Morgunblaðið - 18.08.1964, Síða 13
Þriðjudagur 18. ágúst 1964
13
MORCU NBLAÐIÐ
Gísli Jónsson fyrrum
alþingism. 75 ára
GfSLI JÓNSSON, fyrrum al-
þingismaður, var 75 ára í gær.
Hann hefur um langt skeið verið
forustumaður í íslenzkum stjórn-
málum og atvinnulífi.
Gísli er fæddur að Litlabæ í
Álftanesi hinn 17. ágúst 1889. —
Foreldrar hans voru þau hjónin
Jón Hallgrímsson, bóndi að Litla-
bæ og síðar í Skildinganesi við
Reykjavík og Guðný Jónsdóttir
frá Grashúsum á Álftanesi. XJng-
ur að árum flutti Gísli með for-
eldrum sínum að Bakka í Arnar-
firði, þar sem hann ólst upp i
fjölmehnum hópi systkina.
Gísli lagði stund á vélsmíði á
ísafirði 1908—9 og var vélstjóri á
skipum árir^ 1911—21. Hann var
meðal þeirra fyrstu, sem luku
prófi frá Vélstjóraskólanum og
hefur vélstjóraskýrteini nr. 1 frá
skólanum. Gísli var formaður
Vélstjórafélags íslands í mörg ár.
Á fjórða tug aldarinnar hóf
Gísli atvinnurekstur með stofnuh
útgerðar í Reykjavík og fyrir-
tækja á Bíldudal. Hann hefur
haft afskipti af margskonar at-
vinnurekstri, en fyrirtæki sitt,
Gísli Jónsson & Co., stofnaði
hann 1940.
Gísli hefur verið alþingismað-
ur í mörg ár og var ávallt með
hinum meiri þingskörungum. I
fyrsta sinn bauð Gísli sig fram
til Alþingis fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Barðastrandarsýslu ár
ið 1937, en náði þá ekki kjöri.
I næstu kosningum 1942 var Gísli
síðan kjörinn þingmaður Barð-
strendinga og átti sæti á þingi
óslitið til 1956. Gísli var síðan
enn kjörinn á þing árið 1959 og
sat á þingi fram til síðustu al-
þingiskosninga, en þá dró hann
sig í hlé. Gísli gegndi mörgum
trúnaðarstörfum á þingi og fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Má nefna
formennsku þingnefnda, forseta-
störf á þingi og setu í Norður-*
landaráði.
Mbl. óskar þessum aldna heið-
ursmanni heilla á þessum tíma-
mótum.
Rudolf Serkin væntan-
legur til íslands
PÍANÓSNILLINGURINN
Rudolf Serkin, sem nú mun
talinn fremsti píanóleikari
veraldar, er væntanlegur
hingað til lands miðvikudag-
inn 2. september. Kemur hann
á vegum Tónlistarfélagsins.
Rudolf Serkin er ásamt syni
sinum, Peter, eitt helzta aðdrátt-
arafl á Edinborgarhátíðinni. —
Hann heldur síðustu hljómleika
sina á hátíðinni hinn 1. september
og flýgur síðan næsta dag með
flugvél frá Flugfélagi Islands til
Reykjavíkur.
Mbi. sneri sér til Tónlistar-
félagsins í gær og fékk staðfest-
ingu á þessari frétt. Serkin held-
«r hér tvo hljómleika, laugar-
daginn 5. og sunnudaginn 6. sept.,
fyrir styrktarfélaga Tóniistarfé-
lagsins. Hann leikur verk eftir
Sehubert, Beethov'en og Brahms.
Serkin dvelst hér nokkra daga
með fjölskyldu sinni og heimsæk-
Rudolf Serkin
ir vini sína. Meðal annars hefur
hann ráðgert að heimsækja gaml-
an vin sinn, Halldóf Laxness.
Úrslitin i kvöld og á
morgun á Hörðuvöllum
Piltar af Gorch Fock leika í kvöld
EFTIR eru nú aðeins úrslita-
leikir í kvennaflokkum á hand-
knattleiksmeistaramótinu utan-
húss. Fer annar fram í kvöld,
leiika þá í 2. flokki kvenna Ár-
mann og Valur kl. 6.45. Á undan
Xeiknum leika unglingar úr FH
gegn liði al þýzka skólaskipinu
Gorcih Fook. Hefst sá leikur kl. 6
Annað kvöld eru svo úrslit í
meistaraflokki kvenna milli
Fram og Vals sem unnið hafa
Kina riðla.
