Morgunblaðið - 03.03.1964, Blaðsíða 27
Þriðjudagur 3. tnarz 1964
MORGUNBLAÐIÐ
27
LJtnesjamenn
Thorarensen á
eftir Jón
kvikmynd?
EDDA film áformar að kvik-
mynda fyrsta hluta sijgunnar Út-
nesjamenn eftir Jón Thoraren-
sen, en Guðlaugur Rósinkranz
hefur gert kvikmyndahandritið.
Hefur félagið fengið tilboð frá
Ckvikmyndafélaginu Kinocentral-
en í Stokkhólmi um samkonar
samvinnu og var milli Nordisk
film og Edda film um 79 af
stöðinni. Var tilboðið lagt fram
á aðalfundi Edda film á laugar-
dag, en ákvörðun verður tekin
á öðrum fundi eftir viku. Á með
an verður athugað hvort félagið
telur sér fjárhagslega mögulegt
að ráðast í þetta í sumar. En ef
úr verður fer kvikmyndatakan
fram í júlí og ágúst.
Útnesjamenn er ættarsaga og
fjallar fyrsti þátturinn, Rismál
um Jón Þórólfsson og Margréti
konu hans. Þetta er spennandi
ástarsaga, sem byrjar suður með
sjó, færist síðan norður í Skaga-
fjörð og síðasti hlutinn gerist í
Höfnunum. í henni gerast vof-
veiflegir atburðir og sjómennska
Póll konungur
oivarlegn
veikur
Aþrenu 2. marz (AP).
FRÁ því var skýrt í dag, að
PáH Grikkjakonungur hefði
fengið blóðtappa í vinstra lung-
að. Á sunnudaginn hafði verið
skýrt frá þvi, að æð hefði stífl-
azt í hægra fæti konungs.
Fregnir hermdu, að margir
læknar væru við sjúkrabeð kon- !
ungs og væri lionum gefið lyf til
þess að draga ur storknun blóðs-
ins.
kemur mikið við sögu. Þar kem-
ur fyrir brimlending, bátar-far-
ast og fólk og er efnið drama-
tískt. í samtali við Mbl. í gær,
sagði Guðlaugur Rósinkranz að
eftir að ljóst var að engin not-
hæf handrit bærust í handrita-
samkeppni Edda film, fóru með-
stjórnendur hans fram á að hann
reyndi að skrifa handrit til kvik-
myndatöku, hugsaði hann þá til
Skálholts, en samningar tókust
þó ekki um kvikmyndaréttinn á
sögunni og félagið sá sér ekki
fært að byrja á að greiða háar
upphæðir fyrir réttinn. Áður
hafði verið talað um Útnesja-
menn sem gott efni og valdi Guð
laugur það og vann að handrit-
inu í sumar.
Hugmyndin er að gera kvik-
myndina á sama grundvelli og 79
af stöðinni. Handritið var þýtt
á tvö tungumál og sent kvik-
myndafélögum. Tilboð kom frá
Kinocentralen í Stokkhólmi, en
einn af framkvæmdastjórum
þess á söluumboðsfyrirtæki það
er sá um sölu á 79 af stöðinni i
Stokkhólmi. Leizt honum val á
handritið og kvaðst vilja fara að
selja myndina strax. Áætlaði fé-
lagið að kostnaður yrði 3%
millj. ísl. króna. Erlendur kostn-
— Lik finnst
Framh. af bls. 2
þess að hann léti frá sér heyra,
var lýst eftir honum í lok janú-
ar. Um miðjan febrúar fékk lög-
reglan í hendur úlpu Jóhannesar
með úri í vasanum. Hafði úlpan
fundizt við höfnina. — Um mið-
næturskeið á laugardagskvödd
sáu menn lík á floti við höfnina
og gerðu aðvart. í ljós kom að
hér var um að ræða lík Jóhann-
esar. — Jóhannes Einarsson var
fæddur 12. júlí 1930.
aður sem félagið mundi lána þar
til tekjur færu að koma inn af
filmunni yrði rúmlega iVz millj-
ón, þar í innifalin tæki og tækni
menn. En Edda film yrði að
ábyrgjast greiðslu og sjá um
innlenda kostnaðinn, sem yrði
2 millj. kr. Slíkur samningur
gekk vel um 79 af stöðinni, þar
sem tekjur komu inn svo fljótt
að hægt var að borga fyrr en
samið var um. Ekki kvaðst Guð-
laugur vita hvort kostnaður
kynni að fara fram úr áætlun.
