Morgunblaðið - 07.02.1965, Side 2
M0RGUNBLAÐ1Ð
t
2
Surinuðagur 7. febrúar 1962
4
0
Unnið er nú af miklum krafti vii að skipta um jarðveg á þeim kafla Míklubrautar, sem enn hefur
ekki verið malbikaður, þ. e. frá Grensásvegi og inn að Elliðaám. Myndin var tekin í jær inn eftir
Miklubraut og sjást framkvæmdir við jarivejækiptinjniu á vinstri akrein. (Ljósm. Mbl.: Sv. >.)
f landinu eru 1156 sjúkrarúm
— 150 fyrir langlegusjúklinga
Atkvæðagreiðslan
á vegum B.
SAMTALS eru 1156 sjúkrarúm
1 landinu, þar af eru 130 notuð
fyrir gamalmenni og langlegu-
sjúklinga, rúm á deildarskiptum
sjúkrahúsum eru 348, og rúm á
sjúkrahúsum eða sjúkraskýlum
með faerri rúm ert 20 eru 120.
Þessar tölur koma fram í skýrslu
sjúkrahúsmálanefndar Læknafé-
lags Reykjavíkur sem lög'ð var
fram á aðalfundi félagsins, en
nefndin hefur unnið að upplýs-
ingasöfnun um sjúikralhús- og
hjúkrunarmál i landinu og að
því að bera þaer saman við sam-
bærilegar tölur annarra landa.
Gerður var samanburður á
rúmafjölda á íslandi, Norðurlönd
um, Englandi og Bandaríkjunum.
Sýna tölur þessar, að geðveikra-
rúm eru áberandi færri á íslandi
en með öðrum þjóðum, enda hef
ur skortur slíkra rúma um lang-
an tíma valdið miklum óþægind
Fyrrum forsætis-
ráðherra myrtur
Nýju Delhí, 6. febr. — NTB:
PRATAP SINGH Kairon, fyrr-
um forsætisráðherra í héraðinu
Punjab í Indlandi, var skotinn
til bana er hann ók til heima-
þorps síns í morgun. Tveir menn,
sem voru i bílnum, biðu og bana.
Fjórir menn stöðvuðu bílinn, og
hófu skothríð á hann. Þetta er
annað pólitíska morðið, sem átt
hefur sér stað í Indlandi. Hitt
var morð Gandhis 1948.
Kairon var 63 ára gamall. Hann
varð forsætisráðherra í Punjab
1956 og gegndi þeirri stöðu þar
til í júní í fyrra.
Drottning
heimsótti
handritasýn-
inguna
Einkaskeyti til Mbl.
Kaupmannahöfn, 6. febr.
INGRID drottning og prins-
jssurnar Margrét og Bene-
dikte heimsóttu handritasýn-
inguna í Listasafní ríkisins á
föstudag, cng bar heimsókn
þeirra óvænt að. í»eim var
sýnd sýningin af Hans Bekker
Nielsen, Háskólaadjunkt og
Lars Rostrup Royesen, safn-
stjóra. — Rytgaard.
um hér. Einnig höfum við færri
rúm fyrir fávita en gerist í sum-
um öðrum löndum.
Með nýju spítölunum vantar 150
hjúkrunarkonur.
Nefndin leitaði upplýsinga hjá
yfirlæknum sjúkrahúsa utan
Reykjavíkur og forstöðukonurn
sjúkrahúsa í Reykjavik um þörf
fyrir aukið starfslið hjúkrunar-
kvenna. í Ijós kom, að sjúkra-
hús úti á landi vantar 38 hjúkr-
unarkonur, og spítalana í Reykja
vík vantar um 14 eða samtals 52
hjúkrunarkonur. Aætlúð aukn-
íng vegna Borgarspítalans, Lands
spítalans og viðbótar á Akranesi
hækkar þessa tölu í 150. Hjúkr-
unarskóli íslands brautskráir á
ári tæplega 40 hjúkrunarkonur.
Samkvæmt upplýsingum
stjórnar Hjúkrunarskóla Isiands
Eínkaskeyti til Mbl.
Kaupmannahöfn, 6. febr.
FORLAGIÐ Rosenkilde og Bagg-
ers í Kaupmannahöfn hóf 1958
útgáfu á Ijósprentunum á íslenzk-
um handritum á eigin reikning,
án þess að til kæmi neinn stuðn-
ingur af opinberri hálfu eða af
hálfu einstaklinga. Ritstjóri
bókaflokksins hefur verið Jón
Helgason, prófessor.
Frá stúdentum
í ísl. fræðum
STÚDENTAR í íslenzkum fræð-
um vilja vekja athygli lands-
manna á þeirri ákvörðun bisk-
ups, herra Sigurbjarnar Einars-
sonar, að gangast fyrir því, að
þjóðkirkjunni verði gert kleift
að eignast hið stórmerka og dýr-
mæta bókasafn Kára Helgasonar.
