Morgunblaðið - 08.07.1964, Síða 23

Morgunblaðið - 08.07.1964, Síða 23
Miðvikudagur 8. júlí 1964 MORCU NBLAÐIÐ 23 Búnaðarbankinn opn- ar útibú í Stykkishólmi Siðastliðinn miðvikudagr var opnað útibú Búnaðarbanka ís- lands í Stykkishólmi. Útibúið yfirtekur jafnframt starfsemi Sparisjóðs Stykkishólms. í tilefni þessa var haldið hóf s.l. laugardag í Stykkishólmi og þangað boðið ýmsum mönnum víðsvegar úr sýslunni og alls voru gestir 60—70 talsins. Frá bankans hálfu komu frá Reykjavík Stefán Hilmarsson bankastjóri, Guðmundur Hjartar- son bankaráö&maður og Trygigvi Pétursson fulltrúi. Þá komu og úr Dölum þeir Friðjón Þórðar- son bankaráðsmaður og Ásgeir Bjarnason varabankaráðsmaður. Friðjón Þórðarson stjórnaði hófinu, en aðalræður fluttu Stef- án Hilmarsson, fyrir hönd bank- ans, og séra Sigurður Ó. Lárus- son fyrir hönd sparisjóðsins. Auk þeirra tóku margir aðrir til máls. Menn vestur þar hyggja gott til samstarfs við hið nýja banka- útibú um leið og þeir þakka merkt og gott starf sparisjóðs- ins. Hóf þetta var í alla staði hið ánægjulegasta Bankastjóri hins nýja útibús er Ólafur Guðmundsson, fyrrv., sveitarstjóri og meðstarfsmaður hans Jóhann Rafnsson, sem um langt skeið hefir starfað við sparisjóðinn. Banikinn er í hinum gömlu húsakynnum sparisjóðsins, en hyggur á úrbætur í þessu efni. Höfrungur III. landaði stærsta síldarfarminum Raufarhöfn 7. júlí. SÍLDARVERKSMIÐJAN hér hef ir nú tekið á móti alls 162 þús- und málum til bræðslu. Hér á Raufarhöfn hefir nú verið saltað í 9:315 tunnur. Söltunarstöðin Óðinn er hæst með 2000 tunnur, þá Hafsilfur með 1800 og þriðja er Borgir með 1400 tunnur. Á sama tíma í fyrra hafði verksmiðjan tekið á móti 73 þús- und málum og söltun var þá um — Flugfélagið Framh. af bls. 24 inni DC 3 gat s.l. sunnudag flutt 30 farþega frá Rergen til Sörvaag. Um þetta segja flugyfirvöldin dönsku: — Það eru gerðar ná- kvæmlega sömu kröfur til þessa félags eins og til Fiugfélags ís- lands. Enn fremur segja þau að auk þessa, fljúgi danska flugfé- lagið Soanfly til Færeyja, og geti það náð flugtaki á hinum stutta velli í Færeyjum þar sem það noti fjögurra hreyfla vél en ekki tveggja hreyfla eins og DC 3 vél arnar séu. Kröfur þær, sem nú eru gerðar þýða að fjöldi farþega til Bergen og Kaupmannahafnar frá Færeyj um færist úr 20—22 í 15, en til Glasgow úr 23 í '16. Þessi far- þegafjöldi þýðir stórtap á ferð- unum. Flugfélag íslands á þegar pantanir í 20 fullsetnar flugferð- ir, segir enn fremur í fyrrgreind um skeytum. I tilefni þessara frétta sneri Morgunblaðið sér í gærkvöldi til taLsmanns F. í. varðandi Færeyja flug, Jóhanns Gíslasonar, og sagði hann að Flugfélagið gæti ekkert við fyrrgreindum kröfum sagt. Það yrði að fara eftir þeim reglum, sem Danir settu. Þeir hefðu frá upphafi gefið til kynna að eftir þeim yrði að fara. Hins vegar hefði Flugfélagið vonast til að þeir myndu fallast á að regl- ur þær, sem gilda á íslandi yrðu einnig látnar gilda í Færeyjum, en reglur um hámarksþunga flug véla er mismunandi í hinum ýmsu löndum. T.d. er hámarks- (þungi DC 3 12.700 kg. í Bret- landi, 12.500 kg. hér á íslandi, en ekki nema 12.200 kg. í Danmörku og svipaður i Noregi. Norðmenn hafa hins vegar fallizt á að ís- lenzku reglumar giltu hjá ?eim fyri.r íslenzkar flugvélar og hafa því heimilað flug til Bergen með fyrrgreindum hámarksþunga. — Flugvöllurinn í Færeyjum leyfir ekki fullan hámarkslþunga, en það breytir miklu hvort hann er færður til samræmis við.braut arlengd úr 12.500 kg. eða úr 12. 