Morgunblaðið - 19.12.1964, Side 8

Morgunblaðið - 19.12.1964, Side 8
8 MORGU NBLAÐIÐ Laugardagur 19. des. 1964 Séð heim að Sólheimum. Heimsókn aö Súlheimum í Grímsnesi Það hefur verið mikill styrkur — einkum, er erfiðleikarnir virtust óyfirstíganlegir, — að finna tru og skilning vina og velunnara, segir Sesselja Sigmundsdótl ir, forstöðukona og stofnandi vistheimilisins ÞAÐ VAR einn blíðviðrisdag, að við óikum sem leið liggur austur fyrir fjall. — Var ferð inni heitið að barna- og ung- lingaheimilinu Sólheimum í Grímsnesi, þar sem Sesseíja Sig mundsdóttir, forstöðukona og stofnandi heimilisins hefur unn ið erfitt og mikiisvert starf í rúma þrjá áratugi. Hún hafði nú loksins fallizt á, að við segðum eitthvað frá starfseminni að Sól- heimum og starfsferli hennar sjálfrar — og þó með tregðu, því fátt er henni fjær skapi en að láta vekja á sér athygli í blöðum. Hinsrvegar taldi hún orð ið fulla ástæðu til þess að geta hinna mörgu aðila, sem lagt hafa hönd á plóginn og veitt henni og heimiliniu margháttaða aðstoð á liðnum árum — og samdist því svo um, að við kæm um austur. Á leiðinni rifjaði ég upp fyrir mér orð víðförullar Og vel menntaðrar ítalskrar konu, frú Annettu Mazzolini, sem dvaldist hér á landi í fyrrasumar á veg- um Flugfélags íslands, og safn- aði efni í greinar um ísland, einkum menningu þjóðarinnar, siði og háttu. Hún kvaðst hafa farið víða um landið, margt séð skemmtilegt og athyglisvert — og hitt fjölda fólks að máli —“ en af öllum, sem ég hef hitt hér á íslandi o.g rætt við, sagði frú Mazzolini, þótti mér mest koma til Sesselju Sigmundsdóttur á Só'lheimium. Hún er sú sannasta og ágætasta manneskja, sem ég hef kynnzt hér“. Hún kvaðst þeg ar hafa skrifað nokkrar greinar fyrir ítölsk og svissnesk blöð, m.a. um Sesselju og starf henn- ar undir fyrirsögninni, „The Mir ad'.e of Iceland“. En það hafði ek-ki verið fyrir- hafnarlaust að viða að efni í þá grein, því Sesselja er því frábit in að þylja æviatriði sín. „í tvær vikur var ég að komast að sögu þessarar konu. Hún á sjö syst- kini og með því að ræða við þau flest fékk ég smám saman upplýsingar um líf hennar og starf“. □ ★ □ Sesselja Sigmundsdóttir er fædd í Hafnarfirði, — en á æsku árunum átti hún heima á Þing- völlum. Foreldrar hennar, Sig mundur Sveinsson og Kristín Símonardóttir, tóku á leigu jörð ina Brúsastaði og ráku gistihús ið Valhöll í 16 ár, eða til ársins 1918. SesseCja var afar hlédræg sem barn og fór gjarnan einför um. Hún varð fyrir miklum á- hrifum aif umhverfi æskuáranna og ja.fnframt kom það fljótt fram, að hún hafði meiri ánægju af að leika sér við dýrin en önnur börn, fann í þeim eitt- Og eftir því sem árin liðu, gerði hún sér grein fyrir því, að hún vildi helga líf sitt þeim, sem voru veikburða eða þurfandi fyrir að stoð annarra í einhverri mynd. En hún vissi ekki, hvernig koma skyldi þessari fyrirætlun í framkvæmd. Eftir heimsstyrjöldina fyrri fór Sesselja utan, til náms í Kaupmannahöfn og síðar til Þýzkalands. Þar var hún við nám á sjúkrahúsum, í heima- vistarskólum og á munaðaiLeys Sesselja Sigmundsdóttir. ingjahælum — og kynntist öll- um hliðum þeirrar starfsemi. — En það var ekki fyrr en hún kynntist Waldorf Schule í Stutt gart, þar sem byggt var á kenn ingum heimspekingsins og kenn arans, Rudolfs Steiner, að hún gerði sér ljóst í hverju starf hennar skyldi fólgið. Hún ákvað að koma. upp beimili fyr ir vanþroskuð börn og