Morgunblaðið - 08.09.1964, Side 24

Morgunblaðið - 08.09.1964, Side 24
24 MORGUN BLAÐIÐ Þriðjudagur 8. sept. 1964 HERMBNA BLACK: Eitur og ást eldri af amerísku vísindamönn- unum hrifinn af henni. James Rinehart, sá yngri, hafði verið í Englandi á stríðsárunum, og þegar hann komst að því að Car- inna var svo til nýkomin þaðan, vildi hann tala sem mest við hana, ekki sízt eftir að það kom á daginn, að þau áttu sameigin- lega kunningja í London. Sandra, sem að jafnaði tókst vel að bola Corinnu frá, gerði nokkrar tilraunir til þess að ná Rinehart frá he'nni. En honum varð ekki þokað. Hann sagði ber um orðum, að hann vildi geta talað sem lengst við Corinnu. En því miður yrðu þeir kunningjarn ir að fara til Kairo á morgun og þaðan til Ameríku eftir viku. Robin Wraymap og Blake höfðu gengið eitthvað burt sam- an, og Sandra Lediard virtist ekki hafa neinar áhyggjur af því. Loksins fannst Rinehart prófessor að hann yrði að gefa sig að frú Lediard, og Corinna notaði tækifærið til að laumast út úr tjaldinu án þess að nokkur tæki eftir. Corinna var viss um að Ledi- ard prófessor langaði til að tala betur við amerísku gestina. Ef Sandra og flugmennirnir vinir hennar færu, þá yrði hægt að 21 gera eitthvað til gagns. Corinna afréð að fara og líta eftir hest- unum, sem þau höfðu skilið eftir á bletti í forsælunni. Arabastrák- urinn sem gætti þeirra stóð enn á sínum stað, með blístru í hend inn. Meðan faðir Corinnu lifði hafði hann kennt henni dálítið í arabisku, svo að hún gat gert sig skiljanlega. Nú spurði hún strákinn hvort hann vildi leika á blístruna fyrir hana. Hann brosti og stóð strax upp. Hann hallaði sér upp að hrörlegum grjótgarðinum sem hestarnir voru bundnir við, bar blístruna upp að munninum og fór að leika. Þetta var undarlegt smálag og undirtónninn eins og kjökur. Lagið var stutt en hann endurtók það sí og æ í breyttri tóntegund. — Hvernig finnst yður þetta lag? spurði hann. — Það er yndislegt — og undarlegt, endurtók hann. — Þetta er ástavísa, sagði hann svo. Hún hafði getið sér þess til og kinkaði kolli brosandi. — Viljið þér heyra annað lag? spurði hann. En í sömu andránni nefndi ein- hver nafnið hennar. Hún leit við og sá að Blake var að koma. Hún varð glöð þegar hún sá hann — eins og alltaf. Hún veifaði til hans og þegar hann var kominn til hennar sagði hún. — Ég fór hingað til að gá hvernig hestun- um liði. — Það væsir auðsjáanlega ekki um þá, sagði hann og klapp aði White Satin á mjúkan flibb- ann. — Þú ert þæg! En mér sýn- ist á auguiium í hestinum þín- um, Corinna, að hann langi til að fara að hreyfa sig aftur. Held- urðu að við getum farið úr sam- kvæminu núna? — Ég .. ég veit ekki, sagði hún hikandi. — Ég verð að spyrja Lediard prófessor að því. Hann hnyklaði brúnirnar. — Eins og þú vilt. En það er frí- dagurinn þinn í dag. Og það varst þú sjálf, sem stakkst uppá því að koma hingað og hjálpa Söndru. . . . Hann bar höndina fyrir augun. — Nú koma þau út úr tjaldinu. Við skulum kveðja þau — ef við þurfum þess með. Henni fannst hann ekki vera í sem beztu skapi. Það var ekki nema sjaldan, sem hún sá þessa útgáfu af honum. Hvað skyldi hafa gert honum gramt í geði? Sandra var að kveðja Ameríku mennina. — Skelfing