200 kg. eins og Danir gera kröfu td. Aðstæður á hverjum tíma ráða því svo að sjálfsögðu hver há- marksiþunginn er og fer það bæði eftir vindstöðu og hitastigi, auk brautarlengdar. Auðvitað orsakar þetta stór- tap fyrir Flugfélagið og um fram hald Færeyjaflugs er ekkert frek ar að segja á þessu stigi, sagði Jóhann að lokum. það bil að byrja á þessum tíma. í gær landaðr Höfrungur III. hér 2000 málum og er það mesti síldarafli, sem eitt skip hefir komið með hmgað til síldarverk smiðjunnar i einni ferð. Hér er nú geysimargt fólk, einkum kvenfólk og munu 10 konur á móti hverjum einum karlmanni á staðnum. Söltunar- stöðvarnar eiga kost á fleira starfsfólki, en þær geta notfært sér. — E.J. Hótaði lagskonu sinni kana Raufarhöfr. 7.' júlL ÞAÐ skeði hér aðfaranótt s.l. föstudag að ósætti kom kom upp milli 17 ára pilts og jafngamallar stúlku, sem hér höfðu tekið sér saman herbergi á leigu, en ekki eru opinberlega trúlofuð, þótt kærustupar teljist. Pilturinn mun ekki heill á geðsmununum og hefir verið á geðveikrahæli í 3 ár. Telpan mun einnig vangefin. Afbrýðiskast hafði gripið pilt- inn og hafði hann hótað stúlk- unni að drepa hana, en hún komst út um glugga og maður í næsta húsi gat hjálpað henni niður. Ekki meiddist stúlkan, en læknir gaf henni róandi lyf. Næsta.dag kom lögreglan í Húsa- vík og flutti manninn til Reykja- víkur, en lögregla Raufarhafnar var fjarstödd vegna ferða Philips prins um Mývatnssveit. Hér eru í sumar 3 lögregluiþjónar úr Reýkjavík. í landlegum er hér talsvert u.m hávaða og róstur og var svo síð- ustu nótt, en ekki þykja það frá- sagnarverðir atburðir svo algeng ir eru þeir. 14 farast í s Chamonix, 7. júlí (AP-NTB) í DAG létu 14 menn lífið, er snjó flóð féll á þá. í frönsku Ölpunum. Meðal þeirra var franski skíða- kappinn, Charies Bozon, heims- meistari i svigi 1962 og fjórir kennarar við skóla, sem útskrifar löggilta fjallaleiðsögumenn. Niu voru nemendur skólans. Slysið varð á fjallinu Agiuille Verte, sem er rúmlega 4,100 m. á hæð. — Aðalfundur KEA Framhald af bls. 12 voru endurkosnir í stjórn félags- ins til þriggja ára. í árslok 1963 voru félagsmenn KEA 5342. — Fastráðið starfsfólk um 430 manns. Launagreiðslur til fastra starfsmanna og laus- ráðinna námu alls um 60 millj Stofnsjóður félagsmanna var í árslok kr. 27.5 millj. en greiðslur úr sjóðnum á árinu urðu 595 þús. krónur. Peningafölsun í Dan- mörku fyrr og nú Skrifstofustjóri í dönskum banka athugar hvort seðill sé falskur með aðstoð kvarzljóss. <f ákveðið að reyna að falsa 10 krónu seðla. OF MIKIÐ KAMPAVÍN Þeir félagar komu sér sam- an um, að ljósprentarinn og steinprentarinn skyldu sjá um hina tæknilegu hlið málsins, en skraddarinn átti að koma peningunum í umferð. Þjóð- bankinn komst fljótlega að því, að falskir peningar væru í umferð. Þess vegna þorði skraddarinn ekki að skipta þeim í verzlunum. Honum hugkvæmdist að halda heldur dýrlegar kampavínsveizlur, og þegar sjón gestanna var farin að óskýrast, skipti hann á 10 krónu seðlum sínum og inni- haldinu úr veskjum gestanna. En það var kampavínið, sem felldi skraddarann á hans eigin bragði. Hann hafði verið algjör bindindismaður áður en hann varð ríkur, en nú steig hinn göfugi drykkur honum svo til höfuðs, að hann fór að strá um sig 10 krónu seðlum, sem enn voru ekki orðnir þurr ir, og þar með fór fyrirtækið út um þúfur. Þetta var síðasta peninga- fölsun að einhverju marki í Danmörku áður en 100 krónu seðlarnir komu fram í dags- ljósið um daginn. Hagskýrslur Interpol sýna, að það boigar sig ekki að leggja fyrir sig peningafölsun nú á dögum. í langflestum til- fellum hafa þau mál verið upplýst, og það oft vegna furðulegustu hluta. í Man- chester var t.d. einn falsari gripinn vegna þess að hann hafði í einhverju sjálfsánægju kasti skrifað undir pundsseðl- ana með viðurnefni sínu — Mikki Mús, og í Ósló notaði ungur maður fornafn kærustu sinnar, Sonju, í stað nafns bankastjóra Þjóðbankans. EINS og getið hefur verið um hér í blaðinu hefur fundizt talsvert magn af fölsuðum 100 krónu seðlum dönskum í Danmörku og Svíþjóð. Nýj- ustu fréttir herma, að orðið hafi vart við þessa fölsku seðia víðar. Interpol, er