Morgunblaðið - 07.01.1964, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 7. jan. ’ 1964
MÚRC U N BLA ÐIÐ
17
Við áramót
úr Rauðasandshreppi
ÁRAMÓX. Árið 1963 er að líða,
það lætur eítir sig minningar
meðal fólksins, slæmar eða góð-
ar, eftir atvikum eins og öll önn-
ur ár. Minningar sem berst með
tímans straumi frá fjöldanum
út í hringyðu lífsins og gleym-
ast þar, en eru þó jafn ferskar,
sárar eða ljúfar þeim sem næst
standa atburðunum, þótt árin
líði.
Á síðasta hluta þess, gerðust
þó þeir atburðir sem vara leng-
ur í hugum fjöldans en yfir-
Jeitt gerist um atlburði, þótt
voveiflegir séu.
Fall Kennedys forseta fyrir
thendi morðingja, virðist
Ihafa snert hjarta hvers einasta
manns, og mynd þjóðhöfðingj-
ans mikla geycnist í hugoxm
fólksins.
Gosið við Vestmannaeyjar,
livað sem segja má um tíguleiik
þeirra hamfara, þá hafa þær
Iþó sína svörtu hlið, sem snýr
að landsfólkinu öllu. Hvað, ef
gos þetta hefði lokað höfninni í
Vestmannaeyjum? Hvar verður
næsta gos? Hvað er hægt að gera
til öryggis? Slíkar spurningar og
snargar fleiri hljóta að leita á
Guðrún
Pálmadóttir
F. 5. júlí 1892, d. 21. nóv. 1963
Guðrún var fædd að Breiða-
bóli í Skálavík ytri.
Foreldrar hennar voru Pálmi
Bjarnason bóndi og Kristín Frið
bertsdóttir frá Vatnadal í Súg-
andafirði.
Friðbert afi Guðrúnar orðlagð
ur gáfumaður. Foreldrar Guð-
rúnar fluttu til Bolungarvikur
vorið 1911.
Til Bolungarvíkur fluttist árið
1912 sunnan úr Garði Sveinn
Halldórsson síðar skólastjóri, um
nær 30 ára skeið.
Þau Guðrún og Sveinn opin-
beruðu trúlofun sína 1913, og
giftust árið eftir, og má því segja
oð þau hafi verið samvistum
í samfelld 50 ár.
Þau hjónin Guðrún og Sveinn
bjuggu hjá Pálma og Kristín
þar til Pálmi lést árið 1921. Ár-
ið 1943 fluttust þau Guðrún og
Sveinn suður í Garð og stundaði
Sveinn þar kennslu. Loks fluttu
þau í Kópavog og hafa átt þar
heimili síðan.
Þau hjónin eignuðust 5 börn,
þar af dó eitt þeirra í æsku 8
ára drengur.
Guðrún átti við langvarandi
heilsuleysi að stríða, og andaðist
©ð heimili sínu. Mér er ljúft að
minnast Guðrúnar og margs að
minnast eftir nær 60 ára kynn-
ingu. Við vorum saman í skóla,
og var Guðrún þar efst, enda
ekki langt að sækja gáfurnar í
Friðbert afa sinn.
Að lokum þakka ég þeim hjón
um fyrir mér auðsýnda vinsemd
um langan aldur. Sveini Hall-
dórssyni og börnum hans votta
ég mína dýpstu samúð.
Torfi H. Halldórsson
hugi fólksins, um þessar mund-
ir jafnvel meðan það dáist að
eldsúlu Vestureyjar, og eins
eftir að bvort tveggja kann að
vera horfið.
Tíðarfar. Vor og sumar var
með kaldara móti, gróður kom
seint, og grasspretta léleg. Um
ieitir gerði norðan hríðarveður,
og urðu nokkrir fjárskaðar,
fram af því, svo og haustið nokk-
uð kalt ,og framan af vetri. En
yfir desember hefir verið ein-
muna tíð, og auð jörð, svo að
varla sér snjó á fjöllum uppi hér
á útkjál'kunum, sem ekki hefir
hent það ég man, um þetta leyti
árs.
Búskapur. Fóðurbirgðir munu
hér allgóðar að dómi forðagæzlu-
manna þó ekki aflögufært, ef á
heildina er litið.
Afurðir af sauðfé og kúm eru
yfirleitt góðar, og sums staðar
ágætar til dæmis um 20 kg.
kjöts eftir fóðraða á.
Við nokkuð leiðréttan mis-
mun á verði sauðfjárafurða og
rnjóllkur, benda strax líkur til,
að menn snúi sér meira að sauð-
fiárrækt þar sem hún. er hag-
kvæm, og getur orðið til þess að
jarðir haldist frekar í byggð.
Allmikið hefir verið unnið að
þurrkun lands á árinu, og smá-
vegis að öðrum ræktunarfram-
kvæmdum.