var leiðinlegt að þið gátuð ekki verið hjá okkur nokkra daga, sagði hún og brosti ísmeygilegasta brosinu sínu. — Já, það var leiðinlegt, sagði prófessorinn. — Ég verð að játa, að mig hefði lengað að verða hér um stund. — En það var afar skemmti- legt að fá að koma, sagði Rine- hart prófessor og kvaddi Söndru og síðan Corinnu. — Það var einstaklega gaman að kynnast yður, ungfrú Langly, sagði hann. — Ég skal skila kveðju til allra kunningjanna okkar. — Já, viljið þér gera svo vel, sagái hún. — Það var verulega gaman að hitta yður. Sandra leit á Corinnu og sagði svo: — Við skulum komast af stað. Ég á að fara á æfingu í kvöld, eins og þið vitið. Ég geri ráð fyrir að þú verðir okkur ekki samferða heim, Philip. — Nei, ég á margt ógert enn þá, góða mín. Ég borða líklega með Curtis hérna uppfrá, svo að ég kem varla fyrr en seint heim. Og þið, ungu vinir mínir, verðið að sjá um konuna mína — og aka varlega. — Komdu nú! sagði Blakejvið Corinnu. Það þarf enginn á þér að haldá hérna. Hún kvaddi Lediard og fór með Blake í áttina til hestanna. Þau kvöddu Abdul, og Blake stakk skildingi að honum. Dreng annn horfði á þau á víxl, svo að Corinna varð forviða. Svo settist hann aftur, og er þau riðu af stað blés hann sama lagið og hann hafði blásið áður. — Ég þarf að gera ýmislegt á heimleiðinni, sagði Blake. — Það tefur okkur talsvert. Hef- urðu nokkra kápu með þér? — Nei, ég hef ekki annað en það sem ég stend í, svaraði hún. Hann hnyklaði brúnirnar. — Þt.ð var óaðgætni, Corinna. Hann blæs á norðan meðfram Níl. Þú ættir orðið að vita það. — Ég hélt að við ættum ekki að verða úti eftir sólarlag. — En ég hafði dálítið með mér, sem þú getur notað þegar kólnar, sagði hann og snerti við böggli, sem var festur við hnakk inn. Hún horfði á hann með hlátur í augum og hahn spurði: — Hverju finnst þér svona gam- an að, Corinna? — Ekki öðru en því, að þér þykir gaman að skipa fyrir. — Því miður er oft þörf á því, svaraði hann kuldalega. — Það er ekki oft sem ég skipa þér fyr ir, finnst þér það? — Nei, ekki oft — uppá síð- kastið, sagði hún. — En fyrsta daginn sem ég hitti þig, ímynd- aði ég mér að þú mundir aldrei ieyfa neinni manneskju — eða öllu heldur konu — að segj-a meiningu sína. — Er ég svona bölvaður? Eða ?rt þú bara 1 skapi til að skamma mig? sagði hann, og það var vottur af ávítum í augum hans er hann leit á hana. — Ekki er ég að skamma þig, sagði hún. — Ég minntist ekki eiuu sinni á, að mér mislíkaði þessi hliðin, sem nú er upp á þér. Hún er svo — svo nauðalík þér. — Þökk fyrir, sagði hann og brosti þannig að hjartað í henni steypti sér kollhnís. Hvað gengur að mér? spurði hún sjálfa sig. Fyrst liggur við að ég rífist við hann, og síðan.. En ekki leið á löngu áður en san^omulagið var orðið gott aft- ur. Þáu töluðu saman og þögðu á vixl. Sólin var enn á lofti og leið in sem þau fóru var falleg. Hún lá að mestu meðfram fljótinu og tamarisk-gróður bar skugga á veginn. Þau fóru snöggvast af baki og kveiktu sér í vindlingi. — Mér sýnist Lediard vera ánægðari með árangurinn núna, sagði hann. __ — Ég býst við því. En þeir gera ekki ráð fyrir að finna öllu meira en þetta, svo að það er varla langur tími eftir. Curtis fer til Englands