Morgunblaðið - 02.09.1964, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 2. sept. 1964
MORGUNBLAÐIB
15
iiiniiiiiiiiiiiimmiiimiiiimimimiimiinmiimmí
Á STJÓRNARFUNDI Lút-
herska heimssambandsins,
sem nú stendur yfir í Reykja-
vik, er staddur dr. Fridtjov
Birkeli, hiskup í Stavanger í
Noregi, en Birkeli biskup er
frumkvöðull þess, að lút-
herska kirkjan hefur tekið
nútímatæknina í þjónustu
sína við trúboð í Afríku og
Asíu, en svo sem kunnugt er
rekur Lútherska heimssam-
bandið kristilega útvarpsstöð
í Addis Abeba í Ethiópíu. —
Stöðin er að afli til jafnsterk
BBC, og nær til hvorki meira
né minna en eins milljarðs
manna í fyrrgreindum tveim-
ur heimsálfum. Ríkisstjórnir
* " ' .
Aðalskrifstofubygging útvarps Lútherska heimssambandsins í Addis Abeba. Nafn hennar, „Út-
varpsrödd GuðspjaUsins“, (Radio Voice of the Gospel), er letrað á bygginguna.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiimiiimiimiimimiimmmimiiiiimi
ing), sem hefur aðalstöðvar í ||
London. =
Dr. Aske gat þess, að yfir =
300 manns störfuðu nú við |j
útvarpsstöð Lútherska heims- =
sambandsins. Stöðin sjálf g
hefði kostað yfir tvær millj- ||
ónir dollara eða um 90 millj- h
ónir ísl. kr. og fé þetta hefði ||
allt verið lagt fram af lúthersk |j
um kirkjum og trúboðsstöðv- =
um víðs vegar um heiminn. g
Stöðin hefði verið formlega s
opnuð af Selaisse Ethiópíu- =
keisara á sl. ári. Þá gat dr. =
Aske þess, að m.a. þeirra, sem =
hefðu gagn af stöðinni, væri =
íslenzka kristniboðið í Konsó. H
Dr. Aske sagði að stöðin út- =
varpaði 14 klst. á stuttbylgj- =
um daglega og 4 klst á mið- =
bylgjum. 70% af efninu, sem ~
væri útvarpað, væri menn- =
ingarlegs eðlis, og til upplýs- =|
inga og fróðleiks, en 30% væri ^
kristilegs og trúarlegs eðlis. 3
Hann sagði að mikil áherzla 3
Kirk jan á að beita nútíma-
tækni í starfsemi sinni
— segir Birkelund biskup,
frumkvöðull útvarpsstöðvar
Lútherska heimssambandsins
í Ethiópiu
ýmissa þeirra landa, sem stöð-
in útvarpar til, hafa nú kom-
ig auga á gagnsemi hennar,
og víða örva yfirvöldin fólk
til þess að kaupa útvarpstæki.
í Ethiópíu sjálfri eru víða
útvarpstæki á markaðstorgum
í þorpum, og eru þau lögð
fram af upplýsingamálaráðu-
neyti landsins.
Fréttamaður Mbl. hitti í
gær að máli Birkeli biskup,
svo og dr. Sigurd Aske, út-
varpsstjóra, sem stjórnar stöð-
inni í Addis Abeba.
Birkeli biskup sagði að
hann hefði fyrir allmörgum
árum komizt að þeirri niður-
stöðu, að kirkjan ætti að taka
í þjónustu sina þau tæki, sem
nútímatækni hefði upp á að
bjóða, til þess að hún næði
til sem flestra. Allt til ársins
1955 hefði verið nokkur
tregða af kirkjunnar hálfu í
þessum sökum. „En við urð-
um að gera okkur grein fyr-
ir því, að með hefðbundnum
aðferðum breiddist kristin-
dómurinn ekki nægile^a ört
út“, sagði biskupinn. „Fólki
fjölgar nú í veröldinni sem
aldrei fyrr, nýjar þjóðir fá
frelsi, og nýir heimar eru að
opnast fólki. Ef við hefðum
haldið okkur við þá stefnu í
þessum málum, sem áður rikti,
hefðum við staðið í stað. Við
ákváðum þess vegna að við
yrðum að gera okkur grein
fyrir því, að við lifum í ver-
öld nútimans, og að kirkjan
ætti að nota allt það, sem
nútíma tækni hefur upp á að
bjóða. En jafnvel á árinu
1958 var kirkjan enn hálfvolg
varðandi hvort þetta bæri að
gera.“
Birkeli biskup sagði, að áð-
ur en stöðin í Addis Abeba
var reist, hefði heimssamband
ið keypt útvarpstíma hjá ýms-
um stöðvum víðs vegar um
heiminn. Um tvennt hefði ver
ið að ræða; halda þessu á-
fram eða byggja eigin stöð.