Tvær eyðijarðir seldust á ár-
inu, Lamibavatn efra var keypt
af bóndanum á Lambavatni
neðra, Tryggva Eyjólfssyni,
Vatnsdalur var keyptur af Páli
Guðfinnssyni húsameistara á
Patreksfirði. f landi Vatnsdals
er gnægð byggingarefnis, nokkur
aðstaða til fiskiræktar, eða æðar-
varps, og sæmileg aðstaða til
búrekstrar, eftir því sem hér
gerist.
Byggingar. Alltaf er verið að
byggja. Breiðuvíkurkirkja er nú
fullgjörð, nema hvað eftir er að
ganga frá raflögn, og lofthitunar-
ofni. Það stóð til að hún væri
vígð á síðast liðnu sumri, en
varð ekki af. Það er rangt, sem
segir í Þióðviljanum 24/11 að
hún sé búin að biða vígslu full-
búin í 2 ár, og leiðréttist það
hér með.
Hjónin í N-Tungu, Anna Haf-
liðadóttir og Árni Helgason,
fluttu með sína fjölskvldu í nýtt
'biús fvrir jólin, er það stórt og
myndarlegt hús. vel unnið, bvggt
af Gunnari Össurarsyni. Valur
Thoroddsen í Kvfgindisdal er að
byggja yfir 200 fjár (bragga-
bygging). Agnar Sigurbjörnsson
byggði stóra hlöðu á árinu og
setti í hana súgþurrkun, en það
eru þau hjálpartæki í búskann-
um, sem allir bændur óska eftir,
og verða að fá, með einhverjum
hætti. Þórir Stefánsson á Hval-
skeri jók einnig mikið hlöðu-
rými fyrir þurrhey o? votlhey,
Þannig smá þokast þetta fram
ný hús koma í stað hinna gömlu,
og nytjalandið verður stærra og
betra, sem á að gefa betri af-
komu, ef rétt er á haldið.
Skóla og félagsmál. Dauft
hefir verið yfir félagslífi á þessu
ári, ber þar sitthvað til, aðstæð-
ur fólks heima fyrir, samgöngu-
erfiðleikar og eitt og annað.
Búnaðarfélagið Örlygur. bauð út
í bændaför norður í Djúp. Var
sú för fjölmenn, fróðleg og
skemmtileg, enda Djúpmenn
góðir heim að sækja, var Þorska-
fjarðarheiði farin, um Reykja-
nes út i Ögur, og það út sem veg-
ur náði. Var þá skammt út í
Vígur, en það nægði ekki, því
'þótt Eggert bílstjóri okkar, færi
um allt á landi, það er vegur
kallaðist, og rúmlega það, þá
neitaði hann þó með öllu að
reyna sjóleiðina. Við sendum
Djúpmönnum og Eggerti kærar
kveðjur.
f ráði er að byggja heimavist
fyrir börn við félagsheimili
okkar, en í því hefir verið kennt
undanfarið og börnum komið
íyrir á heimilum, en hvenær
sem er getur tekið fyrir þann
möguleika. Svo við vonum að
fá tilskilin leyfi og aðstoð hins
opinbera það fljótasta, svo við
getum hafið byggingu næsta
vor.
Vistheimilið Breiðuvík. Þaðan
er allt gott að frétta. Erfiðleik-
ar voru á að fá nægjanlegt starfs
íólk. Forstjóranum, Hallgrími
Sveinssyni, datt þá í hug að gera
þá tilraun yfir veturinn, að láta
drengina vinna ölll störf við hús-
hald nema þjónustubrögð. Hann
lét því það starfsfólk fara, sem
fyrir var, nema bústjórann,
Njörð Jónsson, ungan einhleypan
i Reykví/king. He-fir þetta gengið
I mjög vel, drengirnir ánægðir og
I mæta vel því trausti, sem þeim
er sýnt.
Húsnæði það sem fyrir er, er
nú komið í mjög gott horf, og
vel umgengið, en meira húsnæði
vantar, einkum þó fyrir starfs-
fólk, ef það á að fást til að
vera þar til framibúðar.
En sem fyrr, hafa fjölda fyrir-
tækja og einstafclinga munað
efti-r vistdrengj-um um jólin og
sent þeim gjafir. T. d. kom frá
einum aðila 10 pör af vönduðum
skíðurn með öllum tilheyrandi
útbúnaði. Varnarliðið sendi Þyril
vængju í hlaðið með gjafir. For-
stjórinn, Hallgrímur Sveinsson,
biður fyrir innilegar kveðjur og
þabkir til innlen-dra og erlendra,
sem 'hafa átt þátt í að gera jól-
in gleðileg í Breiðuvík, þó sér-
staklega til Varnarliðisins á
Keflavíkurflugveli, Soroptimist
systranna og Lionsklúbbanna
Baldurs og Njarðar.
Á annan í jólum kom margt
fólk í heimsókn að Breiðuvík.
Gengu drengirnir þar um beina
með mesta myndarskap. Vist-
drengirnir eru nú 15 á aldrinum
10 til 14 ára.
