna að lenda þar. Tókst lendingin giftusam lega og allir sluppu ómeiddir. Blöð í Vín, sem rætt hafa atburðinn, telja, flugmanninn hafa flogið of lágt inn yfir flugvöllinn vegna þess að hon um var ókunnugt um, að ljósmerkja stöngum er öðru- vísi fyrir komið þar, en venja er. Austurrísk yfirvöld und- irbúa nú rannsókn á atburð- inum. athafnarlífi Dana, hann á t.d. sæti í mörgum nefndum, ráðum og vátryggingarfél. Að lokum þykir mér rétt að geta þess, að þegar DIF keypti hið myndar- iega 3ja hæða hús við V-Vold- gade í Kaupmannaihöfn þá var það fyrst og fremst verk Axels H. Hann hefir komið nokkrum sinnum ti'l íslands og á hér góða vini. Eigi kæmi mér á óvart, að hann yrði í hópi þeirra Dana, sem hingað koma með hand- ritin, þegar þar að kemur. í dag mun Axel H. berast mörg heillaskeyti og hamingúóskir, frá norrænum vinum sínum og samiherjuim, sem þakka honum drengilegan stuðning við sam- eiginleg málefni. Ben. G. Waage. Steinunn Pálsdóttir í DAG er til moldar borin í Hlíðarendakirkjugarði Stein- unn Pálsdóttir frá Nikurlásarhús um í Fljótshlíð, fædd 16. maí 1912. Þar austurfrá lifði hún æskuárin, og þaðan lá leið henn- ar út í lífið til ýmissa starfa. Meðal annars vann hún allmörg ár sem starfsstúlka við sjúkra- húsið á Siglufirði. Einnig vann hún um skeið á Stúdentagarðin- um í Reykjavík. Fórust henni öll störf vel úr hendi, enda allt í senn ötul og skyldurækin, vand virk og hagvirk. Hún var og snyrtikona hin mesta og smekk- vís á klæðnað sem annað. Það urðu örlög Steinunnar að verða að stríða árum saman við þungbært heilsuleysi. Dvaldi hún þá ýmist í sjúkrahúsum eða hælum, meðal annars lang- dvölum á Vífilsstöðum og Reykja ÉG hrökk upp við vondan draurn. Mér var tjáð að Halldóra firá Haifursstöðum væri orðiin sjötug að árum. Mikið er það miskunn- arleysi æviáranna að æða áfram með ofhraða.. Og ekki nema fá- ein ár síðan, finnst mér, að ég sá þessa stúlku, það er að segja konu, tvítuga. Og þó ég væri þá fremur hirðulaus um kvenlega fegurð fyrir æsku sakir, er hún mér samt enn skýrust í miinni eins og hún var þá, enda einna mest umtöluð ungra kvenna um allt Þingeyjarþing vegna gjörvi- leiks. Og þó ofhraði hálfrar aldar hafi að sjálfsögðu heimtað sína skatta og Öxfirðingar með engu móti, fremur en aðrir, getað geymt eina né neina Þymirósu óumbreytta í gerði sínu í 190 ár, er það samt svo að Halldóra lík- ist enn meira fimmtugri en sjöt- uigri. Má því segja um veröldina að hún fari batnandi en ekki versnandi. Því fyrir aldarfjórð- un,gi þótti sjötug kona gamal- menni ,og karlarnir komnir af fótum fram á þeim aldri — „með 70 ár á herðum“ — eins og það var orðað um aldamót. Halldóra er fædd að Hafurs- stöðum í Öxarfirði 11. okt. 1893. Foreldrar: Gunnlaugur Flóvents- son og Jakobína Sigurjónsdóttir hjón að Hafursstöðum. Að henni standa traustar bændaættir í Þingeyjarsýslu. Jakobína var Sig- jónsdóttir bónda að Ærlæk, síðar á Hallbjarnarstöðum á Tjörnesi, ein móðir hennar var Halldóra Jónsdóttir Buch frá Ingjaldsstöð um í Reykdialahreppi. En Gunn- laugur á Hafursstöðum var bróðir Þórðar í Svartárkoti. Halldóra ólst upp hjá foreldrum sínum að Bafursstöðum, traustu heimili og ágætu. Um tvítugs aldur gekk hún á Kemnaraskól- ann til séra Magnúsar Helgason- ar, þess annálaða kemnara og kennimanns. Sem aðrir memend- ur Magnúsar dáði hún hann fyr- ir kennarahæfileika, drenglyndi, gáfur og heilimdi. Að afloknu Kennaraskólanámi hvarf hún um sinn að kennarastörfum á