„Eg er sjálfur sannfærður um
að við ættum að nota hvort
tveggja“, sagði biskup.
Biskupinn sagði að 1958
hefði Lútherska heimssam-
bandið ákveðið að stöðin
skyidi byggð, og frá þeim
tíma og til dagsins í dag hefði
stöðin stækkað og þróazt með
ótrúlegum hraða. Nú væri það
einnig orðin viðurkennd stað-
reynd, að kirkjan ætti að
beita nútímatækni til þess að
ná til sem flestra.
Dr. Sigurd Aske hefur ver-
ið forstöðumaður útvarps-
stöðvarinnar í Addis Abeba
frá upphafi. Hann tjáði frétta-
manni Mbl. í gær, að Birkeli
biskup væri upphafsmaður
þeirrar hugmyndar að kirkj-
an notfærði sér útvarp og
sjónvarp í boðskap sínum.
Hefði Birkeli vakið máls á
þessu er hann var fram-
kvæmdastjóri Heimstrúboðs
lútherska sambandsins í Genf,
og eftir að hann hafði tekið
við biskupsembætti í Noregi
hefði hann verið í stöðugu
sambandi við forráðamenn út-
varpsins. Dr. Aske sagði að
Birkeli biskup væri nú einnig
forseti Samtaka kristinna út-
varpsstöðva (World Associa-
tion of Christian Broadcast-
væri lögð á fréttir, enda væri
það ekki lítils virði í „heimi,
þar sem erfitt er að fá að
heyra sannleikann." — í>ess
má geta, að á samkomu í Þjóð-
leikhúsinu annað kvöld mun
dr. Aske tala um útvarpsstöð-
ina í Ethiópiu, starfsemi henn-
ar, tilgang og framtíðarverk-
efni.
Þá gat Birkeli biskup þess
í viðtalinu í gær, að honum
væri það mikil ánægja að
heimsækja Island, og hann
kvaðst vonazt til að samskipti
Noregs og íslands myndu enn
aukast. „Við höfum heyrt um
fyrirhugaðar sumarbúðir ís-
lenzku kirkjunnar í Skálholti,
og mér er það sönn ánægja,
að Noregur hefur lagt því
máli lið. Von mín er sú, að
samskipti landa okkar muni
enn aukast, ekki aðeins á
kirkjulega sviðinu, heldur
einnig meðal þjóða okkar“,
sagði Birkeli biskup að lokum.
Birkeli biskup (t.v.) og dr. Aske, útvarpsstjóri, á Hótel Sögu i gær. (Ljósm.: Mbl. Sv. Þ.). H
1llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllltllllllllllllllllllllllll|llillllllll|||||||l|||||||i||||ll|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||ltl|||||||||||||||||||||||||||||<i||||||||||||||||||||||||||||||||{ijl|||||||||l||||||||||||||||{|||||lll||||||||||i;illllllllllllllll)IIIIIIIIIIIIIHIi[g
Lútherska kirkjan verður að
átta sig á nýjum viðhoríum
Kirkjuþingið í Róm beinir gu&-
fræðilegum vandamálum inn á
Sérsfæö samkoma
í Þjóðleikhúsinu
í tilefni af stjórnarfundi Lútherska
heimssambandsins
nýjar
A STJÓRNARFUNDI Lútherska
heimssambandsins i gær flutti
dr. Vilmos Vajata, prófessor við
trúarjátningarannsóknarstofnun
heimssambandains, skýrslu um
annau fund kirkjuþingsins í
Róm, en dr. Vajata sat þingið
»em einu aí þremur áheyrnarfull
truum Lútherska heimssambands
ins á öðrum fundi Kirkjuþings
kaþólskra, og mun sitja þriðja
fund þess í Róm, sem hefst um
jniðjan mánuðinn. Komst dr.
