Morgunblaðið - 08.07.1964, Blaðsíða 12
12
Miðvikudagur 8. júlí 1964
MORGUNBLADIÐ
Útgefandi:
Framk væmdast j óri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Ú tbreiðslust jóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigxir.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði'innanlands.
5.00 eintakið.
FÆR KÚBA FRELSI?
(iiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiii
f| ALBERT Christian George
S Andrew Patrick David, prins
S af Wales, síðar Játvarður
S konungur áttundi, nú hertog-
2 inn af Windsor eyddi stjötugs
= afmæli sínu í ró og næði á
S heimili sínu í París, hinn 23.
I§ júní sL Vinir hans segja, að
= hann, maðurinn, sem hrærði
E fólkið í heiminum og hafði
H nærri skekið heilt heimsveldi
s af grunni með ástarævintýri
S sínu með hinni bandarísku
E Wallis Warfield Simpson, "lifi
= nú hamingjusömu lífi. Hann
H hefur nú dregið sig í hlé frá
S störfum, leikur golf og stund-
S ar garðyrkju af áhuga. Ef
= ekki væri nafnið og einskonar
= feimni vegna stöðu sinnar,
E mætti líkja honum við hvern
= annan Englending, sem hefur
= dregið sig í hlé.
M Það er ekki svo að skilja
H að hertoginn af Windsor sé að
s gerðarlaus. Frá æsku hefur
= hann ætíð verið starfsamur.
= Nú hefur hann umsjón með
WiáwlíiíM.f
Hertogahjónin af Windsor.
Rólegt sjötugsaffmæli
hertogans aff Windsor
eignum sínum, eins og aðiir
efnamenn og ráðgast við milli
göngumenn sína í viðskiptum.
Hann hefur skrifað þrjár bæk
ur og er sem stendur að vinna
að ævisögu eins forföður síns,
Georgs III.
Síðan hann sagði af sér
sem konungur hinn 11. des-
ember 1936 til að giftast kon-
unni, sem hann elskaði, hef-
ur hertoginn gætt þess vand-
lega, að blanda sér ekki í
nein mál, sem snerta Wind-
sor ættina. Þar af leiðandi
hefur hann ekkert að segja
um þann óróa, sem blöðin
hafa talað um í sambandi við
endurkomu hans til Englands
til að búa þar. Vinir hans
segja þó, að hann muni ekki
snúa til baka, nema konu hans
yrði leyft, að bera titilinn
„Her Royal Highness“, sem
í öðrum tilfellum hefur verið
veittur eiginkonum annarra
hertoga. Titilinn getur aðeins
drottningin veitt. En sá aðili,
þessu máli, er drottningarmóð
irin, Elísabet. Sumum finnst,
að hún hafi aldrei sætt sig við
einhverja raunverulega eða ó
raunverulega galla í fari hinn
ar fyrrverandi frú Simpson.
Hertogaynjan sér nú um hús
þeirra í borginni, nálægt Bois
de Boulogne og myllu, sem
breytt hefur verið í íbúðar-
hús í Chevreuse dalrium fyrir
utan París. Hefur hún séð um
innréttingu og skreytingu
beggja íbúðanna. Hertoga-
hjónin eru meðal vinsælustu~
gesta og gestgjafa í París.
Hún er há og grönn og glæsi-
leg og skemmtileg viðræðu.
Hertoginn, sjötugur er orð-
inn gráhærður. Andlit hans
er hrukkótt en sólbrúnt. Golf
og sífelld forvitni hans um
heiminn hafa haldið fjaður-
magninu í göngulagi hans.
Á hverjum jólum, þegar
annríkið er mest í London og
þokan þykkust, fer hertoginn
heim. Með harðkúluhatt á
höfði heimsækir hann klúbba
og verzlanir og gengur ef til
vill niður Constitution Hill
fram hjá sínu gamla heimili,
Buckingham höllinni, en við
slík tækifæri heldur hann sig
frá augliti fjöldans. Vinir
hans segja, að hann endur-
nýi þrótt sinn við snertingu
við fósturjörðina. Þar sem
hann gengur eftir götum
Lundúnaborgar þekkja hann
fæstir.
Síðan hann sagði af sér. hef
ur hann gert ýmislegt. í upp-
hafi heimsstyrjaldarinnar síð
ari var hann foringi í hernum.