Á laugardag unnu Haukar Ár-
mann með 17-11 í m.fl. karla.
Var það síðari lei'kiur í karla-
flokki bar varð lokastaðan þessi.
FH 8 stig
Haukar 5 stig
Ármann 4 stig
Fram 3 stig
ÍR 0 stig
...VWH.W• «• •• •■••• 'WV -W X• • • < yv **■■'*«■ ■ ■.•"■<
m % •*■• .<■ .w
i- ■ ** ■'"■-* »-
’T--' , ý . :■
#>” v:.
...» •
Commandant Bourdals.
Franskt herskip í
Reykjavíkurhöfn
í REYKJAVÍKURHÖFN er
nú franska herskipið Comman
dant Bourdais og í gær mátti'
sjá skrautlega klædda
franska sjóliða ganga um göt-
ur borgarinnar. Veðrið var
ákaflega gott og notuðu sjó-
liðarnir tækifæri og sleiktu
sólskinið eða veiddu kolann í
höfninni. Tíðindamaður Morg
unblaðsins hitti tvo sjóliða á
förnum vegi og notaði tæki-
færið til þess að spjalla örlítið
við þá.
Fyrst kom auðvitað þessi sí'
gilda spurning: Hvernig líkar
ykkur við það, sem þið hafið
séð hér?
Þeir kváðu sér vel líka.
Annar þeirra hafði komið hér
áður. Sögðust þeir fara á mið-
vikudaginn kemur til Ný-
fundnalands.
í þessu gekk fram hjá okk-
ur ung og lagleg stúlka. Báð»
" - ' ,:.X
ir sjóliðarnir sneru sér við og
horfðu góða stund á eftir
henni svo ég notaði tækifærið
til að spyrja þá hvernig þeim
litist'á' íslenzku stúlkurnar.
— Úlala.
— Þið ætlið ef til vill á
dansleik í kvöld?
Þeir játtu því. Sögðust þeir
hafa heyrt urri einhvern stað,
er héti „Pórskaffi" og ætluðu
þangað.
Við gengum niður að skipi
þar sem það liggur við
bryggju. Er það mjög renni-
legt eins og sjá má hér á
myndinni. Þar fengum við
þær upplýsingar að skipið
væri að koma frá Noregi og
færi næst til Nýfundnalands
í þeim tilgangi að færa
frönskum togurum þar vistir
og aðstoða þá á annan hátt.
litanríkisráðlierra ■ opin-
bera heimsókn til
Finnlands
París, 15. ágúst (NTB)
• HENRY Cabot Lodge,
fyrrverandi sendiherra Banda
ríkjanna í S-Vietnam er kom
inn til Parísar. I dag og í j
kvöld mun hann skýra
frönsku stjórninni Oig fulltrú-
um NATO í aðalstöðvunum
frá sjónarmiði Bandarikja- 1
stjórnar varðandi ástandið í
SA-Asíu. 1
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Guðmundur í. Guðmundsson og
kona hans Rósa Ingúlfsdóttir
fara í dag í opinbera heim-
sókn til Finnlands. Heimsóknin
mun standa yfir í 4 daga, og hef
ir dagskrá heimsóknarinnar ver
ið ákveðin á þessa leið.
Utanríkisrððherrahjónin
munu koma til Helsingfors laust
eftir kl. 11 í dag, 18. þ.m., og
munu þar taka á móti þeim
finnskir ráðamenn. Eftir hádegi
mun utanríkisráðherra svo heim
sækja finnska utanríkisráðherr-
ann, Hallama, forsætisráðherr-
ann, Lehto og verzlunar- og iðn
aðarmálaráðherrann, Mattila.
Því næst verða skoðaðir merkir
staðir í Helsingfors. Kl. 19 um
kvöldið hefur svo finnski utan-
rikisráðherrann kvöldverðarboð.
Miðvikudaginn 19. ágúst fara
utanríkisráherrahjónin í hádegis
verðarboð, sem Kekkonen Finn-
landsforseti heldur þeim á sveita
setri sínu, Gullranda, en það er
um 2 klukkustunda bílferð frá
Helsingfors. Um kvöldið býður
Norrænafélagið til kvöldverðar.
