Morgunblaðið - 07.02.1965, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 07.02.1965, Qupperneq 28
28 Victoria Holfc Höfðingjasetrið 1 — !>að var engin furða. Þú varst með sængurfötin upp yfir höfuð, og svo allt þetta, sem þú hefur etið og drukkið í kvöld. Hún settist á rúmstokkinn hjá mér, hlæjandi. — Hvílíkt kvöld! sagði hún og greip um hné sér og horfði út í bláinn. Þegar ég hafði jafnað mig af martröðinni, minntist ég þess, sem ég hafði heyrt úr klæðaskápnum. Ég reis upp við dogg. — Þú dansaðir við Justin, var það ekki — Vitanlega. — Konunni hans líkaði ekki, að hann skyldi dansa við þig. — Hvernig veiztu það? Ég sagði henni allt, sem fyrir mig hafði komið. Hún glennti upp augun og stökk upp. — Ég vissi alveg, að eitthvað myndi koma fyrir þig, Kerensa. Segðu mér allt sem þú heyrðir þarna úr fataskápnum. — Það hef ég gert, að svo miklu leyti, sem ég get munað það. Ég varð afskaplega hrædd. — Það kæmi mér ekki á óvart. En hvað í ósköpunum kom þér til að fara þangað? — Ég veit ekki. Mér fannst ég ekki hafa 1 önnur hús að venda, eins og á stóð. Var þetta rétt hjá henni, Mellyora — Rétt? — Að vera afbrýðissöm? Mellyora hló. — Hún er gift honum, sagði hún, og ég vissi ekki, hvort í röddinni var gaman semi, eða ofurlítil beizkja. — Vel á minnzt, sagði hún. — Kim var að segja mér, að hann væri á förum. — Og hvert — Til Ástralíu, held ég. — Svo langt. Hvað verður hann lengi í burtu? Röddin í mér var eitthvað daufleg, enda þótt ég gerði mitt bezta til að hafa vald á henni. — Til langdvalar. Hann ætlar þangað með föður sínum, en hann sagðist eiga frænda í Ástra líu, sem hann ætlaði að verða hjá. Það var eins og allir töfrarnir frá dansleiknum hyrfu snögglega út í veður og vind. — Það hlýtur að vera orðið l /sna framorðið, sagði ég. — Við ættum að fara að sofa. Mellyora kinkaði kolli og gekk til herbergis síns. Skrítið hvernig öll kætin virtist allt í einu hafa dáið út í okkur báðum. Var það hjá henni af því að hún hugsaði til Justins og þessarar konu hans sem elskaði hann svona ofsalega? Var það af því að Kim var að fara án þess að segja mér frá því? 3 KAFLI Það var eitthvað viku eftir dansleikinn, að Hilliard læknir kom á prestsetrið. Faðir Melly- oru hafði um nokkurt skeið litið illa út og ég bjóst við, að lækn- irinn hefði komið til að rannsaka heilsufar hans. — Hr. Martin er ekki heima, sagði ég við hann. — Gott. Það var líka ungfrú Martin, sem ég ætlaði að hitta. Vilduð þér gera svo vel og segja henni, að ég sé hérna? Ég vísaði honum inn í setu- stofuna og fór að gá að Mellyoru. Henni virtist bregða en flýtti sér niður. Hálftíma seinna ók vagn- inn burt og hurðinni hjá mér var hrundið upp og Mellyora kom inn. Hún var náföl af geðshrær- ingu og ég hélt sem snöggvast, að það ætlaði að líða yfir hana. — Það er hann pabbi, Kerensa. Læknirinn segir, að hann sé al varlega veikur. — Ó ... . Mellyora! — Hann segir, að hann sé með eitthvert æxli og hefði ráðið hon um til að fá álit annars læknis. Pabbi sagði mér ekkert frá þessu. Ég vissi ekki, að hann hefði leit að til sérfræðinga. Ég þoli þetta ekki Kerensa. Þeir segja, að hann sé að dauða kominn. — Hvernig geta þeir vitað það? — Þeir eru alveg vissir um það. Hilliard læknir segir, að hann eigi ekki nema þrjá mán- uði ólifaða. — Það er ómögulegt. — Hann segir, að pabbi megi ekki halda áfram að vinna, því að þá falli hann alveg