Morgunblaðið - 23.07.1964, Síða 6
ð
MORGU N BLAÐIÐ
r
Flmmtudagur 23. Júlí 1904
Flugdagtir í Eyia-
firði á sunnudag
Sviffluga lendir d íþróttavellinum d
Akureyri d laugardag
Akureyri 22. júlí.
NÆSTKOMANDI sunnudaff verð
ar haldinn Flugdagur á Mel
gerðismelum í Eyjafirði. Þar
verður sýnt svifflug, vélflug og
ýmiskonar útbúnaður til leitar
«i? björgunar. Að þessum degi
standa Flugbjörgunarsveitin á
Akureyri, Svifflugfélag Akur-
eyrar og Flugskóli Tryggva
Helgasonar.
Laugardaginn 25. júlí kl. 2 e.h.
er fyrirhugað að dreifa auglýs-
ingum úr flugvél, yfir bæinn og
gildir hver auglýsing sem happ-
draettismiði. Vinningar í því
happdrætti eru 18 flugmódel,
gefin af þeim, er með þá hluti
verzla á Akureyri. Dregið verður
á Melgerðismelum að aflofcnum
sýningum á sunnudag og haldið
áfram þangað til að öll módelin
eru útgengin.
Kl. 6 e,h. á laugardag verður
sviffluga dregin inn yfir bæinn
og iendir hún á fþróttavellinum.
Um kvöldið verður síðan dans-
leikur í Sjálfstæðishúsinu og
gilda aðgöngumiðarnir einnig,
sem happdrættismiðar og verð-
ur dregið á miðnætti um flugfar
Akureyri-Reykjavík-Akureyri og
hringflug með svifflugu.
Á sunnudag hefjast sýningar
á Melgerðismelum kl. 2 e,h. og
gefist þá mönnum kostur á að
kynnast ýmsum atriðum varð-
andi svif- og vélflug og ennfrem-
ur öllum útbúnaði flugbjörgunar
sveitarinnar. Aðgangur verður
kr. 26,00 fyrir fullorðna og kr.
10,00 fyrir börn. Heitar pylsur,
gosdrykkir o. fl. verða til sölu
á staðnum. Flugdeginum lýkur
síðan með dansleik að Hótel
K.E.A. um kvöldið, og gilda þeir
aðgöngumiðar, sém happdrættis-
miðar, þar sem keppt verður um
fjóra hringflugsfarmiða, með
Norðurflugi og dregið verður á
miðnætti. Ferðaskrifstofan Lönd
og leiðir hf mun skipuleggja
ferðir í sambandi við sýninguna
á Melgerðismelum.
Flugbjörgunarsveitin á Akur-
eyri er félagsskapur um 70 sjálf-
boðaliða, sem tekið hafa á sig
Iþá kvöð, að vera ávallt reiðu-
búnir til leitar og björgunar þeg-
ar á þarf að halda. Sveitinni
hefir tekizt, með mikilli vinnu
ýmissa meðlima sinna og fjár-
framlögum og öðrum stuðningi
frá einstaklingum, ríki og bæ, —
að komast yfir nokkurn úbbúnað,
sem mönnum gefst nú kostur á
að sjá á sunnudaginn.
Svifflugfélag Akureyrar er
fremur fámennur félagsskapur
mjög áhugasamra ungra manna.
Hann stendur ölhim opinn frá
14 ára aldri og mun ekki síður
vera heppileg íþrótt fyrir eldri
menn, eða svo þykir að minnsta
kosti frændum vorum á hinum
Norðurlöndunum, en þar mun
ekki óalgengt að menn allt að
áttræðu stundi svifflug.
Flugskóli Tryggva Helgasonar
tekur við nemendum er þeir hafa
náð 17 ára aldri. Flugskólinn
hefir tveim kennsluvélum á að
skipa og stunda hann nú tíu nem
endur.
Nokkrir íerðalangranna við broctförina.
Lúðrasveit Reykjavlkur
heimsækir Færeyjar
UM KLUKKAN 1« á þriðjudag
lagði Lúðrasveit Reykjavíkur af
stað til Færeyja með tveim flug
vélum frá Flugfélagi íslands.
Ferðin er farin í boði Bæjar-
stjórn Þórshafnar og Hafnar
Hornorkester, sem hingað kom 1
fyrrasumar í boði Lúðrasveitar
Reykjavíkur.