unglinga. Aðalbækistöðvar Steiner-skól- ans eru í Dormach í Sviss og þangað fór Sesselja til að kynna sér kenningu hans og starf nánar. Þegar hún hafði dvalizt þar nokkurn tíma, sagði hiún við sjálfa sig, að nú vissi hún hvað hún vildi — niú væri að sýna, hvað hún gæti. Og þótt atvinniu möguleikarnir og verkefnin hvað veikburða og hjálparþurfi Við söng og hljóðfæraleik. Ein stúlknanna við vefnað. væru á hverju strái í Sviss og vinirnir orðnir margir, sem vildu halda í hana, ákvað hún að fara heim til íslands og nota þekkingu sína þar. □ ★ □ Að Sclheimum í Grímsnesi er ekið frá Minni-Borg, uim það bil 10 km. veg. Staðurinn er all einangraður, því þarna er strjájbýlt og því meir kemur á óvart, þegar útsýn opnast þang að heim, hve byggingar eru margar og myndarlegar, og stað urinn á allan hátt blómilegur til að sjá, Þar er gott skjól fyrir norðan, norðvestan og aiustanátt, en opin útsýn til suðuíis oig suð- vesturs. Þennan stað fann Sesselja vor ið 1930 eftir langa leit, ásamt föður sínium: „Fjölskylda mín og nánustu vinir oig kunningjar hjálpuðu mér að byggja þetta upp af bókstaflega engu, bæði með gjötf'um og vinniu, sagði Sesse/lja — oig ýmisir stórkaup- menn í Reykjavík lánuðu mér bygginigarefni. Ég átti auðvitað ekki eyri, þegar ég kom heim frá námi og erfiðleikarnir voru miklir í upphafi. Þegar við kom um hingað voru ekki aðrar bygg ingar á staðnum en hripletour Ibrfbær, alls etoki íbúðarhæfur. Því var um að gera að befjast handa um bygginigarframkvæmid ir sem allra fyrst. Vegur var enginn frá Minni-Borg, aðeins troðin braut og urðum við að draga allt byggingarefni á sleð um og vögnum yfir mýrarnar hér suður af. Meðan unnið var að byggingarframikvæmduim um sumarið, bjuggum við í tjöild- um — »g þar var ég með fyrsta barna'hópinn. Ég hafði alls ekki ætlað mér að taka börn fyrr en húsið væri fullbyggt, hélt hún áfram — en þörfin var svo brýn, ekkert heimili fyrir hendi, svo að þau fyrstu, átta talsins, komu 5. júlí 1930 og voru hjá mér í tjöldum. Um haustið fluttum við upp á 'hæðma, þó enn væri margt ó- gert. Var það hvað mest að’ þakka föður mínum, hve fljótt húsið komst upp. — Hvers vegna völduð þið þennan s.tað framiar öðrum? — Þar kernur margt til — oig þó fyrst og fremst jarðhitinn, sem hefur verið ómetanlegur kostur fyrir rekstur heimilisins, vegna allrar rætotunar. — Já, ég sé, að hér eru tvö myndarlegustu gróður'hús, hafa þau verið starfandi allan tím- ann? — Nei, el.dra gróðurhúsið er rétt rúmra sex ára og það yngra þriggja ára — en garðrækt hefur verið geysimikil hjá okk ur allt frá upphaifi. Má segja, að garðurinn hafi að miklu leyti staðið undir heimilisrekstrinum fyrstu árin — og þó öliliu held- ur áratugina eða þar til Styrktar félag vangefinna var stofnað cng það og fleiri aðilar tóku að styrkja starfsemina svo ötuí- lega. Án garðsins hafði ég löngu flosnað upp. Við rætotum hér tómata, gúrkur og raunar allar tegundir grænmetis, sem hægt er að rætota hér á landi — og auk þess a.lls kyns kryddjurtir. Tré hafa verið gróðursett hér í þúsundatáli oig hefur Einar Sæm undsen hjá Skógræktinni styrkt okkur þar bæði í orði og verki. Og Thorvaldsensfélaigið hefur m.a. gefið heimilinu 10. 000 krónur til að efla skógrækt ina. Á síðari árum hafa svo á- kaflega margir styrkt starfsieimi heiimilisins enda hefur henmi fleygit fram. Áður var þetta svo margfalt erfiðiara.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.