Morgunblaðið - 03.01.1964, Side 12

Morgunblaðið - 03.01.1964, Side 12
MORGUNBLADIÐ E» 1 Föstudagur 3. Jan. 1964 |HtrrcjiinWsi>l|r Otgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sígfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arm Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðs.lstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftirgjald kr. 80.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 4.00 eintakih. VERKEFNIN FRAM- UNDAN Fyrsta barn ársins til vinstri —'síðas'ta barn ársins til hægri. & Aramótabörnm ¥ áramótagrein, sem Bjarni Benediktsson, forsætisráð- herra, formaður Sjálfstæðis- flokksins, ritaði hér í blaðið á gamlársdag, vakti hann at- hygli á því, að almennar kaup hækkanir í landinu á sl. ári hefðu orðið nær 30%. Taldi forsætisráðherrann að jafnvel þeir, sem mesta trú hafa á ágæti viðreisnarstefnunnar og þeim styrkleika, sem hún hef- ur veitt íslenzku efnahagslífi, hlytu að gera sér grein fyrir því, að hér væru um að ræða miklu meiri kauphækkanir en nokkur von væri til að undir yrði staðið án gagnráð- stafana. En hann kvað enn of snemmt að segja til um til hverra úrræða vænlegast væri að grípa. Auðsætt væri, að hinar umsömdu kauphækk anir hlytu að verka á verð landbúnaðarvöru og annarrar innlendrar framleiðslu, svo og verzlunarálagningu. Allt hlyti þetta að leiða til al- mennra verðlagshækkana. Forsætisráðherra kvað flesta lýsa sig andvíga geng- islækkun, en því miður hefðu nú of fáir fengizt til þess að láta sitt af mörkum til að hætta gengislækkunarleikn- um. Til ítrustu hlítar yrði þó að vona að það tækist. „En þá verða menn að sýna að þeir vilji nokkuð á sig leggja til að forðast ranglætið, sem inn á við leiðir af krónulækkun og álitshnekkinn, sem út á við hlýtur að fylgja henni,“ sagði Bjarni Benediktsson. Forsætisráðherrann lagði síðan áherzlu á það, að verk- efnin framundan væru ærið mörg og torleyst. Næstu mán- uði yrði að nota til þess að finna skynsamlegustu leiðina og sem víðtækustu samkomu- lagi yrði náð um. Ríkisvald- ið eitt fengi hér ekki viðráðið ef almenningur sýndi ekki skilning á viðfangsefninu og vilja til þess að leysa það. ★ Þetta er vissulega rétt og satt. Allir hugsandi menn verða nú að láta sér skiljast, að þjóðin hefur sjálf í hendi sér, hvort hún vill snúa við af óheillabrautinni, stöðva vöxt verðbólguijnar og tryggja gengi krónunnar, eða hvort hún vill vaða áfram út í kviksyndi vaxandi jafnvæg- isleysis og gengislækkunar. Ríkisstjórnin hefur sagt þjóðinni sannleikann um ástand mála hennar um þessi áramót af fullkominni hrein- skilnL Hún gerði einnig til- raun til þess að bæta veru- lega kjör hinna lægst laun- uðu án þess að stefna afkomu útflutningsframleiðslunnar í voða. En launþegasamtökin vildu ekki fallast á þessa lausn. Miklar kauphækkanir hafa verið knúðar fram, einn- ig til hinna hæstlaunuðu, án nokkurs tillits til þess hvaða afleiðingar sú ráðabreytni gæti haft á allan hag og af- komu þjóðarbúsins. Með þessu atferli hefur grundvöll- ur íslenzkrar krónu verið stórlega veiktur og veruleg hætta verið leidd yfir allan almenning í landinu. STRÍÐS- YFIRLÝSINGIN í BORGARNESI Tlin harkalega beiting laun- ■*■■*■ þegasamtakanna gegn efnahagslegu jafnvægi í þjóð félaginu á árinu 1963 þarf þó ekki að koma þjóðinni mjög á óvart. Þegar komm- únistaflokkurinn hafði gert sér ljósan ósigur sinn í al- þingiskosningunum á s.l. sumri lý?ti formaður „Al- þýðubandalagsins“, forseti Alþýðusambandsins, Hanni- bal Valdimarsson því yfir í útvarpsávarpi, er hann flutti frá Borgamesi, „að Alþýðu- bandalagið boðaði stríð en ekki frið“. Margir töldu að þessi orð hefðu verið mælt í fljótræði og hugsunarleysi eins og þess um flasfengna stjómmála- manni hættir oft til. En svo var þó ekki. Forsætisráðherra vekur athygli á því í ára- mótagrein sinni, að formað- ur Alþýðubandalagsins árétt- aði Borgamessyfirlýsingu sína hinn 29. júní í Frjálsri þjóð og komst þá þannig að orði: „Ég sagði því hreinskiln- islega: Alþýðubandalagið boðar stríð en ekki frið. Og það var í engu fljótræði sagt, heldur sem sjálfsagður hlut- ur og að vel yfirlögðu ráði.