Lúðrasveitin mun leika i Sör-
vogi á Vogar, en halda að því
Hiaut tveggja ára
fangelsi
í GÆRDAG var upp kveðinn í
Sakadómi Reykjavíkur dómur í
máli manns þess, sem 19. apríl
sl. varð barni sínu að bana á
Hellissandi, með því að sveifla
því í kringum sig. Skall höf-
uð barnsins í vegg, og beið það
þegar bana.
Maðurinn, sem að þessu var
valdur, var dæmdur í tveggja
ára óskilorðsbundið fangelsi, en
til frádráttar kemur varðhald
hans frá 20. apríl sl. — Dóminn
kvað upp Logi Einarsson, yfir-
sakadómari.
Líður sæmilega
Akranesi, 22. júlí: —
AÐALGEIRI Halldórssyni, leið
sæmilega í gær, frétti ég, og
mátti þá byrja að hreyfa sig til í
rúminu. Honum leið þá þetta bezt
eftir að hann meiddist í verk-
smiðjunnL — Oddur.
búnu til Þórshafnar. í Þórshöfn
verða haldnir tvennir innitón-
leikar, á fimmtudags- og föstu-
dagskvöld. Um helgina verður
Lúðrasveitin i Klakksvík en
kemur í byrjun næstu viku aftur
til Þórshafnar, þar sem hún leik
ur á Ólafsvökunni, sem hefst 28.
júlL Á Ólafsvökudag leikur
Lúðrasveit Reykjavíkur á aðal-
torgi Þórshafnar. Lúðrasveitin
héldu heimleiðis 3. ágúst. Auk
þeirra hljómleika, sem þegar eru
nefndir, mun verða leikið í Vest
manna, Kvivik og á fleiri stöð-
um.
Þátttakendur I Færeyjaförinni
á vegum Lúðrasveitar Reykja-
víkur eru 44, þar af þrjátiu hljóð
færaleikarar.
Fararstjórar 1 ferðinni eru
Ottó Jónsson, Friðfinnur Ólafs-
son og Helgi Sæmundsson, stjórn
andi er Páll Pampichler Pálsson
en formaður Lúðrasveítar
Reykjavíkur er Björn Guðjóns-
son.
Vegna þoku í Færeyjum lentu
báðar flugvélarnar á Egilsstöð-
um og voru þar um nóttina.
Síðdegis í gær var svo gert ráð
fyrir að hópurinn fljúgi svo til
Færeyj a.
Lýðskólamenn á
Aki^evri
Akureyri 21. júit
HINGAÐ til bæjarins komu I
gærkvöldi 47 nemendur norr-
æria lýðskólans landleiðina
austan frá Egilsstöðum. Med
þeim 1 för var forstöðumaður
skólans, Arne Hyldkrog frá
Skjæren á Jótlandi. Hópurina
gistir í heimavist M.A
í morgun skoðuðu gestirnir
verksmiður SÍS og hlýddu á
fyrirlestur Páls H. Jónssonar
fræðslustjóra SÍS um sarrv-
vinnuhreyfinguna á ísiandi og
sérstaklega um starfsemi hemv-
ar hér á Akureyri.
Bæjarstjórn Akureyrar bauð
öllum hópnum til ihádegisverð-
ar í Skíðaihótelinu þar sem Jó-
hann Þorkelsson héraðslæknir
fluttd erindi um Akureyrarbæ,
sogu hans og atvinnulíf.
Bftir hádegi var súkkulaði-
verksmiðjan Linda heim-
sótt og síðan farið í minjasafnið
og Lystigarðimn.
Norrænu gestimir fengu hið
fegursta veður í dag, sólskin og
sunnanvind og hiti komst í 24
stig. — Sverrir.
Skotin í kaf ef
þau finnasl
í fyrradag tilkynnti Landhelg-
isgæzlan um tundurdufl á reki
norður af Grímsey. Blaðið sneri
sér til forstjóra Landhelgisgæzl-
unnar og spurðist fyrir um hvað
verða myndi um dufl þetta.
— Ef eitthvert af skipum okk-
ar verður duflsins vart, verður
það skotið í kaf. Hins vegar er
það ekki alla jafna að duflin
önnist aftur, þótt nákvæmlega
séu staðsett, nema skipin, sem
finna þau, biði þar til varðskip
kemur á vettvang.
