Morgunblaðið - 17.09.1964, Page 10

Morgunblaðið - 17.09.1964, Page 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 17. sept. 1964 Kommúnistaleiðtogi á banabeði léttir á sér 99 Erfðaskrá“ Togliatti birt í Pravda eftir árangurslausa stöðvunartilraun Birtist svo daginn eftir í „Þjóðviljanum46 MOSKVUBLAÐIÐ Pravda birti 10. þ. m. minnisblöð italska kommúnistaleiðtogans Palmiro Xogliatti, sem lézt nýlega í Jalta rúmlega sjö- tugur að aldri. Minnisblöð þessi eru talin stjómmálaleg erfðaskrá Togliattis, sem í áratugi hefur verið valda- mesti kommúnistaleiðtoginn á Vesturlöndum. I minnisblöðunum kemur fram mikil gagnrýni á stefnu kommúnista, einkum Peking- stjórnarinnar ^em hann vísar á bug. Hann gagnrýnir einnig tilraunir Moskvustjórnarinn- ar til þess að kalla saman heimsfund kommúnista til upp gjörs við Peking og telur þurfa miklu meiri undirbún- ing undir fundarhaldið. Hann segir það ekki duga, að varpa allri sök af harðstjóm komm- únismans á Stalín- Leita verði orsakanna að upptökum persónudýrkunarinnar og af- leiðingum hennar. I*á þurfi meira tjáningarfrelsi innan kommúnismans og meira sjálfstæði kommúnistaflokk- anna. Það er athyglisvert skref, sem stigið hefur verið í Moskvu með birtingu minnis- blaðanna, þrátt fyrir gagn- rýni á stefnu rússneska kommúnistaflokksins. Er þetta í fyrsta skipti, sem slík gagnrýni kemur fyrir augu rússneskra blaðalesenda, en Pravda kemur út í 6 milljón eintökum. - Stjórnmálafréttaritarar í Moskvu telja, að tvennt hafi valdið því, að Pravda birti minnisblöðin. í fyrsta lagi hefði það orðið mikill álits- hnekkir fyrir rússneska kommúnistaflokkinn, ef hann hefði hindrað birtinguna en minnisblöðin höfðu skömmu áður birzt í kommúnistablöð- um á Ítalíu. í öðru lagi er tal- ið, að hér sé verið að sýna kín verskum kommúnistum, að rússneska flokknum sé alvará, þegar hann hefur hvatt til umræðna um randamál kommúnismans. „Þjóðviljinn“ blað komm- únista hér á landi birti minn- isblöðin fyrir helgi og sama hafa kommúnistablöð um heim allan gert Á sama tíma og kommún- istaflokkar Vestur-Evrópu krefjast aukins sjálfstæðis frá Moskvu, þá vinna ís- lenzkir kommúnistaleiðtogar hollustueiða austur í Moskvu. Árangurslaus stöðvunartilraun Palmiro Togliatti var fæddur árið 1893. Hann stofn- aði ítalska kommúnistaflokk- inn árið 1919, en flokkurinn hefur frá styrjaldarlokum verið stærsti kommúnista- flokkur vestan járntjaldsins. Togliatti var ráðamestur kommúnistaleiðtogi á Vestur- löndum og mikill vinur Stal- ins og annarra valdamanna í Rússlandi. Hann var búsettur í Sovétríkjunum í mörg ár. Togliatti fylgdi Krúsjev að málum, þegar hann afhjúp- aði Stalín og fyrir nokkrum árum fór mjög að bera á efa- semdum hans á ýmsum bar- áttuaðferðum og markmiðum kommúnista og var hann af mörgum talinn leiðtogi þeirra kommúnista, sem höfðu í frammi sjálfstæðistilhneig-ing- ar eftir fall Stalins. Minnisblöðin ritaði hann í Jalta við Svartahaf í Rúss- landi skömmu áður en hann lézt úr heilablóðfalli. Þessi stjórnmálalega erfðaskrá er 4500 orð að lengd og mun upphaflega ekki hafa verið ætluð til birtingar. Togliatti mun síðar hafa fengið eftir- mann sinn á Ítalíu, Luigi Longo til þess að sjá um birt- ingu. Reyndi sérstakur sendi- maður Krúsjevs, Leonid Brezhnev, árangurslaust að fá Longo til þess að falla frá birtingunni. Minnisblöðin birtust fyrst í aðalblaði kommúnista á Ítalíu, L‘Unita, er birtust í heilu lagi í Pravda hinn 10. þ.m. Þann dag verður birting minnisblaðanna því „stefna" þeirra kommúnistablaða, sem fylgja rússneska flokknum að málum, en ekki upp- reisnartilraun