Morgunblaðið - 15.11.1963, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 15. nóv. 1963
eldsumbrotin
af Reykjanesi
12.
SV
Sker hafa myndast og sokk-
ið, og eytt geirfuglinum
ELDUR IJPPI suðvestur af
Vestmflnnaeyju'm fimmtu-
daginn 14. nóvemiber 1963.
í>að mun vera í 12. sinn sem
vitað er um eldsumbrot í haf
inu út af Reyfcjanesi. Markús
Loftsson telur í bók sinni
Jarðeldar á íslandi 11 elds-
umlbrot á þessum slóðum, þar
af 7 sinnum á 13. öid, og síðan
1083, 1783 1830 og 1879. Oft-
ast hafa fylgt þeim miklir
jarðskjálftar, en ekki þó í
þetta sinn, að þvi er bezt verð
ur vitað.
í Vestmannaeyjum sjálfum
og kringum þær hafa verið
eldsumbrot, síðast talið að
þar hefði gosið í sambandi
við jarðskjálftana mikiu á
Suðurlandi 1896, en engar ör-
uggar heimildir eru um slíkt.
Vitað er að hraun hefur runn
ið úr Helgafelli á Heimaey,
en talið að það hafi gerzt
snemma á landnámstíð.
„Um öll þau hin miklu elds
umibrot sem urðu á Reykja-
nesfjallgarði á 13. og 14. öld
hefur fátt verið ritað, aðeins
nokkrar línur í annálum og
hafa það þó verið einhiver
mestu eldgos síðan á land-
námstíð, eins og vegsummerki
sýna" skrifaði I>orvaldur Thor
oddsen. Og hann segir í Jarð-
skjálftasögu sinni frá eldi á
hafi úti árið 1211, og mynduð
ust þá eyjar.
Árið 1211 kom upp eldur
úr sjó fyrir sunnan Reykja-
nes. Sörli Kolsson fann Eld-
eyjar hinar nýju, en hinnar
horfnar er alla sevi htifðu stað
ið. I>á varð jarðskjálfti mikili
hinn næsta dag fyrir Selju-
mannamessu (7. júlí) og létu
margir lif sitt og féll ofan al-
hýsi á fjölda bæjum og gjörðu
stærstu skaða. „Bn öil þessi
umlbrot voru kennd Páli bisk-
upi, fólk trúði því að með
þessu væru höfuðskepnurnar
að sýna hryggðarmerki við
lát hans.
GEIRFU GLINN HRAKTIST
UNDAN ELDSUMBROTINU.
Árið 1784 urðu einhverjir
mes-tu jarðskjálftar sem orðið
hafa á Suðurlandi. I>á fóru
mörg af yztu skerjunum í kaf
og er þá talið að töluvert af
varpstöðvum Geirfuglsins hafi
eyðilagsit. Við það færðist
hann nær landi. Seinast var
hann á Geirfuglaskeri segir
Magnús Björnsson í fuglabók
Ferðafélagsins, en það sökk
um eða eftir 1836 og var þá
útséð um hann. Eyjar þarna
hafa iðulega horfið og nefnir
Þorvaldur Thoroddsen þrjú
slík, árin 1211, 1422 og 1783.
EYJAN SÖKK FRÁ DÖNUM
Snemma í maímánuði 1783
urðu sæfarendur varir við
reyk úr hafi fyrir utan
Reykjanes, 7 miílur undan
landi og er þeir komu nær
var sjórinn allur þakinn vikri.
Ey með alllháum klettum
hafði skapast þar og kastaði
af sér ösku og vikri svo sjór-
inn var þakinn af vikrinum
á 20-30 mílna svæði. Að sögn
suanra var eyjan míla að um-
máli, að sögn annarra aðeins
þriðjungur úr mílu. Menn
fundu að sævardýpi þar í
kring hafði breyzt og að boði,
sem mjög braut á, hafði
myndazst 1% mólu þaðan til
norðausturs. Með 'konungsúr-
skurði 26. júnlí 1783 sló Dana-
stjórn eign sinni á eyna og
kallaði Ny0e, en hún hvarf
litlu síðar.
Árið 1830 var eldur fyrir
Reykjanesi .Hann sást fyrst
hinn 6. eða 7. marz og var
þangað til í maímánuði. Þá
rak mikið af vikri að næstu
ströndum. Upptökin voru
nærri Eldeyjarboðum.
1879 vair enn gos fyrir
Reykjanesi. Hinn 30. maí sáu
menn frá Kirkjuvogi í Höfn-
um eldsuppkomu nálægt Geir
fuglaskerjum, hér um bil 8.
málur undan landi og sást til
hennar næsta dag, en 14 daga
framan af júní var svört þoku
bræla yfir sjónum út af
Reykjanesi. Rétt áður en þok
an hvarf kom öskufall, sem
sá vel á grasi, en ekki urðu
menn varir við eldanna efti*-
það.