Prestlaust. Séra Grímur Gríms
son og frú hans, Guðrún S. Jóns-
dottir munu fara héðan upp úr
áramótun-um, þar sem séra Grím-
ur Grímsson hefir fengið prest-
kall í Reykjavík. Hreppsbúar
óska þessum ágætu prestshjón-
um gæfu og gengis á komandi
árum í hinu nýja prestskalli, og
þakka liðnu árin. Sauðlauksdal-
ur verður þá eitt af eyðibýlun-
um eftir áramótin og staðurinn
prestlaus, en vonandi verður svo
ekki til lengdar.
Lokaorð. Ekki er annað sjáan-
legt en afkoma fólks sé hér all-
góð, og fólki líði vel. Börnum
fjöl'gar hér í sveitinni og voru
fimm skírð nú um jólin. Börnin
eru frækorn sem við gefum fram
tiðinni, án þeirra engin framtíð.
Stöndum því vörð um gróðurreit
þeirra, heimili og skóla, hlúum
að svo ekki kali.
Gleðilegt nýtt ár.
Látrum 29/12 1963
Þórður Jónsson.
Kristinn Ag. Sigurðsson
í DAG er til moldar borinn
Kristinn Ágús.t Sigurðsson,
Hringbraut 74. Hann andaðist
snögglega á nýjársdag og varð
sjúkdómur er þjáði hann síðustu
árin, honum að aldurtila.
Hann var fædd-ur 20. ágúst
1898 í Stykkishólmi. Foreld-rar
hans voru Sigurður Hannesson
og Kristín Guðmundsdóttir, hin
mesta fríðleikskona, en hún
anda-ðist viku eftir að hún hafði
fsett soninn.
Kristinn ólst upp hjá fóstur-
foreldrum, sem einnig höfðu
a-Iið móður hans upp, þeim Guð-
m-un-di bónda Magnússyni og
Matthildi Hannesdóttur, Ijós-
móður, sem bjuggu fyrst að
Þingvöllum í Helgafellssveit og
síðar í Stykkishól-mi. Bar Krist-
inn ætíð mi-kla virðingu og hlýj-
an hug til fóstu-rforeldra sinna
og vænt þótti honum um æsku-
stöðvarnar, sem hann heimsótti
tíðum.
Til sjós fór Kristinn 14 ára
gamall. Var hann nokkur ár á
skipu-m Eimskipafélags íslands,
en varð fyrir slæmu slysi um
Volkswogen Sendiferðubiir eið
E
árgerð 1961 með hliðarrúðum til sölu. — Upplýs-
ingar gefur Gunnlaugur Jóhannsson í síma 24000.
.JOHNSON & KAABER há
Árnesingafélagið í Reykjavík
Spiln og skemmtikvöld
verður haldið að Hótel Sögu föstudaginn 10. þ.m.
kl. 20,30 stundvíslega.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Árnesingafélagið.
Heildsölufyrirtœki
óskar eftir að taka að sér dreyfingu fyrir gott iðn-
fyrirtæki. — Tilboðum sé skilað í síðasta lagi föstu-
daginn 10. jan. n.k., merkt: „9816“.
STARFSFÓLK
Konur og karlmenn óskast til vinnu í
frystihús á Vestfjörðum.
Ókeypis húsnæði. Upplýsingar í Sjávar-
afurðadeild S.Í.S., sími 17080.
borð í Dettifoss Og- var eftir það
um tíma vökumaður í skipum
félagsins. Þá gerðist hann starfs-
maður Landsknans við innan-
hússlagnir og var hann mörgum
að góðu kunnur vegna þessa
starfs. Nú síðast starfaði hann í
Múlalundi því eigi vildi hann
leggja árar í bát þrátt fyrir
heilsuleysi.
Það var eigi meiningin með
þessum fátæklegu orðum að gera
skýrslu yfir öll þau margvís-
legu störf, sem Kristinn leysti
af hen-di um ævina, heldur
enda honu-m hlýjar kveðjur og
þakkir fyrir góðar samveru-
stundir, er hann nú hefir lagt
á djúpið mikla.
Kristinn Á. Sigurðsson var
maður þéttur á velli og þéttur
lund. Grandvarleiki, prúð-
mennska og stök reglusemi voru
honum meðfæddir eiginleikar.
Hann var mjög listhneigður og
hefir málag fallegar myndir.
Lesfcur góðra bók var honum
yndi, ekki sízt góðar ferðasögur.
Árið 1929 gekk hann að eiga
ágætis konu. Júlíönu Kristjáns-
dóttur, sem lifir mann sinn ásamt
íi-mm mannvænlegum börnum.
Þau eru: Eggert, kvæntur Ragn-
heiði Björnsdóttur, Kristín, gift
Guðla-ugi Þorvaldssyni, Esther,
gift Þóri Þorgeirssyni, Ólöf Erla,
gift Jóhannesi Óskarssyni, Krist-
i_nn Bernhard, kvæntur Hrönn
Árnadóttur. Þá er á lífi dóttir
Kristins, sem hann eignaðist
áður en hann kvæntist.
Öl'lum þessum fjölskyldum
ásamt öðrum ættingjum og vin-
um eru sendar hjartanlegar
samúðarkveðjur.
o. b. e.