Morgunblaðið - 13.03.1965, Side 1
28 síður
fZ. árgangur.
61. tbl. — Laugardagur 13. marz 1965
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gunnar Thoroddsen verður
sendiherra í Kaupmannahöfn
Stefán Jóhann lætur af starfi í maí
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Gunnar Thoroddsen, fjármálaráð-
berra, verði sendiherra íslands í Kaupmannahöfn. — Barst
Waðinu um þetta í gær svohljóðandi tilkynning frá utan-
ríkisráðuneytinu:
„Stefán Jóhann Stefánsson, ambassador íslands í Kaup-
mannahöfn, hefur náð aldurshámarki embættismanna og
lætur því af störfum í maí-mánuði nk.
Ákveðið hefur verið, að við ambassadorsstarfinu í Kaup-
mannahöfn taki Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra“.
Gunnar Thoroddsen er löngu
Jjjóðkunnur maður. Hann hefur
tekið þátt í stjórnmálum allt frá
seskuárum. Hann er fæddur í
Reykjavík 29. des. 1910 og er því
54 ára gamall. Hann lauk stúd-
entsprófi árið 1929 og lögfræði-
prófi frá Háskóla íslands 1934
með einni hæstu einkunn, sem
nokkur lögfræðingur hafði þá
hlotið. Gunnar Thoroddsen var
prófessor við lagadeild Háskól-
ans frá 1. marz 1942 til 10. febrú-
ar 1947.
Árið 1947 var hann kjörinn
borgarstjóri í Reykjavík og
gegndi því embætti til haustsins
1959.
Hann var fyrst kosinn á þing
árið 1934 og sat þá á þingi til
ársins 1937 sem landskjörinn
þingmaður. Árin 1942 til 1949
var hann þingmaður Snæfellinga,
en haustið 1949 var hann kosinn
á þing í Reykjavík og hefur ver-
ið þingmaður Reykvíkinga síðan.
Gunnar Thoroddsen varð fjár-
málaráðherra í 5. ráðuneyti Ol-
afs Thors haustið 1959 og hefur
gegnt því embætti síðan. Honum
hafa verið falin fjölmörg önnur
trúnaðarstörf, bæði í þágu
Reykjavíkurborgar og þjóðar-
innar í heild. Hann hefur ritað
íjölda ritgerða um lögfræðileg
efni, auk mikils fjölda stjórn-
málagreina í blöð og tímarit.
Varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins var Gunnar Thorodd-
sen kjörinn á Landsfundi flokks-
ins haustið 1961, þegar Bjarni
Gunnar Thoroddsen.
Gunnar Thoroddsen er kvænt-
ur Völu Ásgeirsdóttur, forseta
Ásgeirssonar og frú Dóru Þór-
hallsdóttur, hinni glæsilegustu
konu, og eiga þau hjón fjögur
börn.
A að nota eiturgas til
að klekkja á Kúrdum?
London, 12. marz AP.
Af fréttum austan úr írak þyk-
ir sýnt a® íraksstjórn hyggi nú á
mikla herferð gegn Kúrdum og
vilji einskis láta ófreistað til
þess að ná á sitt vald Mustafa
Barzani, leiðtoga þeirra. Er jafn
vel talið að stjórnin muni ekki
skirrast við að beita eiturgasi í
berferð þessari.
Segja heimildarmenn AP í
Bagdad, að til landsins séu nú
ikomnar um 70.000 gasgrimur, að
eendar um Egyptaland og hafi
Ihermönnum verið kennd með-
tferð þeirra. Þá er sagt að fimm
herdeildir séu nú staðsettar á
tmörkum fjalllendis þess er
Kúrdar eigna sér og kalla Kúrd-
jstan, en Kúrdistan á land a'ð
oJíus-væðinu mtkla við Kurkuk,
eem íra-kstjóinÐ heíur ai 90%
allra gjaldeyristekna sinna.
Kúrdar hafa oft áðu.r átt í
ihöggi við landsstjórnina í írak
og siðast staðið af sér herferðir
'þi'iggja stjórna á árunum 1961
til 1964. Krefjast Kúrdar sjálf-
stæðis í sínum landshluta, og
vilja fá sinn skerf af tekjum
ríkisins af oliuframlei'ðslu og
öðru og vilja að S.Þ. eða alþjóð-
legir samnin.gar séu settir til
tryggingar sjálfstjórn þeirra.
í febrúar í fyrra var samið um
vopnahlé milli Barzanis og stjórn
ar Abdel Salam Arefs, en ekki
hefur verið samið um neitt ann-
að síðan og stjórn Arefs vísa’ð á
bug kröifum Kúrda. Ókyrrð hef-
ur verið í héruðum Kúrda og
oít komið til átaka en landstjórn
in jaínan kennt um stigamönn-
iuu.
, »9
Systur dauð-
44 sýknaðar
Benediktsson tók við formennsku
flokksins af Ólafi Thors.
Óhætt er að fullyrða, að Gunn-
ar Thoroddsen sé í dag meðal
vinsælustu og mest metnu stjórn
málamanna þjóðarinnar. Stjórn-
málabárátta hans hefur jafnan
mótazt af prúðmennsku og glæsi
leik. Mun íslendinga ekki greina
á um það, að skipan hans í sendi
herraembættið í Kaupmanna-
höfn muni verða landi hans og
þjóð til gagns og sóma.
ans
Munchen, 12. marz.