Loks þóttust rnenn sjá l
jarðeldunum mifclu árið 1884
nýja eyju 26. júli hérumbil
3 mílur fyrir norðvestan Eld-
ey, en mjög er það talið vafa-
samt að þar hafi verið um
eldsumbrot að ræða.
Af þessu má sjá að eldsum-
brot í sjó suðvestan við ís-
land eru ekkert einsdæmi.
Þetta hefur á undanförnum
öldum oft gerzt og sjálfsagt
oftar en sögur fara af.
• Atfum verst
Framh. af bls. 3
heilu hungri. Menn minnast
kannski fréttanna af vínbirgð-
unum, sem þeir voru að vand-
ræðast með fyrir skömmu, og
Frakkar keyptu á endanum.
Límonaði í opinberum
veizlum
— Hvernig er það, er mikið
um drykkjuskap í landinu?
— Samkvæmt lögum og trú
er bannað að drekka áfenga
drykki, og í opinberum veizl-
um hjá Ben Bella er eingöngu
boðið upp á kók og límonaði.
En mörgum þykir sopinn góð-
ur. Einu sinni vorum við boð-
in í brúðkaupsveizlu á 2. hæð
í fjölbýlishúsi. Þar var bara
te og límonaði á boðstólum,
en á 11. hæð voru vínveitipg-
ar bornar fram í laumi. Enda
þótt lyftan í húsinu væri bil-
uð var stöðugur straumur
veizlugesta upp á við.
— Þið töluðuð áðan um
hungurgöngur og matarskort.
Var matur ófáanlegur í verzl-
unum eða hafði fólkið ekki
efni á að kaupa hann?
— Það var hægt að fá allt
milli himins og jarðar í verzl-
unum, en matvæli voru óhugn
anlega dýr. Arabarnir borða
mest cous-cous (sem er soðið
úr hveitikornum) og sterka
súpu, sem á mörgum heimil-
um er borðuð úr einum stór-
um dalli. Við keyptum einu
sinni meðalstóra ýsu í búð og
þurftum að borga 140 krónur
fyrir hana og saltfiskur í soð-
ið kostaði okkur 80 krónur.
Virðist okkur í fljótu bragði
að þarna ætti að vera góður
markaður fyrir íslenzkar sjáv-
arafurðir.
En eins og við sögðum áðan
er verið að þjóðnýta verzlan-
ir og búið að loka mörgum.
Er ætlunin að banna innflutn-
ing munaðarvara en auka í
þess stað iðnaðar- og landbún-
aðarvörur, svo ekki er víst að
vöruúrvalið verði eins blóm-
legt í framtíðinni og það var
meðan við vorum þarna.
— Voruð þið eínu fslend-
ingarnir á þessum slóðum?
— íslendingar hafa að sjálf-
sögðu fyrr kcmið til Alsír um
lengri og skemmri tima, en
við vissum ekkki um neina
samlanda, fyrr en systir Elías-
arð Ása Ágústsdóttir, fluttist
til Alsír nú í sumar. Hún er
gift Serkja og hafa þau stofn-
að heimili í Algeirsborg.
Barnaleikur að lifa
á íslandi
— Ferðuðust þið mikið um
landið?
— Við fórum til Kabylíu-
fjalla og borganna við strönd-
ina, allt til Oran. Landið er
ákaflega fallegt, en ósköp er
að sjá hálfbrunna trjástubb-
ana á heilu landsvæðunum,
sem Frakkar báru eld að í
stríðinu. Það er enn dálítið
af Frökkum í landinu, m.a.
franskar hersveitir hingað og
þangað um landið, sem hafa
eftirlit með frönskum borgur-
um og eignum þeirra. Enn-
fremur sjá Frakkarnir um
olíuvinnsluna að mestu leyti,
en ríkið fær ágóðahluta.
— Þykir ykkur nú lífið ekki
heldur dauflegt hér heima í
samanburði við lífið í Alsír?
— Það er hreinasti barna-
leikur í samanburði við ó-
stjórnina þar neðra, en miklu
betra. Hg.
Vel heppnaðar
leiksýningar
á Ólafsfirði
ÓLAFSFIRÐI, 13 nóv. — Leik-
félag Ólafsfjarðar hefur sýnt að
undanförnu „Þrír skálkar“. Hafa
verið hafðar 3 sýningar við mjög
góða aðsókn. Leiknum hefur
verið mjög vel tekið. Leikstjóri
var Kristján Jónsson frá Reykja-
vík.
