Morgunblaðið - 18.08.1964, Blaðsíða 6
6
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 18. agúst 1964
Njála á ensku í glœsilegri
útgáfu Helgafells
ísSenzBtir lislamenn myndskreyta
Upph&f nýs bókaflokks
Á NÆSTA ári kemur út á enskri
tungu á vegum Helgafells glæsi
legasta Njáluútgáfa, sem sögur
fara af. Bókin verður
prentuð í 500 eintökum og
skreytt inýndum eftir ýmsa
fremstu myndlistarmenn íslend
inga.
Mbl. náði tali af Ragnari Jóns
syni forstjóra bókaútgáfunnar
Helgafells, í gær. Skýrði hann
svo frá, að hér væri um þýð-
ingu Magnúsar Magnússonar,
íitstjóra í Edinborg, að ræða, þá
hina sömu og kom út í Penguin-
útgáfu fyrir skemmstu. Hefur
Helgafell^fengið leyfi Penguins-
foríagsins til þess að gefa þýð-
inguna út í 500 eintökum.
Ásamt formála Magnúsar
Magnússonar fylgir bókinni
grein eftir Halldór Eaxness. í
bókinni verða mjög margar mynd
ir af málverkum frá sögustöðum
Njálu. Eru þau eftir Jóhgnnes
Kjarval, Ásgrím Jónsson, Jón
Stefánsson o.fl. Njáluteikningar
eftir Gunnlaug Scheving Cig Þor-
vald Skúlason verða í bókinni,
svo og myndir af Njáli, Gunnari
á Hlíðarenda og Skarphéðni
Njálssyni eftir Snorra Arin-
bjarnar.
Mjög er til bókarinnar vand-
að í hvívetna. Hún er prentuð
á þykkan og fínan pappír, en
myndii* verða á sérstökum blöð-
um. Bókin vorður á fjórða hundr
að síður fyrir utan myndasíður.
Brotið er hið sama og á mál-
\ erkabókum Helgafells.
Verð bókarinnar, er hátt og
Útsvö
orm a
Sauðárkróki
Sauðárkróki, 15. ágúst.
FYRIR nokkru var lögð fram
skrá yfir álögð útsvör á _Sauð-
árkróki og aðstöðugjald. Útsvör
eru að upphæð 4.222.165.00
krónur og aðstöðugjald
1.234.395.00. Lagt var á eftir
hinum lögboðna útsvarsstiga og
haest gjaldendur eru sem hér
segir (útsvar og aðstöðugjald):
Ole Bang 32700 og 29600,
Guðmundur Þórðarson 57500,
Jóhann Salberg Guðmundsson
53700, Ólafur Sveinsson 51200,
Friðrik J. Friðriksson 45300,
Árni Þorbjörnsson 37600, Guð-
mundur Jónasson 43100 og 4500,
Bragi Þ. Sigurðsson 31900 og
9800, Friðrik A. Jónsson 30600
og 1100, Rögnv. Finnbogason
32400, Hákon Pálsson 32900, Ingi
Sveinsson 32400, Sveinn Guð-
mundsson 31200, Valgarð Björns
son 30400, Kr. C. Magnússon
30800, Jón Björnsson verkstjóri
29400 og 1400, Kaupfélag Skag-
firðinga 83600 og 74495, Fiskiðja
Sauárkróks 53300, Verzlunarfél.
Skaf. 94800, Frost s.f. Guðm.
Þórðar & Fr. Jóns 35000.
Allar bætur Almannatrygg-
inga voru undanþegnar útsvars-
álagningu. Lagt var á 412 ein-
staklinga og 14 fyrirtæki.
mun nema mörgum þúsundum
króna. Hún mun svo að segja
eingöngu verða seld fyrirtækj-
um, stofnunum-og bókasöfnum,
og er búizt við að hún verði upp
seld fyrirfram. Nokkrir einstak
lingar munu þó ætla að tryggja
sér eintök.
Bókin verður bundin í kálfs-
skinn í Bókfelli hf. Hún verður
með spennslum. Ásgeir Júlíus-
son sér um skreytingar, kápuút-
lit, saurblöð o.s.frv.
• ÚRVAL ÍSLENZKRA
ÞJÓÐSAGNA
Ragnar Jónsson tjáði frétta-
manni Mbl. í gær, að Njáluút-
gáfa þessi væri einkum hugsuð
sem gjafabók, þegar gefa þyrfti
stórgjafir til útlanda. Hann
kvaðst hafa hug á að halda á-
fram á þessari braut. Næsta bók
í þessum útgáfuflokki yrði úr-
val íslenzkra þjóðsagna á ensku.
