Morgunblaðið - 23.07.1964, Side 17

Morgunblaðið - 23.07.1964, Side 17
Fimmtudagur 23. júlí 1964 MORCUNBLAÐIÐ 17 á sl. ári 1.280 millj. króna og heildarútflutningur frystihús- anna miklu meira, ef saltfiskur, skreið og fl. er meðtalið. Frá miðju ári 1962 til miðs árs 1963 hafði þó kaup hækkað um 30%, og um síðustu áramót bættist svo við 15% kaupphækkunin. Á sama tíma hækkaði fiskverð um 12%. Það er ekki verið að telja eftir, að frystihúsin tóku á sig þessa fisk- og kauphækkun svo til bótalaust, en þegar hver sem er, þykist þess umkominn að núa frystihúsunum því um nasir, að þau séu styrkþegar og þurfaling- ar, og þá sjálfsagt vegna þessara 43 millj. króna, mætti hann gjarn an hugleiða hlutverk frystihús- anna í þjóðfélaginu nokkru nán- ar, áður en hann við hefur hin stóru orð. Góð afkoma frystihús- anna ætti að geta boðið heim betri launum til handa því verka fólki, sem vinnur í húsunum. En hvað segir reynslan um afkomu frystihúsanna. Eitt frystihúsið á fætur öðru fer undir hamarinn eða fyrri eigendur selja, af því að þeir voru orðnir uppgefnir. Fé rentar sig áreiðanlega £ dag ekki í neinu verr en í frystihúsa- rekstri nema þá togaraútgerð. Það væri sannarlega ömurlegt, ef frystihúsanna biði sama hlut- skipti og togaranna, lenda eitt á fætur öðru hjá ríki eða bönkum, sem neyðast svo til að leigja þau fyrir verð, sem er eilítið brot af vöxtunum af því fé, sem fór tii að byggja þau. Það er ekki víst, að þjóðin í heild, sem á hvað mest undir því, að frystihúsin séu rekin með blóma, geri sér grein fyrir þessu, þegar blöðin með stanzlausum áróðri á frystihúsin eru að reyna að snúa almenningsálitinu í land- inu gegn þeim. Enginn ber af þeim blak, svo að við þau á eins og segir í Hávamálum: Hrörnar þöll, sús stendr þorpi á, hlýrat börkr né barr. svá es maðr, sás mangi ann, hvat skal hann lengi lifa? Einar Sigurðssoa. — Staðreyndir Framhald af bls. 15 utast sem innst, eitthvað annað en lekahrip Sölumiðstöðvarinnar. En þótt hér sé aðeins að ræða iim lítið brot af því, sem verk- •miðja Kristjáns Jóh. er, þá gerir samt verkfræðingur sá, sem gerði áætlun um öskjugerð SH ráð fyrir, að hún skili 20% nettó ágóða á ári, eða 5 milljón- um króna eftir að afskriftir hafa farið fram. Talar þetta sínu máli um skjótan uppgantg Kassagerð- ar Reykjavíkur og Kristján Jóh„ eftir að hann var orðinn einka- eigandi. Nú er ekki volað og vælt í Þjóðviljanum, að frysti- húsin eigi að sitja við þann eld- inn, sem bezt brennur, eins og þegar verið er að tönglast á hinum lágu farmgjöldum Eim- skips. En kannske viðbrögð Kristjáns Jóh. verði þau sömu ©g Eimskips, og hann lækki nú ©skjuveriðið um 33y3% í haust, þegar litla krílið hjá S.H. tekur til starfa, og hækki um leið ytri kassana, sem S.H. getur ekki framleitt, um 100%. SH og þjóðfélagiff Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er ekki félag eins eða neins stjórn málaflokks, ekki einu sinni á- kveðins rekstrarforms. Þar skipa menn stjórn, sem eru í öllum stjórnmálaflokkum landsins, meira að segja kommúnistar. Þar eru fyrirtæki með öllum rekstrar formum, sem þekkjast hér á landi, einkafyrirtæki, hlutafélög, samvinnufélög, bæjarfyrirtæki og ríkisfyrirtæki. Engu að síður er hún mótvægi, þó í litlu sé, á móti hinum risavöxnu fyrirtækj- um samvinnumanna. Það væri því eðlilegt, að búast þaðan við hörðustu árásunum, en svo er þó ekki. Það er látið liggja að því, að það sé almenningur, sem heldur frystihúsunum uppi, af því að ríkisstjórnin lætur frystihúsin fá 43 millj. króna á þessu ári til að bæta þeim 15% kauphækkunina um sl. áramót. Frystihúsin fram- leiða nú ekki minna en Vz af öll- um útflutningi þjóðarinnar og veita fleira fólki atvinnu en nokk ur önnur atvinnugrein í landinu. Utflutningur frosinna vara nam BIFREIÐARSTJORI óskast nu þfgar til blaðaútkeyrslu. HÍ«r«unX>Taí'ib T I M P S O Austurstræti 10 fHelgarferð í Kerlingafjöll og á Hveravelli Lagt verður upp í ferðina kl. 2 e. h. nk. laugardag úr Valhöll v/Suðurgötu. Þátttakendur taki með sér tjöld og nesti, en heitir drykkir verða veittir. Verð farmiða kr. 250.00. Pantanir (í síma 17100) óskast sóttar fyrir föstudags- kvöld á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins v/Austurvöli. HEIMDALLUR F.U.S. R E N AU LT 4L sameinar kosti þriggja bíla ódýr — sterkur — sparneytinn ■ýt RENAULT 4L er hentugur í smásendiferðir og tilvalinn fyr- ir iðnaðarmenn og verzlanir. 'k RENAULT 4L er ágætur ferðabíli fyrir fjölskylduna. RENAULT 4L er tilvalinn bíll fyrir bændur og aðra þá, sem í dreifbýlinu búa. Því trúir enginn, nema sá sem hefir reynl það, hve Renault 4L er hentug- ur, þægilegur, sparneytinn og lipur til allra nota. RENAULT ER RÉTTI BÍLLINN Lítið á Renault 4L í Lækjargötu 4 eða leitið nánari upplýsinga um hann. Renault 4L kostar aðeins kr. 128.000,00. Árgerð 1965 er á leið til landsins. Columbus hf. Lækjargötu 4. — Símar 22116 og 22118.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.