Morgunblaðið - 18.08.1964, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.08.1964, Blaðsíða 17
pnö]uciagur 15. agöst 1964 MORCUNBLAÐIÐ 17 Seglbáturinn Ortac í Reykjavík Skipverfar gengu á lan d í Surfsey ÞÝZKI seglbáturinn Ortac, sem lenti í hrakningum aust ur af Elliðaey árla fimmtu- dagsmorguns, kom til Reykja víkur á laugardaginn. Eins og skýrt var frá í M'bl. aðstoð- aði vélbáturinn Leó frá Vest mannaeyjum seglbátinn og dró hann til Vestmannaeyja. Fréttamaður Mbl. hitti skip verja seglbátsins að máli í gær. Á bátnum eru níu menn, allt ungir menn. Skipstjóri er Dr. med. Hellmut Wever. Þjóðverjarnir komu frá Ham- borg og voru 10 daga á leið-. inni yfir hafið til Vestmanna- eyja. Þeir ætluðu að stíga á land í Heimaey, en þegar þangað kom, grúfði sótsvört þoka yfir — þeir sigldu fram hjá Bjarnarey og Elliðaey, þar til þeir voru komnir á tólf faðma dýpi vestur undan Holtsósi á Eyjafjallasundi, um 8 mílur austur af Elliða- ey. Þá skutu þeir neyðarblys um á loft — og kom vélbát- urinn L,eó skjótt á vettvang og dró bátinn til Vestmanna- eyja sem fyrr segir. Hellpiut Wever, skipstjóri, rómaði mjög gestrisni Vest- mannaeyinga og kvaðst mjög þakklátur fyrir hjálpsemi þeirra. Þeim voru sýndar eyj arnar og þeir nutu sérstakr- ar gestrisni Oskars Matthías- sonar, skipstjóra á Leó. Frá Heimaey fóru þeir á föstu- dagskvöld áleiðis til Reykja- víkur og voru 24 tíma á leið- inni. Engin vél er í bátnum, heldur koma seglin í hennar stað. Þeir komu við í Surtsey og gengu þar á land. Sagði hinn ungi skipstjóri, að það -ævintýri hefði verið í senn stórkostlegt og ógnvekjandi. Þeir hefðu staðið agndofa og horft á glóandi hraunleðjuna. Það mundi þeim aldrei líða úr minni. SegHbáturinn OrtaC er í eigu klúbbs í Hamborg, sem starfar með það markmið fyr ir augum, að fræða ungt fólk um ókunn lönd og þjóðir. 25 klúbbþegar eru saman um þennan bát og skiptast á um að fara í ævintýrareisur sem þessa. í Reykjavík hverfa þrír piltar úr hópnum, en aðrir koma hingað frá Hamborg til þess að leysa þá af hólmi. Báturinn, sem er 14 lestir að stærð, er 14,6 metra langur, 3,4 m. breiður og ristir 2,5 m. Hann er byggður í Englandi 1937 og er því 27 ára gamall. í rauninni er hann aðeins gerður fyrir sex manna áhöfn en eins og fyrr segir eru Þjóð verjarnir níu talsins — tveir sofa á setbekkjum, einn sefur á gólfinu. — Mikilvægasta persónan um borð er kokkurinn, sagði Wever. Hans starf getur oft og tíðum verið vandasamt því að stundum er erfitt að hemja matarföngin og eldhús áhöldin. Báturinn veltur tals- vert, eins og gefur að skilja, enda hafa skipverjar oft þjáðst af sjóveiki. Við feng- um slæmt veður fyrstu þrjá daga ferðarinnar, en þegar við vorum komnir fram hjá Orkneyjum, fengum við lens. Ekki er nóg með að allt sé á tfleygí'erð í 'bátnum, þegar sjór er úfinn, heldur vill bát- urinn þá fyllast af sjó, þanm" ig að við verðum sífellt að grípa til dælunnar. Siglinga- tæki okkar eru ekki marg- brotin, — aðeins radíó, mið- unarstöð og sextant. Hinir ungu skipverjar sögð ust ekki vera smeykir við að velkjast á hafinu á svona litl um báti. Gúmmíbjörgunarbát ur er um borð, ef eitthvað skyldi bera út af, og í honum eru matvæli fyrir 10 menn. sem endast í viku. Ennfrem- ur hafa þeir meðferðis sér- stakt tæki, sem sendir sjálf- krafa frá sér SOS merki í sólarhring. Þjóðverjarnir verða í Reykjavík til 23. þessa mánað ar. Það fer eftir veðrinu, hvert stefnan verður tekin næst. Annað hvort til Græn- lands eða umhverfis ísland og heim aftur. Matvæli hafa ekki meng- azt af skordýraeitrun -Nónari athugun fer fram á farminum úr Brúarfossi BLAÐINU barst I gær eftirfar- «ndi tilkynning frá skrifstofu borgarlæknis: „Árlega eru nokkur brögð að Jjví, að skordýr berist til lands- ins með fóðurvörum, bæði til Reykjavíkur og til annarra hafna á landinu. Hafa sum þessara skor kvikinda orðið hér landlæg. Fyrir skemmstu fannst óvenju inikið af skordýrum í fóðurkorni í Brúarfossi, og hafði hluta farms ins verið skipað upp, er borgar- Jækni barst vitneskja um málið. Þar eð hætta gat verið á því, •ð skordýrin gætu borizt í mat- væli, gaf borgarlæknir eigendum fóðurkornsins fyrirmæli um, að láta eyða skordýrunum áður en fóðurkorninu yrði dreift. Víðtæk ar rannsóknir benda eindreg- ið til þess, að matvæli hafi ekki mengast af skordýrunum, enda yrði sala á matvælum, sem skor- dýr hafa komizt í ekki leyfð, svo sem áður hefur verið lýst yfir. Að svælingu lokinni voru tek- in sýnishorn af fóðurkorninu, og virtist svælingin hafa borið til- ætlaðan árangur. í síðustu viku barst þó kvört- un um skordýr í fóðurkorni í hænsnabúi einu hér í borg. Rann- sókn leiddi í ljós, að hér var um að ræða m.a. eina af þeim teg- undum skordýra, sem fundizt höfðu í Brúarfossi. Fer nú fram að nýju athugun á umræddum fóðurkornsfarmi, m.a. með tilliti til að egg skordýranna kynnu að hafa lifað svælinguna af. Að athugun þessari afstaðinni verða teknar ákvarðanir um frekari aðgerðir og haft um það samráð við hlutaðeigandi ráðuneyti." Mbl. hefur frétt, að menn hafi Málflutningsskrifstofa Vagns E. Jónssonar Gunnars M. Guðmundssonar Austurstrajti 9 ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrai'a að auglysa i Morgunblaðinu en öðrum blöðum. orðið varir við kornbjöllur f farmi, sem Jökulfell flytur til landsins. Kom þetta í ljós við uppskipun á fóðurkorni í Þor- lákshöfn, á Sauðárkróki og Húsa- vík. — EINSTAKLINGSFERÐ — N Þýzkaland Reykjavík — L.uxemburg — Frankfurt. — 10 daga ferð — kr. 11:082.— Innifalið: Flugferðir — Gi«t ingar — Morgunverður — — Brottför alla daga — • 1 I KIRKJUHVOLL < Pi -1 < .3 1 Dómikirk'ja e- T 5? \ UJ V KIRKJITSTRÆTI tLEBAUQMRHÚSIB TEMPLAR ASUNDI 3 {homið]

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.