Morgunblaðið - 03.03.1964, Side 2

Morgunblaðið - 03.03.1964, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 3. marz 1964 Reykiiagarbann í áætl- unarvögnum Steindórs Afstaða almennings til reykinga- banns breytt CM helgfina auglýsti Bifreiðastöð Steindórs að héðan í frá vaari hannað að reykja í áætlunarbil- um stöðvarinnar á Keflavikur- leiðinni og einnig leiðinni austur á Eyrarbakka og Stokkseyri. Mbl. bað Sigurð Steindórsson, Lík fundið í Reykjuvíkurhöfn AÐFARANÓTT sunnu- dags fannst lík Jóhannesar Ein- arssonar, sjómanns, Barónsstíg 25, í Reykjavíkurhöfn. Jóhann- esar hefur verið saknað frá 12. jan. s.l. Var þó í fyrstu talið, að hann hefði ráðið sig í skipsrúm án þess að gera aðstandendum aðvart, en þegar vikur liðu, án Framhald á síðu 27 framkvæmdasljóra, nm nánari skýringu á þessu banni. Sigurður sagði að áður fyrr hefði verið bannað að reykja í vögnunum, af því væri bæði sóða skapur og eldhætta og allra handa leiðindi, en það hefði mælzt svo illa fyrir að ekki hefðu verið tök á að halda því banni við. Nú væri enn meiri á- stæða til að banna reykingar, eftir upplýsingarnar um skað- semi þeirra, og þá gætu eigendur langferðabílanna ekki setið hjá með að banna þetta. Enda virt- ist afstaða almennings allt önn- ur gagnvart reykingum og þeir teldu að bann fengi nú betri und irtektir. — Nú ætlum við að halda þessu banni stíf'c fram, sagði Sig- urður. Þetta eru líka svo stuttar leiðir, taka aðeins um klukku- tíma, svo fólk ætti að þola það. Davíð Stefánsson látinn Framh. af bls. 1 viðkvæmur eins og nýgræð- ingur á vordegi. Nú er hann löngu orðinn hluti af ljóðlist íslendinga og mun svo verða, þó að nýir tímar og margvís- leg umrót eigi eftir að fara um íslenzka ljóðlist og íslenzkt þjóðlíf eins og plógur á frjóa jörð. Eitt af því sem gerði skáldið Davíð Stefánsson svo eftir- minnilegan í vitund íslend- inga var upplestur hans sjálfs á ljóðum sínum. Rödd hans var eins og töfrasproti. Hún lauk upp huldufólksklettum Ijóðlistar hans, svo að hverj- um þeim var ógleymanlegt, sem á hlýddu. Nú er þessi rödd þögnuð. En klettarnir sjálfir standa og bíða þeirra sem hafa þrá og löngun til að njóta þess ævintýris sem bæk- ur hans geyma. f þriðju ljóðabók Davíðs Stefánssonar, K v e ð j u r (1924), leggur skáldið úr höfn með þekktu kvæði sem heitir „Eg sigli í haust“. í þessu ljóði brýzt enn fram sú heita tilfinning, sem gerði Davíð að miklu skáldi, en þó hefir hann, vegna reynslu sinnar, meira taumhald á tilfinningum sín- um og skaphita. Hann er þroskaðri. Og nýr tónn, djúp- ur og fágaður, slæst í för með þeim fyrri, tóni ástar og æsku. Æ síðan setja þessir tveir þættir mark á Ijóð skáldsins; óstýrlát æska, gáski, ævintýr> annars vegar; tregi, spurning hins vegar. Formið tekur einnig breytingum, það verð- ur ákveðnara, enn persónu- legra fyrir skáldið en áður. fs- lendingar höfðu eignazt þjóð- skáld, frábrugðið öllum öðr- um, í senn með sterkan svip af arfi genginna kynslóða, sem hann unni frá því hann var drengur á hlaðinu í Fagra skógi og sá gamla bændur og slitnar konur koma í heim- sókn með byrðar þúsund ára á herðum, og ljóðrænan unað þeirrar æsku sem hann gerð- ist talsmaður fyrir á þeim ár- um, þegar íslenzka vorið lá eins og stirðnuð jörð undir klaka. En Davíð varð einn þessara Ijúfu vorboða, sem Jónas talaði um öld áður. Hinn merki mennta- og menningarfrömuður, Þórarinn Björnsson, skólameistari á Akureyri, hefur