— AP, NTB —
i DÓMSTÓLL í Miinchen sýkn-
aði í dag 14 þýzkar hjúkrun-
1 arkonur, sem ákærðar voru
I fyrir aðstoð við „líknarmorð"
r á vegum nazista á árunum y
.1942—1945. Hjúkrunarkonurn i
ar, sem eru á aldrinum 47 til /
1 68 ára, unnu allar við geð-1
I veikrahæii í Obrawalde- Me-1
I sereitz, sem nú er í Austur- (
Þýzkalandi. Talið er að þar
hafi 8 til 10 þúsund sjúkling-
I ar verið teknir af lífi þessi ár.
Ákæruvaidið hafði krafizt
. eins til f jögurra ára fangelsis
fyrir átta hjúkrunarkvenn-
I anna en niælt með sýknun
| hinna sökum ónógra sannana.
i Albert Thomas, dómari, studdi
úrskurð sinn þeim rökum, að
hjúkrunarkonurnar hefðu
1 ekki gert sér grein fyrir því
| að athæfi þeirra væri glæp-
i samlegt, þær liefðu einungis
unnið eftir skipunum lækn-
anna og verið háðar ströng-
um aga.
Þannig birtust þau löndum sínum í sjónvarpi á miðvikudagimi,
Margriet Holiandsprinsessa og unnusti hennar, Pieter van Vollen-
hoven, sem þá opinberuðu trúlofun sína. Margriet er þriðja elzta
dóttir Júliönu drottningar en önnur í röð ríkisarfa, því næst elzta
systirin Irenc afsalaði sér öllu tilkalli til krúnunnar er hún tók
kaþólska trú og kaþóiskan prins sunnan af Spáni, Don Carlos af
Bourbon-Parma, sér fyrir eiginmann í fyrravor. Margrét prinsessa
er 22 ára, mannsefnið 25 ára. Þau eru bæði að lesa lögfræði og
Pieter hefur nýlokið fyrrihluta námsins.
Mikil ólga í Alabama vegna
láts séra Reebs
Fjórir menn handteknir, sakaðir um morð
— Hópfundir og mótmælasamkomur víða
um Bandaríkin — Johnson forseti ræðir
við ýmsa aðila
Selma, Alabama, 12. marz.
NTB—AP.
I DAG var stöðvuð hópganga
sem fara átti fram í Selir.a í
Alabama, til minningar um
hvíta prestinn, séra James Reeb,
er lézt á sjúkrahúsi í gærkvölili
af völdum árásarinnar er hann
varð fyrir í Selma á þriðjudag.
Fjórir menn hafa verið hand-
teknir vegna atburðar þessa og
verða ákærðir fyrir morð. —
Mótmælasamkomur og hópgöng
ur hafa verið haldnar víða í
Bandarikjunum í dag og 16 prest
ar gengu á fund Johnsons for-
seta i morgun. Katzenbach dónus
málaráðherra segir ríkislögregl-
una í Alabama hafa brotið alríkis
lög er hún réðst gegn göngu-
mönnum í Selma á sunnudag.
Johnson forseti átti í dag
fjögurra stunda viðræður við
ýmsa aðila u.m réttindabaráttu
blökkumanna í Alabama. Von er
á yfirlýsingu forsetans um mál-
ið í næstu viku og síðan ráðlgert
að lagt verði fyrir þingið frum-
varp sem tryggja á jafnan kosn-
ingarétt allra Bandaríikjajmamna
én tillits til kynþátta.
íbúar Selma syrgja
James Reeb.
James Reeb, 38 ára gamall
hvítur prestur í Boston, lézt í
dag á sjúkrahúsi í Birmingham
í Alaþama. Séra Reeb var kvænt
ur maður og átti fjögur börn.
Hann kom til Selma á þriðjudag
að tilmælum Dr. Martins Luther
King, eins og svo margir aðrir
klerikar, til að styðja blökku-
menn í Alabama í réttindabar-
áttu þeirra.
Hópur hvítra ofstækisimanna
réðist þar á Reeb er hann kom
út úr veitingahúsi blökkumanna
ása.mt tveimur prestum öðrum.
Hann var fiuttur í sjúkrahús í
snatri með brotna hötfuðkúpu og
heilablæðingu og þar var
gerður á honum uppskurður, en
Reeb var alltaf þungt ha’dinn
og lítil von um að hann héldi JifL
Þrír hvitir menn voru hand-
teknir í Selma á miðvikudag,
vegna árásarinnar á hvítu prest
ana og fjórði maðurinn tekinn
höndum þar í dag. Verða þeir
nú sóttir til saka fyrir morð.
Mikill mannfjöldi hafði safn-
azt saman í og við kirkju eina
Framhald á bls. 27
,Sleppum þeim
ekki#, segir Nanda
Nýju Dehli, 12. marz, AP.
Indverska stjórnin sagði í dag
að hún myndi ekki sleppa úr
haldi kommúnistum þeim hlynnt
um Peking-stjórninni, sem nú
sitja í fangelsi, nem.a þeir hyrfu
frá þeim fyrirætlunum sínum
að ná undir sig völdum méð að-
stoð kínverskra kommúnista.
G. L. Nanda, innanríkisráð-
herra, gaf þessa yfirlýsingu í
indverska þinginu í dag, er hann
vísaði á bug kröfum kommún-
ista og vinstriflokkanna um að
láta mennina lausa. „Við lifum
nú á erfiðum tímum,“ sagði
Nanda, tilveru okkar sem sjálí-
stæðrar þjó'ðar er ógnað af Kín-
verjum handan Himalaya-fjalla
og Pekingsinna kommunistum
innanlands. Við getum ekki evtt
billjónum rúpía í landvarnir og
látið óátalið að þessar sömu varn
ir séu ónýttar innanfrá".
Kvað Nanda það engu skipta
þó einhverjir hinna fangelsuðu,
sem eru um 900 talsins, hefðu
veríð kjörnir á þing, eins og
kommúnistarnir 29 í Keraia nú
fyrir nokkru.