Morgunblaðið - 08.09.1964, Side 21

Morgunblaðið - 08.09.1964, Side 21
Þriðjudagur 8. sept. 1984 MORCUN BLADID 21 Tarzan á leiðinni sem 14 ára og fjögurra mán- aða synti yfir Ermarsund. Er hún yngsta manneskjan sem unnið hefur þá þraut. Leonore er frá Sacramento í Bandaríkjunum. Hún lagði af stað frá Giris Nes-höfða í Frakklandi, kl. 5:30 um morg uninn eftir staðartíma. Þegar tók að kvölda sást hún á sundi skammt undan Dover í Englandi, og tilkynntu skip- verjar á nærstöddu skipi að hún synti hraustlega og sjór- inn væri lygn. Þegar hún tók land í Dover var hún búin að veira fimmtán og hálfa kist. á sundi. Leonore er fremur lágvax- in, yfirlætis'laus, sólbrennd og hraustleg, og er sólgin í að borða risastóra rjómaísa. Þeg ar hún var spurð að því, um hvað hún hefði hugsað meðan hún svamlaði yfir sundið, svaraði hún: „Yenjulega syng ég þegar ég syndi, en í þetta skipti sner ist hugsunin um það hvað ég mundi fá að borða, þegar ég kæmi í land. Mér þykir gam- an að lesa Tarzanbækur og var ég líka að hugsa um þær. Ég var ekki í dáleiðsluástandi meðan á sundinu stóð. Og það er miklu auðveldara að synda yfir Ermarsund heldur en ég hélt“. Leonore er dóttir landeig- Hugsaði um mat og SKÓLAFÉLAGAR hennar kalla hana George, sundfélag ar hennar kalla hana Leo eða Lee — söguibækurnar munu kalla hana Leonore Modell, I.eonore Modell. Leonore veifar aðdáendum sínum, eftir Ermarsunds-sundið, af svölum hótelherbergis síns í Folkestone, EnglandL enda í Sacramento í Kaliforn íu og konu hans, sem er af Indíánaættum. Hún lærði 5 ára gömul að synda og þegar hún var 10 ára gömul var hún tekin í sundflokk Paul Herr- on, sem synt hefur fram og til baka yfir Ermarsund.' Hann þjálfar „maraþonssund menn“ eins og hann kallar það, og tekur það fjögur ár. Leonore er þó ekki búin að vera nema tæp tvö ár undir leiðsögn hans. Hún byrjar að æfa kl. 4 á morgnana og synd ir þar til tími er kominn til að fara í skólann. Eftir skóla- tíma fer hún aftur að synda, og er venjulega háttuð um kl. 7. Hún segist synda milli 6—8 mílur á hverjum degi. Frítíma sína um helgar notar hún til að dansa. „Ég var aldrei smeyk um |É að ég hefði það ekki af að = komast yfir sundið“, sagði s hún. „Eg var tólf ára gömul M þegar mér datt fyrst í hug að s synda yfir Ermarsund. Þá s spurði einn vinur minn, hvort = ég gæti synt yfir Ermarsund, M og ég sagði já. Mamma var M ekkert hrifin af þessu mara- = þonsundi en pabbi studdi M mig“. s Leonore er yngsta mann- M eskjan, sem synt hefur yfir M Ermarsund. Það þótti tíðind- M um sæta í fyrra, þegar Claud M ia McPherson, sem er 17 ára, s kanadisk stúlka, synti yfir = Ermarsund, og var hún þá = yngst allra þeirra, sem þreytt S höfðu það sund. 14 ára stúlka syndir yfir Ermarsund miiiiiiiuiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii«uiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiii«iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuimiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiuiiiiiuiiiiiiiiiiiiuiiiiiniiiiiiiiiiiiiniiiiiiHiiiuiiiiiim Minkur með mesta móti í Rreiða- f jarðareyjum Stykkishólmi, 7. sept. MINKUR hefur verið með meira móti í eyjum við Breiðafjörð sem tilheyra Skógarstrandarhreppi. Mér er tjáð að nú þegar hafi veiðzt í þessum eyjum um 70 minkar og er það eftir því sem ég veit bezt, það mesta sem veiðzt hefur undanfarin ár. í landi hefur svo einnig verið veitt og mun talan vera komin nálægt 100 í Skógarstrandarhreppi. Oft veiðist svo minkur á haustin og getur því þessi tala hækkað til áramóta. f Helgafellsveit mun hafa minna veiðzt af mink nú í ár en áður. Annars er þetta mjög misjafnt. Jón bóndi Hjaltalín í Brokey sagði mér í vor, áður en minkastriðið byrjaði, að sér hefði fundizt sem minknum væfi haldið í skefjum og miðaði hann við, að dúntekja í Brokey hefði aukizt undanfarin ár, en nú sagði hann mér aftur á móti, að þetta ár hefði verið mjög óhagstæðara en önnur, því að hann hefði feng ið mjög minni dún í sumar en sumrin áður, og sé ekkert vafa- mál að þarna er minkurinn að verki. Annars er svartbakurinn hér í algleymingi og étur hann æðarkolluungana hvar sem hann nær til þeirra. Það er eftirtektar vert, hve færri æðarkollur sjást nú með ungum en áður og má ábyggilega kenna þar um hversu svartbakurinn fjölgar. Á vetrin þegar sjóróðrar standa yfir er svo mikið hér af svartbak, að