Morgunblaðið - 17.09.1964, Blaðsíða 17
nmmtudagur 17. sept. 1964
MORCU N BLAÐIÐ
17
— Siglufjörður
Framhald af bls. 8
stofur og aðra starfrækslu fyrir
bæjarfélagið. Fyrsti áfangi í
þeirri byggingu er húsnæði fyrir
bókasafn bæjarins, nýtízkuleg
húsakynni með 350 fermetra gólf-
fleti. Verður bókasafnið opnað í
þessum nýju húsakynnum í
haust. Vegna hins erfiða árferðis
hefur orðið að stilla bygginga-
framkvæmdum á vegum bæjar-
ins mjög í hóf og bíða þess að úr
rætist. Um byggingar almennt er
það að segja, að á þessu ári eru
allmargar íbuðir í smíðum og
bendir það ótvírætt til þess að
bjartsýni ríkii' enn og trú á hag-
sæld í Siglufirði, þótt móti blási
um sinn.
— Er fjör í félagsmálastarf-
starfseminni í bænum?
— Auk hinna almennu skóla
hefur verið starfrækt æskulýðs-
heimili með mjög góðum árangri
tvö síðustu árin. Æskulýðsráð
annast þá starfsemi og stuðlar
hún vafalaust að góðu uppeldi
unglinganna. f sambandi við í-
þróttir mætti helzt nefna, að
siglfirzkt skíðafólk hefur um ára-
bil skarað fram úr, enda er að-
staða til skíðaiðkana mjög góð.
Siglfirzkir knattspyrnumenn hafa
orðið Norðurlandsmeistarar
nokkrum sinnum og verður það
að teljast vel gert, þar sem að-
staða til æfinga í sumarannrík-
inu er oft mjög óhagstæð.
í tónlistarmálum hefur verið
mikil grózka. Tónlistarskóli er
starfræktur og er aðsókn að hon-
um mikil og kennsla fjölbreytt.
Karlakórinn Vísir, sem er löngu
landskunnur, hefur haldið uppi
söngstarfi með góðum árangri.
Lúðrasveit hefur einnig starfað
með miklum dugnaði. Leiklistar-
starfsemi hefur verið oft með
miklum ágætum.
— Hvað viltu segja um fram-
tíðarhorfur bæjarfélagsins, Sigur-
jón?
— Siglufjörður er í öldudal,
það er tvímælalaust. Síldveiðar
hafa brugðizt fyrir Norðurlandi
og bitnar það mest á Siglufirði.
Fólk hefur flutt burtu og eru or-
sakirnar fyrst og fremst þær, hve
öryggið er lítið í atvinnumólun-
um. Einangrun bæjarins hefur
einnig átt nokkurn þátt í eirðar-
leysi manna til búsetu í þessum
sérkennilega og fallega bæ. En
nú verður einangrunin senn rofin
með Strákavegi og nýjum flug-
velli.
Einhæft atvinnulíf hefur valdið
Siglufirði erfiðleikum, sem fá
önnur byggðarlög hefðu risið
eins vel undir þrátt fyrir allt.
Fjölbreytni í atvinnuháttum er
því það, sem keppa verður að og
treysta á í framtíðinni.
Aðsteðjandi vandamál eru að
ejálfsögðu erfið viðfangs, en þau
gætu orðið til að vísa á leiðir til
betra fyrirkomulags á framtíðar-
málefnum Siglufjarðarkaupstað-
•r.
í' stuttu máli: í>að er ástæðu-
laust að missa kjarkinn þótt á
móti blási um sinn. Erfiðleikarn-
ir eru til að sigra þá.
VÉLAHREINGERNINGAR
OG TEPPA-
HREINSUN.
1‘ÆGILEG
KEMISK
VINNA,
ÞÖRP — SÍMI 20836.
Jarðýtan sf.
Til leigu:
Jarðýtur 12—24 tonna.
Amokstursvélar
(Payloader)
Gröfur.
Sími 35065 og eftir kl. 7
— sími 15065 eða 21802.
- ÚTVARPIÐ
Framhald af bls 6.
,,Með Kurdum i
Lrak“, Kurdar
eru sérstök þjóð
í Austurlöndum
nær, sem lengst
af hefur sætt
kúgun af hálfu
annarra þjóða.
Þeir eru nú
dreifðir um 5
þjóðlönd: írak,
Erlendur Persíu, Sovétrík
Haraldason in, Sýrland og
Tyrkland. Al'ls
eru Kurdar taldir um 12 milljón
ir, þar af er um helmingurinn i
Tyrklandi. Þar í landi mega þeir
ekki einu sinni kalla sig Kurda,
heldur Fjalla-Tyrki.
í hinum löndunum öllum
hafa Kurdar sætt afsóknum af
hálfu stjórnarvalda viðkomandi
landa, en nýjustu múgmorðstæki
hafa ekki enzt til að brjóta þessa
þrautseigu þjóð á bak aftur.
Hörðust hafa átökin verið í írak
undanfarið, en þar dvaldi Erlend
ur um skeið með Kurdum og
mun segja nánar frá því í síðara
erindi sínu, föstudaginn 18.
september.
