Morgunblaðið - 02.10.1964, Page 30
30
MORCUNBLAÐIÐ
Fostuclagur 2. okt. 1964
Bandaríkjamenn
ætla sér 97 gull
Iþróttablað spáir um úrslit i frjálsum
HIÐ mikla bandaríska íþrótta
blað „Sport Illustrated" gefur út
þann 5. okt. n.k. aukablað vegna
Olympíuleikana þar sem fjallað
er um leikina á 40 síðum. í spá-
dómum sinum um úrslitin kemst
blaðið að þeirri niðurstöðu að
Bandaríkjamenn muni hljóta 97
gullverðlaun en Sovétríkin 94.
Blaðið segir að Bandaríkjamenn
muni hafa yfirburði í frjálsíþrótt
um og sundi, en Rússar muni enn
sem fyrr sýna meiri alhliða getu
og verða stighærri en Bandaríkja
menn í hinni óopinberu stiga-
keppni leikanna. — Blaðið lýsir
bandaríska frjálsíþróttaliðinu á
þann hátt, að það sé sterkasta lið
sem nokkurt land hafi nokkru
sinni átt og spáir að sett verði
15—24 Olympíumet í frjálsum
íþróttum einum saman.
QÍRP
Blaðið birtir spádóm sinn um
hvernig frjálsiiþróttaverðlaunin
skiptist Og hverjir vinni þau. Fer
spádómurinn hér á eftir:
100 m hlaup: Carr (USA), Figu
erola (Kúbu), Jerome (Kanada).
200 m hlaup: Carr (USA), Ro-
herts (Trinidad), Ottolina (ítal.)
4x100 m boðhlaup: USA, Frakk
land, Ítaiía.
400 m hlaup: Mottley (Trini-
dad), Larrabee (USA), Williams
(USA).
4x400 m boðhlaup: Bandaríkin,
Þýzkaiand, Bretland.
800 m hlaup: Snell (Nýja-Sjá-
land), Groth (USA), Siebert
(USA).
1500 m hlaup: Snell (Nýja-
Sjáland), Burleson (USA), O’
Hara (USA).
5000 m hlaup: Schul (USA),
Clarke (Ástralíu), Baillie (Nýja
Sjáland).
10 000 m hlaup: Clarke (Ástra-
líu), Bolotnikov (Sovét), Hal-
01d boys leikfimi
hjd Ármtuini
OLD BOYS-leiktfimi verður
í vetur á vegum Glímufélagsins
Ármanns, en sú starfsemi hefur
notið mikilla vinsælda á undan
gengnum ánum. Hér er um að
ræða hressimgarleikfimi fyrir þá,
sem komnir eru af allra léttasta
skeiðinu, en vilja viðhalda
líkamsþreki sínu og auka starfs
krafta sína og vellíðan með holl-
um íþróttaæfinguim.
í vetur verður o!d boys-leik-
fiimin á þriðjudagskvöldum kl.
8- 9 og á föstudaigskf/öldum kl.
9- 10. Æfingamar fara fram í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
við Lindargötu (minni salnum)
og hefjast um mánaðamótin
sept.-okt. Innritun er hafin á
skrifstofu Ármanns í íþrótta-
húsinu, en hún er opin á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstu
dögum kl. 8-10.30 síðdegis, sími:
1-33-56:
Ungur íþróttakennari, Þorkell
Steinar Erlendsson, heifur verið
ráðinn til starfa hjá Ármanni í
vetur, og mun hann m.a. annast
kennslu hjá old boys-flokknum.
Þorkell lauk prófi frá íþrótta-
kennaraskóía íslands fyrir nokkr
um árum, stundaði síðan fram-
haldsnám erlendis, og sitarfaði
síðastliðið ár sem íþróttakenn-
ari í Svíþjóð.
berg (Nýja-Sjáland). '
Maraþonhlaup: Kimihara (Jap
an), Edelen (USA), Heatley
(Bretland).
3000 m hindrun: Vincent
(Ástralíu), Herriott (Bretland),
Span (Júgóslavíu).
400 m grindahl.: Cavley (USA)
Luck (USA), Hardin (USA).
110 m grindahl.: Jones (USA),
Davenport (USA), Lindgren
(USA).
Hástökk: Brummei (Sovétr.),
Czernik (Pólland) Rambo (USA)
Langstökk: Boston (USA) Ter-
Ovensjan (Sovét), Davies (Bret-
land).
Stangarstökk: Hansen (USA),
Pennel (USA), Preussger (Þýzka
land).
Þrístökk: Kravtsjenko (Sovét),
Davis (USA), Kreer (Sovét).
Kúluvarp: Long (USA), Mat-
son (USA), O’Brien (USA).
Kringlukast: Danek (Tékkósló
vakía), Orter (USA), Silvester
(USA).
Sleggjukast: Klim (Sovét),
Conolly (USA), Thun (Austur-
ríki).
Spjótkast: Terje Pedersen (Nor
egi), Sidlo (Pólland), Lusis
(Sovjtr.).
Tugþraut: Yang (Formósu),
Holdorf (Þýzkaland), Storot-
sjenko (Sovét).
20 km ganga: Golubnitsji (Sov
étríkin), Matthews (Bretland),
Lindner (Þýzkaland).