tekur að sér öll mál sem þetta, hef- ur aðvarað lögregluna í 72 löndum, að hafa sérstakt eftir- lit með öllum dönskum 100 krónu seðlum, sem fara í gegn um bankana. Aðeins hefur orðið vart við þessa fölsku seðla í fjórum löndum, þ.e.a.s. í Ðanmörku, Svíþjóð og nú síðast í Vestur- Þýzkaiandi og Mallorca. — í þremur fyrstnefndu löndunum hefur ekkert fundizt, sem gæti bent til uppruna þessara seðla, en á Mallorca eru að- eins einn karlmaður og ein kona, sem hafa komið seðlun- um í umferð. Par þetta hefur enn ekki fundizt, en lýsingar eru til af þeim. Peningafölsun hefur þekkzt allan þann tíma, sem peningar hafa verið slegnir, það er frá því löngu fyrir Krists burð. Fyrsta peningafölsun í Dan- mörku og jafnframt alvarleg- asta mál sinnar tegundar þar í landi átti sér stað árið 1777 á Jótlandi. Svo mikið magn falskra peningaseðla var sett í umferð, að fólk missti allt á- lit á seðlum og heimtaði, að fá að greiða með gullpening- um. Málið leystist fyrir tilvilj- un og myntfalsararnir þrír fengu harðan dóm, einn þeirra dauðarefsingu, en hinir tveir lífstíðarfangelsi. Þessi dómur varð til þess, að enginn þorði að falsa pen- inga í Danmörku í mörg ár. Það var ekki fyrr en árið 1802, að mikilvægt peningafölsunar- mál reis upp þar. Nú liðu nokkur ár, þar sem peninga- falsarar stunduðu iðju sína í smáum og stórum stfl. Mót- leikur ríkissfjórnarinnar gegn þessu skaðræðislega „einstakl- ingsframtaki'* var að draga peningamálin saman og stofna ríkisbanka, hinn núverandi Þjóðbanka Danmerkur, árið 1818. En þessar ráðstafanir ríkis- stjórnarinnar urðu ekki eins áhrifaríkar í fyrstu og ætlazt var til. rátt fyrir þungar refsingar, sem lágu við peningafölsun breiddust stórar fjárupphæðir um landið. Á næstu fáum ár- um höfðu náðst ekki færri en 49 peningafalsarar, sem föls- uðu í stórum stíl, og u.þ.b. 100 aðrir, sem fölsuðu peninga að- eins til heimilisnota. Þá skeði það, sem batt endahnútinn á stórfelldar falsanir í Dan- mörku, Kampavínsmálið svo- nefnda. Það var árið 1903. Ljósprentari nokkur hafði, á- samt steinprentara og skradd- ara, sem hafði farið á höfuðið Stirð tíð við Breiðafjörð Stykkishólmi, 7. júlí. TÍÐIN hefur verið heldur stirð hér við Breiðafjörð að undan- förnu, rigningar og kuldagjóstur hafa þar skipzt á. Sérstaklega hef ur veður brugðizt undanfarnar helgar og fólk því ekki fengið eins mikið út úr ferðalögum sín- um og æskilegt hefur verið. Það hefur auðvitað búizt við sólskini, en á það hefur viljað bresta. — Mikill ferðamannastraumur hef ur verið hér að undanförnu, sem eðlilegt er, þar sem Snæfellsnes- ið hefur jafnan verið talið með fegurstu stöðum landsins, svo að ekki sé dýpra í árinni tekið. Tveir bátar eru gerðir út á síld veiðar héðan, Otur og -Þórsnes. Nokkrir trillubátar og þilfarsbát- ar hafa stundað héðan handfæra- veiðar í vor og hefur aflinn glæðst undanfarið og einn bátur, Straumnesið, fengið upp í 17 lest- ir eftir tvo sólarhringa. Sláttur er víða byrjaður og er grasspretta í meðallagi. Leikfélag Reykjavíkur kom hingað í Stykkishólm í seinustu viku og sýndi sjónleikinn Sunnu- dagur í New York fyrir fullu húsi og við prýðilegar móttökur. Urðu margir frá að hverfa. Hef- ur félagið að undanförnu sýnt sjónleikinn í öllum kauptúnum hér á Nesinu og við ágætar við- tökur. Mikið er nú hér um byggingar- vinnu og nokkur ibúðarhús í smíðum. Unnið er nú af fullum krafti við byggingu hinnar nýju dráttar brautar í Skipavík við Stykkis- hólm og miðar verkinu vel á- fram. Verkstjóri er Sveinn Jóns- son. — Fréttaritari. Akranesi 7 júlí. 35 laxar, meðalþyngd 12 pund, sá stærsti 13 punda, veiddust á þrjár stengur á tveimur dögum norður í Blöndu, miðvikudag og fimmtudag 1. og 2. júlí. Veiði- mennirnir, sem voru héðan, sögðu veðrið hafa verið dásanv- legt. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.