gegn honum. Daginn eftir eða 11. þ.m. hefst síðan birting minnisblaðanna í „Þjóðviljanum“. Hafa þau verið birt þar í heild sinni. Minnisblöðin bera þess merki, að þau eru rituð af sanntrúuðum kommúnista af gamla skólanum. Það er einn- ig einkennandi, að þau höfða til flokksbundinna kommún- ista, enda fjalla þau fyrst og fremst um vandamál þeirra. Þar kemur engu að síður fram margt forvitnilegt og nytsamt til skilnings á þeim plágum, sem nú herja komm- únismann. Það sem hér verð- ur tekið upp orðrétt úr minnis blöðum Togliattis er eftir þýðingu „Þjóðviljans". Ýtir undir brot gegn flokksaganum Togliatti fjallar fyrst um aðferðir til þess að hrekja kenningar Kínverja. Gagn- rýnir hann mjög tilraunir ráðamanna í Sovétríkjunum til þess að boða til heims- fundar kommúnista um deil- urnar. Telur hann slíkan fund til þess fallinn að auka klofn- ing í hinum einstöku komm- únistaflokkum. Um þetta atriði sagir hann: „f þessu sam’bandi þykir mér athyglisverð reynsla okkar flokks. Við höfum í flokknum * og útjöðrum hans nokkra félaga og fylgjendur sem hallast að skoðunum Kínverja og halda uppi vörnum fyrir þá. Við höfum orðið að víkja einstaka félaga úr flokknum sem gerzt hafði sekur um klofningsstarf- semi og brotið gegn flokks aganum. En meginstefnan hefur verið sú að halda upp í öllum deildum flokks ins stöðugum umræðum um öll þau atriði sem á- greiningur er um við Kín- verja. Beztur árangur hef- ur jafnan fenigizt, þegar við höfum látið hin al- mennu atriði ligigja milli • hluta (eðlf heimsvalda- stefnunnar og ríkisvaldsin? hreyfiöfl byltingarinnar o.s.frv.) en höfum tekið fyrir ákveðin mál sem snerta daglega baráttu okk ar (andstöðuna gegn stjórn Palmiro Togliatti, ítalskl kommúnistaleiðtoginn og vin- ur Stalíns, sem leisti frá skjóðunni á banabeði sinu austur í RússlandL inni, gagnrýni á sósíalista- flokkinn, eininguna í verka lýtðshreyfingunni, verk- föll o.s.frv.). Gagnvart þessum atriðum' eru rök- deilur Kínverja gersam- lega máttlausar og út í hött“. Klofningurinn gæti orðið alger Þessu næst ræðir Togliatti nokkuð um horfurnar í al- þjóðamálum og segir, að haiga verði "baráttunni gegn Kín- verjum með það í huga. Þá tekur hann fyrir þróunina í samtökum kommúnista. Varar hann við bjartsýni og segir, að kommúnistaflokknum hafi ekki tekizt að framkvæma raunhæfar pólítískar aðgerð- ir utan kommúnistaríkjanna. Það sé nauðsynlegt að rjúfa þá einangrun og taka virkari þátt í stjórnmála og félags- legri baráttu landanna. Síðan segir hann: „Það er einnig af þessari ástæðu að við höfum jafn- an verið og erum enn mjög vantrúaðir á gagn- semi alþjóðaráðstefnu, enda þótt við höfum ævin- leiga talið sjónarmið Kín- verja röng og hættuleg, ef slík ráðstefna væri ein- göngu eða aðallega haldin til að fordæma þessi sjón- armið eða berjast gegn þeim, og það einmitt vegna þess að við höfum óttazt oig óttumst enn að á þenn- an hátt verði kommúnista- flokkar auðvaldslandanna hraktir í öfuga átt við þá sem við teljum nauðsyn- lega, svo að þeir lamist af innbyrðis deilum, sem eru í eðli sínu einvörð- ungu hugmyndafræðilegar, fjarri öllum raunveru- leika. Hættan yrði sér- lega mikil ef afleiðing- in yrði yfirlýstur klofning- ur hreyfingarinnar með myndun alþjóðlegrar mið- stöðvar í Kína sem myndi stofna sínar „deildir" í öllum löndum. Allir flokk- arnir og þó einkum þeir sem veikastir eru myndu verða að eyða miklum hluta starfs síns í deilur og baráttu gegn þessum svonefndu „deildum“ í nýju „Alþjóðasam'bandi“. Þetta myndi draga úr baráttu- kjarki fjöldans og torvelda rnjög alla framþróun