saman. Hann vill láta hann fara í rúm- ið og hvíla sig . . . Hún greip höndum fyrir andlitið. Ég gekk til hennar og vafði hana örmum. — Þeir geta alls ekki verið vissir um þetta, reyndi ég að hugga hana. En ég trúði þessu ekki sjálf. Ég vissi nú, að ég hefði séð dauðamörkin á séra VORGUNBLAÐID Charles Martin, en engin lífs- mörk. Eftir þetta var allt orðið breytt. Prestinum hrakaði með degi hverjum. Við Mellyora hjúkruð um honum. Hún vildi allt gera fyrir hann, sem hún gat og ég vildi hjálpa henni við það. Davíð Killigrew kom á prest- setrið. Hann var aðstoðarprestur sem hafði tekið að sér störf prests ins, þangað til önnur skipan yrði gerð, eins og það var orðað. En raunverulega þýddi það þangað til séra Charles dæi. Heimilið var orðið einkenni- lega gjörbreytt og ég held, að all ir hafi verið þakklátir fyrir séra Davíð, sem var tæplega þrítug ur og einhver viðkunnanlegasti maður, sem ég hafði hitt. En þótt hæggerður væri, gat hann haldið góðar ræður og gegnt öðr um preststörfum með dugnaði, sem kom okkur á óvart. Sunnudagur 7. februar 1965 10 Eftir skamman tíma höfðum við alveg gleymt þýðingu veru hans þarna, því að hann varð fljótt eins og einn af fjölskyld- unni. Hann létti að nokkru á- reynslunni af Mellyoru, með því að sitja langtímunum saman yfir föður hennar. Og hann hug- hreysti og huggaði okkur. Og hvað vinnufólkið snerti þá varð hann vinsæll hjá því, eins og reyndar hjá öðrum í sókninni. Jólin komu og það voru dauf leg jól hjá okkur. Frú Yeo hafði þó ýmislegan undirbúning í eld húsinu, af því að hún sagði, að fólkið ætlaðist til þess að hún vissi einnig, að presturinn vildi svo vera láta. Davíð var á sama máli. Ég fór út með honum að ná í jólagreinar. Þegar hann var að skera þær til, gat ég ekki stillt mig um að segja: — Til hvers er- um við að þessu. Það er víst eng inn í skapi til að skemmta sér. — Það er betra að halda áfram að vona, sagði hann hóglega. — Er það? Þegar við vitum ó- sköp vel, að þessu er bráðum lok ið. — Við lifum á voninni, sagði hann. Ég viðurkenndi, að þetta væri satt og leit fast á hann. — Hvað vonar þú? spurði ég. Hann þagði um stund, en sagði síðan: — Ég býst við, að ég voni það sama sem allir aðrir . . . að Blaðburðarfólk öskast til blaðburðar í eítirtalin hverfi wgpititMftMfr Sími 22-4-80 Tjarnargata Grettisgötu trá 1-35 Lambastaðahverfi Lindargötu — Skrifstofustjórinn heimsótti mig í dag. eignast hús og heimili og eigin fjölskyldu. — Og þú veizt, að þær vonir muni rætast? Hann færði sig nær mér og svaraði: — Já, ef ég gæti fengið brauð. — En ekki fyrr? — Móðir min hefur verið far- lama árum saman, sagði hann. — Fyrst og frernst hef ég skyldur við hana. — Hvar er hún nú? — Hún er hjá frænku sinni, sem sér um hana þangað til ég kem aftur. Hann hafði roðnað ofurlítið og ég sá, að hann var feiminn. Hann var að hugsa um það, að ef séra Charles dæi, hefði hann góða möguleika á að fá brauðið. Jólin komu og liðu. Við reynd um að standa okkur eins og hetj ur. Davíð gegndi embættinu þann ig, að allir voru ánægðir með hann og ég heyrði frú Yeo segja, að ef þetta ætti að verða á ann- að borð, væri það bezt þannig. Það var á Þrettándakvöld, sem Kim kom í heimsókn. Ég sá hann koma ríðandi á jörpu hryssunni sinni og mér datt í hug, hvað hann væri fallegur og karlmann legur — ekki vondur eins og Johnny og heldur ekki neinn heil lagur engill eins og