Þegar 79 af stöðinni var kvik-
mynduð varð hann 5% hærri en
gert var ráð fyrir.
Korlokór Reykja-
víkur opnar
félagsheimili
KARLAKÓR Reykjavíkur opn-
aði á laugardaginn félagsheimili
á Freyjugötu 14, fyrir starfsemi
kórsins, söngæfingar o. fl. Uppi
er setustofan, skrifstofa og eld-
hús, en niðri eru æfingarsalur og
sæti fyrir 60-—70 manns. Verkinu
hefur verið stjórnað af fagmönn-
um innan kórsins og hafa kór-
meðlimir unnið mikið við það.
Félagsheimilið var vígt við há-
tíðlega athöfn. Kórinn söng lagið
Island eftir Sigurð Þórðarson
undir stjórn höfundar. Formaður
kórsins, Ragnar Ingólfsson, flutti
ræðu og lýsti húsnæðinu. Geir
Hallgrímsson flutti ræðu og þakk
aði kórnum hve hann hefði hald-
ið á lofti nafni Reykjavíkur. Þá
talaði menntamálaráðherra, dr.
Gylfi Þ. Gíslason, sem opnaði fé-
lagsheimilið, og gaf kórnum að
lokum tóninn í Félagssöngnum.
Flugmólastjórnir Norðurlanda
ræða mól Loftleiða í Reykjavík
— Fiskimála-
ráðstefnan
Framh. af bls. 1
Danir viðvíkjandi Grænlandi cg
Færeyjum.
Sanuiingurinn um fiskveiði-
lögsöguna mun liggja frammi til
undirskriftar í London frá 9.
marz til 10. apríl.
í dag undirrituðu fulltrúar á
fiskimálaráðstefnunni fundar-
gerð hennar. Ráðstefnan hefur,
sem kunnugt er verið lokuð, en
á morgun verður skýrt nákvæm-
lega frá störfum hennar og Pet-
er Thomas, aðstoðarutanríkisráð
herra Breta, mun gera grein fyr
ir þeim í Neðri málstofu brezka
þingsins. Fréttaritari NTB seg-
ir, að samkomulag hafi náðst um
tillögur varðandi fiskverzlun,
verndun stofna og eftirlit með
miðum.
Talið er að Breta.r færi út fisk
veiðilögsögu sína samkvæmt hin
tim nýja samnirngi í júní n.k.,
en þá rennur Norðursjávarsamn
jngurinn út.
I sambandi við undantekning-
ernar, sem Danir gerðu viðvíkj-
andi Færeyjum og Grænlandi, er
óttazt, að brezkir togaraeigend-
ur knýi brezk yfirvöld til þess
að takmarka löndunarleyfi Fær-
eyinga í Bretlandi, þegtar undan-
þágan, sem Bretar fengu til þess
að veiða innan 12 mílna við
eyjarnar rennur út.
Fiskimálaráðstefnan hófst í
London 3. des., 6. des. var henni
frestað til 8. janúar og 17. janú-
ar til 26. febrúar. Sæti á ráðstefn
unni hafa átt Efnahagsbandalags
ríkin sex,,Bretland, Vestur-Þýzka
land, Ítalía, Holland, Belgía og
Luxemburg, Fríverzlunarbanda-
lagsríkin sjö, Bretland, Svíþjóð,
Noregur, Danmörk, Sviss, Aust-
urríki og Portúgal. Auk þessara
ríkja sátu ráðstefnuna íslending-
ai-, írar og Spánverjar.