hann skiptir þúsundum í leit að æti og er hann þá ekki alltaf sem friðhelgastur. Senda USA-fé- Efnahagsmál og aðstoð við þróunarlöndin rædd á ráðstefnu alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Tokíó Tokíó, 7. septemlber, AP. 1 DAG var sett 20. árleg ráð- stefna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Tókíó. Ráðstefnuna sækja full- trúar 102 þjóða. Aðallega verða rædd á ráðstefnunni gjaldeyris- viðskipti þjóðanna og aðstoð við þróunarlöndin. Pierre-Paul Sohweitzer fram- kvæmdastjóri -sjóðsins, skýrði frá því í dag, að allt benti til þess að vaxandi framleiðsla iðn- aðarvöru í Bandaríkjunum xnyndi einnig örva viðskiptalíf í heimin,um almennt. Kvað fram H /æmdastj órinn flest iðnaðar- VllinilllMIIUIMMIMIIIIIMIIIIIIimilMIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIM I Biúðguminn ’ 100 úrn, í brúðurin 94 1 | Catanzaro, Italíu, I 6. september, AP. | í DAG gekk Antonio Esp- | | osito, eitt hundrað ára gam- = | all, að eiga Maríu Mustara = = da Malito, sem er 04 ára. Esp f | osito hefur áður verið kvænt- = i ur fjórum sinnum, en lifað i | konur sínar allar. Vinum sín- = | um sagði Esposito, svona í = | trúnaði, er þeir gengu á hann = | 'við brúðkaupsveizluna, og | | spurðu hverju sætti langlífi i | hans og heilsuhreysti, að i | hann hefði aldrei reykt, en i | drukkið drjúgum og kven- \ | fólk verið hans líf og yndi \ I alla tíð. i i landanna innan Aliþjóðagjald- eyrissjóðsins hafa aukið fram- Söltun 34,425 tunnur í iVleskaupstaö NESKAUPSTAÐ 7. sept. — Hér er búið að salta í 34.425 tunnur og skiptist þannig á fimm plön: Drífa með 0272 tunnur; Ás 6568 — Máni 8712; Sæfilfur 8684 og Nípa 1239. Nú er bræla búin að vera á síldarmiðunum í tvo sólarhringa, og liggur hér fjöldinn allur af íslenzkum og norskum síldveiði- skipum. Kalt er í veðri, þó hef- ur ekki snjóað í fjöll enn þá, og Oddsskarð fært sem um sum- ardag. — Ásgeir. Slökkvistarf ritstjórans SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt að verzluninni Esju á Kjalarnesi kl. 17,37 á sunnudag, en þar hafði eldur komið upp í vörum í geymslu inn af verzluninni. Þeir Agnar Bogason ritstjóri Mám tdagsblaðsins, og Júlíus Maggi Magnús voru í verzlun- inni, er eldurinn kom upp, og höfðu þeir ráðið niðurlögum hans, er slökkviliðið kom á vett vang. Talið er, að kviknað hafi út frá vindlingi. Ekki urðu mikl ar skemmdir af eldsvoða þess- um. leiðslu sína að undanförnu og sagði að horfurnar væru góðar. Þá kvaðst Sohweitzer styðja tillögu ýmissa aðila að sjóðnum um að auka fjármagn það sem hann hefur yfir að ráða (15.600 milljónir dala) um 4.000 milljón- ir dala, með þvi að auka þil- skilin fjárframlög aðildarríkj- anna. Nemur hækkun á greiðsl- um þessum um 25 af hundraðL Sagði Schweitzer, að helzt hefðu það verið þróunarlöndin sem góðs hefðu notið af birgð- um sjóðsins á s.l. ári, og sagði að nú væri svo komið að lönd þessi hefðu, þrátt fyrir lágt verð á útflutningsvörum þeirra um árabil og versnandi við- skiptakjör, aukið útflutnings- hagnað sinn um 4 af hundraði á árL> v löp;um samúðar- kveðju Tokyo, 6. september, AP. KÍNVERSKI kommúnista- flokkurinn sendi á sunnudag kommúnistaflokki Bandaríkj- anna samúðarkveðjur vegna frá- falls formanns hans, frú Eliza- betar G. Flynn, að því er frétta- stofan „Nýja Kína“ hermir. Fengu 31 flyðru í einni veiðiferð STYKKISHÓLMI, 4. sept. — M.b. Röst í Stykkishólmi, sem er 9 tonna bátur, var s.l. þrjá daga á flyðruveiðum í Breiða firði og kom í kvöld með þennan glæsilega feng, 31 fallega flyðru, sem þeir veiddu í túrnum. í gær var þeirra bezti afladagur en þá veiddu þeir 1G flyðrur. Eig- andi bátsins er Bergsveinn Gestsson, Sth., en með honum í veiðiferðinni voru Björn Ingólfsson og Kjartan Guð- mundsson. Ekki veit ég hve mikið verðmæti þarna er en þau eru mikil. Markaður fyrir þennan fisk er ágætur. T.d. mjög auðvelt að selja hann til Reykjavíkur, því þangað ganga vörubifreiðar tvisvar og þrisvar í viku. Undanfarin ár hefur veiðzt talsvert af flyðru við Breiða- fjörð á haustin og stundum hafa þær verið afar vænar. — Fréttaritari. uiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiMmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitimiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiii immmmmmmimmmmimmmmmmimmmmimimmmmiiiiiiui

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.