Morgunblaðið - 16.05.1964, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLADIÐ
Laugadagur 16. maí 1964
— Frjálsi Noregur
'Framhald á bls. 11
Inkje kneggja soten min,
Inkje göyddi min hundi,
inkje gol dei ottefuglan."
Norðmenn eiga mörg og fögur
þjóðkvæði, upprunninn á þeim
tíma er tónar þjóðvísunnar
hljómuðu um öll Noröurlönd og
víðar. Mörg eiga þessi ljóð ræt-
irr sínar að rekja til annarra
þjóða, en sum eru ainorsk, svo
sem hinar gullfögru riddaravís-
ur, er fjalla um Bendik og Aaro
lilja. Enn syngja ungar meyjar
í norskum dölum ástarjátningu
Bendiks:
„Eg tikji so vent um ditt
gule haar,
som epli dei dryp paa kvisti.
Sæl er den som deg maa faa,
Gud bære den som sko missti.“
En Draumkvæðið er nokkuð
einstakl fyrirbæri í bókmennt-
uim Norðmanna á þessum fornu
H. Ibsen
tímum. Svo virðist sem fslending
ar hafi tekið með sér alla þá gáfu
sem til skáldskapar þarf er þeir
fóru af landinu. Og er sú hefnd
ail gífurleg á hinum gamla
,,beatle“ Norðmanna Haraldi Hár
fagra. Raunverulega er um mjög
fá skáld að ræða í Noregi, aðra
en íslendinga, frá því landnáms-
menn íslands fóru þaðan og þar
til Petter Dass (1647-1708) kem-
ur til sögunnar, en hann fæddist
fjórum árum eftir að fyrsta
prentsmiðjan var sett á stofn í
Noregi — (113 árum eftir að
prentverk Jóns Arasonar kom til
Hóla). Petter Dass var fæddur
í Norður-Noregi og var faðir
hans ættaður frá Skotlandi. Á
bók hans „Nordlands trompet"
hefjast raunverulega bókmenntir
Noregs. Hitt er svo hverjum
manni ljóst að eftir þennan tíma
vaxa og risa bókmenntir landsins
þar til þær á okkar öld hafa náð
svo mikilli frægð og hlotið slíka
aðdáun alheims að vart getur
annað land talizt Jafnoki.
Að vísu er nú svo komið að flest
stórskáld Noregs geymast í gröf.
Herman Wildervey, Olav Dunn,
Olav Bull, Knut Hamsun, Sigrid
Undset, Sigurd Hoel — þau eru
öll horfin. Auðvitað er eftir
margt skrifandi manna og
kvenna — en nokkru lægra er
risið á hinum bókmenntalega
Noregi en áður var. Enn kunna
þó Norðmenn að skrifa skáldsög
ur og ljóð, og tæknilega eru þeir
mjög langt frammi.
« V*®
að a uglýsing
í útbreiddasta blaðinu
borgar sig bezt.
Gunnar Bjarnason hiýtur
Menningarsjóðsverðiaun
Þjóðleikhussins
S.L. sunnudag, að lokinni sýn-
ingu á Támngaást, afhenti þjóð-
leikhússtjóri verðlaun úr Menn-
ingarsjóði Þjóðleikhússins. Gunn
ar Bjarnason, leiktjaldamálari,
hlaut þau að þessu sinni. Þetta
er í sjötta skiptið, sem verðlaun
eru veitt úr sjóðnum, en áður
hafa sex leikarar hlotið þessa
viðurkenningu. - Verðlaunin eru
veitt fyrir listræn störf og skal
þeim varið til utanfarar.
Menningarsjóður Þjóðleik-
hússins var stofnaður 20. apríl
1950 á vígsludegi leikhússins og
eru verðlaun veitt úr honum á
afmælisdegi Þjóðleikhússins.
Gunnar Bjarnason hefur starf
að í 10 ár hjá Þjóðleikhúsinu,
fyrst sem nemandi hjá Lárusi
Ingólfssyni í leiktjaldamálun.
Að loknu námi í Þjóðleikhúsintl
fór hann til Svíþjóðar og stund-
aði þar framhaldsnám í listgrem
sinni.
Fyrstu leiktjöldin, sem Gunn-
ar gerði fyrir Þjóðleikhúsið var
í leikritið Mann og konu árið
1956. Síðan hefur hann gert leik
tjöld fyrir margar sýningar þar
og er mjög' vaxandi í list sinni.
Á þessu leikári hefur hann mal-
að leiktjöld í eftirtalin leikrit:
Gísl, Læðurnar, Mjallhvít og er
nú að ljúka við tjöldin í Krafta-
verkið, en það leikrit verður
frumsýnt næsta haust.
Vérðlaunin eru að upphæð kr.
20 þús. Myndin er tekin þegar
þjóðleikhússtjóri Guðlaugur Rós
inkranz afhenti Gunnari verð-
laumn. ,
AUTOUTE
fRODUCTS 0F Cj5SirceJ M0T0R C0MPANT
AUTOUTE kraftkerti
í alla bíla
SNORRI G. GUBMUKDSSON
HVERFISGÖTU 50. — SÍMI 12242.
Húsbyggjendur
Iðnaðarmenn
Eftirtaldar vörur flytjum við út frá PÓLLANDI:
Söguð FURA og GRENI
Söguð EIK
„ALPEX“ spónaplötur
„ALPEX“ harðtex
„ALPEX“ trétex
„ALPEX“ hörplötur
„BIPAN“ spónk.gðar
spónaplötur
KROSSVIÐUR
GABOON-PLÖTUR
LIGNOFOL-PLÖTUR
EIKAR- og BEYKI PARKET
EIKAR-MOSAIK PARKET
EIKAR- og BEYKI GÓLFBORÐ
Cœðavara — Samkeppnisfœrt verð
Allar nánari upplýsingar veitir umboðsmaður vor:
r +
Ásbjörn Olafsson hf.
Grettisgötu 2. — Reykjavík.
ílQlKTJ3(Ö
D
Foreign Trade Enterprise.
Warszawa, Plac 3 Krzyzy 18, P.O. Box 101, Poland.
Telex 81221. — Símnefni: HAZAPAGED, WARSZAWA.