Teljum við það óbætanlegt tjón
fyrir íslenzkar menntir, ef bæk-
ur þessar hyrfu úr landi, ekki
sízt meðan kollhríðin stendur um
heimt annarra íslenzkra bóka til
landsins. Jafnframt álítum við
vel til fundið, að safninu verði
valinn staður í Skálholti, hinu
forna menntasetri.
Til stuðimgs þessu málefni
höfum við skotið saman í litla
fjárupphæð, kr. 3.500,00, sem í
dag hefur verið afhent biskupi.
Væntum við þess, að aðrir Iands
menn, sem flestir munu hafa úr
meiru að spila, Ijái þessu máli
lið hið skjótasta.
eru á félagsskrá 700 hjúkrunar-
konur og menn, en aðeins um
þriðjungur þeirra vinnur hjúkr-
unarstörf. Sjúkrahúsmálanefnd
Læknafélagsins sendi að þessum
upplýsingum fengnum 150 fyrir-
spurnarbréf til hjúkrunarkvenna
til athugunar á því hvort ekki
mætti hagnýta þessa sérhæfðu
starfskrafta og af 70 svörum
mátti ráða að vinnukraftur hjúkr
unarkvenna, sem samsvarar 24
hjúkrunarkonum með fullum
vinnudegi, væri til reiðu, og 60%
hjúkrunarkvennanna þurftu á
barnagæzlu að halda, ef þær
ættu að vinna.
I sjúkrahúsamálanefnd Lækna-
félagsins, sem vann skýrsluna
er þessar glefsur eru teknar úr,
eru Sigmundur Magnússon, for-
maður, Tómas Á. Jónasson og
Þórarinn Guðnason.
Bókaforlaigið, sem gefið hefur
út sex slík bindi, hefur nú ákveð-
ið að gefa út 10 bindi í viðbót,
þar sem bókaflokkurinn hefur
unnið sér mikið álit i heimi
alþjóðavísindanna.
Bækurnar eru útgefnar í fólíó
og hefst hvert bindi á ítarlegum
inngangi eftir þann vísindamann,
sem bezt er kunnugur viðkom-
andi handriti. Því næst fylgir
fullkomin ljósprentun af öllu
handritinu í sömu stærð og það
er sjálft, — Rytgaard.
Unnin spjöll
í Ey jum
í FYRRINÓTT var brotizt inn á
tveímur stöðum i Vestmannaeyj-
um og unnin skemmdarverk. Var
farið inn í Veiðarfæragerð Vest-
mannaeyja og öllu snúið bar
við og eyðilagðar rafmangs-
leiðslur.
Þá var brotizt inn í matsal
Vinnslustöðvarinnar og unnin
spjöll á matvælum og vélum. Var
eggjakössum hent niður og tómat-
sósu dreift um allt. Þá voru
skornar sundur rafmagnsleiðslur
frá heimilisvélunum, sem eru
stórar og miklar þama, og
straumi hleypt á eldavélina og i
bakaraofninn. Var þetta orðið |
glóandi um morguninn, þegar að |
var komið og heppni að ekki hafi '
kviknað L •
YFIRKJ ÖRSTJ ÓRN Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja fer
þess á leit við dagblöðin, að þau
birti eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu sunnudaginn 7. febrúar 1962.
Á öðrum stað hér í blaðinu
birtist auglýsing frá yfirkjör-
stjórn B.S.R.B. um kjörskrár við
allsherjaratkvæðagreiðslu ríkis-
starfsmanna um uppsögn kjara-
samnings, sem fram fer um
næstu helgi. Vísast til auglýsing-
ar um það, hvar kjörskrárnar
liiggja frammi. Sérstakir kjör-
staðir verða á þessum stöðum:
Revkjavik, Akranesi, ísafirði,
Siglufirði, Akureyri, Vestmanna-
eyjum, Selfossi, Keflavík og
Hafnarfirði.
Þar sem slík allsherjaratkvæða-
greiðsla fer nú fram í fyrsta
skipti, þykir ástæða til að gera
nokkra grein fyrir þvi, hverjir
eiga rétt á að taka þátt í hennL
Þessir hafa atkvæðisrétt:
a) Allir starfsmenn, sem skip-
aðir eru, settir eða ráðnir í
þjónustu ríkisins, ríkisstofn-
ana eða atvinnufyrirtækja
ríkisins méð föstum laun-
um og minnst þriggja mán-
aða uppsagnarfresti, enda
verði starf þeirra talið aðal-
starf.
b) Þótt rikisstarfsmenn séu
ekki félagsbundnir í aðild-
arfélögum B.S.R.B., þá hafa
þeir verið teknir á auka-
kjörskrá og hafa fullan at-
kvæðisrétt.