Justin — heldur nákvæmlega eins og karl- maður ætti að vera. Ég vissi hversvegna hann kom. Hann var í þann veginn að leggja upp í ferðina og var kominn að kveðja. Ég fór út að taka á móti honum, af því að ég þóttist vita, að ég væri sú, sem honum þætti fyrir að skilja við. — Hvenær ferðu? spurði ég og reyndi að dylja örvæntinguna í röddinni. — Á morgun. — Ég trúi ekki, að þig langi nokkurn skapaðan hlut til að fara. — Jú, ofurlítinn hluta af mér langar að fara, en hitt allt vill heldur vera kyrrt. — Hversvegna þá að fara? — Góða Kerensa, það er búið að ganga endanlega frá þessu öllu. — Kim, sagði ég með ákafa, — KALLI KUREKI •*- 'Xr-' Teiknari: J. MORA „Hlus'taðu nú á. Þessi skrifstofa er úti eftir viðskiptum og hún veit ná- kvæmlega hvað er verðmætt þegar hún sér það. Við skulum setja á stofn ok'kar eigin námu.“ „Gull hefur venju lega í för með sér vandræði og blóð- bað. Ég er bóndi en ekki námugraf- ari.“ „Ég æ’;la að taka þessum 5000 doll- urum og ég ætla að kaupa heilmikið af nautgripum og eitthvað af öðrum munaði. Við skulum iáta skrifstofuna um áhættuna af námuimi.** „Ég vissi alltaf að þú hefðir enga hæfileika, þegar það snertir gullleit.“ „Jæja, við skulum leggja þetta mál undir frænku. Við skulum fara heim.“ ef þú vilt ekki fara þá . . . — Já, en ég vil fara til útlanda og verða ríkur. Og svo þegar ég er orðinn það, kem ég aftur og gifti mig og eignast börn. Þetta voru næstum sömu orð in, sem Davíð Killigrew hafði sagt við mig skömmu áður. — Þú ÆTLAR þá að koma aft- ur, Kim? sagði ég alvörugefin. Hann hló og kyssti mig laust á ennið. Ég varð ofsakát, en svo varð ég strax dauf aftur. — Þú ert svo lík spákonu, sagði hann, eins og til að afsaka kossinn. En svo bætti hann við, léttari í bragði: — Ég held þú sért einhverskonar galdranorn . . . auðvitað af bezta tagi. Svo stóðum við stundarkorn og brost um hvort til annars, áður en hann hélt áfram: — Þessi nepja hér getur ekki verið holl . . . jafnvel galdranornum. Komdu, við ætt- um heldur að hafa okkur í húsa- skjól. Hann tók mig undir arminn og við gengum saman inn í húsið. f setustofunni biðu þær Mellyora og ungfrú Kellow og undir enis og við komum inn, hringdi ung- frú Kellow á te. Kim talaði aðallega um Ástra líu. Hann var frá sér af hrifn- ingu, þegar hann lýsti landslag- inu, framandlegum fuglum og rakahitanum. Nú væri þar sum- ar, sagði hann okkur. Hann sagði okkur frá stöðinni, sem hann ætlaði til, hversu ó- dýrt land væri þarna og eins vinnukrafturinn. Ég hugsaði með söknuði til kvöldsins þegar bróð ir minn var fastur í dýrabogan- um og þessi maður hafði losað hann og bjargað honum. Ef ekki Kim hefði verið, gæti Jón bróðir minn nú verið „ódýr vinnukraft ur“, einhversstaðar í heiminum. Ó, Kim hugsaði ég. Bara ég mætti fara með þér. Garðahreppur Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Garðahrepp er að Hof- túni við Vífilsstaðaveg, sími 51247. AKUREYRI Afgreiðsla Morgunblaðs- ins er að Hafnarstræti 92, sími 1905. Auk þess að annast þjón- ustu blaðsins við kaupend- - ur þess í bænum, er Akur- eyrar-afgreiðslan mikilvæg- ur hlekkur í dreifingarkerfi Morgunblaðsins fyrir Norð- urland allt. Þaðan er blaðið sent með fyrstu beinu ferð- um til nokkurra helztu kaup staða og kauptúna á Norður- landi, svo og til fjölda ein- staklinga um allan Eyjaf jörð og víðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.