Morgunblaðið - 17.09.1964, Page 24

Morgunblaðið - 17.09.1964, Page 24
} J’*7A'l7AS£r | SAUMAVÉLAR %HekÍB LAUGAVEGI *>ri0wtiMíJíí>ili 217. tbl. — Fimmtudagur 17. september 1964 E LE KTROLDX UMBOÐIÐ ÍAUOAVtGI S9 ifml 21800 60 jbús- und kall AKRANESI. 16. sept. Tvo þreklega og myndarlega bræður hitti ég í dag, sem voru nýkomnir að ’austan frá Eskifirði, sem eitt sinn var öndvegisbær á Austfjörðum og lifir nú í endur- nýingu lífdaganna, eins og fleiri staðir austur þar. Þeir unnu í síld á plani, a.m.k. 10 klst. á dag að jafnaði og dvöldust þar í rúma tvo mánuði. Sextíu þús- und krónur fékk hvor þeirra í kaup fyrir tímann. — Oddur. 4 Liisiferar í Eyjum ÞORSTEINN Víglundsson í Vestmannaeyjum hringdi til okkar í gær í sambandi við frétt blaðsins um kynjáfiskinn Lusifer, sem fannst 77 sjó- mílur út af- Dalatanga s.l. mánudag. „Við eigum fjóra uppsetta fiska af þessari tegund í Fiska safni Eyjabúa. Þeir hafa veiðzt hér í dragnót á undan- förnum árum,“ sagði Þor- steinn. ',,Sá stærsti er 60 sm að lengd, en sá minnsti 20 sm, og veiddist hann í sumar." Þá sagði Þorsteinn að Fiska safnið ætti fleiri sjaldgæfar fiskategundir, t. d. væru þar tveir kólguflekkir. Veiddist annar þeirra fyrir tveimur ár um en hinn í sumar. Fiskanir eru steypti í gips og uppsettir þannig. Mikil og tignarleg s|ón FRÉTTARITARI blaðsins á Siglufirði, Steingrímur Krist- insson fór á m.b. Hjalta út að borgarísjaka, sem var 7—8 sjómílur frá landi, og tók með fyigjandi myndir af honum. — Það var mikil og tignar- leg sjón að sjá þetta ferlíki gnæfa 20—40 metra hátt yfir sjávarmál og 100—‘150 m. á breidd, þar sem jakinn er breiðastur, segir Steingrímur. Og þó er þetta sennilega að- eins 1/9 hlutinn af jakanum, hitt mun vera neðansjávar. Hann segir svo frá ferðinni: — S. 1.' laugardag sá ég fyrsta borgarísjakann á minni 30 ára ævi, en þá var jakinn eins og smádepill úti við sjón deildarhringinn. Á mánudag var sami jaki staddur út af Siglufirði, ásamt öðrum minni 1—2 sjómílur utar. Hafði sá stóri á sunnudag verið á hraðri ferð austur með land- inu, þrátt fyrir austan kalda og sjó, en á mánudag var farið að hvessa meira og jakinn snú inn við og hélt í vestur undan veðrinu, ásamt minni jakan- um. Sást vel til jakans bæði á sunnudag og mánudag frá Siglufjarðarkaupstað. Bar hann yfir Siglunesið eins og stór snjóhvít eyja, glæsileg að sjá. Utan af ströndinni sást hann betur og var mikil um- ferð um veginn úteftir. Bílar fóru með fólk með sjónauka, sem vildi virða þessa tignar- legu og sjaldgæfu sjón fyrir sér. . Smalað í Dölum 260 þús. kr. sekt ÍSAFIRÐI, 16. sept. Bæjarfógetinn á ísafirði, Jó- hann Gunnar Ólafsson, kvað í dag upp dóm í máli Birch skip- stjóra á brezka togaranum Dragoon frá Fleetwood, sem stað inn var að ólöglegum veiðum undan Barða í fyrrinótt. Skip- stjóri viðurkenndi brot sitt og var hann dæmdur í 260 þús. kr. sekt til Landhelgissjóðs og afli og veiðarfæri gerð upptæk. Skip- stjóri áfrýjaði dóminum. Eftir að hafa sett tryggingu fyrir sektar- fé, fór togarinn héðan síðdegis í dag. — H. T. Samúð á Akranesi AKRANESI, 16. sept. Hér voru allar búðir lokaðar í gærdag frá kl. eitt til kl. fjögur e. hád. og fánar blöktu í hálfa stöng hvarvetna í bænum, vegna jarðarfarar Dóru Þórhallsdóttur, forsetafrúar. — Oddur. KLUKKAN 10 í gærmorgun rák ust togararnir Askur frá Reykja vík og Víkingur frá Akranesi sam an á miðunum við Austur-Græn- land. Engin slys urðu á mönnum, en allverulegar skemmdir urðu á brú og lunningu á Aski. Nokkur oliuleki kom að skipinu og dá- lítill sjóleki, en dælur höfðu vel undan, þegar Mbl. frétti til sein ast í gærkvöldi. Vikingur skemmdist nokkuð á