Morgunblaðið - 07.02.1965, Blaðsíða 6
6
MORCUNBLADIÐ
Sunnudagur 7. febrúar 1965
Mandy Davis sú hin sama og
bar vitni í réttarhöldunum gegn
Stephen Ward í Profumo hneyksl
inu mikla, lifir nú eins og blóm
í eggi. Hún syngur á mjög fínum
næturklúbb í London og er einn
dýrasti skemmtikraftur þar. Sjálf
segist hún eiga þennan frama
sinn að þakka auglýsingúnni er
hún fékk í fyrrgreindu málL
Áður fyrr var hún aðeins venju-
leg „fyrirsæta" á hóflegum laun-
um og óþekkt með öllu, en nú
er hún heimsfræg og karlmenn-
irnir kappkosta að bera hana
á örmum sér gegnum lífið, eftir
því sem hún segir sjálf. Hún fær
dýrar gjafir frá óþekktum aðdá-
endum og svo er hún einnig fasta
gestur við öll virðulegustu sam-
kvæmi Lundúna. Myndin var
tekin af henni, er hún var á refa-
veiðum í Somerset, en það er
mjög vinsæl íþrótt mðeal aðals-
ins í Englandi, og auðvitað var
Mandy þar í boði aðalsmanns.
Alexandera kom foreldrum
sínum heldur betur á óvárt,
þegar hún sá fyrst dagsins ljós.
Foreldrarnir höfðu nefnilega
ekki hugmynd um að hún var á
leiðinni. Þau sátu bæði- í makind
um á heimili sínu í London og
horfðu á sjónvarpið, þegar móð-
urinni varð skyndilega illt og fór
þess vegna inn og svefnherbergi
og lagðist fyrir. Hún lét eigin-
manninn ekki vita af þessu, því
hún vildi ekki valda honum
óþarfa áhyggjum. Tæpum tutt-
ugu minútum seinna, kom hún
aftur fram og sagð manni sin-
um að hún hefði eignazt barn.
Hann trúði henni mátulega í
fyrstu og það var ekki fyrr en
hún sýndi honum barnið að
hann varð að viðurkenna að
hann væri orðinn faðir. Móðir-
in og barnið voru þá strax flutt
á sjúkrahús og heilsast báðum
vel. Þessi skyndilega koma Aley-
öndru í heiminn hefur valdið
læknum töluverðum heilabrotum
því þeir eiga erfitt með að viður-
kenna að kona geti verið með
barni án þess að vita af því sjálf.
Jón Lennon bítill reyndi fyrir
skömmu í fyrsta sinn hæfni sína
á skiðum. Hann tók sér smá
hvíld frá störfum og fór með
konu sína og son til Sviss. Er
þangað kom var honum sagt að
hann gæti ekki verið þekktur
fyrir annað en fara á skíði, því
það þykir eitthvað hið sjálfsagð-
asta í Sviss. Hann var því hrein-
lega tilneyddur að fara á skíði
og hélt hann með fjölskylduna
til skíðabæjarins Corviglia, er
sendur hátt i svissnesku ölpun-
um. Fregnir herma að Lennon
hafi staðði sig sæmilega og sýnt
byrjendagetu fyrir ofan meðal-
lag. Lennon virðist annars vera
ákaflega fjölhæfur ungur maður.
Hann er lagasmiður, söngvari,
hljóðfæraleikari, rithöfundur og
nú að síðustu, tilvonandi skíða-
hetja. Aftur á móti virðast hinir
félagar Lennons ekki vera eins
andríkir og viljugir, því þeir
sátu allir heima meðan þessu
fór fram.
I Mól Önnu
Hamborg, 5. febrúar (NTB)
0 ÞÝZKA konan, Anna And
erson, sem staðliæfir að hún
sé Anastasia, dóttir Nikulásar
Rússlandskeisara II hefur nú
enn fengið mál sitt tekið fyrir
rétt í Hamborg.
Anna Anderson er nú 65
ára að aldri og hefur árum
saman barizt fyrir þvi að fá
viðurkennt, að hún sé um-
rædd keisaradóttir. Kveðst
hún hafa séð föður sinn skot-
inn af kommúnistum í bylt-
ingunni, og staðhæfir að sjálf
hafi hún einnig verið skotin
þá skömmu á eftir, en lifað af
og pólskur hermaður hafi
bjargað henni undan til
Rúmeníu.
Anna Anderson hefur óskað
aðstoðar dönsku konungsfjöl-
skyldunnar í máli þessu, en
í dag var lesið í réttinum bréf
frá dönsku hirðinni, þar sem
segir, að konurugsfjölskyldan
muni ekki svara spurningum
frá réttinum um mál Önnu
Andersen.
1 James Patrick O’Connor er
er maður nefndur. Hann hefur
vakið mikla athygli á sér í Eng-
landi fyrir tvo leikþætti er hann
skrifaði fyrr enska sjónvarpið.
Sá fyrri hét „Tap on „The
Shoulder" en sá seinni „Three
Clear Sundays“ og fjölluðu þeir
báðir um undirheima lífið í Eng-
landi og lífið í dauðadeildinni.
En það vill svo til að O’Connor
hefur heldur vafasama fortíð
og hefur reynt þetta hvort-
tveggja sjálfur og hann hefur
meira að segja orðið svo frægur
að sitja að skál með böðli sínum.