“ Það er vissulega sorgleg staðreynd, að maður eins og formaður „Alþýðubandalags" kommúnista skuli hafa að- stöðu til þess að framfylgja hreinum stríðsyfirlýsingum á hendur efnahagskerfi þjóð- félagsins. En þetta er þó kjami þess sem gerzt hefur. Hin 30% almenna kauphækk- un á árinu 1963 var ekki fram kvæmd til þess að bæta raun- veruleg lífskjör almennings á íslandi. Allir vissu fyrirfram, SÍÐASTA barnið, sem fædd ist á árinu í Reykjavík, svo vitað sé, leit dagsins ljós um 11-leytið á gamlárslkvöld í fæðingardeild Landsspítalans. Var það dökkhært stúlkubarn vóg, 3200 grömm og var 49 sentimetrar á lengd. Telpan er dóttir Ingiibjarg- ar Ingólfsdóttur og Gunndórs Sigurðssonar, sendibílsstjóra. Það er þriðja barn þeirra hjóna, þau eiga fyrir 5 ára telpu og dreng, sem er ný- orðinn 2 ára. MJÖG umfangsmikil leit hef- ur verið gerð í þrjá sóiarhringa að 68 ára gömium Kópavogsbúa, Bárði Jónssyni, sem ekki hefur sézt tii frá því daginn fyrir gamlársdag. Leit hélt áfram s.I nótt, en hafði ekki borið árang- ur, þegar Mbl. frétti síðast til. Bárður Jónsson, fór að heim- an frá sér að Borgarholtsbraut 37A, Kópavogi, síðarihluta mánu dagsins 30. desember. Sást síðast til hans kl. 4.30 á Nýbýlavegi. Síðan er ekkert vitað um ferð einnig þeir sem hæstar gerðu kröfumar, að þær hlytu að hafa í för með sér nýja dýr- tíðaröldu og hættu á fellingu krónunnar. íslendingar standa nú frammi fyrir miklum vanda á nýju ári. Sá vandi verður ekki leystur á gmndvelli stríðsyfirlýsingarinnar frá Borgamesi. Þar verður allt annað að koma til. Slíkar hót- anir um hernaðaraðgerðir á hendur þjóðfélaginu, og fram- kvæmd þeirra eru glapræði sem -þjóðin verður að for- dæma og snúast gegn. Sú litla lét sig engu skipta, þó blaðamaður og ljósmynd- ari Morgunblaðsins rifu það upp úr hlýrri vöggunni og stilltu henni upp í örmum móður sinnar. Hún geispaði og teygði úr öllum skönkum. Hún var hárprúð í meira lagi og rjóð og lítið eitt klóruð í andlliti, og sýndi Ingibjörg okkur stolt á svip, hve barnið hafi fæðzt með langar neglur. En stuttu eftir að kirkju- klukkur og skipsflautur höfðu fagnað nýju ári og allir lands- ir Bárðar og ekkert vitað um hvert hann ætlaði. Farið var að spyrjast fyrir um hann siíðari Shluta mánudagskvölds, þegar hann kom ekki heim til sín. Á gamlársdag var leitað til Hjálparsveitar skáta í Hafnar- firði og þeir beðnir að svipast um eftir Bárði. Var strax hafin leit og hefur svo verið stanz- laust siðan. 1 gær hóf Hjálparsveit skóta í Reykjavík einnig leit svo og var fengin þyrla frá Keflavíkur- BIRTIR i ALÞJÓÐAMÁLUM T ræðum þjóðaleiðtoga ■*• um þessi áramót kom það víða fram, að nokkuð bjartara væri nú yfir í al- þjóðamálum en tmdanfarin ár. 'Samningurinn um tak- markað bann við tilraunum með kjarnorkuvopn hefur dregið nokkuð úr spennu og tortryggni þjóða í milli. Gat- ið á Berlínarmúrinn og heim- sóknimar austur fyrir hann, hafa einnig kveikt dálitla ljósglætu og vonir um lausn Þýzkalandsvandamálsins. Margt bendir til þess að menn kvatt gamla árið með flugeldum og blysum, ók sjúkrabíll að Fæðingarheimili Reykjaví'kurborgar með verð- andi móður. Hún ól barn sitt stundarfjórðungi yfir tvö og var það fyrsta barn ársins. Fyrsti borgarinn á hinu ný- . byrjaða ári var strákur, tæp- lega 14 merkur að þyngd og 50 cm. á lengd. Foreldrar hans eru hjónin Ingunn Þóra Jóns- dóttir og Vilhjálmur Elías Þórhallsson, verzlunarmaður í Heimakjör. Ingunn kvaðst hlakka til að fara heim með strákinn og sýna hann dóttur sinni, sem er þriggja ára gömul, og veit ekki enn að hún hefur nú eignazt Lítinn leikfélaga og bróður. flugvelli til að taka þátt í leit- inni. En tveim tímum síðar varð þyrlan að hætta leit vegna is- ingar. Leitað hefur verið á geysi- stóru svæði, allar fjörur frá Hafn arfiirði og upp í Gufunes, aust- asta hluta Reykjavíkur, allan Kópavog og svæðið suður af Engidal og loks svæðið upp að Helgafelli. Seint í gærkvöldi var verið að leita við Hafravatn og Framh. á bls. 14 þungamiðja ágreiningsefn- anna í alþjóðamálum hafi færzt til Asíu, þar sem vax- andi ágreinings gætir milli Kínverja annars vegar og Indverja og Rússa hinsvegar. Sovétstjómin er önnum kaf- in við lausn innanlandsvanda mála, svo sem skort á komi og öðmm neyzluvamingi, og mun þess vegna nokkru sátfc- fúsari í umræðum um utan- ríkismál. Það er þess vegna skoðun margra, að á árinu 1964 kunni að verða áfram- hald á viðleitni hinna vest- rænu lýðræðisþjóða og Sovét ríkjanna til þess að bæta sambúð sína og ráða ágrein- ings málum sínum til lykta. Hijög umfangsmikil leif að 68 ára gömlum manni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.