sagt að þráin sé hinn blái strengur í skáld- skap Davíðs. „Hann er, að ég ætla, skáld þrárinnar, öllum öðrum islenzkum skáldum fremur“, segir hann. Davíð seyddi fram þrá þeirrar kyn- slóðar, sem gerði hann að þjóðskáldi og talsmanni sín- um. 1 ljóðum hans birtist þrá vaknandi þjóðar eftir ævin- týrinu — handan hafsins. Mundi nokkur hafa túlkað tilfinningar hennar betur en Davíð Stefánsson? Ungur og eirðarlaus stefndi hann á hennar vegum til annarra landa, þroskaður snillingur veitti hann þessari sömu þrá i farveg menntaðs þroska og sígjöfullar reynslu. Hún opn- aði honum ævintýr nýs ís- lands. En eins og brimið hverf ur í svartan sand og ljósið brennur að stjaka, þannig hverfur þrá skáldsins einnig inn í myrkur dauða og tor- timingar. Haust fer að; haust Davíðs Stefánssonar fyrr en okkur varði. En það vor, sú birta og sá ylur sem hann gaf þjóð sinni, lifir áfram með henni i ótöldum ljóðum; þar munum við ávallt finna hann, skáld stórhuga kynslóðar á ís- landi, skáld vors og trúar á guð og land. Þar munum við finna hann þrátt fyrir þá stað- reynd sem ein er óhagganleg og verður ekki breytt og hann hefur sjálfur lýst svofelldum orðum: „Kvæði mín eru kveðjur. Brimið brotnar við naust. Eg kom að sunnan í sumar og sigli i haust“. — ★ — Davíð Stefánsson var af- kastamikill rithöfundur. Hann orti margar ljóðabækur, skrif- aði leikrit, þar með „Gullna hliðið", sem víðfrægt er orðið, bæði hér og erlendis, reit fjöl- margar ritgerðir og kom safn þeirra út fyrir síðustu jól og loks skrifaði hann skáldsögu i tveimur bindum, Sólon ís- landus. Ritverk hans, auk rit- gerðasafnsins, eru þessi: Svartar fjaðrir (1919), kvæði (1922), Kveðjur (1924), Munk arnir á Möðruvöllum (1925), Ný kvæði (1929), Kvæðasafn I—n (1930), f byggðum (1933), Að norðan (1936), Sólon Islandus I—n (1940), Gullna hliðið (1941), Kvæða- safn I—m (1943), Vopn guð- anna (1944), Ný kvæðabók (1947), Heildarútgáfa (1952), Ávarp Fjallkonunnar (1954), Landið gleymda (1956), Ljóð frá liðnu sumri (1956), Tvær greinar (1959), f dögun (1960). ■Þ Togarinn Wislok liggur nú á þurru á Krosssandi á fjörunni og hal lar út ir.iti briminu. (Ljósm. Otto Eyfjörð) Pólski togarinn farinn að láta si j PÓL.SKI togarinn Wislok liggur nú á þurru a Krosssandi ag Björgum h.f. hefur um helgina unnið að því að festa hann með strengjum í gamalt flak sem þarna er. Fréttamaður blaðsins á Hvols- Velli fór á strandstað á sunnudag, tók myndir og leitaði frétta hjá Kristni Guðbrandssyni, forstjóra Björgunar. Kristinn telur vonlaust að draga skipið út nema með eigin vélarafli, en leiðslur í vél eru farnar að láta sig, því þær eru úr potti og stáli, en ekki kopar, sem gefur eftir eins og í ísl. skipunum. Eins er komin svart- olía um allt vélarrúmið. Mjög gott veður hefur verið á strand- staðnum síðan skipið fór upp, en ef gerir verulegt brim er tal- ið að togarinn liðist í sundur, því böndin eru svo miklu strjálli en á islenzku togurunum. Skipstjórinn er enn fyrir aust- an ásamt vélstjóra. En fram- kvæmdastjóri Skipafélagsins er væntanlegur í dag. Verður þá tekin ákvörðun um hvað gert verður. Skipbrotsmennirnir eru enn í i taka þá er á ieið frá Nýfundna- Reykjavík, því togarinn sem á að I landi. Kristinn Guðbrandsson í Björgu n er að reyna að dæla úr skipinu. Ný mjólkurvinnslustöð reisf á Akureyri í sumar IMýr vegur lagður ofan við þéttbýli bæjarins AKUREYRI 2. marz. — Kaup- félag Eyfirðinga hefur í