Eftirtaldir meðlimir aðildar-
félaga B.S.R.B. eru ekki á kjör-
skrá við þessa atkvæðagreiðslu.
a) Starfsmenn sveitarfélaga,
sem munu greiða atkvæði
sérstaklega um uppsögn
gildandi samninga við við-
komandi bæjarstjórn. Þess
má geta, að t.d. munu
hjúkrunarkonur á bæjar-
sjúkrahúsum, greiða at-
kvæði með öðrum starfs-
mönnum sveitarfélagsins.
b) Þeir sem fá greitt tímakaup,
en ekki fast mánaðarkaup,
t.d. stundakennarar í skól-
Hagalín í Gagn-
fræðaskóla Akraness
AKRANESI, 4. febr. — Línu-
bátamir sem á sjó voru héðan
í gær, fiskuðu frá 3 ti! 6 tonn á
bát.
Guðmiundur Gíslason Hagailín
rithöfundur var gestur Gagn-
fræðaskólans hér í morgun. Ól-
afur Haukur Árna »n, skólastjór.
safnaði nemendum saman í sal
skólans. Las Guðmundur síðan
upp frumsamda sög'u „Konan að
austan“. Það var ekki einungis
að Guðmurvdur læsi söguna, held
ur lék hann sögupersónurnar
líka. Menn skemmtu sér afbragðs
vel. Skó astj órinn mæl ti þakkar-
orðum til Guðmundar fyrir kom
una. — Oddur.
New York, 5. febr. NTB.
• Fulltrúar Asíu- og Afríku-
ríkja hjá Sameinuðu þjóðun-
um hafa lagt fram tillögu um,
að allsherjarþingið geri hlé á
störfum fram til 1. sept. n.k.
vegna fjárhagsörðugleika sam
takanna.
S. R. B.
um.
c) Starfsmenn stofnaná, seria
ekki teljast algjörar ríkis-
stofnanir, þótt þeir fái greitt'
skv. launasamningi ríkis-
starfsmanna. Gildir þetta
um ýmis fyrirtæki og stofn-
anir,. sem ríkið er. aðili að
eða styrkir.
Þeir, sem eru hættir störfum 1
þjónustu ríkisins skulu téknir aí
kjörskrá. Á sama hátt geta þeir,
sem eru orðnir fastir st.arfsmenrv
eftir að hafinn var undirbúning-
ur kjörskrárinnar (í nóv. s.L),
kært sig inn á kjörskrá, svo og
þeir sem kunna að hafa fallið
niður af kjörskránni.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
er heimil fyrir þá, sem dvelja
fjarri vínnustað á kjördegi. Upp* *-
lýsingar um þá atkvæðaigreiðsln
gefur skrifstofa B.S.R.B., Bræðra-
bofgarstig 9 og formenn undin-
kjörstjórne á hverjum stað.
Þar sem kjörskráin er miðuíj
við vinnustað en ekki heimiliá-
fang, þá verður mönnum heimrl-
að að kjósa á kjördegi, þar serft.
þeim hentar bezt, þótt þeir séu á
kjörskrá annarsstaðar. Mun yfir-
kjörstjórnin, sem annast talningu.
atkvæða fyrir ailt landið, gangst
úr skugga um, að ernginn neyti-
atkvæðis oftar en einu sinni.
(Frá B.S.R.B.)
Sjóliðar bjarga
manni úr
höfninni
AÐFARANÓTT laugardags kL
4.05 var tilkynnt til Reyk.jovikur-
lögreglunnar, að maður hefði
falllð í höfnina. Brezkir sjöliðjr
urðu varir við þetta og tök.st
þeim að bjarga manninum, sen»
var fluttur á Slysavarðstofuna.
Hann hafði hlotið stóran skurÁ
á höfuúið, en læknar töldu ekki
meiðsli hans hættulegs eðlis.
Rannsókn vegna
matareitru nar
UNDANFARNA viku hefur far-
ið fram rannsókn vegna matar-
eitrunar, sem upp kom meðal
gesta i veitingahúsinu Sigtúni uni
síðustu helgi. Veiktust um 49
manns, sem þar höfðu verið á
laugardagskvöldið, nóttina eftir.
Lét borgarlæknir rannsaka all
ar matarleifar, sem fáanlegar
voru úr veitingahúsinu, og einu
ig var rannsakað allt starfsfólie
þar og í kjötverzlurv þeirri, sem
nokkuð af matnum kom frá. í
matarleifunum sem rannsakaðar
voru, fannst ekkert sem hægt var
að rekja þessa matareitrun tiL
En hjá einu mstarfsmanni fund-
ust sýklar í koki, sem e. t. v. má
rekja matareitrunina til. Það
voru samskonar sýklar og menn
veiktust af, þó engan veginn sé
hægt að fullyrða að þarna sé að
finna orsökina.
an land hafði myndazt smá- gærmorgun,
lsegð sem hreyfðist norður.
Ljósprenta 10 hand-
rit til viðbótar