bóginum. BÚÐARDAL, 16. sept. Smalað var í Dalahólfi á Veður var gott. B.v. Askur hélt þegar áleiðis til Reykjavíkur á fullri ferð, og b.v. Víkingur fylgir honum eftir. Mun allt vera í lagi, hvað öryggi snertir, á báðum skipunum. Mbl. hefur frétt, að þegar á- reksturinn varð, hafi b.v. Askur verið að toga, en b.v. Vikingur verið laus. Skipin eru væntanleg til Reykjavíkur aðfaranótt föstu- dags. mánudag, eða viku fyrr en venju lega. Gott veður var, og smalað- ist því vel. Nokkurt magn af 'Mýrafé hafði komizt inn fyrir girðinguna, og er það allt flutt í Borgarnes til slátrunar og rann sóknar. Feikileg ásókn er í girð- inguna; sækir féð í hana eins og í tún. Aftur verður leitað á mánu- daginn kemur, og leita Mýra- menn þá einnig sín megin. Verð- ur það fyrsta leit þeirra á þessu hausti. Seinna í þeirri viku verð ur farið í öryggisleitir, svo að landið verði fyrir vist sauðlaust. Er svo búizt við, að Suðurdala- menn fari í fjárkaup um aðra helgi. Ætla þeir að kaupa líf- gimbrar í Miðfirði, þ. e. úr Mið- fjarðarhólfi. Ekki urðu bændur varir við neitt grunsamlegt, sem benti til mæðiveiki. — FréttaritarL Togarar rekast á við Grænland Og nú fór ljósmyndari okk- ar af stað. Hann leigði sér mótorbátinn Hjalta SI 12. Með hann eru svokallaðir Kambsbræður, Grímur og Gunnar Helgasynir, sem fyrr hafa dugað okkur vel, lentu t.d. í sögulegu ferðalagi á sín um tíma í hvassviðri við að koma til okkar myndum af tunnuverksmiðjubrunanum. Steingrímur ljósmyndari tók sem sagt sjóveikitöflu og lagði í hann. En 7—8 yindstig voru, talsverður sjór og þar á ofan kröpp vindbára, og rak veðrið alla undir þiljur áður en 20 mínútur voru liðnar og ekki var liðin klukkustund, þegar Ægi var fómað gómsætum signum fiski ásamt nýjum kartöflum. — Eftir hálfs ann ars tíma siglingu í bansettum hamagangi, hðggum og velt- ingi, miður þægilegum fyrir höfuð, maga og hnjáliði, sló vélstjórinn á Hjalta, Gunnar Helgason, af og andæfði, segir Steingrímur. Mikið var um smáísrek, jakar höfðu brotnað úr borgar ísnum og þurfti að vara sig á þeim. Ekki var hægt að „stíga á land”, bæði vegna sjógangs og brattra hliða jak- ans. Taldi Grímur Helgason, skipstjóri ekki ráðlegt að fara mjög nærri, því ekki er gott að átta sig á hvort brotið í kring um jakann stafar af sogi, sem myndast af grynn- ingum, t.d. ef sá hluti jakans sem er neðansjávar, skagar mikið út undan. En árangur ferðarinnar sést á meðfylgjandi myndum, sem Steingrimur tók af jakanum. H roffa-árekstur í Hafnarfirði Bíllinn kastaðist í Lækinn KLUKKAN 21.10 á þriðjudags- kvöld varð hrottalegur árekstur í Hafnarfirði, þegar unglingar þverbrutu umferðarreglur og stórskemmdu tvo bíla. Engin slys urðu á mönnum. Áreksturinn varð á blindhorni á gatnamótum Lækjargötu og Hverfisgötu við efri brúna. — Leigubíll úr Hafnarfirði af Mercedes-Benz-gerð ók suður Hverfisgötu. Kom þá Moskóvits- bíll úr Kópavogi, sem unglingar voru í, akandi niður Lækjar- götu. Unglingarnir óku allgreitt og glannalega. Sinntu þeir ekki stöðvunarmerki, heldur óku á fullri ferð fyrir blindhornið, sem þarna er. Segjast þeir hafa verið á 55 km ferð. Bílarnir skullu saman af miklu afli og kastaðist Kópavogsbíllinn út í lækinn neðan við brúna. —. Báðir bílarnir skemmdust tölu- vert og þá sérstaklega leigubíll- inn. Hefur bílstjóri hans orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Vegir lokost ÍSAFIRÐI, 16. sept. Kalsaveður og slydda hefur verið hér í dag, og snjóað hefur niður fyrir miðjar hlíðar. Tals- vert hefur snjóað á Breiðadais- heiði og Botnsheiði, og eru veg- irnir þar vart færir öðrum bilum en jeppum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.