Morgunblaðið - 17.09.1964, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.09.1964, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 17. sept. 1964 MORGUNBLAÐIÐ 3 „ÞAÐ er ös um þig, Gunn- vör mín,“ sagði Kristbjörg Kjeld, þegar blaðamenn þustu inn í búningsherbergi þeirra í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi í leit að „litlu leikkonunni“. Hún heitir Gunnvör Braga Einarsdóttir, 13 ára gömul, og leikur aðalrlutverkið í „Kraftaverkinu“, sem frum- sýnt verður næstkomandi sunnudagskvöld. Eins og kunnugt er er leikritið byggt á ævisögu bandarísku skáld- konunnar, Helen Keller, sem bæði var blind og heyrnar- laus. Leikritið tekur til með- ferðar æskuár skáldkonunnar og baráttu kennslukonu henn ar, Annie Sullivan (leikin af Kristbjörgu Kjeld) við að kenna henni mannasiði og hag nýt fræði. Við fengum fimm mínútur til að spjalla við Gunnvöru. Hún var nýkomin af sviðinu, sveitt og rjóð eftir geysihörð átök við kennslukonuna. Gunnvör er fremur lág vexti með sítt, dökkt hár og skær augu, sem ljómuðu af áhuga. Hún var í klossum, blúndu- buxum og stykkjóttum kjóL Gunnvör Braga Björnsdóttir Fimm mínútna samtal við leikkonu í blúndubuxum, sem „debúterar64 n.k. sunnudag „Hvenær fékkstu leik-bak- teríuna?“ spurðum við hana um leið og hún settist. „Ég veit það ekki,“ anzaði hún. „Mamma mín hefur sett á svið nokkur leikrit í Kópa- vogi og fylgdist ég stundum með henni, en ég var þá þegar búin að fá bakteríuna.“ Foreldrar Gunnvarar eru Gunnvör Braga Sigurðardóttir Einarssonar, prests og skálds í Holti, og Björn Einarssorr, tæknifræðingur, Meltröð 8 í Kópavogi. Hún er yngsta leikkonan, sem hlotið hefur stórhlutverk í Þjóðleikhúsinu til þessa dags. Gunnvör sagði okkur nú, að hún hefði leikið smávegis í skólaleikritum, og eftir jól í fyrra lék hún í barnaleikrit- inu „Húsið í skóginum“, sem Leikfélag Kópavogs sýndi. „En hvernig stóð á því að þú fékkst þetta hlutverk?“ „Ég veit það ekki,“ svaraði Gunnvör. „Klemens hringdi einn daginn og svo var ég prófuð. Við vorum víst sex sem til greina komum í hlut- verkið." „Vissirðu eitthvað um leik- ritið?“ „Ja, ég vissi hver Helen Keller var, en síðan ekki sög- una meir.‘ „Og hvernig kanntu svo við þig á leiksviðinu?“ „Alveg skínandi, það er miklu skemmtilegra en ég þorði að gera mér í hugar- lund. Og . mér þykir meira gaman að leika seinni hlutann en þann fyrri“. „Þú segir ekki orð í leik- ritinu, er það?“ „Jú, seinast í leikritinu segi ég „va-va“, sem á að þýða vatn“. „Ertu að hugsa um að fara í leikskóla þegar þú hefur ald ur til?“ „Já, það ætla ég að gera. En fyrst ætla jg að fara í menntaskólann og ljúka við hann“. „Geturðu ekki stundað leik nám samtímis honum?