Morgunblaðið - 26.01.1965, Side 20

Morgunblaðið - 26.01.1965, Side 20
20 MORGU N BLADIÐ Þriðjudagur 26. janúar 1965 SVARTAR RAFPERLUR EFTIR PHYLLIS A. WHITNEY l>egar fótatak heyrðist í marm araganginum niðri, rétti Tracy úr sér, í eftirvæntingu, og takið á kettinum hertist ósjálfrátt. En þetta var bara Fazilet að koma upp stígann. Vitanlega mundu þau nota hana fyrir sendil, þeg- ar þau myndu eftir Tracy Hubb ard. Þegar Fazilet kom fyrir hornið í stiganum, sá hún Tracy og stanzaði. Augun voru eitthvað flóttaleg. — Bróðir minn óskar að tala við þig, sagði hún lágt. — Láttu hann þá koma hingað, eagði Tracy. — Ég er ekki sek um neitt misjafnt og ég er held- ur enginn fangi hér í húsinu. — Fazilet andvarpaði. — Þér er betra að gera eins og Murat óskar. Honum mun ekki líka það, ef ég kem án þín. — Það er mitt mál, sagði Tracy djarflega. — Ætlarðu kannski að flytja mig til hans með valdi? Hún trúði auðvitað ekki, að Fazi let myndi reyna neitt slíkt. Hér setlaði hún að verða kyrr og neyða þau til að koma til sín, eitt og eitt í senn, ef hægt væri. Fazilet gekk fram, enis og hik andi, en í sama bili mjálmaði kötturinn. Tyrkneska stúlkan stanzaði í sömu sporum. — 'Hvað var þetta. spurði hún hissa. Nú var tími kominn að gera fyrstu tilraunina. — Vitanlega er það hún Yase- min, sagði Tracy og losaði frá sér kápuna. Hvíti kötturinn rétti úr sér og starði á Fazilet sægrænum aug- um. Faziiet stirðnaði upp í sömu eporúm og Tracy sá á henni svip- inn, sá, að hún hafði fengið taugaáfall, og var gripin hjátrúar fullri skelfingu. Fyrirvaralaust var gríman fallin og andlitið undir henni komið í ljós. Það sem Miles hafði málað eftir speg ilmyndinni í tevélinni, kom þarna í ljós í öllum sínum ljót- leik og öilum til sýnis. Tracy vætti þurrar varirnar með tungunni. — Hélztu, að þú gætir rekið Annabel tvisvar út í dauðann, Hélztu, að hún mundi ekki koma aftur til að ákæra þig? Þú losnar aldrei við það, sem þú hefur gert. Fazilet jafnaði sig ofurlítið. — — Auðvitað ekki, sagði Tracy. — Hvernig ætti það líka að geta verið? Þú drekktir kettinum henn ar Annabel á þennan hryllilega hátt og lézt mig finna hann. Þú hélzt, að þú gætir hrætt mig burt héðan, var það ekki? Það varst þú, sem varst stöðugt að ofsækja Annabel með hinum og þessum hrekkjum, og síðan mig. Hún hafði komizt að því, hvað þú hafðir fyrir stafni. Hún vissi, að Þetta er ekki kötturinn, sagði hún. það var ekki Sylvana, eða Murat bróðir þinn, sem þú hefur blekkt svo andstyggilega. — Það varst þú, sem gafst Annabel eiturlyf til að láta hana þegja. Og þannig gaztu ráðið við hana um stundarsakir, var ekki svo? Og þér tókst að eitra huga hennar gagnvart Miles. En hvað um spurningum, verðurðu að koma inn í herbergið mitt. Fazilet talaði hægt og settlega. — Ef þú vilt fá svörin við þess gerðirðu að lokum, til að reka hana út í dauðann Þér er eins gott að segja mér það strax, Fazi let, úr því að ég veit allt hitt. Tracy hikaði sem snöggvast. En annars var hún ekkert sér- lega hrædd við hina stúlkuna, síðan hún hafði komizt að því, hvar hættan lá. Hún fór því með Fazilet inn í svefnherbergi henn- ar. Fazilet opnaði skúffu og tók upp úr henni eitthvað, sem var vafið inn í vasaklút. Þegar hún sneri sér við, reyndi hún ekkert að dylja það, sem Tracy var búin að sjá í augnaráði hennar. — Þú ert jafnheimsk og hún systir þín, sagði hún. — Alltaf að segja mér, að ég sé veikgeðja og aðrir geti haft mig til hvers, sem þeir vilja. En það er ég, sem hef vafið hinum um fingur mér. Murat