Fimmtudaginn 20. ágúst verður
flogið til Knopio og komið þang-
að um kl. 10 f.h. Bær þessi, sem
er um 300 km. norðaustur frá
Helsingfors, er nýtízku iðnaðar-
borg og jafnframt eru þar ein-
hver mestu vatnasvæði Finn-
lands. Verður bærinn skoðaður,
þar á meðal verkamannabústaðir,
en því næst býður bæjarstjórnin
til hádegisverðar. Að honum lokn
um verður farið í um 2 klukku-
stunda vatnaferð. Ráðgerð er
móttaka hjá „landshöfðingja“, en
að henni lokinni verður flogið til
Helsinfors.
Föstudaginn 21. ágúst verður
fyrrihluta dagsins varið í heim-
sókn á sveitabæ í nágrenni Hels-
ingfors, en eftir það býður Hels-
ingfors-borg til hádegisverðar.
Um kvöldið halda utanríkisráð-
herrahjónin kvöldverðarboð og
lýkur þar með hinni opinberu
heimsókn í Finnlandi.
í fylgd með utanríkisráðherra-
hjónunum verða Árni Tryggva-
son, ambassador íslands í Finn-
landi, og kona hans Sigrún Ög-
mundsdóttir.
(Fréttatilkynning frá utanrík-
isráðuneytinu).
New York, 15. ágúst (NTB)
• FULLTRÚI v-þýzku
stjórnarinnar afhenti í aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóð-
a«na í dag ávísun á hálfa
milljón dollara, er ‘ ganga
skulu til friðargæzlustarfs
samtakanna á Kýpur. Áður
hafa v-þýzk stjórnarvöld lát-
ið af hendi sömu upphæð til
Kýpur-starfsins.
Engin veiði -
bræla á miðumim
ENGIN síldveiði var um helg-
ina, enda bræla á miðunum. Að-
eins eitt skip, Sif ÍS tilkynnti
afla sinn á sunnudag, 100 mál.
Á mánudag og í gær var enn
hræla og skipin ýmist í höfri eða
landvari. Síldarleitarskipið Pét-
ur Thorsteinsson leitaði í gær
90 mílur austur af suðri frá
Langanesi og fann nokkra síld,
en hún var dreifð.
ESKIFIRÐI, 17. ágúst. — Síldar
bræðslan hér hefur tekið á móti
110.110 málum. Hér hefur verið
saltað í 17815 tunnur. Skiptist
söltun þannig á milli stöðva:
Auðbjörg 9.300 tunnur; Askja
3115; Bára 2300; Eyri 2300 og
Oddi 900 tunnur.
G.W.
BREIÐDALSVÍK, 17. ágúst. —
Síldariðjan hefur brætt 16.040
mál frá bátum og 3870 mál frá
síldarsöltunarstöðvum. Saltað hef
urverið í rúmlega 2500 tunnur.
Fréttaritari.
Stjórn S-Viet-Nom biðst iansnar
Saigon, 17. ágúst NTB."
NGYUEN Khanh, hershöfðingi,
hinn nýi forseti Suður-Viet-
Nam, fór í dag flugleiðis til
d’Alat, norð-austur af Saigon, til
stjórnarmyndunar. Stjórn sú,
sem setið ’ hefur til þessa, baðst
lausnar á sunnudag, en Khanh
hefur beðið hana að sitja enn
um sinn unz ný stjórn hafi verði
mynduð. Er gert ráð fyrir því
að það taki um þrjá daga.
Embættistaka Nguyen Khanhs
sem varð forseti fyrir tilstilli
hersins í Suður Viet-Nam, er tók
þar öll völd í sína hendur um
helgina, hefur mælzt misjafn-
lega fyrir. Eru uppi áform bæði
I
í Saigon og norðar í landihu, um
kröfugöngur til að mótmæla þess
ari ráðstöfun herstjórnarinnar
ásamt fleirum, m. a. yfirlýsing-
unni um hernaðarástand í land-
inu, sem gefin var út fyrir 10
dögum, vegna atburðanna á
Tonkin-flóa og fyrirhuguðum
stjórnarskrárbreytingum.
Khanh hefur ekki viljað taka
upp forsetaheiti og kallar sig að-
eins formann stjórnarinnar.