Morgunblaðið - 13.03.1965, Qupperneq 5
Laugardagur 13. marz 1965
MORGU NBLAÐIÐ
5
Þessar tvæ-r myndir eru frá
Drangey, sem frægust er af
Grettissögu, en þó einnig fræg
fyrir það að vera bjargvætt-
ur Skagfirðinga, því að þá
var úti vetrarþraut er fuglinn
kom í eyna á vorin og hægt
var að veiða hann. Fyrrum
var talið a'ð óvættir margir
ætti byggð í björgum Drang-
eyar og grönduðu sigamönn-
um. Þess vegna var Guðmund
ur biskup Arason fenginn til
að vígja björgin. Hann byrjaði
í Hæringshláupi suðvestan á
eynni og hélt svo áfram rang
sælis umhverfis eyna þar til
hann kom að bjargi því hinu
• miklá,' sem er fyrir norðan
Lambhöfða. Þá seildist
stór og loðin loppa út úr
bjarginu og skar á vað biskups
með biturri skálm, en þó hélt
einn þátturinn festarinnar,
því að hann var þaulvígður.
Um leið heyrði biskup rödd í
bjarginu: „Vígðu nú ekki
meira, Gvendur biskup, ein-
hvers staðar verða vondir að
vera“. Lét biskup þá ctraga
sig upp og kvaðst eigi mundu
vígja bjargið. Heitir þáð síð-
an Heiðnaberg. Þar í bjarginu
má sjá svartan kross, sem
myndast af dökkum grjótlög-
um, en þjóðsagan segir, að
þennan kross hafi Guðmundur
biskup markað í bergið til að
varna því að óvættirnar þar
gerðu illt af sér.
í björgunum austan á eynni
heitir á einum stáð Vatnshyllu
torfa. Þar er hin eina upp-
sprettuvæta sem til er á eynni
og er sagt að í henni muni
vera um 20 lítrar vatns þegar
hún er full. En ekki er það
heiglum hent að sækja þang-
að vatn og mun það sennilega
örðugasta vatnsból á íslandi.
Það er merkt með hvítum
krossi á bjargið á stærri mynd
ÞEKKIRÐI)
LANDIÐ
ÞITT?
VÍSUKORN
HAF AÐGÁT
Vill á bjáta veslings — menn,
vörumst fát í þokum.
Lífsins gáta óleyst enn,
erum mát að lokum?
St. D.
FórnarlambSð
Höskuldur Skagfjörð.
Vestmannaeyingar lögðu land
unuir fót og gerðu innrás á meg-
inlandið, og nú skal Fórnarlamb-
inu fórnað í Reykjavík og á Ak-
ureyri. Sýningar fara fram í
Tjarnarbæ í dag og á morgun,
sunnudag kl. 8.30. Miðar seldir
á sama stað.
Góður rómur var gerður að
þessu leikriti þar í Eyjum úti og
eins í Hornafirði og þar fyrir
austan, og er þess að vænta, að
Reykvíkingar taki mannlega á
móti Vestmannaeyingum og fjöl-
menni í Tjarnarbæ til að horfa á
fórnina. Leikstjórl Fórnarlambs-
ins er Höskuldur Skagfjörð, en
hann hefur að undanförnu sýnt
lofsverðan dugnað við að leið-
beina fólki úti á landsbyggðinni
við leiklist.
Sntóvarningur
Smurningsolíur eru notaðar til
að minnka núning milli tveggja
hluta. Áður fyrr voru feitar olí-
ux úr dýraríkinu og jurtaríkinu
algengustu smurningsefnin, en
nú eru olíur úr steinaríkinu lang
mest notaðar.
60 ára er í dag Petrína Nikul-
ásdóttir, Pálkagötu 20. Hún verð-
ur stödd í dag á Hvassaieiti 35.
Laugardaginn 6. marz opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú
Hrafnhildur V. Rodgers, Gar’ða-
stræti 15 og Arnór Sveinsson,
Sigtúni 29.
