Morgunblaðið - 08.09.1964, Side 3

Morgunblaðið - 08.09.1964, Side 3
MORCUNBLAÐIÚ 3 Þriðjudagirr 8. sept. 1964 Hér kemur gúmmíbátur varðskipsins að síðu Óðins með brezka skipstjórann, Maurice Edward Call (situr í stafni). (Helgi Hall- varðsson tók allar myndirnar). Eftir töku togarans. Frá vinstri: Jóhann Hafstein, dómsmálaráð- herra, Jón Jónsson, skipherra, og Sigurður Bjarnason, ritstjórL Skipstjórinfl hlaut 260,ooo króna sekt Dómur í máli Ross Rodney í gær í GÆR gekk á ísafirði dómur i máli Maurice Edward Call, skipstjóra á brezka togaranum Ross Rodney GY 34, sem Óð- inn tók í landhelgi ANA af Horni á laugardagsmorgun. — Hlaut skipstjórinn 260,000 kr. sekt og afli og veiðarfæri voru upptæk gerð til Landhelgis- sjóðs. Skipstjóri áfrýjaði dómn um til Hæstaréttar. Unnið var að því í gærkvöldi að meta afla og veiðarfæri, en að því loknu var búizt við að Ross Rodney héldi frá ísafirði, eft- ir að trygging hefði verið sett. Dóminn sátu þeir Jóhann Gunnar Ólafsson, þæjarfógeti á ísafirði, og skipstjórarnir Rögnvaldur Jónsson og Símon Helgason. Verjandi skipstjóra var Ragnar Aðalsteinsson hdl., * en fyrir Landhelgisgæzluna var Gísli Einarsson hrl. í réttinum kvaðst skipstjóri hafa verið að veiðum utan landhelgi samkvæmt eigin mælingum, en viðurkenndi hinsvegar að hafa verið fyrir innan línu með óbúlkuð veið- arfæri og eitthvað af fiski á þilfari. Samkvæmt mælingum varðskipsins var togarinn fyr- ir innan línu, er hann dró upp vörpuna. Skipstjórinn kom mjög vel og kurteislega fram í réttin- um, að því er bæjarfógeti tjáði Mbl. í gær. Þess skal að lokum getið, að Þórarinn Björnsson, skipherra á Óðni, var í landi í sumar- leyfi, er taka Ross Rodney fór fram, en skipherra í þessari ferð var Jón Jónsson. Jóhann Hafstein, dómsmála- ráðherra, fylgist með töku Ross Rodney úr brú Óðins. Ross Rodney á siglingu til ísaf jarðar eftir að tog arinu hafði verið tekinn. 1^/** NA /5 hnútar \r SV SOhnútsr ¥: Snjókomo 9 OÍi ^ (7 Shiirir E Þn/mur 'Wsk&'atái H Hml \ UM HÁDEGI í gær var hæg- og er því búizt við versnandi = viðri um allt land, en kalt í veðri norðaustanlands. (Að s § veðri, aðeins 4—5 stiig nyrðra þessu sinni eru jafnþrýstilín- || jf og 6—8 stig syðra. Alldjúp ur á kortinu dregnar með 5 || | lægð austan við Jan Mayen millibar millibili). B mun þokast suður á bóginn ÍmiiiiiimimtimtmmimiimiimimhiiiiiKmiiiiitiiimiiiiiiimiiimiitimmimmiiiiimiiiiimiiimiiimiiiiiiil MSsskilningur í fréft um eldvarnir í FRÉTT um breytingar á skipu- lagi Slökkviliðsins á baksíðu Morgunblaðsins miðvikudaginn 2 þ.m. er sagt í undirfyrirsötgn: .Ráðinn sérstakur eldvarna- eftirlitsmaður“. Kemur fram sá misskilningur í fréttinni, að e'dvarnaeftirlitsmaður hafði ekki áður starfað við Slökkvi- liðið, en svo hefur þó verið, því að þrír menn hafa starfað að eftirliti þessu um árabil. Breytingarnar eru einungis skipulagslegs eðlis og tilgang- urinn sá, að koma á deildaskipt- jngu innan Slökkviliðsins. Verð- ur ráðinn verkfræðingur til að hafa yfirumsjón með þeirri deild, sem annast brunavarnir. Starfsemi Slökkviliðsins á samkvæmt brun.amálareglugerð að vera tvennskonar, að slökkva eida og koma í veg fyrir að þeir kvikni. Varaslökkviliðsstjóri, Gunnar Sigurðsson, sér um fyrr- nefndu starfsemina, auk þess sem hann