Morgunblaðið - 02.10.1964, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.10.1964, Blaðsíða 18
18 MORCU N BLABIÐ Föstudagur 2. okt. 1964 Bílst^óri óskast Viljum ráða röskan mann til útkeyrslu. Nauðsynlegt er vegna vinnutilhögunar, að umsækjendur búi í vesturbænum. — Nánari upplýsingar gefur Starfsmanna- hald SÍS, Sambandshúsinu. Starfsmannahald S I S BoUetskóIi Eddu Scheving Kennsla hefst mánu- daginn 5. október. Innritun í síma: 23-500 daglega frá kL 1—5 e.h. Skírteini afhent í KR- húsinu við Kaplaskjólsveg laugardaginn 3. okt. frá kl. 1—4 e.h. AUSTURBÆINGAR ATHUGIÐ að hraðferð Austurhœr/Vesturbær stoppar við KR-húsið. HEFUR ALUA KOSTINA: HÁRÞURRKAN ★ stærsta hitaelementið, 700 W ★ stiglaus hitastilling, 0-80°C ★ hljóður gangur ★ truflar hvorki útvarp né sjónvarp ★ hjálminn má leggja saman til þess að spara gcymslupláss ★ auðveld upp- setning: á herbergishurð, skáp hurð, hillu o. fl. ★ aukalega fást borðstativ eða gólfstativ, sem einnig má leggja saman ★ formfógur og falleg á litinn ★ sterkbyggð og hefur að baki ábyrgð og Fönix varahlut"- og viðgerðaþjónustu. Ótrúlega hagstætt verð: Hárþurrkan ......... kr. 1095,- Borðstativ ......... kr. 110,- | Gólfslativ ........ kr. 388,- Sendum ura allt land. OKORME K U P HAIM* E TMl Simí 12606 - Suðurgötu 10 - Reykjavík Framhald á bls. 17. fyrir spillingu og lausung og hindra ósækileg erlend áhrif. Uetta hefur tekizt, en um leið hefur tekizt að fela ísland fyrir varnarliðsmönnum og þeir flest ir látnir snúa heim með þá for- dóma, að heiðin, hraunið og girðingin sé það fagra land, sem af er státað í bókum. Að hinn strangi og ósveigjanlegi vörður í hliðinu sé samnefnari fyrir ís- lenzka gestrisni. Að nokkub rispumenni og lausar konur, eem kássast upp á þá í einver- unni séu samnefnari fyrir ís- lenzká menningu og sýnishorn niðja frægra miðaldarmanna. Frá því að varnarsamningur- inn var gerður árið 1951 hafa dvalið hér árlega u.þ.b. 4000 her menn. Á þessum tíma má reikna með, að héðan hafi snúið allt að 50 þúsund Bandaríkjamenn, sem hafi óbeit á flestu því, sem íslenzkt er. Á sama tima er eytt stórfé og fyrirhöfn til landkynn ingarstarfsemi! Ég hef rekið mig illilega á þessa staðreynd, bæði í viðtölum við varnarliðs- menn hérlendis og eins hjá mönnum vestan hafs, sem hér hafa dvalið eða ættingjum þeirra, sem heyrt hafa um fín- heitin í bréfum eða samtölum. V Sumir segja, að sambúðin sé betri við bándaríska flotann, sem nú stjórnar varnarstöðinni. bað sé vegna þess, að flotinn kunni betur að umgangast er- lendar þjóðir. En kunnum við að umgangast erlendar þjóðir, en þar í flokki ber tvímælalaust að flokka varnarliðsmenn? Nið- urstaðan verður sennilega sú, að þeirri spurningu verði að svara neitandi. Það er mikill löstur í íari islenzkrar þjóðar, sem væntanlega stendur til bóta, þeg ar fram líða stundir. Svo skammt er síðan einangrun Is- lands var rofin. Við verðum að kunna að sýna erlendum mönnum, ferðamönn- um og varnarliðsmönnum, sjálf- sagða kurteisi og umburðar- lyndi. Ef okkur finnst við fínni, en slíkt fólk, þá verður að dylja það vandlega. Við krefjumst kurteisi og umburðarlyndi í um gengni meðal okkar sjálfra. Við krefjumst þess sama af erlend- um mönnum. Það er ekki nóg að kæfa einstaka ferðamenn og sérstaka gesti í yfirborðsmikilli gestrisni, jafnvel þótt þeir rómi viðtökur í viðtölum við dag- blöðín í staðinn. Slíkt hól