trúir því, sem ég vil láta hann trúa. Sylvana gengur beint í hverja gildru, sem ég legg fyrir hana. Hasan knékrýpur mér og gerir hvað sem ég vil, vegna þess að hann elskar mig. Það var ég sem fann upp skrautritunar- dulmálið og gerði breytingarnar á því. Og nú er við þig að fást — aðra heimska Annabel i við- bót! Síðan reif Fazilet vasaklútinn frá og Tracy sá, hvað hún var með í hendinni. Þegar því var miðað, skein ekki út úr því illsk- an, heldur dauðinn. Það var fyrir þessu, sem Annabel hafði fíúið út á Bosporus í báti, sem hún réð ekkert við. Hún minntist snögglega orða Miles: „tíundi hluti úr grammi er bannvænn" Annabel'hlaut að hafa vitað, að að þessu mundi koma. En hana hafði brostið kraftur til að rísa upp og berjast. Tracy, sem vissi, að dauðinn var ekki nema fet frá henní, hreyfði sig ekki. Hún hafði ekki annað en tunguna til að berjast með. — Annabel sagði mér frá svörtu rafperlunni, skilurðu, sagði hún blátt áfram, eins og meðal annarra orða. — Hún var merkið um, að ópíum væri að koma yfir Bosporus, var ekki svo? Eg býst við, að það hafi verið Hasan, sem setti svörtu perluna innan um hinar, svo að þú vissir, að von væri á farmi. Og það hlýtur að hafa verið þú, sem sóttir kassann í rústirnar. Fazilet hló óhemjulega. — Þessi bjáni, hann bróðir minn, notar Hasan til að gæta ópíums- ins og sjá, hver kemur til að taka það. Hasan þurfti ekki annað en sofa, til þess að Murat færi að halda, að Sylvana hefði tekið kassann meðan hann s'vaf. Aúðvitað voru það við Hasan, sem tókum hann! Sylvana hefur verið ókjósanlegasti blórabögg- ull. Það var einfalt mál að sann- færa Murat um, aðjiað hafi verið hún, sem faldi heróínið í tevél- inni. — Já, þú hefur snúið sniðug- lega á þau öil, sagði Tracy. — En bara ekki nógu sniðuglega, Fazilet! Hin stúlkan steig eitt skref fram, og Tracy kallaði til henn- 29 ar í aðvörunartónf — Vertu ekki svo heimsk að halda, að ég sé eins og Annabel. Þú. þorir ekki að nota þetta verk færi við mig. Þú hefur alltaf haft einhvern til að gera skít- verkin fyrir þig — einhvern, sem þú gazt falið þig bak við. En nú verðurðu sjálf að drepa mig, Fazilet. Og láttu þér ekki detta í hug, að þú getir það! Hún horfði á stóru uppglenntu augun og beið. Kötturinn brauzt um í fangi hennar, órólegur. — Annabel ætlaði aldrei að fremja sjálfsmorð, hélt hún áfram. — Hún var nógu hemisk til að flýja af hólmi. Hver, sem srierist gegn þér, gæti sigrað þig. Blaðburðarfólk MekMt - Grettísgötu 1-35 óskost til blaðburðar í eítirtalin hverfi Ljn(|argötu - HáteígSVCg Laugarnesvegur 34-85 Sufturiandsbraut Tjarnargata Sími 22-4-80 — Ferð þú heim til mömmu þinnar? Hvað á að verða um mig og börnin. Það ert þú, sem ert heimsk og veikgeðja. Fazilet rak upp hást óp og tók undir sig stökk til hennar. Þessu haíði Tracy verið að bíða eftir. Hún fleygði kettinum beint fram an í hana og þaut ú,t úr herberg- inu. Miles var að koma upp stig- ann. Hann þaut fram hjá henni og Tracy var nákvæmlega nógu fljót á sér til að sjá hann stíga ofan á sprautuna, þar sem hún lá á gólfinu. Kötturinn losaði sig og hljóp út úr salnum. Fazi- let stóð við stól, völt á fótunum og öskraði blótsyrði, sem lýstu henni eins og hún var raunveru- lega. Nú heyrðist hlaupið upp stig- ann og Tracy snarsneri sér við og sá Ahmet veifa skammbyssu. — Þarna er konan, sem hefur svikið son þinn, -sagði Miles. •— Ég býst við, að hún muni nú segja þér það, sem þig langar að vita. Ahmet stóð og hlustaði á Miles og skildi, hvað hann var að fara. Hann hafði snögglega