Málshœttir
GAMALT os
Fuglinn í fjörunni
hann heitir kría.
Svo skal ég kveða
og barninu minu bía.
Von er vakandi manns draum-
ur.
Vinur, þegar þú vilt mér eitt-
hváð.
Vín inn, vit út.
Verkin sýna mer' -
Viljugan er hvc.. rszt að
kjósa.
Viljinn dregur hálft hlass.
Hver þekkir staðinn ?
Við rákumst á þessa gömlu mynd í myndamótasafninu hér. Ekkert
stóð við hana. Við óskum eftir að fá að vita frá lesendum, hvaða
hús sjást á myndinni, en hún er úr Reykjavík, og einnig hvort
nokkur þekkir gamla vatnsberann, sem gengur á götunni? Gaman
er einnig að veita athygli ljóskerinu og tilhöggnu grágrýti, sem ligg-
ur á gangstéttinni. Svar oskast sem fyrst, ef hægt er, og sendist
DagbókinnL
Sængur — Koddar
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar. Eigum dún- og fið-
urheld ver.
Dún og fiðurhreinsunin
Vatnsstíg 3. — Sími 18740.
Lögregluþjónn
óskar eftir 2—3 herb. íbúð
nú þegar eða 14. maí, í
Hafnarfirði eða Reykjavík.
Algjör reglusemi. Upplýs-
ingar í síma 50054.
Atvinna óskast
Togarasjómaður öskar eftir
einhvers konar vinnu í
landi. Hef bílpróf. Tilboð
merkt: „Vinna—9952“ send
ist Mbl. fyrir mánudagskv.
Keflavík — Njarðvík
íbúð óskast nú þegar, eða
síðar. Góð leiga og fyrir-
framgreiðsla. Tilboð óskast
sent afgr. Mbl. í Keflavík,
merkt: „Húshjálp—823“.
Ætlið þér í ferðalag 1965?
Góður ferllaundirbúrtingur
er grundvöSlur goðs ferðalags
Hvort sem þér siglið með „FOSSUNUM“ eða fljúgið
með flugvélum FLUGFÉLAGS ÍSLANDS eða LOFT-
LEIDA, eða annarra flugíélaga, hvert sem halda skaL
GETIÐ ÞÉR PANTAÐ OG KEYPT FARSEÐILINN
í Ú T S Ý N . ÁN NOKKURS AUKAKOSTNAÐAR.
★ FARPANTANIR OG FARMIÐASALA
★ HÓTELPANTANIR — BÍLALEIGA.
★ HINAR VIÐURKENNDU, VÖNDUÐU HÓP-
FERÐIR Ú T S Ý N A R .
★ SKIPULAGÐAR FERÐIR EINSTAKLINGA Á
LÆGSTU FÁANLEGU FARGJÖLDUM.
★ FERÐIR MEÐ ENSKUM OG DÖNSKUM FERÐA-
SKRIFSTOFUM, GREIÐSLA í ÍSL. KRÓNUM.
Ferðaþjónusta okkar kostar ekkert, en sparar yður
fyrirhöfn, mistök og óþörf fjárútlát. Komið fyrst í
Ú T S Ý N , áður en farpöntun er gerð. Við munum
leitast við að veita yður örugga og aðlaðandi ferðaþjón-
ustu í nýjum húsakynnum í hjarta borgarinnar.
ÚTSÝNARFERÐ ER ÚRVALSFERÐ
FYRIR VÆGT VERÐ!
DRAGIÐ EKKI PÖNTUN YÐAR!
FERÐASKRIFSTOFAN
ÚTSVlNI
Austurstræti 17 — Sími 20 100.
Dugleg skrifefofustúlka
óskast í nokrra mánuði. Vélritunarkunnátta nauð-
synleg. Gott kaup. Tilboð merkt: „Dugleg — 9948“.
breiðfirðinga-
m.
>
u&in<
DANSLEIKUR í kvöld kl. 9.
Tvær hljómsveitir leika uppi og niðri
ORIOIM og ?
Aðgöngumiðasaa frá k. 8.
✓