Vajata m.a. að þeirri niðurstöðu
að lútherska kirkjan yrði að átta
fcig á því, að kirkjuþingið í Róm
beiudi nú öllum guðfræðilegum
vaudatuálum og rannsóknum á
brautir
þeim inn á nýjar brautir. „Að-
eins endurlífgun innan kirkju
okkar getur gert hana svo úr
garði, að hún geti mætt þessum
nýju viðhorfum,“ sagði dr.
Vajata.
Dr. Vajata er guðfræðingur að
mennt, fæddur í Ungverjalandi,
en hefur sænskan ríkisborgara-
rétt. Hann hefur nýlega tekið
vrð fyrrnefndri prófessorsstöðu
en áður var hann í 11 ár fram-
kvæmdastjóri guðfræðiráðs
heimssam/bandsins.
Dr. Vajata sá í ræðú sinni í
gær bæði kost og löst á áhrifum
kirkjuþingsins í Róm á róm-
/ersk-kaþólsku kirkjuna, svo og
mótmælendakirkjur.
Þá gat hann þess m.a. að páf-
inn væri hlynntur því að fara
hinn gullna meðalveg varðandi
'oreytingar innan kaþólsku kirkj
unnar, þannig að um leið og
stefna hennar væri hin sama,
kæmi til endurlifgun kirkjunnar
mnan frá. Dr. Vajata sagði í
þessu sambandi að endurlífgun
kaþólsku kirkjunnar hefði ekki
gerzt sökum þess að hún hefði
hlustað á rödd umbótanna, held
ur hefði hún af sjálfsdáðum snú-
:ð aftur til ritningarinnar og
skoðað kenningar sínar í nýju
ljósi. Taldi dr. Vajata þetta
nánast áskorun á lúthersku kirkj
una, sem einnig þyrfti á umbót-
um að halda.
Margt fleira kom fram í
skýrslu dr. Vajata og að flutn-
ingi hennar loknum urðu um
hana talsverðar umræður þar til
þingi lauk kl. 18 í gær.
ANNAÐ kvöld, fimmtudags-
kvöld, verður sérstök samkoma
haldin í Þjóðleikhúsinu i tilefni
af stjórnarfundi Lútherska heims
sambandsins, sem hér stendur nú
yfir. Er samkoman öllum opin
meðan húsrúm lcyfir og aðgang-
ur er ókeypis. Sóknarnefndum
og sérstökum starfsmönnum safn
aðanna í Reykjavík og nágrenn
is t.d. söngfólki, hefur sérstak-
lega verið boðið til samkomunn-
ar og sæti tekin frá fyrir það
i sal.
Samkoman mun hefjast kl.
20,30 með ávarpsorðum biskups-
ins yfir Íslandi, herra Sigur-
björns Einarssonar. Á samkom-
unni flytja ræður þeir dr. Rajah
B. Manikom biskup í Indlandi,
sem mun tala um Indland og
kirkjurnar í Asíu, og dr. Sigurd
Aske, útvarpsstjóri stöðvar Lút-
herska heimssambandsins í Addis
Abeba. Dr. Aske mun tala tun
starf útvarpsstöðvarinnar ag
áætlanir í sambandi við rekstur
hennar.
Forseti Lútherska heimssam-
bandsins, dr. Fredrik A. Schiötz,
Bandaríkjamaður af norskurn ætt
um mun ávarpa samkomugesti og
framkvæmdastjóri Lútherska
heimssambandsins, dr. Kurt
Schmidt-Clausen, mun í fáum
orðum rekja sögu sambandsins.
Þá mun Pólýfónkórinn syngja
undir stjórn Ingólfs Guðbrands-
sonar, og einnig mun Sigurður
Björnsson, óperusöngvari syngja
andleg ljóð eftir Gellert við tón
list Beethovens. Undirleik ann-
ast Guðrún Kristinsdóttir.
Þá er einnig ætlunin að með-
limir framkvæmdastjórnar Lút-
herska heimssambandsins verði
kynntir fyrir samkomugestum í
samkomulok.