ýmsum stöðum. Öðrum þræði var hún þó heima, því þar kallaði á hana þörf og skylda við heimilið. I-Ienni lét kennsla barna og unglimga með afburðum vel. Og hefur einn nemanda hennar trú- að mér fyrir því, að hvergi hafi. sér fundist skólamám jafn unaðs- legur leikur og mautn og í tímum hjá hemni. Hún laðaði fram áhuga til náms og notaði frítima og kvöldvökur til leiks Og skemmtama, þegar ekki þurfi að sinma bólcimni, og var undra fundvís á að hitta á ný og ný skemmtiaitriði. Ekki gáfust hemni þó tækifæri að sinna kennslu nema um stundarsakir. Heimilis- annir og útiþrá toguðu til tveggja átta. Þá réðist hún til utanfarar og gekk á kvenmaskóla í Kaup- mammahöfn. Arið 1925 giftist lundi. En þótt hún gengi þar aldrei heil til skógar, verður okkur minnisstætt, hversu hún ávallt lagði fram krafta sína og gekk að vinnu með okkur vist- fólkinu fram að síðustu stundu með þeirri ósérhlífni, sem henni var lagin. Steinunn var og kona mjög félagslynd og hafði oft ýmiss störf á hendi í félagsskap sjúklinga bæði á Vífilsstöðum og Reykjalundi. Hún var næmlynd og viðkvæm í lund og mátti ekkert aumt sjá, söngelsk og ljóðelsk og unni því sem fag- urt var, en fékk þessa minna notið en skyldi. Steinunn eignaðist eina dótt- ur barna, Ingunni, sem nú er efnileg 15 ára stúlka og hefur alizt upp hjá móðursystur sinni. En sívakandi var ástúð móður- innar og þrotlaus umhyggjan, sem hún bar fyrir þessari dótt- ur sinni. Nú, þegar hin grýtta braut er að baki lögð er vel að þú, Stein- unn, gengur til hvíldar í faðmi Halldóra Jóni Sigfússyni bónda að Ærlæk. Þar hafa þau búið síð an, eða 38 ár. Ærlækur er í þjóð- braut. Þar er gott að koma og viðtökur jafnan Ijúfmannlogar og með rausn, jafnvel af hálfu bónd- ans sem húsfreyjunnar að Ær- læk. Hún hefur haft um stórt heimili að sjá og ótal sinnum orðið að vera bæði bóndi og hús- freyja í fjarveru Jóns, sem bónd- inn hefur vea-ið við félagsmáLa- störf utan heimilis í sveit sinni og héraði meira en almennt ger- ist um bændur. T. d. í hrepps- nefnd í 39 ár, í sýslunefnd o. fL á 3. áratug í stj órn Kaupfélags- Norðurþingeyinga, í búnaðarfé- lagsstjóm í sveit sinni, stjómar- maður í Búnaðarsambandi N- Þing. og einn helzti hvatamaður að stofnun þess, lengi í marka- dómi, svo eitthvað sé nefnt af því argi, er stelur tíma bóndans írá arðsamari önnum og knýir hús- freyju hans til útistarfa, um- stangs og bústjómar fyrir utan stokk. Halldóra er skörungur og þó viðræðugóð, hreinlynd og 'hispurslaus. Um langt skeið hefur hún verið í fararbroddi kven- félaga norður þar, stundum for- maður í sinni sveit. Formaður kvenfélagasambands N.Þing og venjulega ful-ltrúi þess á lands- fundum og hefur vakið þar at- hygli ei-ns og hvarvetna ainnars staðar, þar sem hún fer. Börn þeirra Ærlækjarhjóna eru: Guðmundur bóndi á Ærlæk, kvæntur Guðnýju Tryggvadóttur frá Húsavík. Svava, gift Kjart- ani Guðmundssyni tannlækni í Reykjavík. Sigfús, kvæntur Erlu Sigurðardóttur ljósmóð- ur í Reykjavík. Oddný Rvík, gift Jónasi Sigurðssyni bif- vélavirkja í Keflavík. Áuk eigin barna hafa þau alið upp að nokkru leyti 2 pilta: Jóhann Hjartarson búfræðing í Leirhöfn á Sléttu og Sigurð Anton Jóns- son búfræðing og vélstjóra i Reykjavík. Bjartmar Guffmundsson, þinnar fögru æskubyggðar. Þangað fylgir þér hugur okkar héðan — og beztu óskir, er þú leggur inn á nýjar og bjartari leiðir. Skrifað laugard. 2. nóv. ’63 Ein á Reykjalundi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.