Morgunblaðið - 10.05.1964, Síða 5
Sunnudagur Tö. maí 1964
MOnCUNBLAÐIÐ
5
Simdursagað höfuð
Tivoli í Kaupmannahöfn opn
aði hinn 1. mai. Þá.rigndi þar í
borg. Það er föst siðvenja hjá
veðurguðunum. Þetta er 122.
starfsárið. 78 daga, sem opnað
hefur verið á, hefur rignt.
Hér að ofan sjáið þið mynd af
nýjustu gestafreistingunni í
Tivoli! „Sagið höfuðið af!“
Á einum stað í Tivoli er seld-
nr minjagripur af litlu hafmeynni
Hún kostar þar kr. 4.50 danskar.
Maðurinn, sem hefur fundið
npp á þessu fyrirtæki segir:
„Sagaöu bara hausinn af henni
Legðu svo höfuðið í plastpoka.
Seldu svo minjagripinn án hötuðs
kr. 4.40 danskar og taktu svo kr.
2.00 danskar í viðbót fyrir haus-
inn.“
Auðvitað er enginn vafi á, að
þetta gefur góðan gróða, og upp-
findingamaðurinn verður alit í
einu alvarlegur og bætir vú\:
„Litla hafmeyjan er listaverk,
gott eða ekki gott — en allt að
einu listaverk. Það er limlest,
vegna þess, að menn taka af því
höfuðið og lögregluyfirvóldin láta
morðdeildina rannsaka málið.
En kvikmyud, sem stjórnað er
af Ingimar Bergmann eða t.d.
myndin um Fanny Hill, eru líka
listaverk. Kvikmyndaeftirlitio
klippir þessar myndir að rneira
eða minna leyti, en morðdeildin
er ekki kölluð í því tilfetii “
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 í dag. Véliii er
væntanleg aftur til Rvíkur kl. 22:20 í
kvöld. Gullfaxi fer til Glasgow og kaup
Gegnum kýraugað
Er það ekki furðulegt, hvað
illa er hugsað um bílastæði
hér í borginni?
Maður hitti Mbl. að máli í
gær og kvartaði mikið yfir
bílastæðinu við Melavöllinn.
Þarna fór fram bæjakeppni
milli Akraness og Reykjavík-
ur. Mikill fjöldi bíla safnað-
ist saman á grasbílastæðið,
sem í sjálfu sér er ágætt, en
þegar átti að alta út af stæð-
inu, byrjuðu vandræðin.
Þarna var engin lögregla og
aðeins eitt hlið til að aka út
af stæðinu. Skapaðist af þessu
hreint öngþveiti. Svona nokk-
uð hlýtur að vera hægt að
laga.
mannahafnar kl. 08:00 1 fyrramálið.
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 á þriðjudaginn.
Innanlandsflug: I dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils-
staða, ísafjarðar og Vestmannaeyja.
Á morgun er áætlað að fljúga til Akur
eyrar (3 ferðir), Isafjarðar, Fagur-
hólsmýrar, Vestmannaeyja(2 ferðir),
Hornafjarðar, Kópaskers, Pórshafnar
og Egilsstaða.
Hafskip h.f.: Laxá er 1 Rvík. Rangá
fór frá Gautaborg 9. 5. áleiðis til ís-
lands. Selá er væntanleg til Rotterdam
£ dag Hadvig Sonne fór frá Gdansk 4.
5. áleiðis til íslands.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. —
Katla er á leið til Cagliari frá Canada.
Askja er á leið til íslands frá Cagliari.
H.f. Jöklar: Drangjökull fór frá
Eskifirði 7. þm til Leningrad, Hels-
ingfors og Hamborgar. Langjökull er
í Camden, fer paðan til Rvíkur. Vatna-
jökull fór í gær frá Vestmannaeyjum
til Hornafjarðar.
GAMALT og con
Fagrar heyrði ég raddiruar
við Niflungaheim.
Ég gat ekki sofið
fyrir söngunum þeim.
Spakmœli dagsins
Það er ekki unnt að skapa mik-
ið Iistaverk án einlægrar mann-
ástar. — Leonardo da Vinci
VÍ8UKORIM
MOLAR
Ýfð sár síðla gróa.
Ilöfg tár hjörtu fróa.
Ljós bjart lífgar, nærir.
Húm svart helju færir.
Jóhanncs Örn Jónsson á
Steðja.
SKOZKU sérfræðingarnir munu halda áfram Gæsarannsóknum
sínum í sumar.
Læknar fjarverandi
Dr. Friðrik Einarsson verður íjar-
verandi til 7. júní.
Grímur Magnúsr.on: Fjarverandi
aprílmánuð. Staðgengill: Björn
Önundarson Klapparstíg 25 sími 11228
Gunnlaugur Snædal verður fjar-
verandi óákveðinn tíma.