ANNAÐ KVÖLD eru væntanleg-
ir til Reykjaví'kur Henrik Win-
berg flugmálastjóri Svíþjóðar og
fulltrúar flugmálastjóra Dan-
merkur og Noregs, Stenver og
Lotlhe og sennilega tveir fulltrúar
frá SAS til framihaldsfundar við
Agnar Kofoed Hansen flugmála-
stjóra. Hefst fundur þeirra á
miðvikudag og stendur í 2-3 daga
og er þetta framlhald af viðræð-
um í Stokkihólmi í sl. mánuði,
þar sem rætt var um fluggjalda-
lækkun Loftleiða. Síðan hafa far
— Minnast Daviðs
Frh. af bls. 28
Bæjarstjórn Akureyrar gengst
fyrir minningarathöfn um skáld-
ið í Akureyrarkirkju síðdegis
næstkomandi laugardag. — Að
henni lokinni verður kistan flutt
heim að Fagraskógi, þar sem hún
mun standa uppi um helgina. Út-
förin fer fram á mánudaginn
kemur og hefst með húskveðju í
Fagraskógi kl. 14. Jarðsett verð-
ur að Möðruvöllum í Hörgárdal.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
óskað eftir að mega kosta útför-
ina.
Skáldsins minnzt
í Háskóla íslands
í Reykjavík var Davíðs Stef-
ánssonar skálds einnig víða
minnzt. T.d. blakti fáni í hálfa
stöng á Stjórnarráðshúsinu.
Og í háskólanum byrjaði dr.
Steingrímur J. Þorsteinsson, pró-
fessor, bókmenntatíma sinn í gær
með því að minnast Davíðs Stef-
ánssonar og lesa úr ljóðum hans.
Að því búnu risu allir stúdentar
úr sætum í virðingarskyni við
minningu skáldsins.
ið fram viðræður milli fuilltrúa
SAS og Loftleiða.
Skv upplýsingum frá Agnari Ko
foed Hansen, verður nú rseddur
árangurinn af þeim umræðum og
haldið áfram umræðum flugmála
stjóranna frá Stokkihólmi.
— SUS-þing
Frh. af bls. 28
næðismálanefndar og var fram-
sögumaður hennar Bjarni Bein-
teinsson, sveitarstjóri. Síðasta
nefndarálitið var álit efnahags-
málanefndar og var framsögu-
maður Guðmundur H. Garðars-
son, viðskiptafræðingur.
Að loknum umræðum, sem
voru mjög miiklar, var gengið til
stjórnarkjörs. Framsögumaður
kjörnefndar var Þór Vilhjálms-
son. Kjörnefnd lagði til að for-
maður yrði kjörinn Árni G.
Finnsson, hdl. Hafnarfirði. Var
það einróma samþykkt. Tillögur
kjörnefndar um aðra stjórnar-
menn voru enn fremur samiþykkt
ar en þær voru:
Birgir ísl. Gunnarsson, borgar-
fulltrúi, Reykjavík; Bjarni Bein-
teinsson, sveitarstjóri, Seltjarnar
nesi; Hörður Sigurgestsson, stud.
jur. Rvík.; Jón Erlcndsson stud.
jur., Seyðisfirði; Jón E. Ragnars
son, stud. jur., Reykjavík Krist
inn Ragnarsson, húsgagnasmiður,
Reykjavik; Kristján Guðlaugsson
útsölustjóri, Keflavík; Lárus Jóns
son, bæjargjaldkeri, ólafsfirði;
Ragnar Kjartansson, framkv.stj.
Reykjavik; Sigfús Johnsen kenn
ari, Vestmannaeyjum; Þórir Ein
arsson, skrifstofustj., Reykjavík.
Á sunnudagskvöldið var hald-
inn kvöldfagnaður þingfulltrúa
og þar sleit hinn nýkjörni formað
ur hófinu með ávarpL
Ekki er komið svo langt að ®
farið sé að hugsa fyrir leikurum
í hlutverkin, en myndin verður
tekin á íslandi og í júlí eða
ágúst, ef ekki verður ákveðið
að bíða með þetta. Verður reynt
að gera myndina eins raunsanna
og hægt er, þannig að hún verði
þjóðlífslýsing á þeim tíma sem
hún fjallar um.