hyggju að reisa nýja og fulkomna mjólk urvinnslustöð á túninu ofan við búfjárræktarstöðina að Lundi við Akureyri, á næstunni. Málið er enn á athugunarstigi, en það er vilii stjómar KEA að fram- kvæmdir hefjist nú í sumar, ef aðstæður leyfa. Fréttamaður Mbl. átti í kvöld tal við Jakob Frímannsson fram kvæmdastjóra KEA, og Jónas KrLstjánssOn, mjólkursaimlagsstj., sem gáfu eftirfarandi upplýsing- ar: Núverandi mjólkurvinnslustöð í Grófargili var reist fyrir 25 árum og síðan hefur mjólkur- magn, sem þar er tekið til vinnslu sexfaldast. 1963 var það rúmlega 17 millj. lítra og hafði aukizt um tæp 8% frá 1962. Ár- leg aukning hefur verið 5—8% eftir árferði, en likurf benda til að aukningin fari vaxandi á næstu árum. Lengi hefur því ver ið Ijóst að núverandi húsa- og vélakositur verði fljótlega ófull- nægjandi og er raunar þegar svo komið. Stendur á túni Lundar. Fyrir mörgum árum var farið að svipast um eftir lóð fyrir nýja vinnslustöð og kom þá helzt til greina tveggja ha. lóð á Glerár- eyrum, en sá hængúr var á, að Glerá fellur um hana miðja. — Hins vegar hefur Akureyrarbær lengi vellt fyrir sér að breyta far vegi Glerár, en nú er ljóst orðið að engin tök verða á því um sinn vegna mikils kostnaðar við verkið. Þurfti því enn að leita að nýjum og hentugum stað. Komu ýmsir til greina, suðúr við Gróðrarstöð RFN, norður við Lóngbrú og við Lund. Ýmsir ann markar fylgdu öllum þessum stöðum, en þó var Lundtúnið tal ið ákjósanlegast. Nú er ákve að mjólkurstöðin nýja verði þar og hefur bæjarstjórn Akureyrar þegar tryggt Mjólkursamlaginu loforð fyrir lóð þar. Nýr vegur verður lagður frá Lónsbú, yfir Glerá á nýrri brú, nokkru neðan við núverandi brú við Rangárvelli, suður í gegnum túnið í Lundi og áfram suður fyrir ofan þéttbýlis á Akureyri og gkal tengjast Eyjafjarðarbrrit gengt flugvellinum. Eftir þess- um vegi fara mijólkurflutningar úr sveitunum fram, þegar fram í sækir. Núverandi mjólikursam- lagssvæði KEA nær um sveitir Eyjafjarðar norður í Svarfaðar- dal og Svalbarðsströnd, Höfða- hverfi og Fnjóskadal. Skipulagsstjóri og vegamála-. stjóri munu væntanlegir norður á næstunni til að ákveða hið nýja vegarstæði. Þangað til er ekiki hægt að staðsetja húsið nákvæm lega né teikna það. Sænskir arkitektar, sem teikn- að hafa mjólkurstöðvar víða um theim, höfðu gert þrjá frumdrætti að mjólkurstöð á Gleráreyrum, en nú verður að vinna það verk aftur frá rótum, þar sem þeir eiga ekki lengur við breyttar að stæður. Þurrmjólkurgerð reist fyrst. Ráðgert er að reisa stöðvar- húsið í tveimur áföngum. í fyrri áfanga verður búsnæði fyrir þurrmjólikurgerð, sem tekin verð ur upp í stað núverandi kasein- framleiðslu. En vinnsla nýmjólk- ur, smjör- og ostagerð verður á- fram í núverandi húsnæðj í 3-4 ár enn. Síðar verður svo hafizt handa um síðari áfanga fram- kvæmdanna. Heildarkostnaður við nýju mjólkurstöðina mun skipta tug- um milljóna og verður stærsta átak KEA á næstu árum — Sv. P. Stanislov Knor leikur í kvöld TÉKKNESKI píanóleikarinn Stanislav Knor kom til Reykja- víkur í gærkvöldi. Hann kemur hingað á vegum Tónlistarfélags- ins og ætlar að halda tónleika fyrir styrktarfélaga þess í kvöld og annað kvöld í Austurbæjar- bíói. Á efnisskránni eru: Sónata 1 f-moll op. 2 nr. 1 eftir Beethoven, fimm prelúdíur eftir Debussy, tveir tékkneskir dansar eftir Martinu og „Myndir á sýningu" eftir Mússorgský,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.