Helga Helga-
déttir frá Flögu
í MINNINGARGREININNT um
Helgu Helgadóttur frá Flögu í
Vatnsdal, sem birtist 1 blaðinu á
þriðjudag, féll niður fæðingar-
dagur hennar og dánardægur.
Hún var fædd 4. október 1880, en
dáin 12. júlí 1964.
• SKAÐABÆTUR
Verzlunarmannahelgin er í
vændum. Það er bráðum kom-
inn ágúst og enn ekki komið
sumar, hér sumnanlands am.k.
Undanfarna daga hefur verið
hálfgerð hitabeltisblíða fyrir
norðan. Kunningi minn, sem
kom frá Akureyri í fyrrakvöld
sagði, að hann hefði sjaldan
eða aldrei lifað slíica blíðu á
Islandi.
Við hér syðra getum því mið
ur ekki sagt svipaða sögu, því
segja má, að varla hafi stytt
upp síðan á 17. júnL Þetta ætl-
ar að verða óþurrkasumar. Veð
urfarið má a.m.k. batna mik-
ið í ágúst, ef við eigum að flá
viðunandi skaðabætur vegna
veðráttunnar síðan um miðjan
júnL
• SLÆMUR SAMAN-
BURÐUR
Hitt er annað mál, að hér
norður við heimskautsbaug er
alltaf alla veðra von. Það vit-
um við. Og við getum í raun-
inni ekiki gert neina sérstak-
ar kröfur til blíðviðris og
hlýju. En einihvern veginn
höfðum við haft það á til-
finningunni, að munurinn á
vetri og sumri yrði meiri en
raun hefur orðið á. Sumarið
er afburðalélegt, þegar það
er borið saman við hinn fá-
dæma hlýja vetur. Og okkur,
sem vön erum vetrarhörkum,
finnst munur á sumri og vetri
eiga að vera meiri en hann er
núna.
• MEB HAUSGATI
Já, og svo kemur verz'un-
armannahelgin. Sem betur fer
er það ekki lengur í tízku að
drekka sig útúr fullan á al-
mannafærL Fólk státar ekki
lengur af mikilli drykkju. Al-
menningsálitið fordæmir
drykkjulætin 1 Þórsmörk og
annars staðar. Nú er reynt
að gera ráðstafanir til þess að
hafa hemil á svörtu sauðunum,
sem fara „til þess að njóta
náttúrunnar“ en sjá svo ekki
mun á degi og nóttu vegna
ölvunar. Með þessu fólki ætti
að senda sveit vaskra manna,
sem tæki þá, sem ekki haga
sér sómasamlega, og setti í
poka. í þessu skyni ætti að
gera sérstaka poka með haus-
gati svo að allir fengju að líta
ásjónu poka-mannanna. Það
væri vel viðeigandi að taum-
laus „sport“-drykkja endaði í
poka á almannafæri. Það yrði
nefnilega ekki mikið „srport" í
þyí að dúsa þar og láta benda
á sig.
• VERKEFNIN
ÓTÆMANDI
En ráðstafanir sem þessar
yrðu hins vegar aldrei neia
allsherjar lausn á vandamál-
inu. Galdurinn er að leiða un.g
lingana inn á aðrar brautir og
það er fyrst og fremst verk-
efni foreldra og uppalenda,
Lífleg og dugandi forysta I
iþrótta- og æskulýðsfélögura
gæti líka gert meira en flest
annað. Verkefni íþróttafélags
ætti ekki að vera það eitt að
hjálpa einum og einum tii
•þess að stökkva svo og sv®
langt eða sjá um þjálfun
spretthlaupara og knattspyrnu
manna. Slík félög ættu að
safna til sín sem stærstura
hópi æskumanna, gangast fyr-
ir fjallaferðum, lengri og
skemmri ferðalögum, ódýrum
ferðum, en þroskandi. Verk-
efnin eru óteljandi.
Þetta er auðvitað hægar
sagt en gert —og er auðvit-
að mjög erfitt meðan íþrótta-
garparnir sjálfir, „stjörnurnar**
gefa ekki gott fordæmi — svo
ekki sé meira sagt.
8¥0f
BOSCH
KÆLISKÁPAR
Yá 4t4—8tá cub.fet.
Ennfremur
FRYSTIKISTUR
Söluumboð
HÚSPRÝÐI h.f.
Sími 20440 og 20441