Morgunblaðið - 15.11.1963, Qupperneq 12
12
MORGU N BLAÐID
Föstudagur 15. nóv. 1963
wgttttÞIafeife
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arna Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Að\lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími '22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakio.
RÁÐUNEYTI BJARNA
BENEDIKTSSONAR
Djarni Benediktsson, for-
® maður Sjálfstæðisflokks-
ins, hefur nú myndað ráðu-
neyti sitt, án þess að um aðr-
ar breytingar sé að ræða á
skipun ráðherraembætta en
þær, að hann taki við for-
sætisráðherraembættinu af
Ólafi Thors og Jóhann Haf-
stein taki við störfum þeim,
er Bjarni Benediktsson áður
hafði með höndum. Myndun
ráðuneytis Bjama Benedikts-
sonar ber að með óvæntum
hætti og breytingin fer fram
á þeim tíma, þegar hæst
standa tilraunir til að ná sætt-
um í alvarlegum deilum. Er
því eðlilegt, að á þessu stigi sé
leitazt við að hafa breyting-
arnar sem minnstar, hvort
sem síðar kann að verða talin
ástæða til að breyta eitthvað
um ráðherraembætti og
skipta störfum innbyrðis að
nýju, eða stjórnin verði áfram
skiþuð eins og málin nú hafa
ráðizt.
Á sama hátt er það ljóst, að
ráðuneyti Bjarna Benedikts-
sonar tekur við í beinu fram-
haldi af störfum ráðuneytis
Ólafs Thors og þess vegna er
ekki að vænta nýrrar eða ítar
legrar stefnuskrár. Megin-
störf stjórnarinnar næstu vik-
urnar eru líka þegar ráðin.
Þar er um að ræða lausn hins
mikla vanda, sem við er að
etja í kjaramálum.
Þetta fyrsta stóra viðfangs-
efni ráðuneytis Bjarna Bene-
diktssonar mun hafa áhrif á
störf og stefnu þess til fram-
búðar, sem hlýtur að veru-
legu leyti að markast af því
að leitast við að tryggja verð-
gildi krónunnar, samfara
eðlilegum kjarabótum og
þeim framförum, sem mestar
eru, þegar um heilbrigt efna-
hagslíf er að ræða.
Bjarni Benediktsson hefur
lengi staðið í fremstu víglínu
stjórnmálanna. Hjá því hefur
þess vegna ekki farið, að hann
hafi orðið fyrir hörðum árás-
um, ekki sízt þegar hann átti
meginþátt í því að marka þá
heilbrigðu og farsælu utan-
ríkismálastefnu, sem íslend-
ingar síðan hafa fylgt.
En hvað sem árásunum
hefur liðið, þá eru landsmenn
sammála um það, að réttsýni
og virðing fyrir lögum hafi
einkennt allar stjórnarathafn-
ir Bjarna Benediktssonar. Og
enda þótt hann hafi um langt
skeið helgað sig stjórnmála-
baráttu hefur Háskóli íslands
veitt honum æðsta heiður
sem lögvísindamanni.
Einu er því hægt fyrirfram
að slá föstu um ráðuneyti
Bjarna Benediktssonar, að
þar mun ríkja réttlæti og
virðing fyrir lögum hins ís-
lenzka lýðveldis. Og svo vel
þekkir íslenzka þjóðin af-
skipti Bjarna Benediktssonar
af stjórnmálum, sem alþingis-
manns, borgarstjóra og ráð-
herra, að hún veit, að hann
mun leggja fram alla krafta
sína og einstæðar gáfur til að
ráða sem farsællegast málum
þjóðarheildarinnar.
STÖRVERKEFNI
F’ins og kunnugt er hefur
^ Viðreisnarstjórnin unnið
að undirbúningi ýmissa stór-
framkvæmda, sem nú er unnt
að snúa sér að, vegna þess hve
allt efnahagslífið hefur verið
styrkt. Er þar fyrst og fremst
um að ræða stóriðju til að
gjörbreyta efnahag þjóðarinn
ar til hins betra.
Sem iðnaðarmálaráðherra
hefur Bjarni Benediktsson
eðlilega haft forystuna í þess-
um málum, en það mun koma
í hlut hins nýja iðnaðarmála-
ráðherra, Jóhanns Hafstein,
að fylgja þeim fram til sigurs.
Eins og nú háttar hér á
landi, þar sem vinnuaflsskort-
ur takmarkar verðmætissköp-
unina, er nauðsynlegt að auka
tækni og stórvirkni. Það þarf
að láta fjármagn og vélar
vinna til þess að hver ein-
staklingur skili stórauknum
afköstum.
Það er þetta, sem stóriðjan
gerir, og þess vegna ber að
hrinda slíkum stórfyrirtækj-
um í framkvæmd.
YFIRBORGANIR
jóðviljinn“ getur þess í
mikilli forsíðufregn í
gær, að vinnulaun verka-
manna séu miklu hærri en
svarar til samninga, og held-
ur því jafnvel fram, að verka-
menn beri nú úr býtum tvö-
falt hærri laun en margsinnis
hefur verið tönnlazt á að þeir
hefðu.
Auðvitað er það gleðiefni
að sem flestir borgarar búi
við háar launagreiðslur og
sem bezt kjör, og vafalaust er
það rétt hjá blaðinu, að um
verulegar yfirborganir sé að
ræða á ýmsum sviðum.