“ „Sjálfsagt gæti ég það, en ég vil heldur snúa mér að einu í einu“. „Áttu engin áhugamál önn- ur en leiklistina?" „Nei, engin önnur. Ég er hvorki í íþróttum né öðru þess háttar .... jú, jú, ég leik mér að sjálfsögðu með vin- konum mínum, en ég hef fyrst og fremst áhuga á því að leika í augnablikinu ..." Fimm mínúturnar voru liðn að og Gunnvör Braga sneri sér að næsta blaðamanni. „Kraftaverkið** er fyrsta leikritið, sem Þjóðleikhúsið sýnir á þessu leikári. Leik- stjóri er Klemens Jónsson og leikendur, auk Kristbjargar og Gunnvarar eru: Valur Gíslason og Helga Valtýsdótt ir, sem leika foreldra Helenar, Ævar Kvaran (kennarinn), Arndís Björnsdóttir (föður- systirin), Emilía Jónasdóttir (negra-þjónustustúlka), Árni Tryggvason (læknirinn) og Arnar Jónsson (bróðirinn). — Jónas Kristjánsson, magister, þýddi leikritið, Gunnar Bjamason gerði leiktjöld. Áformgð var að frumsýna leikritið n.k. laugardag, en Gunnvör Braga veiktist snögg lega af inflúensu í síðustu viku og varð að fresta frum- sýningunni um einn dag. Söguferð til Brighton BÍÐASTLIÐIÐ vor bauð Flugfé- lag íslands í samvinnu við ferða málaráð Brighton nokkrum fréttamönnum blaða og útvarps uð heimsækja þennan góðkunna vumardvalarstað á hinni sólriku vuðurströnd Bretlands. Eftir heimkomu islenzku fréttamann- anna var mikið skrifað um Brigh ton í islenzk blöð, sem vakti á- ruga manna á því að eyða nokkr um frídögum á stað, sem ekki var svo ýkja fjarri heimahögun- um. Ferðaskrifstofan Saga varð strax vör við áhuga á ferðum til Brighton, enda hefur margt manna farið þangað á hennar vegum og dvalið þar í bezta yfir læti í sumarleyfinu. Ferðaskrif- Umferðarkennsla fyrir ungt hjól- reiðafólk BUMARSTARFSNEFND Lang- holtssafnaðar gekkst fyrir nám- •keiði fyrir börn í umferðar- kennslu í vor. Það mæltist mjög vel fyrir og þátttakendur skiptu hundruðum. Nú hefur nefndin ákveðið að efna til annars námskeiðs í um- ferðarreglum og hjólreiðum ein- göngu handa aldursflokknum 10—12 ára, áður en aðalumferð- in í skólana hefst og hættur auk- *st með haustinu. Þetta námskeið hefst n.k. laug ardag kl. 2 við Vogaskólann. Þar koma kexmarar og nemendur námskeiðsins saman. Aðalleið- beinandi verður eins og í vor Sigurður E. Ágústsson lögreglu- þjónn. Slysavarnarfélagið annast ýmsan kostnað, en framkvæmdir og skipulagning eru á vegum Sumarstarfsnefndar kirkjunnar, eins og áður er sagt. En formað- ur hennar er Kristján Erlends- son, trésmiður. í sumar hefur nefndin gengizt fyrir skemmtiferðum fyrst með æskulýðsfélaginu og þá með eldra fólk, svo berjaferð fyrir börn og síðast Þórsmerkurferð með almennri þátttöku, ennfrem- ur starfaði nefndin að undirbún- ingi fjölbreyttrar dagskrár á kirkjudegi safnaðarins, og ætlar nú að efna til almennrar skemmtisamkomu síðustu helgi í september. Árelíus Níelsson. stofan Saga hefur nú ákveðið að efna til ferðar til Brighton 22. september fyrir þá, sem ekki hafa enn haft tækifæri til þess að taka sér frí og skreppa utan í sumar. Flogið verður með flug- vél frá Flugfélagi íslands beint til London, en þaðan verður ekið frá flugvellinum í sérstökum bíl suður til Brighton. Dvalið verð- ur á hóteli við ströndina í eina viku. Verði hefur verið stillt mjög.