er staðgengill slökkvi- hðsstjóra í fjarveru hans, en deiídarst j óri eldvarnaef tirlitsins mun sjá um brunavarnir. Hon- um til aðstoðar verða þeir menn, fem hingað til hafa starfað að eldvarnaeftirliti, Egill Hjörvar, vélstjóri, Gísli Jónsson og Leó Sveinsson. Ók út af AKRANESI, 7. sept. — Fólksbíll úr Reykjavík fór út af þjóðveg- inum hjá Beitistöðum um tíu- leytið sl. laugardag á mjög mik- illi ferð, svo að hann þeyttist fyrst tíu metra spöl frá veg- inum á hjólunum þó án þess að velta. Ekki er vitað, hve margir voru í bilnum, en enginn meidd- ist — Oddur. STAKSTEINAR Er "stóriðja æskileg? Á Akureyri er gefið út tima- ritið Heima er bezt. Nýlega skrif ar ritstjóri þess, Steindór Stein- dórsson, menntaskólakennari, grein í ritið um stóriðju á ís- landi og hvórt hún sé æskileg. í greininni segir m.a.: „Eitt þeirra mála, sem mjög hefur verið á da,gskrá í blöðum og manna á meðal nú undan- farið, er væntanleg stóriðja í landinu. Er það sízt að undra, því hér er um mikilvægt mál að ræða, og eðlilegt að skoðanhr manna séu skiptar. En eins og á svo mörgum sviðum- öðrum viröist afstaða manna mótast méira af því hvaða stjórn- málaflokk þeir f.vlla, en málinu sjálfu. En miklu skiptir að slík vandamál séu. rædd án haturs og hylli, eða af- stöðu til ríkisstjórnar eða póli- tískra flokka. Þegar raétt er um stóriðju hér höfum vér í.huiga, að reist- ar verði stórar verksmiðjur, sem noti mikla orku, allmikinn mannafla, en framleiði vöirur, sem ætla má að stöðug eftir- spurn sé eftir á heimsmarkaðin um. Slíkar verksmiðjur yrðu ekki reistar fyrir innlent fé eða lánsfé eingöngu, heldur kæmu þar til erlendir aðilar, sem legðu fram stofnfé að verulegu leyti og önnuðust söiu afurð- anna.“ Hlutlaust mat „Þær spumingar, sem vér hljótum að leggja fyrir oss í þessu sambandi verða því: Er þörf á þessum framkvæmdum? og ef því er svarað játandi, hverjir kostir og gallar fylgja þeim og hvert vegur meira? Ekki ætla ég mér þá dul að gefa fullnaðar svör við þessum spurningum, en ræða um málið ef verða mætti að það vekti menn til umhugsunar og þess að líta á það öðruvísi en gegn- um flokksgleraugu, sem lituð væri austrænni eða vestrænni glýju.“ Stóriðja hagur íslands Grein Steindórs lýkur á þessa leið: „En þótt vér viðurkennum þörfina á stóriðju gætu fylgt henni þeir gallar að leita yrði heldur annarra ráða. Fyrst skul- um vér gæta að, hvað getur unnizt. Með stóriðju skapast tryggari atvinna í landinu en nú er. Vér fáum markað fyrir vinnuafl og raforku á erlendum markaði, þar sem allar afurðir s'íkra iðjuvera yrðu fluttar Það þýddi aukið fjármagn í landinu og um leið tryggari af komu þjóðarbúsins . . .“ „Hinsvegar fylgir þessu hætta af stórfelldum iinniflutningi er lends fjármagns, sem orðið gæti sjálfstæði voru hættu- legt. En þetta hafa margar þjóðir gert og vel tekizt. Vér ættum að geta búið svo um, að trvggt væri, en slíkur umbún- aður er ófrávíkjanlegt skilyrði þess, að þetta verði oss hag- kvæmt. I stuttu máli sagt, ef málið er skoðað frá báðum hliðum virðist sem hagur vor geti verið meiri að því að hafizt verði handa um stóriðju í landinu, en þó aðeins að við íslendingar fáum sjálfír tekið iðnaðinn í vorar hendur þegar fram líða stundir.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.