elzt um mörg ár. — Þér er bezt að fara með hana til dr. Erim, sagði Miles. — Hann kemst ekki hjá því að heyra sannieikann nú og sjá, hver er hinn rétti sökudólgur. Fazilet streittist ekkert á móti, þegar Ahmet tók í arm hennar. Þegar þau voru farin, fór Miles með Tracy upp á mann- tóma efri hæðina. Hún skalf. — Ertu ekki ósködduð? sagði Miles. — Hú,n hefur vonandi ekki náð til þín? — Það er allt í lagi með mig. Kötturinn . . . . ef ekki köttur- inn hefði verið, þá . . . ! Hann hélt henni í örmum sér. — Við skulum ekki tala meira um það. Nú er þetta allt af staðið. — En Hasan var með byssu. Hvernig slappstu frá honum? — Ahmet er óheimskur. Lík- lega hefur hann alltaf grunað eitthvað. Hann þekkir frúna vel, og hann hefur haldið, eins og ég að hún hafi ekki fallið sam- an af samvizkubiti heldur bara af hræðslu. Murat var sýnilega KALLI KUREKI -*• -X— -Xr~ Teiknari: J, MORA „Talaðu kúreki. Hvar er gullið?“ wHafið þið ekki fundið það?“ „Ef til vill kannis. þið ekki við Óunnið gull þegar þið rekist á það.“ „Já og ef til vill hefur þú skipt um uppdrátt þegar við réðumst á þig á áningarstað þínum.“ Eí þeir þekkja ekki óunnið gull, hver veit nema ég sýni hvaða stein- völu sem er. „Leysið mig Ég skal benda ykkur á það.“ „Stattu upp Þú getur sýnt okkur það með bundn ar hendur. sannfærður um sekt frúarinnar, og þannig gat hann sjálfur ekki verið sökudólgurinn. Og þá var ekki eftir nema Fazilet. — Þegar Murat sendi Ahmet til að gá að þér, tók Ahmet málið í eigin hendur. Hann kom á eftir okkur og heimtaði skammbyss- una af Hasan, sem rétti honum hana, án þess að vita, hvað faðir hans hafði í hyggju, og hann sagði mér að fara á eftir Fazilet. Ég þurfti dálítið að takast á við Hasan, en ég vona, að hann verði óskaðlegur fyrst um sinn. Svo kom ég hingað eins fljótt og ég gat. Hann hélt henni frá sér, til þess að geta horft á hana. — Ertu nú viss um, hver þú ert, elskan mín? spurði hann. Tracy kinkaði kolli. — Ég er ekki eins og Annabel. Ég er alls ekki lík henni á neinn hátt. Og ég geng ekki lengur með neina leynda löngun til að vera eins og hún. Þú hefur kennt mér það, sem betra er. — Það hefurðu kennt þér sjálf, sagði hann. — Og það ert þú, sem ég vil fá, en ekki Annabel Já, það vissi hún nú. Við- kvæmnin, sem hafði gripið þau svo snögglega þennan dag úti á sundinu, var komin aftur, en nú var hvorugt þeirra hikandi eða hrætt. Nú var sporið stigið. Hún vissi nú, hve innilega hún elsk- aði hann og hann hana. Það var hann að segja henni núna, með varirnar á hennar vörum, þar sem hún hvíldi í örmum hans. Aðvaranirnar voru nú ekki lengur til; Bosporus-draugarnir voru kveðnir niður fyrir fullt og allt, að minnsta kosti hvað þau tvö snerti. Nú mundi ekki Anna- bel, sem hafði aldrei elskað nógu innilega, heldur Tracy Hubbard, ganga í skjóli ástar Miles Rad- burns, því að hún elskaði hann af öllu hjarta, og vissi að þarna átti húp heima. (Sögulok). Garðahreppur Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Garðahrepp er að Hof- túni við Vífilsstaðaveg, simi 51247. AKUREYRI Afgreiðsla Morgunblaðs- ins er að Hafnarstræti 92, sími 1905. Auk þess að annast þjón- ustu blaðsins við kaupend- ur þess í bænum, er Akur- eyrar-afgreiðslan mikilvæg- ur hlekkur í dreifingarkerfi Morgunblaðsins fyrir Norð- urland ailt. Þaðan er blaðið sent með fyrstu beinu ferð- um til nokkurra helztu kaup staða og kauptúna á Norður- landi, svo og tii fjölda ein- staklinga um ailan Eyjafjörð og víðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.