50 km ganga: Höhne (Þýzkal.),
Nihill (Bretland), Pettersson
„Hún á veika von um tvö gull“
MARY Rand er fjölhæf ensk
frjálsíþróttakona. Ef heppnin
fylgir henni í Tokíó hefur hún
möguleika á að vinna tvö Ol-
ympíugull. En hún hefur einn
ig bitra reynslu af keppni á
Olympíuleikum. í Róm mis-
tókst henni að ná tilskilinni
lengd til úrslitakeppni í lang-
stökki kvenna. Nú eygir hún
Olympíugull í þeirri grein. —
Andstæðurnar eða hið mjóa
bil milli heppninnar og ó-
heppninnar í íþróttum eru oft
slíkar að kona með áður-
nefnda reynslu frá Róm gæti
vel hreppt gull í Tokíó.
* Mary Rand er fyrirmynd
allra brezkra skólastúlkna,
sem berjast vilja til sigurs —
einskonar Jeanne d’Arc á
frjálsíþr.velli. „Hún er ensk
rós, sem af og til blómstrar og
magnast á leikvanginum og
ber af mótherjunum eins og
gull af eiri“ segir einn frétta-
maðurinn.
Mary vinnur sína sigra tign
arlega, segir sá sami. Og sjáið
á myndinni hið ákveðna augna
ráð. Og það má sjá hinn glæsi
lega stíl og hina mikiu ná-
kvæmni með að smjúga yfir
fyrstu hindrunina í grinda-
hlaupinu. Takið eftir jafnvæg-
inu bæði andlegu og líkam-
legu. Það er fullkomnun í
hverri hreyfingu, en þó óvenju
leg ákveðni og einbeitni í
svipnum.
Aila þessa kosti þarf að sam
eina til að ná þeim árangri
sem Mary Rand hefur gert.
Hún getur hlaupið hraðar,
stokkið lengra og svifið yfir
grindur hraðar en flestar ef
ekki allar stúlkur í heiminum.
Hún gæti unnið tvö Olympíu-
gull þ.e. í langstökki og grind
hlaupi og góðum árangri nær
hún án efa í fimmtarþraut-
inni.
Mary er gift kona og á börn.
Maður hennar Syd Rand, hef
ur keppt á Olympíuleikum í
róðri. Hann er þjálfari henn-
ar á velli nálægt heimili
þeirra og þar dvelja þau flesta
daga að lokinni vinnu.
„Ég man vel vonbrigði mín
á Olympíuleikunum í Róm“,
sagði Mary við blaðamann,
„þegar mér tókst ekki að kom
ast 1 úrslit, og það á stökk-
lengd, sem ég hafði leikið mér
að hér heima. Þau vonbrigði
munu hjálpa mér í Tokíó“.
En Mary Rand er ekki ein
um að vilja sigra í áðurnefnd-
um greinum á Tokíó-leikun-
um. En hiún er ein af stjörn-
unum.
Olympiustjcrnur II.
Hörð keppni um
Evrópubikarana
Á MIÐVIKUDAG fóru fram
ýmsir leikir í keppninni um
Evrópubikarana þrjá í knatt-
spyrnu og landsleikir milli
Belgíu og Hollands. Belgía vann
þarna leik í Antwerpen með 1-0.
t hinum leikjunum urðu úrslit
þessi:
• Evrópubikar meistaraliða
Malmö FF vann Locomotiva
frá Soffía með 2-0 í síðari leik
liðanna í 1. umferð. Fyrri leik-
inn vann Locomotiva með 8-3
og heldur því áfram í keppninni
með samanlagða markatölu 8-5.
í Duhlin léku Rapid, Vínar-
borg og Shamrock Rovers. Unnu
Rapid-menn 2-0. Rapid heldur
afram í keppninni með saman-
lagða markatölu 5-0
í Aþenu vann Panathinaikos
(Aþenu) leik gegn Hlentoran
(N-írlandi) með 3-2. Fyrri leik-
urinn varð jafntefli 2-2 svo
Grikkirnir halda áfram með
samanlagða tölu 5-4.
• Evrópubikar bikarmeistara
Slavia (Sofia) og Cork Celtic
(frlandi) skildu jöfn í fyrri
leik sínum. Leikurinn fór fram
í Sofia.
• „Borgarbikarinn"
í Kaupmannahöfn vann d.o.s.
Utrecht (Hollandi) lið KB me<5
4-3. Gestirnir höfðu yfir í hálf-
leik.
Murray Rose
keppir ekki
— en lýsir
Ástralski sundmaóurinn Murr-
ay Rose, sem hefur unnið 4
Olympíugull á fyrri Olympáuleik
um, kom til Tokíó í gær — ekki
til að keppa í sundinu, heldur
til að lýsa keppninni fyrir banda-
ríska sjónvarpsstöð.
Eins og kunnugt er setti Rose
nýlega heimsmet í 1500 m og 800
m skriðsundi. En hann var etkki
valinn í Oiympíulið Ástralíu þar
sem hann vildi ekki verða við
þeirri kröfu áströisku OL-nefnd
arinnar að hann yrði að ná til-
skildum árangri í ásitralsikri sund
lang.