Landsstjóri á Bahamaeyjun-
um í fimm ár og eftir það, þeg
ar engin vinna fékkst, rithöf
undur og mikill samkvæmis-
maður og nú maður, sern hef
ur dregið sig í hlé í ró og
næði.
Vinir hans segja, að vitund
in um það, að bróðir hans og
eftirmaður, Georg VI væri
„góður konungur“, hafi hjálp
að honum til þess að bera
byrðar lífsins.
sem getur haft úrslitavald í
I!Tiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiií3
Aðalfundur KEA:
Vörusalan 550 millj. kr.
egar Fidel Castro og fé-
lagar hans börðust gegn
ógnarstjórn Batista á Kúbu
fylgdu þeim árnaðaróskir
allra frjálsra manna um víða
veröld. Þeir sögðust ætla að
frelsa ættjörð sína og afneit-
uðu samneyti við kommún-
ista; þeir sögðu^t vera einlæg-
ir lýðræðissinnar. Brátt fór
þó svo að klíka sú, sem í
kringum Castro stóð, ruddi úr
vegi ættjarðarvinum og lýð-
ræðissinnum, sem við hlið
þeirra höfðu staðið, og fyrr
en varði bjó Kúba á ný við
ógnarstjórn engu betri en þá
fyrri.
Smám saman hafa fjötr-
arnir verið hertir og komið á
kommúnísku einræði á Kúbu.
Afleiðingin hefur orðið sú, að
efnahagskerfi landsins er í
rústum, þrátt fyrir gífurlega
efnahagsaðstoð frá kommún-
istaríkjum. Skortur er á brýn-
ustu nauðsynjum og ástandið
í efnahag landsins versnar
jafnt og þétt. Þetta er þó ekki
það versta. Hitt er alvarlegra,
að þjóðin hefur verið hneppt
í helfjötra skoðanakúgunar
og tugir þúsunda manna fang-
elsaðir.
Castro segir sjálfur, að um
15 þúsúnd pólitískir fangar
sitji nú í dyflissum á Kúbu.
Jafnvel þótt þessi tala væri
rétt, svarar það nokkurn veg-
inn til þess, að allir karlmenn
á starfsaldri í höfuðborg ís-
lands væru fangelsaðir fyrir
skoðanir sínar.
Það er þetta kerfi, sem
Magnús Kjartansson, ritstjóri
„Þjóðviljans“, hefur lofsung-
ið ár og dag. Hann hefur skrif
að bók um dýrðarríkið á
Kúbu, og hann dreymir um
þann dag, þegar hann og fé-
lagar hans í kommúnista-
flokknum hér á landi fái að-
stöðu til að „frelsa“ íslenzku
þjóðina á svipaðan hátt og
Castro.
Nýlega var hér í blaðinu
skýrt frá skoðunum systur
Fidels Castro, sem til
skamms tíma stóð við hlið
hans í baráttunni, en hefur
nú gert sér grein fyrir því, að
„eyjan er öll eitt allsherjar-
fangelsi, umgirt hafi“, eins og
hún kemst að orði. Þannig
snúast jafnvel nánustu ætt-
ingjar og samstarfsmenn ein-
ræðisherrans á Kúbu gegh
honum. Þess vegna er hann
líka tekinn að óttast um völd
sín. Og Morgunblaðið getur
frætt ritstjóra kommúnista-
blaðsins hér á landi á því, að
það eru engar líkur til, að
hann komi fram áformum sín
um um kommúnískt dýrðar-
ríki á íslandi, en hinsvegar
miklar og vaxandi líkur á
því, að kúbanska þjóðin
heimti frelsi sitt og kollvarpi
vini hans, Castro.
VÉLAKAUP
FLUG*
FÉLAGSINS
]\Tú er skammt stórra högga
1 ’ á milli hjá íslenzku flug-
félögunum. Loftleiðir hafa
fest kaup á tveimur glæsileg-
um flugvélum og Flugfélagið
hefur keypt vél til innan-
landsflugs og hyggst jafnvel
kaupa aðra.
Flugfélag íslands hefur við
miklar vinsældir rekið innan-
landsflug um langt skeið.