Þess vegna er það varla nein
furða, þótt menn segi að leik-
þættir þessir séu skrifaðir af
mikilli reynslu. Þegar O’Connor
hafði verið sýknaður af afbroti
eftir að hafa setið nokkur ár í
dauðadeildinn, þá ákvað hann að
byrja nýtt líf og gerast rithöf-
undur. Har.n segir að leikþættir
sínir séu fremur staðreyndir en
skáldverk, því sögupersónur
hans hafi allar verið til í raun-
veruleikanum. Á myndinni er
0"Connor asamt Konu smni
Nemone, en hún hefur stundum
verið nefnd „fegursti lögfræð-
ingur Englands", því hún er lög-
fræðingur að menntun og hefur
getiö ser gooan orostir sem verj-
andi. Það er því hægt að segja
að OConnor haf höndlað ham-
ingjuna að lokum, þótt illa hefði
tekizt til í fyrstu.
í fréttunum
A SJÁLFVIRKT TAL
Sjálfvirka símasambandið
milli Reykjavíkur og Akureyr-
ar markar vissulega tímamót í
símamálum okkar. Fólk verður
fljótt að komast upp á lagið
með að nota þessi nýju þægindi
og ég er líka viss um að síma-
reikningarnir hækka með jafn-
miklum hraða.
Nú eiga ættingjar og kunn-
ingjar auðveldara með að
rabba saman milli Reykja-
víkur ag Akureyrar og ég er
viss um að margir freistast
til þess að rabba lengur en
góðu hófi gegnir — eða
gleyma sér blátt áfram — því
nú er ek'ki lengur neitt, sem
minnir á viðtalsbilin. En sjálf-
sagt gleyma hinir sjálfvirku
sekúnduteljarar Landsímans
sér ekki svo glatt.
Fyrir fyrirtæki og stofnanir
hefur þetta vafalaust aukinn
kostnað í för með sér að ýmsu
leyti, því í stað þess að panta
einhverja ákveðna persónu í
öðru fyrirtæki eða stofnun á
hinum staðnum og geta byrjað
samtalið um leið og sambandið
er gefið, má nú búast við því að
dýrar mínútur fari til spillis á
meðan verið er að ná í þann,
sem tala á við — og e.t.v. að
leita að honum. Þá er og erfið-
ara að fylgjast með símtala-
fjöldanum og í rauninni óger-
legt þegar sjálfvirka sambandið
er notað. Bókhaldslega gæti það
komið ýmsum illa.
Þrátt fyrir það faigna auð-
vitað allir þessum stórstígu
framförum og ekki líður á
löngu þar til „allt landið" getur
talað saman í sjálfvirkum síma.
★ ÓÞRIFNAÐUR
Maður nokkur kom að máli
við mig og sagðist vera með
örlítið í pokahominu, sem ég
mundi e.t.v. vilja minnast á hér
í dálkunum. Sagði hann þó, að
kannski væri þetta of lítilfjör-
legt, en hélt áfram — og lýsti
því fyrir mér hvernig fólksbif-
reið ein hefði ekið fram hjá
húsi hans í hjarta miðbæjar-
ins i fyrradag — rúðan skrúfuð
niður — bréfarusli hent út úr
bílnum á götuna og gangstétt-
ina — rúðan skrúfuð aftur upp
og bíllinn síðan horfið fyrir
næsta götuhorn.
Þetta er óheyrilegur sóða-
skaþur, en því miður ekki óal-
gengur. Víða í útlöndum eru
stórsektir við því að fleygja
rusli út úr bílum — og í sumum
fylkjum Bandaríkjanna varðar
það jafnvel 50 dollara sekt.
Meira að segja úti á þjóðveg-
unum.
Að vísu má segja það, að um-
hverfið í sumum bæjarhlutum
Reykjavíkur hvetji fólk ekki
beinlínis til þrifnaðar. Sér í
lagi í nýbyggðu hverfunum
þar sem fólk verður að klofa
yfir moldarhrúgur til þess að
komast inn og út úr húsum sín-
um. Greinilegt er, að mörgum
finnst þeir hafi lokið húsbygg-
ingu sinni um leið og þeir eru
fluttir inn og búnir að koma
sæmilegu lagi á allt innan-
stokks. Það dregst sums staðar
í mörg ár að lagfæra umhverfi
húsa, hreinsa til og byrja ein-
hverja ræktun.
★ HVERJIR BORGA?
Borgaryfirvöldin gerðu I
fyrra stórátak í þessum efnum
í góðri samvinnu við borgar-
búa, en betur má ef duga skaL
Vonandi verða malbikunar-
framkvæmdirnar í borginni til
þess að ýta enn undir fólk i
þessum efnum. Það er varla
hægt að vaða aurinn heim að
dyrum þegar búið er að mal-
bika götuna framan við húsið.
En það er kominn tími til að
hvetja fólk eindregið til að
ganga þrifalega um, því bréfa-
rusl, sem gangandi fólk kastar
á götuna (jafnt sem akandi) er
ekki aðeins til óþrifa og spill-
andi fyrir svip borgarinnar, því
það kostar líka stórfé á hverju
ári að 'hreinsa göturnar. Og
hverjir borga allar þær hreins-
anir aðrir en borgarbúar sjálfir?
Einhverntíma sá ég í blaði,
að það kostaði fleiri milljónir
dollara á ári að hreinsa bréfa-
ruslið af götum New York-borg-
ar. Borgarstjórnin efnir öðru
hverju til áróðursherferðar
gegn þessum sóðaskap og húa
er í því fólgin að birta í sjón-
varpi, í blöðum myndir af ýms-
um mannvirkjum, sem reisa
mætti fyrir þær fjárfúlgur,
sem árlega er varið til götu-
þrifa. Otg þær myndir eru ekki
af neinum smákofum.
PIB
8119
Bosch I
þokuluktir
BOSCH
sívalar eða kantaðar, einnig
luktargler í ökuljós.
BRÆÐURNIR ORMSSON h.f.
Vesturgötu 3. — Sími 11467