Morgunblaðið - 03.01.1964, Blaðsíða 24
1. tbl. — Föstudagur 3. janúar 1964
VORUR
************************** *********
BRAGÐAST BEZT
Eldtungurnar standa út úr brcnnandi húsinu á Seltjarnarnesi. Sv. Þ. tók myndina skömmu eft
ir að slökkviliðið kom á vettvang.
íbúðarhús á Seltjarnarnesi ger-
eyðileggst í eldsvoða
Fólk bjargaðist naumlega út — innbú var
óvátryggt — tjónið er mjög tilfinnanlegt
ÍBÚÐARHÚSIÐ Teigur á Sel-
tjarnarnesi eyðilagðist í eldi að
morgni nýársdags. Allir voru í
fastasvefni, þegar eldurinn kom
upp, en gestkomandi maður í
húsinu vakti fólkið, sem tókst
með naumindum að bjarga sér
undan eldinum. Auk mikilla
skemmda á húsinu sjálfu brann
allt innbú og hefur fólkið þvi
orðið fyrir miklu tjóni.
Hreppstjórinn á Seltjarnar-
nesi, Guðmundur Illugason,
skýrði Morgunblaðinu svo frá
um brunann:
„Teigur er gamalt timburhús,
einlyft og stendur á háum stein
steyptum kjallara. Þá er einnig
íbúðarris í húsinu. Roskin ekkja,
Oddný Hjartardóttir, er eigandi
hússins. Hjá henni bjó sonur
hennar, Ingimundur Steindórs-
son, kona hans og 5 börn, sem öll
eru komin nokkuð á legg.
Gestkomandi maður, Ólafur
Árnason, svaf í einu herbergi á
rishæðinni, en á hæðinni voru
einnig elztu börnin. Vakað var
fram eftir nóttu, en klukkan að
ganga ellefu á nýársmorgun
vaknaði Ólafur og varð var við
reyk í herberginu. Ólafur vakti
fólkið og um leið gaus upp mik-
ill eldur, enda magnaðist hann
mjög við trekkinn sem myndað-
ist er hurðir voru opnaðar. Varð
húsið svo til alelda á skammri
stundu.
Bjargaðist fólkið naumlega út,
meira og minna fáklætt. Einum
syni Ingimundar tókst að bjarga
út á síðustu stundu og var hann
þá meðvitundarlaus. Hann komst
til meðvitundar fljótlega eftir að
hann komst í ferskt loft.
Mikið rok var um morguninn
og gerði það slökkviliðinu mjög
erfitt fyrir um björgunarstarf.
Stóð eldurinn á steinsteypt hús
þarna við hliðina, en það tókst
að verja.
Húsið stendur uppi, en á ein-
um stað féll þakið niður. Að inn-
an er allt kolbrunnið og allir
innanstokksmunir eru ónýtir.
Innbú var óvátryggt, nema það
sem ekkjan átti, en það var mjög
lágt tryggt.
Ekkert er enn vitað um elds-
upptök, nema hvað eldurinn
mun hafa komið upp á rishæð-
inni. Rannsókn hófst fljótlega á
orsök brunans og stendur hún
yfir ennþá.
íbúar hússis standa uppi alls-
lausir, en nágrannamir hafa skot
ið yfir þá skjólshúsi'.
Rok reif járnplötur af
hótelinu í Borgarnesi
Fuku sem skæðadrífa ybr kauptúnið
BORGARNESI, 2. jan. — Nýja
árið byrjaði ekki sérlega vel hér
í Borgarnesi. í suðaustan hvass-
viðri, sem gerði á nýjársdag
fauik þakið af hótelinu. Reif rok-
ið um 250 járnplötur af þakinu
og geirðu þær talsverðan usla.
Einn bíll skemmdist miikið og
tveir minna. Það forðaði þó að
slys hlytust af þessari skæða-
drífu af járnplötum að fátt fólk
var á ferli, bæði vegna veðurs
og eins vegna áramó'tanna.
Þetta gerðist um kl. 2 á nýárs-
dag. Járnplötur fuku á stein-
rimilagirðingu við næsta hús
fyirir oifan og brutu steinstólpana.
Lenti ein platan á stofuglugga í
húsinu og mölbraut hana, en fólk
var ekki fyrir innan!
Lög reglulþjónninn kallaði út
Björgunarsveit Slysavarnafélags
ins undir forustu formannsins,
Sigurðar B. Guðbrandssonar og
einnig komu til hjálpar félagar
úr Lyónsklúbbnum, ásamt fleiri
Borgnesingum. Þeir unnu að því
að safna saman járnplötum og
fergja þær, svo ekki hlytist af
þeim meira tjón. Hafa 40—50
manns unnið að þessu og var
búið að safna saman plötunum
uim 4 leytið. Lögðu mennirnir
sig í hættu við að forða meira
tjóni, því erfitt er að hemja
bárujárnsplötur í slíku ofsaroki.
í dag er verið að setja pappa
á þakið, svo það leki ekiki, þar
til viðgerð fer frarn. — Hörður.
B.S.R.B. krefst 15 prs.
kauphækkunar
Frá Bandalagi starfsmanna-
ríkis og bæja:
í LÖGUM nr. 55/1962, um
kjarasamninga opinberra
starfsmanna, er ákveðið, að
fyrsti kjarasamningur eða
kjaradómsúrskurður um launa
kjör starfsmanna ríkisins
skuli gilda til ársloka 1965.