getur ef til vill dillað okkur sjálfum, en það er þó fjöldinn, sem ræð- ur því orði og áliti, sem af okk- ur mun fara meðal annarra þjóða. Með þetta í huga, eru hinar ströngu reglur um ferðir varnarliðsmanna og framkoma gagnvart þeim almennt svartur blettur á þjóðinni, ef ekkert kemur á móti. V Þá er það sjónarmið, hvort hið sérstaka verkefni varnar- liðsins hér á landi leggi okkur auknar skyldur á herðar. Skal ekki tekin afstaða til þess hér, en nefna má, að varnarliðsmönn um gæti fundist þeir vera hér jafnt okkar vegna og vegna hagsmuna þjóðar sinnar. Gætu þeir því spurt, hvers þeir eigi að gjalda og þótt þeir uppskera nokkurt vanþakklæti fyrir. Þetta er þó ekkert aðalatriði, heldur er það sjálfsvirðing okk- ar og orðstír, sem kallar á menn ingarlegri sambúð við yarnar- liðið, eins og aðra útlendinga, bæði vinveitta og óvinveitta. V Nú má því spyrja: Hvað er þá til ráða? Hinar ströngu regl- ur eru nauðsynlegar og ná til- gangi sínum til varnar lausung og eftirlitslausum erlendum á- hrifum. En einmitt vegna þess- ara reglna, verðum við sjálfir að hafa atbeina að menningar- legum samskiptum við varnar- liðið. Gefa liðsmönnum kost á því að kynnast íslandi, íslend- ingum, íslenzkum lifnaðarhátt- um og menningu. Sumir segja, að varnarliðs- menn séu upp til hópa slíkur dæmalaus og afmenntaður skríll, að ekki sé unnt að vera neitt við þá riðnir. Slíkar full- yrðingar eru vitaskuld fráleitar og ekki til annars, en lýsa hug- arfari, þótta og vanþekkingu þeirra, sem þeim beita. Og setj- um svo, að þeir séu svo menn- ingar og fræðilega minnimáttar og ýmsir hatursfullir hernáms- andstæðingar gefa í skyn, hver er þá hættan fyrir okkur, þessi andlegu ofurmenni! Væri ekki nær að reyna að varpa Ijósi menningar inn í sálarskugga þessara manna? ~ V Ríkisvaldið og önnur stjórnar völd hafa sinnt skyldu sinni með framkvæmd varnarsamn- ingsins og setningu öruggra reglna. Þetta málefni, sem hér hefur verið reifað, er því í hönd um borgaranna. Það er ekki hægt að ætla stjórnarskrifstofu að sýha hópi erlendra manna kurteisi og umburðarlyndi fyrir hönd borgaranna. Það verða þeir að gera sjálfir og nokkuð almennt. Hér er því verðugt verkefni fyrir frjáls samtök borgaranna. Að skipuleggja kynnisferðir og móttöku fyrir þá varnarliðs- menn, sem óska þess að kynnast því íslandi, sem við þekkjum og erum stolt af. Að gangast fyrir fræðslu og fyrirlestrum fyrír varnarliðsmenn um ís- lenzk málefni. Á þennan hátt gegnum við vanræktum skyld- um húsráðanda og veitum varn- arliðsmönnum um leið tækifæri til þess að verja tómstundum sinum á meira uppbyggjandi hátt, en ráfa um götur Reykja- víkur. Það er það eina, sem við höfum haft upp á að bjóða til þessa. Járnsmiðir Fyrirtæki vill ráða til sín járnsmið eða mann vanan járnsmiðavinnu um óákveðinn tíma. Tilboðum, sem veita upplýsingar um fyrri störf ásamt kaupkröfu sendist afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld, 5. okt., merkt: „Góð vinnuskilyrði — 4479“. Kópavogur Afgreiðslustúlku vantar nú þegar. Verzlunin Vo§ur Víghólastíg 15. Nýjasta tízka Fæst hjá: Merradeiicl P & 6 Austurstræti 14. — Sími 12345. F 4 C O Laugavegi 37. — Sími 18777. Herratízkam Laugavegi 27. — Sími 12303. Fást ennfremur víða út á landi. Söluumboð: S O L I D O Umboðs- og heildverzlun. BoJholti 4. — Sími 18950. BEATLES jakkar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.