Morgunblaðið - 10.05.1964, Page 1
32 sulur og Lesbók
9 farast
í fellibyl
Michigan, 9. maí (AP)
MIKILL fellibylur gekk yfir
suðausturhluta Michicgan-
ríkis í Bandaríkjunum í dag.
Að minnsta kosti 9 menn létu
lífið af völdum bylsins og
eignatjón nemur milljónum
dollara.
Margir særðust á svæðinu,
sem varð fyrir fellibylnum, og
björgunarmenn óttast áð fleiri
hafi farizt en vitað er um.
George Romney, ríkisstjóri,
flaug til bæjarins Chesterfield,
en hann varð verst úti. Sagði
ríkisstjórinn ljóst, að tjónið af
völdum bylsins í þessum bæ ein-
um næmi miiljónum. Vitað var
um 82 menn, sem lagðir höfðu
verið í sjúkrahús vegna meisðlá
og 200, sem fengu hjúkrun,. en
gátu síðan farið heim til sín, þar
sem meiðslin voru smávægileg.
Stjórnarskipti
í Suður-Koreu
• Seoul, 9. maí (NTB)
í D A G baðst forsætisráð-
herra Suður-Kóreu, Sun
Choi, lausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt. Sagði Choi
ástæðuna vera þá, að hann
vildi gefa Park Cung Hee for-
seta frjálsar hendur til þess
að skipta um rnenn í ráð-
herraembættunum.
Park samþykkti lausnarbeiðni
Choi og skömmu síðar fól hann
Chung Kwon, sem verið hafði
utanríkisráðherra í stjórn Choi,
að mynda nýja stjórn. Hinn nýi
forsætisráðherra er 48 ára. Hann
hefur verið sendiherra lands sins
í Ankara, París og Washington.
Hánn tók við embætti utanríkis-
ráðherra í desember sl.
Nasser, forseti Arabíska Sambandslýðveldisins, fagnar Krúsjeff, forsætisráðherra Sovétríkjanna, við komu hans til Alexandríu
i gær. (Simamynd AP).
Egyptar fagna Krúsieff
Alexandríu, 9. maí (AP-NTB)
NIKITA Krúsjeff, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, kom í
morgun til Arabíska Sam-
bandslýðveldisins, í 16 daga
opinbéra heimsókn. Hann
steig á land í Alexandríu þar
sem Nasser, forseti Egypta-
lands, tók á múti honum, en
þaðan óku þeir til Kairó. Þetta
er í fyrsta skipti, sem Krúsjeff
heimsækir Afríkuríki.
Fréttamenn segja, að engum
erlendum gesti hafi verið fagn
að eins innilega og ákaft í
Arabiska Sambandslýðveldinu
og Krúsjeff. Bera þeir saman
móttökurnar, sem Chou En-
lai, forsætisráðherra Kina,
fékk er hann kom til landsins
fyrir nokkrum mánuðum og
segja, að þær hafi verið form-
legar og kurteislegar, en ekk-
ert hafi borið á fögnuðinum og
hjartahlýjunni, sem hvar-
vetna streymdi á móti Krús-
jeff í dag .
Öryggisviðbúnaður hefur
aldrei verið meiri í Arabíska
Sambandslýðveldinu en við
komu forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna. Þó áttu öryggisverð-
ir og lögregla fullt í fangi með
að halda vegfarendum í skefj-
um, er þeir vildu ryðjast að
bifreið Krúsjeffs og reyna að
taka í hönd hans.
Það var varaforseti Ara-
bíska Sambandslýðveldisins,
sem fyrstur bauð Krúsjeff vel-
kominn, en hann hélt til móts
við snekkju sovézka forsætis-
ráðherrans „Armeníu" út á
ytri höfnina í Alexandríu. I
fylgdarliði Krúsjeffs eru m.a.
Nína kona hans og Andrei
Gromyko, utanríkisráðherra.
Bátur flutti Krúsjeff til hafn-
ar og á hafnarbakkanum beið
Nasser forseti og ráðherrar
stjórnar hans. Krúsjeff sagði
í stuttu ávarpi, sem hann hélt
við höfnina, að Sovétríkin
bæru mikla virðingu fyrir
Arabíska Sambandslýðveldinu
og baráttu landsmanna fyrir
friði og frelsi, en þeim hefði
tekizt að reka nýlendukúgara
og heimsvaldasinna af hönd-
um sér. Krúsjeff minnti á, að
í dag fögnuðu Sovétríkin því.
að nítján ár væru liðin frá
sigrinum yfir Þýzkalandi.
Nasser bauð Krúsjeff vel-
kominn með ræðu og sagði
m.a., að Krúsjeff va^ri hug-
rakkur athafnamaður, sem
allt sitt líf hefði barizt fyrir
friði í heiminum. íbúar Ara-
bíska Sambandslýðveldisins
litu á Krúsjeff sem góðan
bróður, er hefði reynzt vel á
alvörutímum. Nasser lagði á-
herzlu á, að afstaða Sovétrikj-
anna til alþjóðlegra deilumála
hefði vakið traust Arabíska
Sambandslýðveldisins.
Meðal þeirra staða, sem
Krúsjeff heimsækir í
Egyptalandi, er Aswan-stifk
an og verður hann viðstadd-
Framhald á bls. 31.
„Guð minn góður. Ég
hef verið skotinn,"
hrópaði flugmaður vélarinnar, sem fórst
við San Francisco — Skammbyssa
fannst í vélinni
Washington 9. maí (AP-
NTB)
„Guð minn góður! Ég hef
verið skotinn.“ Þessi orð flug
manns Fairchild F 27 flug-
vélarinnar, sem fórst skammt
frá San Francisco s.l. fimmtu
dag, heyrðust, er segulbands-
spóla, sem kastazt hafði frá
fiakinu var leikin. Sem kunn-
wgt er hrapaði flugvélin til
jarðar með þeim afleiðingum
að 41 menn létu lífið.
Bandaríska sambandslögregl-
an (FBI) hefur skýrt frá því að
í i'iakinu hafi fundizt skamm-
byssa og rannsókn leitt í ljós
að úr henni hafi verið skotið sex
Bkolium skömimu áður en flug-
vélin hrapaði. Lögreglan veit
hver farþega vélarinnar átti
skammbyssuna, og að sami mað-
ur hafi líftryggt sig fyrir 50 þús.
dollara (um 2 millj. ísl.
kr), skömrnu áður en hann lagði
af stað í flugferðina.
Fullvíst er talið að maður
þessi haifi skotið flugmanninn,
en grunur leikur á að hann hafi
skotið alla áhöfnina, þrjá menn.
Rannsókn þessa atriðis er erfið
því að líkin, sem fundust í flaki
flugvélarinnar eru mjög illa leik
in og enn hefur aðeins fundizt
far eftir kúlu í einu þeirra.
Komið hefur fram sú tilgáta,
að ódæðisverkið í flugvélinni sé
liður í umfangsmiklum trygg-
ingasvikum. Þetta þykir ólíklegt,
en unnið er að rannsóknum.
Aðrar tilgótur um ástæðuna til
verknaðarins hafa ekki komið
iram.
I Ytri Njarðvik er í byggingu ný fiskiskipahöfn, sem á að rúma 40—50 fiskiskip og létta á
Keflavíkurhöfninni. Þessi mynd er frá hafnarfranikvæmdunum. Fremst sést steyptur botn í
eitt kerið og aftar er annað komið í skriðmótin. Milli veggja kersins sést yfir Njarðvíkina
til Innri Njarðvíkur. Sjá gretn og fleiri myndir á bls. 8. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)