Fyþór Gunnarsson fjarverandi
óákveðið. Staðgenglar: Björn JÞ.
þórðarson, Guðm. Eyjólfsson, Erling-
ur Þorsteinsson, Stefán Olafsson og
Vriktor Gestsson.
Jósep Ólafsson læknir í Hafnarfirði
verður fjarverandi til 13. maí. Stað-
gengill: Héraðslæknirinn.
Jón Þorsteinsson verður fjarver-
andi frá 20. apríl til 1. júlí.
PáJl Sigurðsson eldri fjarverandi
um óákveðinn tíma. Staðg. Hulda
Sveinsson.
Ófeigur J. Ófeigsson fjarverandi til
19. júní. Staðgengill: Ragnar Arin-
bjarnar.
Páll Sigurðsson yngri fjarverandi til
16. maí. Staðgengill: Stefán Guðnason.
Ólafur Geirsson verður fjarverandi
frá 5. til 14. maí.
samamánaðar
Öfugmœlavísa
Farðu’ og gaktu fótalaus,
fleygðu steini’ án handa,
talaðu maður tungulaus,
taktu úr dauðum anda.
DAV8Ð
Davíð Stefánsson
KVEÐJA
t
Dagur var kominn að kveldi,
kyrrð yfir norðurslóð.
Loftsalir, Ijóssins eldi
lofgjarðar fluttu óð.
Á þessum drottinsdegi
Davíð var lagður í mold.
Nú gengur hann guðs á vegi
glaður og laus við hold.
Arfurinn gullni geymist.
Guð blessi þann dýrðlega sjóð.
Sú andans gersemi’ ei gleymist,
né glatast hjá vdrri þjóð,
meðan á íslenzkri tungu
orðin hafa sín hljóð.
Inn í þjóðarsál sungu
sig Davíðs fögru ljóð.
Víð var hans andans útsýn,
íslenzkt hans lundarfar.
Með töfrum seyddu oss til sín
svörtu fjaðrirnar.
í Fagraskógi fæddur,
þar fann hann jafan skjól.
Skáldið gáfunni gæddur
guðlegri náðarsól
Hann unni lista lindum.
List, sem er tign og há.
í fögrum málsins myndum
má hans afrek sjá.
Hann sannleiks sverðið dáði.
Til sigurs þvi jafnan brá.
1 akurinn samúð sáiði
söknuði og hjartans þrá.
Hann kvaddi er vor um vetur
vermdi og lítgaði jörð.
Máttugt er lífsins letur,
er lætur það freðinn svörð,
lifna af dauðans dvala
og daginn sigra nótt.
Nú gráta dísir dala,
daggartár falla hljótt.
Ó. H. H.
Keflavík
Ný sending af drengja- og
herrafötum. Rúskins- og
leðudherraivesti.
Fons, Keflavík.
Keflavík
Gallabuxur, allar stærðir.
Ný tegund teLpnabuxur.
Fons, Keflavík.
Gott píanó óskast
Ottó Ryel — Sími 19354.
Bíl-Dieselvél
Til sölu er 6 cyl. Dieselvél
með gírkassa og öllu til-
heyrandi. Uppl. í síma
33129 milli kl. 12 —1 á
dagiinn.
Morgunkjólar og svuntur
til sölu, allar stærðir. —
Miklabraut 15, uppi.
Atvinna
Tvær stúlkur óskast í bið-
skýli í Hafnarfirði. — Þrí-
skiptar vaktir. Símd 51889.
Fallegur skápur
í írönskum stíl, innlagður,
til að geyma silfur og postú
lín, til sölu. Verð kr. 14,500.
Sími 13087.
ATHU GIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
..... > é
ANYTlME ANYWHERE ANY WÉATHEB
Mikið úrval af
ANGLOMAC
Vor- og
sumorkápum
SVALAN
Austurstræti 22.
(inn Nýja bíó
ganginn). — •
Sími 11340.
Lítið einbýlishús
I IVflosfellssveit
til sölu, húsið er 65 ferm. 3ja herb. íbúð og stend-
ur á fallegum stað við Varmá í Reykjahverfi.
Húsinu fylgir um 2000 ferm. eignarland og frí hita
veita í eitt ár. — Upplýsingar í síma 35658 í dag
frá kl. 10—2,30.
2. ferð af 16 hópferðum í sumar.
MALL0RCA
31. maí — 17 dagar
Vinsælasti ferða-
mannastaður álfunn-
ar ásamt dvöl í Kaup-
mannahöfn og
London.
Þetta er yndislegasti
tími ársins á töfra-
eyjunni Mallorca.
IÖND OC LEIÐIR
Aðalstræti 8.
Símar 20760 og 20800.