Einar Ólafur Sveinsson velur
þjóðsögurnar, en Magnús Magn-
ússon og Hermann Pálsson þýða-
Myndir eftir íslenzka listamenn
munu prýða þá bók, sem bæði
verður gefin út í dýrri og ódýrri
útgáfu.
William Steinberg
Sinfóniuhljómsveitin í
Pittsburgh kemur hingað
Á föstud. lagði sinfóníuhljómsveit
in í Pittsburgh, Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum. upp í ellefu
vikna hljómleikaför um Vestur-
og Austur-Evrópulönd, svo og
um tvö Asíulönd. Siðustu hljóm-
leikarnir, þeir 41, í röðinni, verða
hér í Reykjavík 31. ©któber, en
daginn eftir flýgur hljómsveitin
síðasta áfangann heim frá Kefla-
vikurvelli.
Hljómsveitin efnir til tónleika
i eftirtöldum löndum: Grikk-
landi, Líbanon, íran, Sviss,
Luxemburg, Bretlandi, Þýzka-
landi, Júgóslavíu, Ítaiíu, Frakk-
landi, Spáni, Portúgal og íslandi.
Auk þess sem hljómsveitin
efnir til sjálfstæðra tónleika,
hefir hún verið fengin til að taka
þátt í tónlistarhátíðum á eftirtöld
um stöðum: í Baalbek (nærri
• Aldrei meira skoðað
Nú fer að síga á seinni hluta
sumarleyfanna. Sennilega hafa
íslendingar aldrei skoðað land
ið sitt jafnvel og í sumar, og
er það ánægjulegt. Samgöngur
eru víðast meiri og betri en áð-
ur og fleiri fjölskyldur eiga nú
bil en nokkru sinni fyrr. Já, og
ekki hefur veðurfarið hamlað
náttúruskoðuninni að undan-
förnu.
Ég hef óljósan grun um að
margir þjóðvegirnir muni verða
heldur illa leiknir, þegar fer að
hausta. Stóraukinn akstur
krefst auðvitað betri og varan-
legri vega — og það getur varla
dregizt miklu lenjþir að stór-
átak sé gert í þeim efnum.
• Heilsubrunnur
En svo að við snúum olckur
aftur að sumarleyfunum, þá er
ekki hægt að neita því, að þau
eru góð uppfinning, Ýmsir fá
sér neðan í því til þess að
hreinsa blóðið að sögn — en
gott ferðalag hreinsar sennilega
alla vessa líkamans betur en allt
annað. Fólk býr allt árið að vel
heppnuðu sumarleyfi — og
þeim, sem allan ársins hring
eru bundnir á sama stað við
vinnu sína, er það blátt áfram
andlegur heilsubrunnur að
skipta um andrúmsloft og fá
þá tilbreytingu, sem stutt sum-
arferðalag veitir. — Jafnvel
þótt ekki sé nema til þess að
finna það einu sinni á ári hve
gott er að koma heim aftur.
• Brögð að deyfðinni
Þegar ég er búinn að vera að
heiman í hálfan mánuð finnst
mér alltaf eins og einhver
ósköp hafi gerzt á meðan. Ég
hef líka heyrt marga segja svip-
aða sögu. Og hitti maður í út-
löndum landa nýkominn að
heiman þá er hann spurður
spjörunum úr. Sumir ferðalang
ar verða því sennilega fyrir
vonbrigðum við heimkomuna
eftir hálfsmánaðar útivist, þeg
ar þeir uppgötva, að hér hefur
í rauninni ekkert stórbrotið
gerzt'^að undanförnu jafnvel
eru meira að segja liðnar þrjár,
fjórar eða fleiri vikur síðan
nýtt flugfélag var stofnað á ís-
landi — og má því segja, að
brögð séu að deyfðinni.
• Strætisvagnar og
f æðingarheimili
Og hér kemur bréf frá for-
stjóra SVK:
„Heiðraði Velvakandi!
í pistlum yðar hinn 12. ágúst
er allmikið og heldur óvinsam-
lega rætt um ferðir Strætis-
vagria Kópavogs. Þar sem bréf
ritari birtir nafri sitt tel ég
rétt og skylt að gefa nokkrar
upplýsingár um ferðir vagn-
anna, þó ég geri mér ekki von-
ir um að milda skap háttvirts
bréfritara, sem búinn er að vill
ast um götur Kópavogs á björt
um sumardegi og lætur gremju
sína bitna á strætisvögnunum.