hreyf ingar okkar. Það er rétt, að klofningstilrauna Kín- verja gætir þegar mjög í nærri öllum löndum, en nauðsynlegt er að koma í veg fyrir að fjöldi þessara tilrauna hafi í för með sér eðlisbreytinigu, eða megind verði að eigind, þ.e. að klofningurinn verði alger“. Einbeittni og klókindi í verkalýðsmálum Þá ræðir Togliatti þróun- ina í efnahagsmálum í „auð- valdslöndunum“ og minnir á aukna heildarstjórn og áætl- ana*gerð. Það sé nauðsynlegt fyrir kommúnistaflokkana að leggja sjálfir fram sínar eigin tillögur, því að slíkt pólí- tískt frumkvæði geti aukið mj ög fylgi kommúnista i þeim félagshópum, sem enn hafi ekki gengið til liðs við kommúnismann. Um verkalýðsbaráttuna segir hann síðan: „Eftir því sem áætlunar- gerð og heildarstjórn auð- valdsins á atvinnulífinu færist í vöxt versnar að- staða verkalýðsfélaganna. Verulegur þáttur í heild- arstjórninni er nefnilega hin svonefnda „tekjupóli- tík“, sem felur í sér marg- þættar aðgerðir í því skyni að hindra frjálsa kaup- gjalds'baráttu; kaupgjald- inu er haldið í skefjum með eftirliti að ofan og bannaðar allar kauphækk- anir sem fara fram úr vissu marki. Þetta er póli- tík sem er dæmd til að mistakast (í því sámbandi er athyglisvert dæmið frá Hollandi), en því aðeins mistekst hún að verka- lýðsfélögin kunni að haga baráttu sinni af einbeittni og klókindum og tengi kjarabótakröfur sinar kröfunni um efnahagsleg- ar umlbætur oig áætlun um efnahagsþróun sem sé í samræmi við hagsmuni verkamanna og millistétt- arinnar. En verkalýðsfélögin geta ekki lengur, eins og nú er ástatt á vesturlöndum, háð baráttu sína einvörðungu í hverju landi fyrir sig. Baráttuna verður einnig að heyja á fleiri þjóða vettvangi, með sameigin- legum kröfum og aðgerð- um. Og hér er ein alvar- legasta veilan í hreyfingu okkar. Hin alþjóðlegu verkalýðssamtök okkar (WFTU) láta sér nægja almenna áróðursstarf- Guðleysisáróðurinn óhæfur Togliatti heldur áfram að ræða vandamál og baráttu- aðferðir kommúnista í bong- aralegu þjóðfélagi. Fyrst ræð- ir hann viðhorfið til trúar- bragða og einkum kaþólsku kirkjunnar. Segir hann mikla möguleika á því að efla vinstri hreyfingu innan kirkj- unnar, og segir síðan: „í því skyni er hinn gamli guðleysisáróður gersamlega óhæfur“. Síðan segir: „Við verður að taka öðrum tökum en áður . sjálft vandamál trúarvit- undarinnar, eðli hennar og rætur í fjöldanum, ef við ætlum okkur að eiga að- gang að hinni kaþólsku alþýðu og viljum að hún skilji okkur. Gerum við það ekki, verður hin „út- rétta hönd“ okkar til ka- þólskra túlkuð sem einber hentisemi, ef þá ekki sem hræsni“. Er hægrt að taka völdin í borgaralegu þjóðfélagi? Togliatti verður síðan tíð- rætt um „friðsamlega leið til sósíalismans" og fjallar um nauðsyn þess að aðhæfa starf 'kommúnista stofnunum hins borgaralaga þjóðfélags. Um það atriði segir hann m.a.: „Þegar við hugleiðum og ákveðum stefnu okkar í heild höfum við að leið- arhnoða og höfum ævin- lega talið að við ættum að hafa niðurstöður 20. þings- ins. En í dag þarf að fjalla að nýju einnig um þessar niðurstöður og draiga af þeim nýjar ályktanir. Til dæmis má nefna að frekari athugun á kenningunni um að hægt sé að fara frið samlega leið til sósísalis- máns knýr okkur til að skilgreina nánar hvað við eigum við með lýðræði í borgaralegu þjóðfélagi, hverniig færa megi út kvíar frjálsræðisins og lýðræðis- stofnanna og hvernig sé heppilegast að haga aðild hins vinnandi f jölda ’ að efnahags- og stjórnmála- lífinu. Þarna kemur upp spurningin um hvort Framliald á bls. 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.