— Flugslys
Framh. af bls. 1.
Þegar sambandið við flugvél-
ina rofnaði var mjög hvasst og
erfið skilyrði til leitar og það var
ekki fyrr en í dag, sem hægt
var að hefja skipulagða leit með
flugvélum.
Fyrst var talið, að flugvélin
hefði hrapað í Tahoe-vatn, en
það er aðeins nokkra km. frá
Squaw Valley, þar sem Olympíu
leikarnir voru haldnir veturinn
1960.
Farþegar með vélinni voru 81,
en 4 manna áhöfn. Flestir farlþeg
anna komu í vélina í San Jose og
Salinas í Kaliforníu. Voru þeir
á leið til Nevada til þess að
skem-mta sér á sunnudagskvöld-
ið. Flugfélagið „Paradise Air-
lines“ sem átti flugvélina, hafði
samstarf um fólksflutninga við
spilavíti eitt í Nevada og greiddi
spilavítið meir en helming flug-
farsins frá San Jose og Salinas
til Nevada og til baka. En báðar
leiðir kosta um 700 kr. Spilavíti
eru bönnuð í Kaliforníu og þess
vegna ferðast íbúar ríkisins mik
ið yfir landamærin til Nevada,
sérstaklega um helgar.
• Ditnm þoka
Innsbruck, 2. marz
(NTB:AP)
Á laugardaginn létu 83
menn lífið, er flugvél flugfé-
lagsins „The International
Eagle Airways“ rakst á fjalls-
hlíð í austurrísku Ölpunum,
skammt frá Innsbruck. Flug-
vélin, sem var af gerðinni
Bristol-Britannia, var á leið
frá London til Innsbruck með
hóp skemmtiferðamanna. —*■
Ætluðu þeir að dveljast hálf-
an mánuð í skíðaþorpi
skammt frá Innsbruck. Þegar
flugvélin nálgaðist Innsbruck
á laugardaginn var dimm
þoka yfir borginni og flug-
manninum var ráðlagt að
lenda ekki. Kvaðst hann ætla
að sveima yfir flugvellinum
nokkra stund í von um að þok
unni létti. Nokkrum mínút-
um síðar slitnaði sambandið
við fugvélina.
Umfangsmikil leit er þegar haf
in, en hún var mjög erfið vegna
þoku og snjókomu umhverfis
Innsibrucik. Borgin er umlukt
fjöllum. Flaik vélarinnar fannst
ekki fyrr en á sunnudag. Var
það flugmaður bandarískrar her
flugvélar, sem kom auga á það.
Lýsir hann aðkomunni á eftirfar
andi hátt: „Ég flaug eins lágt og
ég gat yfir flaikið. Partar úr flug
vélinni voru dreifðir um stórt
svæði og ekkert var heillegt
nema stélið, en eldur hafði leik-
ið um það og það var kolsvart“.
Flugvélin rakst á fjalls'hlíð í
2,700 km. hæð. Fjallsihlíðin var
ísilögð og rann vélin nokkurn
spöl niður eftir henni. Þeear
bandaríski flugmaðurinn hafðj
skýrt frá fundi sínum, héldu
björgunarmenn á vettvang, en
allir vom látnir, sem með vél-
inni voru, 75 skemmtiferðamenn
á leið á 9kíði og 8 manna áhötfn.
Þegar síðast frétti9t af björg-
unarstarfinu í dag höfðu fjórtán
lík verið flutt til byggða. Einn
björgunarmannanna sagði í dag,
að langan tíma myndi taka að
finna öll líkin.
Embættismaður borgarstjórnar
innar í Innsbruck, sem taka mun
þátt í rannsókn slyssins, sagðist
í gær telja sennilegast, að hæðar
mælir flugvélarinnar hefði bilað.
Hefði hún flogið 500 metrum
' hæna, hefði slysið ekki orðið.