Leiktjöldin hefur Kristinn Jó-
hannsson, skólastjóri, málað.
Ákveðið hefur verið að fara
með laikinn á nokkra staði hér
í grenndinni. — Jakob.
4 austur-þýzkir sundmenn
á mót Ármanns?
ÞAÐ mun nær afráðið að 4 aust-
ur-þýzkir sundmenn komi hing-
að á afmælismót Ármanns sem
haldið vorður í Sundhöllinni 25.
og 26. þ.m. Ármenningar hafa
lengi staðiff I gagnkvæmum
heimsóknum við A-Þjóðverja, en
vegna erfiðleika við vegabréfs-
áritanir þeirra virtist um tíma
sem af hemsókninni yrði ekki.
Af sundfólkinu sem kemur
skal fyrstan frægastan telja Ul-
rich Millow sem er einn fræg-
asti langsundsmaður Þjóðverja
og var m. a. fyrstur þeirra til
að synda 1600 m undir 19 mín.
Millow syndir 200 m skrið-
sund á 2.13.6 mín, 400 á 4.46.0,
MOLAR
Real Madrid sigraði Dynamo
Bukarest í gær 3-1 í Evrópu-
keppni meistaraliða. Leikurinn
fór fram í Bukarest.
100 m flugsund á 1.05.4, 200 m
flugsund á 224. og 400 m ein-
stakl. fjórsund á 5.25.0. Allir
þessir tímar eru miðaðir við 50
m laugarlengd og getur hann
því mun betur í 25 m laug.
Þá kemur Jörgen Witt einn
efnilegasti unglingur meðal
sundmanna A-Þýzkalands. Hann
er 16 ára, syndir 200 m sk-rið-
sund á 2.16.0 og 400 m á 4.53.0.
Þá koma tvær stúlkur, Schu-
macher sem syndir 100 m skriðs.
á 1.04.9, 200 m á 2.27.0 og 100 m
baksund á 1.18.0. Stalla hennar
Holz syndir 100 m bringusund
á 1.28.0, 200 m á 3.06.0 og á 2.57.7
í 200 m einstakl. fjórsundi
kvenn. Allir tímar miðaðir við
50 m laugarlengd.
Eins og sjá má er hér um góða
gesti að ræða. Sundfólk okkar
æfir mjög vel og er fullyrt í röð
um sundmanna að bæði Hrafn-
hildur Guðmundóttir og Davíð
Valgarðsson séu í mjög góðri
(þjálfun og Davíð muni ógna
meti Guðmundar Gíslasonar í
400 m sundinu — ef ekki í fleiri
greinum. Guðmundur Gíslason
æfir og af kappi.
Davíff Valgarðsson
— nálgast metin
Lið blaðamanna gegn
landsliðum í kvöld valin
Nú er verið að steypa verð-
launapeninga er veittir verða á
Olympíuleikunum í Tokíó. Það
er japanskt firma sem fékk verk-
ið en ítalskt tilboð var þó lægst.
Peningarnir sem verða 1100 tals-
ins kosta yfir milljón ísl. kr.
í KVÖLD kl. 8.15 fara fram að
Hálogalandi leikir landsliða í
karla og kvennaflokki og mæta
liðin þá úrvalsliðum er íþrótta-
fréttamenn hafa valið. Er þetta
fyrsti undirbúningsleikur lið-
anna vegna stórátaka er þeirra
bíða á komandi keppnistima-
bili þar sem karlaliðið fer í úr-
slitakeppni heimsmeistarakeppn
innar í Tékkóslóvakíu.
Liðin er íþróttafréttamenn
hafa valið gegn landsliðunum
eru þannig:
Lið karla
Karl Marx Jónsson ÍR
Þorsteinn Björnsson Á
Karl Benediktsson Fram
Ágúst Þ. Oddgeirsson Fram
Jón Friðsteinsson Fram
Pétur Bjarnason Vík. ________
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
— fær harða keppinauta
1 Þórarinn Ólafsson Vík.
1 Gylfi Hjálmarsson ÍR
' Reynir Ólafsson KR
Þórður Ásgeirsson Þrótti
Viðar Símonarson ÍR
Lið kvenna
Rut Guðmundsdóttir Á
Geirrún Theodórsdóttir Fram
Liselotte Oddsdóttir Á
Svana Jörgensdóttir Á
Vigdís Pálsdóttir Val
Elín Guðmundsdóttir Vík.
Valgerður Guðmundsd. FH.
Ekki skal hér spáð um úrslit,
en staðreynd er að oft hafa blaða
liðin veitt landsliðunum harða
keppni — og oft sigrað í karla-
ílokki, hvað sem verður nú.