Á hinn bóginn gera lögin
ráð fyrir, að ef almennar og
verulegar kaupbreytingar
verði á samningslímabili, megi
krefjast endurskoðunar kjara-
samnings án uppsagnar hans,
og fer um þá endurskoðun á
sama hátt og aðalsamning.
Ef samkomulag næst ekki
milli aðila, sker kjaradómur
úr ágreiningnum.
Þar sem að undanfömu
hafa óumdeilanlega orðið
almennar og verulegar kaup-
hækkanir, hefur stjórn B.S.
R.B. einróma samþykkt að
nota heimild fyrrgreindra
laga og kref jast endurskoðun-
ar gildandi kjarasamnings.
Hefur verið borin fram krafa
um 15% launahækkun til
opinberra starfsmanna frá 1.
janúar 1964.
Stangaveiðifélagið gerir leigu-
tilboð í vatnasvæði Ölfusár
Býðst til að gieiða 2,5 milljónir í leigu og
500 þús. til ræktunar drlega
Stangaveiðifélag Reykja- i vatnasvæði Ölfusár og Hvít-
víkur hefur með bréfi dag- ár. Tjáir Stangaveiðifélagið
settu í gær gert leigutilboð
til Veiðifélags Árnesinga, í
alla lax- og silungsveiði á
sig reiðubúið að greiða 2,5
milljónir fyrir veiðina, og að
auki 500 þúsund krónur ár-
Fernt brenndist illa á gamlárskvöld
- Fámennt í miðbænum - lögreglan
handtók 45 pilta og gerði hundruð
kínverja Upptæka
UM ÁRAMÓTIN voru tals-
verð brögð að því að fólk
slasaðist af völdum flugelda
og sprengna. Var þröng á
þingi í slysavarðstofunni af
þeim sökum, og þaðan voru
fjórir fluttir í sjúkráhús. 14
ára gamall drengur særðist
illa, er kínverji sprakk í auga
hans.
Þá handtók lögreglan 45
pilta í miðbænum nokkru fyr-
ir miðnætti á gamlárskvöld
og við leit fannst hjá þeim
kringum 600 kínverjar. Enn-
fremur handtók lögreglan
nokkra menn, sem háru á sér
hættulegar heimatilbúnar
sprengjur.
Unglingar handteknir
Morgunblaðið átti tal við
Erling Pálsson, yfirlögregluþjón,
og innti hann eftir fréttum af
atburðum þeim, sem gerðust á
gamlárskvöld og aðfaranótt nýj-
ársdags. Sagði hann, að á gaml-
árskvöld hefði verið óvanalega
fámennt í miðbænum, en þegar
líða tók á kvöldið komu þangað
unglingsstrákar í flokkum og
tóku að láta ófriðlega. — Þegar
lögreglunni þóttu þeir ganga of
langt, sagði Erlingur, 'tóku þeir
úr umferð 45 drengi á mismun-
andi aldri og samanlagt reyndust
þeir bera á sér um 600 kínverja.
(Þess má geta að svartamarkaðs-
verð kínverja var að þessu sinni
um kr. 5,00, eftir því sem næst
verður komizt). Unglingarnir
voru síðan fluttir á lögreglustöð-
ina og inn í Síðumúla, og for-
eldrum þeirra tilkynnt um dvöl
þeirra þar. Voru þeir ýmist sótt-
ir eða þeim ekið heim.
Eftir þetta var allt með kyrr-
um kjÖrum í miðbænum, nema
hvað nokkrar bifreiðar tóku að
aka um bæinn og var kastað kín-
verjum og stærri sprengjum út
um glugga þeirra til beggja
handa. Lögreglan náði að stöðva
eina bifreið, og fannst í henni
allmikið af kínverjum. Ólæti
þessi áttu sér stað á tímabilinu
8,30—11 um kvöldið.
Margir brenndust
Þá sagði Erlingur að lögregl-
an hefði flutt 15 menn á slysa-
varðstofuna, sem höfðu brennt
sig og meitt á sprengjum. Einn
drengur slasaðist alvarlega, er
hann var að fikta við kínverja,
ásamt fleiri drengjum, og kín-
verji sprakk í auga hans. Gekkst
Framh. á bls. 23
lega, sem renna skulu til þess
að koma á fót klak- og eldis-
stöð fyrir lax og silung á
vatnasvæðinu. Þá býðst félag
ið til þess að Iáta gera laxa-
stiga í fossinn Faxa í Tungu-
fljóti. Verði stiginn byggður
á kostnað félagsins en á móti
komi endurgjaldslaus veiði í
Tungufljóti og þverám þess
næstu 10 árin.
Ráðgert er að á vatnasvæði
Ölfusár og Hvítár verði alls
70 laxastengur og 40 silunga-
stengur, og munu þá alls opa
ast 110 stengur fyrir Reyk-
víkinga, og mun það vafalaust
verða mörgum fagnaðarefni,
þar sem erfitt er nú farið að
verða að komast í veiði í ná-
grenni borgarinnar. Taki
bændur tilboði Staiigaveiði-
félagsins mun það án efa
marka þáttaskil í öllu, er lýt-
ur að laxveiði á umræddu
vatnasvæði, enda yrðu þá
öll net í Ölfusá og Hvítá upp
tekin, en jafnan hefur stað-
ið nokkur styrr um netaveið-
ina í ánum, svo sem kunn-
- Framh. á bls. 20. .