Vélakostur félagsins er hins-
vegar að ganga úr sér, og
þess vegna hefur verið ráðizt
í endurnýjun hans með kaup-
um glæsilegrar vélar til inn-
anlandsflugs.
Þessi nýja vél á að geta haf-
ið áætlunarflug, þegar sumar-
áætlun gengur í gildi næsta
vor og batna þá flugsam-
göngur innanlands að mikl-
um mun. Innanlandsflugið
hefur verið Flugfélagi ís-
lands nokkuð erfitt fjárhags-
lega, en með bættum véla-
kosti má búast við að rekstur-
inn batni og flugfélagið geti
stóreflzt á næstu árum.
NIÐ UM BRETA
F'ramsóknarforingjunum hef
1 ur sýnilega gramizt það,
að íslendingar hafa látið í
ljós, svo ekki verður um
deilt, vináttu í garð brezku
þjóðarinnar, þrátt fyrir erjur
fyrri ára. Er Tíminn nú á ný
tekinn til við að rægja Breta.
Þannig talar blaðið í .gær um
að „enska stjórnin hafi sýnt
íslandi yfirgang og óvirð-
ingu“, eins og orðrétt segir í
ritstjórnargrein og síðan bæt-
ir blaðið við :
„Vafalítið hefði framkoma
brezku stjórnarinnar verið
önnur, ef voldugra ríki en ís-
land hefði átt hlut að máli“.
Morgúnblaðið skal ekki
karpa við Tímann um þetta
efni. íslenzka þjóðin hefur
sjálf kveðið upp sinn dóm og
vinátta íslands og Bretlands
stendur traustum fótum, sem
betur fer.
SAFNAHÚS
ÁRNESSÝSLU
Á rnesingar hafa komið sér
^ upp safnahúsi á Selfossi,
AÐALFUNDUR Kaupfélags Ey-
firðinga var haldinn í Samkomu-
húsi Akureyrarbæjar dagana 1.
og 2. júní sl. Mættir voru 183
fulltrúar úr 22 deildum félagsins
auk stjórnar þess, kaupfélags-
stjpra og endurskoðenda ásamt
ýmsum starfsmönnum kaupfé-
félagsins og gestum. Fundarstjór
þar sem til húsa eru héraðs-
bókasafn sýslunnar, byggða-
safn héraðsins og málverka-
safn það, sem frú Bjarnveig
Bjarnadóttir gaf Árnessýslu,
en þar er um að ræða alls 41
málverk, flest eftir Ásgrím
Jónsson.
ar voru kjörnir Ólafur Magnús-
son, Akureyri og Stefán Hall-
dórsson, Hlöðum og fundarritar-
ar Rósberg G. Snædal, Akur-
eyri og Jónas Haíldórsson, Rif-
kelsstöðum.
í upphafi fundarins minntist
Brynjólfur Sveinsson, formaður
kaupfélagsins, Sigurðar Kristins-
Þetta framtak Árnesinga er
mjög ánægjulegt og er von-
andi að fleiri byggðarlög fylgi
í kjölfarið. íslenzk list á ekki
einungis að vera aðgengileg í
höfuðborginni, heldur sem
víðast um byggðir landsins.
sonar, fyrrv. framkvstj. SÍS, Ingi
mundar Árnasonar fulltrúa, Arn-
heiðar Skaptadóttur og Valdi-
mars Haraldssonar, er öll höfðu
látizt frá síðaata aðalfundi og öll
gegnt mikilvægum störfum fyrir
Kaupfélag Eyfirðinga með trún-
aði og dugnaði.
Formaður flutti skýrslu stjórn
arinnar og greindi einkum frá
verklegum framkvæmdum á sL
ári. Kaupfélagsstjórinn, Jakob
Frímannsson, skýrði frá rekstri
félagsins og las reikninga þess
fyrir árið 1963. Heildarvörusala
félagsins í innlendum og erlend-
um vörum, þegar með eru tald-
ar útflutningsvörur, verksmiðju-
framleiðsla og sala þjónustufyr-
irtækja, hefur aukizt á árinu um
15—20% og mun nema alls um
550 milljónir króna. Tekjuaf-
gangur var um 4.5 millj. kr.
Jón Jónsson, kennari, og Sig-
urður O. Björnsson, forstjóri,
Framh. á bls. 23