eftir nokkrar vikur. Frú Lediard vonar að geta komizt til Luxor, og að hún fáti að verða í Kairó í vetur. — Hún verður fyrir vonbrigð um hvernig sem fer. Brezki her- inn er farinn og engin skemmti- ferðalög lengur. Josephino frænka ætlar að fara líka....... — Fer hún til Seyyids Ibra- min, eins og hún var að tala um? spurði Corinna. — Já, svaraði hann. — Það er ljómandi fallegt þar. Skrítið að Lediard skuli ekki taka sig upp og skrifa bókina sína þar. — En er ekki skelfing langt þangað? spurði hún. — Jú, víst er það langt, en það er ómaksins vert samt. — Það er óvist að frú Lediard sé á þeirri skoðun. — Það er brezk nýlenda þar líka. Mundir þú hafa gaman af að fara til Arabíu? — Já, því ekki það? svaraði hún. — En ég fæ varla tækifæri til þess. Hún andvarpaði. — Ég sakna frú Glenister þegar hún fer. Hún hefur verið mér svo einstaklega góð. Hann hló. — Hún getur verið afbragð, og ég verð að játa að ég er hrifinn af henni. Ég mun sakna hennar líka. En nú verður akki langt þangað til ég verð að fara líka. Eg hef verið meira en lieppinn að fá að vera hérna svona lengi. — En þú ferð ekki í bráð, sagði hún og bná við. — Ég verð sjálfsagt að fara í næstu viku — en ekki nema fáeina daga. Ef ekkert óvænt kemur fyrir kem ég aftur til þess að sjá um að Josephine kom íst af stað. Eskifjöröur í BÓKSÖLUNNI á Eskifirði er utnboð Morgunblaðsins á Eskifirði. I „Bakaríinu" hjá Hlöðver Jónssyni er blaðið. einnig selt í lausasölu yfir sumarmánuðina. Seyðisfjörður UMBOÐ Morgunblaðsins í Seyðisfjarðarbæ er í Verzl. Dvergasteinn. Blaðið er þar einnig í lausasölu fram til kl. 11,30 á kvöldin. „Bar- inn“, veitingastofa, hefur blaðið í lausasölu. Vopnafjörður Á Vopnafirði er Gunnar Jónsson, umboðsmaður Morgunblaðsins og í verzlun hans og söluturni Kaupfé- lagsins er blaðið einnig selt í lausasölu. BLAÐADREIFING FYRIR ! Morgunblaðið þarf þegar í stað að ráða fólk til blaðadreifingar í þessi blaðahverfi: 'jk Hagamelur — Sörlaskjól — Hjarðarhagi — Grenimelur. Laugavegur frá 105—177 — Miðtún — Barónsstígur — Skeggjagata. «1 ^ Hrísateigur — Austurbrún — Suðurlandsbraut — Bugðu- lækur — Gnoðavogur — K leppsvegur lægri húsnúmerin. Gjörið svo vel að hafa samband við afgreiðslu Morgunblaðsins. sími 22480. KALLI K'ÚREKI Teiknari; J. MORA — Grevelsis homgrýti! Fjórir kóng- ar! Eg ætla að draga eitt spil til þess að hann haldi að ég sé að reyna að fá róðina tía, gosi, drottning, kóngur og ás. Brandur hallar sér fram og horfir á spilin hjá Kalla. Hann sér, að Kalli hefur fjóra kónga á hendi og grunar að hann fari nú að leggja meira en góðu hófi gegnir, — Ég ætla að hækka um 100, seg- ir Brandur. — Það er ekki sanngjamt, segir Kalli ...... það gerir mig krúkk. Þetta er síðasti skildingurinn. Ég er búinn að leggja allt undir, sem ég á. IFVOU CAUöHTA REAL HAWO, IT’P BE ASHAME NOTTO BACK IT/ WRITE AN I.O.U. ' WHY, THAT'S REAL^I NEieHBORLYOF TOU* LENP ME TOUR PENf — Ef þér gengi nú vel í spilinu, væri það synd ef þú héldir ekki á- fram. Ég skal lána þér. Skrifaðu ur.dir skuldaviðurkenningu. — Ertu að meina þetta? Þetta var fallega gert af þér. Lánaðu mér rit- færi, — ég ætla að hækka um tvö hundruðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.