Á sprungnum
börðum heilan
dag
MAÐUR nokkur úr Hafnar-
firði keypti sér bíl í síðustu
viku, sem ekki er reyndar í
frásögur færandi. Ekki var þó
búið að færa bílinn yfir á
nafn nýja eigandans, þegar
hann ók þessu nýja farartæki
austur í sveitir. Hann var í
Biskupstungunum í 1—2 daga.
Á föstudag var orðið
sprungið á báðu afturhjólum,
en ekki tafði það ferðina. Bíl-
stjórinn henti slöngunum úr
og setti barðana tóma á hjólin
og ók þannig um.
Nú hafði fyrri eigandi haft
einhverjar spurnir af þessum
akstri og líkaði ekki, þar sem
bíllinn var enn á hans nafni.
Hann bað því lögregluna á
Selfossi um að binda enda á
ökuferðina. Þegar lögreglan
stöðvaði bílinn hjá Seyðishól-
um í Grímsnesi, datt annar
barðinn af. — Bílstjórinn var
allsgáður og hinn ró1 cgasti yf-
ir slíku óhappi.
tr
— Armann
Framihald af bls. 26.
þeir allir um það brautryðjenda
starf sem Ármann hefur unnið,
um nytsemi íþrótta og hvöttu til
aukinnar líkamsræktar. Voru
ræður þeirra skörulega fluttar
og vel fagnað.
Þá sungu Fóstbræður nokkur
lög og hljcmsveit Svavars Gests
skemmti, hvorttveggja til al-
menmrar ánægju enda létt yfir
Svavari og Co að vanda.
Afmælishóf.
Eftir sýningarnar bauð Árroann
til kaffidrykkju í Hagaskólá. Vir
þar fjöldi manna og veitt af
rausn. Ræður voru margar flutt
ar og fóru afmælishátíðaihöldin
í einiu og öllu vel fram.
— Körfuknattleikur
Framhald af bls. 26.
Bezt hjá Skallagrími var Sig-
rún (nr. 5) og skoraði hún 8
stig. Leikurinn við ÍR var harð-
ur og góð skemmtun fyrir áhorf-
endur, þótt ekki væri fagur
körfuknattleikur leikinn. Hark-
an var mikil og vel barizt á báða
bóga. Staðan í hálfleik 11 : 10
fyrir UMFS og í síðari hálfleik
var ýmist jafnt eða annað liðið
hafði eitt eða tvö stig yfir. —
Þegar bjallan glumdi stóðu leik-
ar 23 stig gegn 22 Skallagrímur
hafði unnið fyrsta titilinn á
þessu íslandsmóti. Sigrún átti
allan heiðurinn af þessum sigri
en hún skoraði 17 áf 23 stigum
liðsins. Liðskonur hennar sýndu
þó mikinn baráttuvilja og voru
þær vel að sigrinum komnar.
KFR — Skarphéðinn.
Leikurinn var algjör einstefna
í fyrri hálfleik og var staðan
32—8 í hléi. í seinni hálfleik
skipti KFR öllum beztu mönn-
unum útaf og þeim minna
reyndu tækifæri. Færðist þá
heldur líf í austanmenn og skor-
uðu þeir 12 stig gegn 3 hjá KFR.
Var þá stórlöxunum aftur 9kipt
inn og héldu þeir horfinu og
gott betur út leikinn. Lokastað-
an var 55 gegn 22. Langbestur
hjá Skarphéðni var Magnús Sig-
urðsson með 21 stig. Er þar á
ferðinni maður með hæfileika til
að ná landsliðsstyrkleika og
er sjálfsagt að gefa honum tæki-
færi til æfinga með úrvalslið-
um. Hjá KFR voru bestir þeir
Ólafur Thorlacius og Marinó
Sveinsson með 16 og 18 stig.
Einnig áttu Sigurður Helgason
og Matthías Matthíasson góðan
leik í vörn og við fráköst. Má
9egja að Skarphéðinsmenn hefðu
aldrei tækifæri til að skjóta nær
körfu en vítateigslina.