Á þeim tíma, sem um er rætt
þ.e. eftir kl. 14 á daginn ganga
vagnarnir á 15 mín. fresti í
Kópavog, 15 mín. fyrir og 15
min. yfir heilan tíma í vestur
bæinn, en á heilum og hálfum
tíma í austurbæinn. Ferðaáætl
un vagnanna er svo rúm, að
það er undantekning, ef ekki
bíður vagn á stæðinu í Lækjar
götunni og vagnstjóri, sem gef
ur fúslega ahar upplýsingar
um ferðir vagnanna. Það eru
því furðulangar og mjög vill-
andi upplýsingar sem bréfrit-
ari hefur fengið, að ferðir séu
óvissar og óreglulegar.
Hitt er rétt að vagnarnir
ganga ekki um Borgarholts-
braut, en það er ekki vegna
hugsunarleysis eða af kæru-
leysi, heldur vegna þess að slík
breyting á leiðum vagnanna
væri svo mörgum til óha.græð-
is, en tiltölulega fámennum
hóp til þæginda.
Þó að fæðingaheimilið sé
þörf stofnun og vinsæl, bæði
meðal Kópavogsbúa og ann-
arra, Þá þarf meira til þess að
það geti talizt lágmarkskrafa,
að strætisvagn gangi reglulega
um götuna. Auk þess vil ég
nota tækifærið og benda á, að
frá biðstöð vagnanna við Kópa
vogsbraut 30 liggur gangstígur
að fæðingaheimilinu, sem er að
eins þriggja til fimm mínútna
gangur.
Með þökk fyrir birtinguna.
Forstjóri S.V.K.
Beirut i Líbanon), Aþenu, Edin-
borg, Luzern, og Varsjá.
í hljómleikaförinni eru alLa
120 manns, þar af 110 hljóð-
færaleikarar, en stjórnandi er
William Steinberg, einn frægasti
hljómsveitarstjóri heims. Þá
verða tveir frægir einleikarar
með í förinni, píanóleikarinn
Jerome Lowenthal og fiðluleik-
arinn Charles Treger. Sá fyrr-
nefndi efndi fyrst til hljómleíka,
meðan hann var enn barn að
aldri, og aðeins 13 ára gamall
kom hann fram sem einleikari
með sinfóníuhljómsyeitinni í
Fíladelfíu. Hefir hann hlotið
fjölda verðlauna fyrir list sína
í ýmsum löndum og efnt til
hljómleika í svo til öllum Evrópu
löndum.
Charles Treger varð fyrstur
Bandaríkjamanna til að sigra i
Wieniawskikeppninni í fiðluleik
í Póllandi árið 1962. Hann hefir
m. a. verið fenginn til að leika
í Hvíta húsinu í Washington, en
það er mikill sómi, og verið ein-
leikari við Pittsburg-sinfóníuna.
William Steinberg fæddist I
Þýzkalandi árið 1901, en varð
landflótta á valdatímum nazista
og gerðist Bandaríkjaiþegn árið
1940. Síðan hefir hann oft ferð-
azt til Evrópulanda og stjórnað
helztu hljómsveitum þar sem
gestur á tónlistarhátíðum eða við
svipuð tækifæri. Hljómleikaför
þessi er sú fyrsta, sem Pitts-
burghsinfónían fer til annarra
landa, en hún er samt víðfræg
og má þakka það orði því, sein
fer af stjórnanda hénnar.
Vart leikur á tveim tungum,
að íslenzkir tónlistarunnendur
munu hugsa gott til þessarar
heimsóknar en hljómleikarnir
verða 31. október í Háskólabíó.
Leiðrétting
í GREIN Stefáns Rafn um Lárus
Sigurjónsson í blaðinu á laugar-
daginn er meinleg villa þar sem
segir svo: Innihald þeirra bóka
er forriyrt, og því -fremur líklegt
að þær öðlist lesendahóp, en á
vitaskuld að vera, ólíklegt og
leiðréttist það hér með.
Sjálfvirka þvottavélin
IMMAT „nova 64“
Fulikomnari en nokrku sinni.
Óbreytt verð.
AEG-umboð/ð
Söluumboð:
H Ú S P R Ý BI H.F.