Á því er ekki vafi að ýmsar
atvinnugreinar geta greitt
eitthvað hærra kaup en nú er
umsamið til verkamanna, en
hinsvegar er hagur fiskiðnað-
arins ekki nógu góður til að
taka á sig stóraukin útgjöld.
Aldo Moro reynir,
stjórnarmyndum á Italíu
— með þáttöku vinstri sósíalista
• Forseti ítalíu, Antonio
Segni, hefur falið leiðtoga
Kristilegra demokrata á Ítalíu
Aldo Moro, að mynda stjórn
er taki við af ráðuneyti Gio-
vanni Leone, er sagði af sér
fyrir skömmu. Moro mun
reyna að mynda stjóm með
þátttöku vinstri -sósíalista,
flokks Pietro Nenni og reyna
þar með að koma í fram-
kvæmd samvinnu mið- og
vinstri aflanna „apertura a sin
istra“, sem mjög hefur verið
til umræðu í ítölskum stjórn-
málum undanfarin átta ár.
Stjómmálafréttaritarar
telja Aldo Moro eiga fyrir
höndum erfitt verkefni og
ekki skjótunnið.
Aldo Moro sagði, er hann
tók að sér að reyna stjórn-
armyndun, að hann myndi nú
þegar hefja viðræður við leið
toga hægri sósíalista og lýð-
veldisflokksins, sem áður hafa
verið aðilar að stjórnum Ítalíu
á síðustu áxum og reyna að
koma á þannig samstarfi þess
ara fjögurra flokka, þ.e. Kristi
légra demokrata, Lýðveldis-
flokksins, vinstri- og hægri
Aldo Moro
sósíalista að unnt verði að
mynda stjórn, er byggi utan-
ríkisstefnu sína á fullum
stuðningi við Atlantshafs-
bandalagið, viðleitni til að
auka friðarhorfur í heiminum
og einingu ríkja Evrópu.
Aldo Moro er 47 ára að
aldri. Hann er prófessor í
lögum, nánar tiltekið í refsi-
rétti og hefur áður gegnt
ýmsum ráðherraembættum.
Hann reyndi síðast í júní s.l.
að mynda stjórn á Ítalíu, —
eftir að Fanfani sagði af sér.
Hafði þá næstum náðst sam-
komulag um stjórnarmyndun
með aðild flokkanna fjögurra
er vinstri öflin í flokki Nenn-
is gerðu uppreisn gegn hon-
um og neyddu hann til þess
að segja af sér flokkforyst-
unni um tíma. En fyrir
skömmu samþykkti ársfund-
ur vinstri-sósíalista, að fela
Nenni að hefja samningavið-
ræður um þátttöku í nýrri
stjóm með fyrrgreindum
flokkum.
f féttum frá Róm segir, að
miklar og ákafar umræður
hafi farið fram meðal stjórn-
málamanna síðustu tvær vik-
urnar. Hafi stefnunni „aper-
tura a sinistra“ aukizt fylgi
en í öllum flokkunum fjórum
séu þó uppi háværar raddir
gegn slíkri stjórnarmyndun
muni Kristilegir demokratar
eiga þar 15 ráðherra, vinstri
sósíaiistar fimm, hægri sósía-
listar þrjá og Lýðveldisflokk-
urinn einn eða tvo.
. ® S
Einiái'angui*
.Hiikla.
m
Bjarnjrey
Héimaey
^ ^Stórliöfh'
Swówrey
#> , .
Heiiiíey
Afstöðukort af gossvæðinu, sem varð 3 mílur til vesturs frá Geirfulgaskeri.
— Eldgosið
Framh. af bls. 2
er græn-gulur á nokkru
svæði. Það geta verið ýmis
gosefni, sem lita sjóinn. Ég
veit ekki enn hvaða efni það
eru. Ef áframhald verður á
gosinu tökum við prufur og
rannsökum hvernig þessi efni
dreifast út.
— Gosefnin þynnast fljót-
lega út og berast burtu með
straumum frá gossvæðinu.
Þarna er samfelldur straum-
ur vestur úr.
— Það getur verið að gos-
Þess vegna ber brýna nauð-
syn til þess eins og Morgun-
blaðið hefur áður bent á, að
leita leiða til kjarabóta, sem
ekki íþyngja útveginum um
of. —
ið drepi einhvern fisk út frá
sér, en fiskurinn flýr þegar
hann verður var við þetta.
Hannn er næmur á slíkt.
Verði ekki því meira úr gos-
inu og það standi nokkra
mánuði er líklegt að það hafi
lítil eða engin áhrif á sjávar-
lífið.
— Gosið var ca. 4 mílur
út frá Geirfuglaskeri, sem er
í syðsta og austasta útjaðri
Selvogsbanka. Þarna er eitt
af aðalhrygningasvæðum
þorsksins, ýsimnar og síldar-
innar.
— Skammt þama frá fundust
gotstöðvar síldarinnar, en hún
hefur botnlæg egg. Hættan er
því mest á að síldarstofninn
skaðist ef eitthvað verulegt
yrði úr gosinu.
— Síldin hrygnir í apríl og
þorskurinn í febrúar og marz.
Til að raska hrygningunni
þarf gosið að standa yfir í
langan tíma.
— Á þessn stlgi málsins er
lítið hægt að segja, en við
munum fylgjast með gosinu
og gera okkar rannsóknir.
Jón Jónsson
fiskifræðingur