„1 vikulokin“ var m.a. rætt
um umferðarmál og ökukennslu.
Umferðarreglur gerast stöðugt
margbrotnari og flóknari og ný
viðhorf skapast svo að segja
með ári hverju. Veldur því auð-
vitað bæði vaxandi þéttbýli og
útþensla borgarinnar, vaxandi
fjöldi farartækja o.fl. Umferða-
slysum fjölgar, þrátt fyrir bætta
ökukennslu. Sumir kenna um á-
fengisneyzlu og (eða) óvarkámi
bílstjóranna, aðrir óvarkárni veg
farenda, og líklega er þessu oft
hvoru tveggja til að dreifa, En
oft hlýtur maður að furða sig á
hraða ökutækja um fjölfarnar
götur. Stundum þurfa vegfar-
endur að bíða 5-10 mínútur til að
komast yfir götu og iþurfa þá
oft að beita ýtrasta hraða, til
að ná yfir óskemmdir. Slíkur
er ofsi aðvífandi bíla.
Hvers konar umferðamenning
er það, að fótgangandi menn
skuli þurfa að þreyta kapphlaup
upp á lífið við vélknúin öku-
tæki? Bifreið er hættulegt
tæki, og hvað sem öllum laga-
fyrirmælum líður, finnst mér
það ávallt brútalt og bera merki
um óvarkárni að aka bifreið
hratt að fótgangandi manni. f>að
er ekki ólíkt því að beina byssu
hilaupi að manni ,,í meinleysi“
Oft virðast slysin verða á
þeim hluta götunnar, sem er nær
áfangastað vegfaranda, stundum
hefur vegfarandi greinilega háð
æðisgengið kapphlaup við öku-
tækið, sem keyrði yfir hann. Því
er von að menn spyrji: Er ekki
hægt að komast hjá þessum
kapphlaupum á götunum?
Vitanlega ganga vegfarendur
oft í gáleysi út á götuna. En
þeir eru þó óvopnaðir. Þeir
ógna engri bifreið. Ökumaður
við stýrið er ekki vopnlaus mað-
ur. Hann hefur hættu-
RÓÐULL
□ PNAÐ KL. 7
SÍ-MI 1S327
Borðpantanir í síma 15327
Söngvarar
Hljómsveit
Trausta Thorberg
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Grundarstíg 2A
Sími 15659. Opin kl. 5—7 alla
daga, nema laugardaga.
Róðshonu eða bryta
og 2 hjálparstúlkur vantar nú þegar að mötuneyti
héraðsskólans í Reykjanesi við ísafjarðardjúp. —
Upplýsingar í síma 24256 og 19295.
Skólastjóri.
s|S ÖRFA SKREF
augavegi^
REST BEZT-koddar
Endurnýjum gömlu sœng-
urnar.eigum dún-og (idurheld ver.
iELJUM ædardúns-og gæsadúnssæng
ur og kodda af ýmsum stærdum.
legt vopn í höndum sér, og
hann á vald á lífi vegfarenda.
Hann hefur þó hvorki heimild
til að beita því valdi, né heldur
að ógna 'vegfarendum með þvL
Tvisýnt kapphlaup við vegfarend
ur má aldrei þreyta. Lífið á alit
af réttinn, jafnvel þótt það sé
„oí!f-side“.
Sveinn Kristinsson
k
I gær var hið nýkeypta skip Jökla h.f., fyrrverandi Hvítanes-
ið, skírt og hlaut nafnið Vatnajökull. Skírnarathöfnin fór fram
á Faxagarði. Frú Rannveig, kona Sturlaugs Böðvarssonar á Akra-
nesi, gaf skipinu nafn og braut kampavinsflösku á stefni þess.
Hér sést hún ásamt Ólafi Þórðarsyni, forstjóra Jökia.
Ljósm.: Ól. K. Mag.
Sendisveinn óskast strax
G. Þorsteinsson & Johnson hf.
Grjótagötu 7.
^M-fahöttiomAko
HERRADEILD
Gtikkland
í sambandi við brúðkaup Konstantfns konungs og
prinsessu Onnu Maríu þann 18. þ.m. liggur frammi
á ræðismannsskrifstofu Grikklands á 5. hæð í Aðal-
stræti 6, (Morgunblaðshús) heillaóskaskrá.
Ollum, sem árna vildu konungshjónunum heilla,
er boðið að rita nöfn sín þar á.
Skráin liggur frammi dagana 17. og 18. þ.m.
frá kl. 10 — 12 og 1 — 4.
Bragi Eiríksson,
Ræðismaður Grikklands á íslandi.
JEANNETTE LUCAS.
fegrunarsérfræðingur fró
LANCOME
verður til viðtals í dag og
á morgun og leiðbeinir
viðskiptavinum vorum um
val og notkun snyrtivara.
Pantið tíma í snyrt-
ingu hjá Mme Lucas
með fyrirvara.
Tízkuskóli ANDREU
Skóiavörðustíg 23.