í hóf, og kostar ferðin að- eins kr. 7.750,00, en innifalið í verðinu eru flugferðir til og frá London, bílferðir til að frá Brigh ton og gisting á hóteli ásamt öll- um máltíðum í viku. Enda þótt tugir þúsunda er- lendra ferðamanna heimsæki Brighton á ári hverju, þá má segja að íslendingar séu þar vin sælir og miklir aufúsugestir. Sem dæmi má geta þess, að ferðamála ráð borgarinnar og borgarstjór- inn munu hafa sérstakt boð inni fyrir íslenzka ferðamannahóp- inn, sem gistir Brighton í næstu viku. Auk þess mun hópnum verða boðið að sjá það markverð asta í borginni með leiðsögn kunnugs fylgdarmanns. Ira badstrondiniu i Brigliton STAKSTEINAR Varhugaveró viðskipti í austurátt „Alþýðublaðið“ segir svo m.a. í forystugrein í gær: Núverandi ríkisstjóm hefur ^ fylgt þeirri stefnu að halda við heilbrigðum viðskiptum við So- _ vétríkin. Hins vegar hafa komatn- únistar ávallt reynt að blanda þessu máli inn í pólitík, eins og þeir gera nú. Þeir ráðast á aðrar viðskiptaþjóðir okkar og halda fram, að þær vilja koma íslenzka lýðveldinu á kné til að geta haft ráð þess í hendi sér. Einnig reyna kommúnistar að nota Sovétviðskiptin til að komast í ríkisstjórn hér á landi, enda var Pravda varla búið að birta til- kynninguna um Bresnev-fund- inn, þegar Þjóðviljinn lýsti því með fögrum orðum í ritstjómar- grein, að viðskipti við Sovétrík- in hefðu eiginlega aldrei tekizt, nema þegar kommúnistar sátu í ráðherrastólum! Tvær varhugaverðar hliðar '• eru ávallt á viðskiptum við Sovét ríkin. Önnur er sú, að kommún- isminn liggur undir harðri gagn- rýni fyrir að nota milliríkjavið- skipti sem pólitLskt vopn, og em til mörg dæmi þess ófögur. Hin er þess eðlis, að Rússar bjóða smærri þjóðum aðeins vöra- skipti, þótt þeir geti greitt gull fyrir hveiti og aðrar nauðsynjar, þegar þeim sýnist. Það spillir fyrir eðlilegum við- skiptum íslands og Sovétríkj- anna, að kommúnistar hér á landi nota þau svo mjög í flokka- baráttu og ætla nú sýnilega að bjarga sér á þeim eins og flot- holti gegnum klofning og óáran innan flokksins og einangrun í landsmálum. íslendingar vilja verzla með afurðir sínar og tryggja nauð-' synlega aðdrætti. En þeir vilja ekki verzla með sjálfsforræði sitt eða blanda erlendum við- skiptum í innanlandsmál. Þessu gleyma kommúnistar, þegar Sovétrikin eiga í hlut. Einkennileg synjun Eins og fram kemur í frétt I Mbl. í dag, neitaði Framleiðslu- ráð landbúnaðarins hinu ný- stofnaða kaupfélagi Ámesinga á Selfossi, Kaupfélaginu Höfn, um slátrunarleyfi í haust. Kaupfélag ið Höfn, sem mun telja íim 300 félagsmenn, keypti, eins og kunnugt er, allar eignir S. Ó. Ólafssonar & Co., þ.á.m. slátur- hús og frystihús í fullkomnu lagi, enda fékk fyrmefnd verzl- un alltaf slátrunarleyfi möglun- arlaust. Nú átti hins vegar að níðast á hinu nýstofnaða sam- vinnufélagi og veita því minni rétt en kaupmaðurinn hafði áður. Af þessum sökum varð að gefa út bráðabirgðalög, og segir svo í forsendum þeirra, „að Fram- leiðsluráð landbúnaðarins hafl synjað nýstofnuðu samvinnufé- lagi, sem eignazt hefur og tekið w við rekstri sláturhúss, leyfis til slátrunar, þótt fyrri eigandi hafi haft leyfi til slíkrar starfsemL Að þessu leyti nýtur samvinnu- félag ekki sama réttar og kaup- maður í sömu aðstöðu, jafnvet þótt félagsmenn skipti hundruð- um“. Hver ástæða skyldi hafa legið að baki synjunarinnar?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.